Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Side 3
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
3
I>V
Fréttir PHILIPS
Réttur þingmanna til upplýsinga:
Forsætisráð-
herra vill leita
lögfræöiálits
- ráöherra greinir á um málið
„Ég hvet forsætisráðherra til þss
að láta framkvæma lögfræðilega út-
tekt á þessu máli,“ sagði Svavar
Gestsson, formaður þingfiokks Al-
þýðubandalagsins, í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær um
rétt þingmanna til upplýsinga um
stofnanir og fyrirtæki í eigu ríkisins.
„Ég get í sjálfu sér tekið undir
það sjónarmið að fá lögfræðilega út-
tekt í málinu," sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra í svarræðu sinni.
Þetta var eiginlega eina niður-
staðan sem fékkst í utandagskrár-
umræðu um þetta mál.
Ásta R. Jóhannesdóttir, þingkona
Þjóðvaka, fór fram á umræðuna.
Ástæðan var svar Halldórs Blöndal
samgönguráðherra fyrr í vikunni
við fyrirspurn hennar um laun
stjórnenda Pósts og síma hf. Þá neit-
aði samgönguráðherra að gefa þau
upp. Hann taldi það ekki hægt þar
sem fyrirtækið væri orðið hlutafé-
lag, þó 100 prósent í eigu ríkisins.
Menn greinir mjög á um þetta at-
riði. Til að mynda er Finnur Ingólfs-
son viðskiptaráðherra þeirrar skoð-
unar að þingmenn eigi fullan rétt á
að fá þessar upplýsingar þótt ríkis-
hlutafélögum sé breytt í hlutafélög í
eigu ríkisins.
í svari Davíðs Oddssonar forsæt-
isráðherra í gær kom fram að þetta
væri umdeilanlegt samkvæmt
hlutafélagalögum. Aðrir sögðu að
það gengi ekki upp að Alþingi afsal-
aði sér réttinum til að fá upplýsing-
ar um ríkisfyrirtæki með því að
gera þau að hlutafélögum. Ef það
reyndist rétt yrði að taka breytingu
ríkisfyrirtækja i hlutafélög til end-
urskoðunar.
Guðný Guðbjömsdóttir, þingkona
Kvennalista, sagði það fara í vöxt að
svör ráðherra til alþingismanna
væru allsendis ófullnægjandi. Gagn-
rýni þingmanna á svör ráðherra
hefur farið vaxandi að undanfömu.
-S.dór
Tapa 52 milljónum um páskana:
Fáránlegt aö
velja þessa
tímasetningu
- segir Dagsbrúnarmaður
„Við erum mjög ósáttir hér við
það hvernig að þessari verkfallsboð-
un hefur verið staðið. í stað þess að
boða verkfall eftir páskana þá koma
þarna þrír helgidagar sem við fáum
ekkert kaup fyrir en hefðum annars
fengið. Þar verðum við af 5.000
krónum á dag og ég er viss um að
hver svo sem útkoma kjarasamn-
inganna verður þá munum við vart
ná því tapi á árinu,“ segir Guð-
mundur Sigurðsson, félagi í Dags-
brún.
Guðmundur segir ekki óeðlilegt
að reikna með 5.000 krónum á mann
á dag og því megi reikna með því að
verkfallsfólk tapi um 52 milljónum á
því að Dagsbrún/Framsókn skyldi
boða verkfall fyrir páska.
„Það hafa flestir haft vit á því að
fresta verkfalli fram yfir páska og
þar með fær fólk þessa helgidaga
bprgaða, þ.e. skírdag, föstudaginn
langa og annan páskadag. Við fáum
hins vegar ekkert og yfir því erum
við ævareiðir," segir Guðmundur
Sigurðsson.
Á verkfallsvakt Dagsbrún-
ar/Framsóknar var allt annað við-
horf uppi þegar DV bar það undir
menn hvort viðhorf Guðmundar
væri hið almenna viðhorf, hvort
mönnum fyndist almennt að tíma-
setningin á verkfallinu væri röng.
„Menn vissu alveg nákvæmlega á
hvaða tímapunkti var verið að boða
vinnustöðvunina og gátu allt eins
búist við því að það drægist fram
yfir páska að ná samningum. Við
sjáum það bara á úrslitunum úr at-
kvæðagreiðslunni í stóru samninga-
nefndinni að menn voru ekkert að
velta þessu fýrir sér þar. Við getum
alltaf reiknað með því að einn og
einn líti á þetta sem stóra málið en
fjöldinn gerir það alls ekki,“ sagði
maður sem DV talaði við á verk-
fallsvaktinni í gær. -sv
Vinsælasta kvikmynd alira tíma, Star Wars, var forsýnd í Háskólabíói á
fimmtudaginn. Þeir Trausti Skúlason, Jóhann Pedersen, Þorsteinn L. Helga-
son og Ómar Örn Hauksson grófu upp öll gömlu Star Wars-leikföngin sín og
hafa stillt þeim upp í anddyrinu ásamt öörum fylgihlutum myndanna.
FERÐATÆKI MEÐ GEISLASPILARA
• 100 W PMPO magnari
• Hátalarakerfi m/bassaendurvarpi
• Fjarstýring
• Slembival
• Stafræn hljóðstjórn: Jazz, DBB o.a.
• Incredible Sound - ofurhljómurinn
frá Philips
'YYiunum efltir flé
L
e rmutcjciröornunum
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt
MGDZ7
15.900 kr.
FERÐATÆKI
MEÐ GEISLASPILARA
• 20 W PMPO
• Tónjafnari
• Lagaminni á geislaspilara
«)