Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Page 11
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
•k
★
★
w
menning
■& it
11
Umsjón
Silja Aðalsteinsdóttir
J ón Leifs
BIS útgáfufyritækið hefur nýverið sent
á markað hljómdisk undir nafninu Geys-
ir and Other Orchestral Works. Þar á er
að fmna hljómsveitarverk eftir Jón Leifs
í flutningi Sinfóníuhljómsveitar íslands.
Stjómandi er Osmo Vánská en Japis
dreifir.
Þeim fjölgar nú stöðugt verkum Jóns
Leifs sem gefin hafa verið út á hljómdiski.
Tónlistaráhugafólk getur æ betur gert sér
grein fyrir framlagi þessa sérstaka ís-
lenska tónskálds til tónlistarinnar og ís-
lenskrar menningar yfirleitt. Verkefna-
valið á þessum diski er áhugavert m.a.
vegna þess að það gefúr nokkra sýn yfir
þroskaferil tónskáldsins. Þarna er að
finna fyrsta hljómsveitarverk þess og
einnig það síðasta ásamt öðrum mikil-
vægum verkum.
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
Það er mjög fróðlegt að heyra fyrsta
hljómsveitarverk hans „Trilogia piccola“
sem hann samdi rúmlega tvítugur. Þar
koma fram, einkum í fyrsta þættinum,
flest þau einkenni sem setja sterkan svip
á síðari verk hans, þverstæðir þríhljóm-
ar, þrástef og einfold einkar heildstæð
form þar sem langvarandi stigmögnun í
styrk er meðal helstu einkenna. Þessi sér-
kenni verða öll mun skýrari í síðari verk-
unum. Jón virðist hafa gert sér góða grein
fyrir þvi í hverju hann var frábrugðinn
öðrum tónskáldum og haft þrek og hug-
rekki til þess að draga það fram og undir-
strika, hvað sem áliti samtímans leið.
Fyrir bragðið er arfur hans frumlegur,
sjálfstæður.
Forleikurinn að Galdra-Lofti stendur
nokkuð sér á báti. Efniviður er þar fjöl-
breyttari en algengast er hjá Jóni og með-
ferð hans nokkru frjálslegri. Það er eins
og tónskáldið sé að þreifa fyrir sér, hafi
ekki enn sannfærst fullkomlega um hver
hinn persónulegi tónn sé. Allar slíkar efa-
semdir hafa hins vegar vikið í verkum
eins og „Trois peintures abstraites" op. 44
og „Geysir“ op. 51. Þar er stíllinn fullmót-
aður. Áherslan sem Jón leggur á sérkenni
sín í þessum og sumum öðrum af síðari
verkum sínum gengur stundum svo langt
að jaðrar við einhæfni. Verkin fá vélræn-
an svip. Slíku er hins vegar ekki til að
dreifa i Hughreystingu, Intermezzo fyrir
strokhljóðfæri, sem er mjög vel heppnað
verk. Túlkunarhæfileikar stjómandans
Vánská njóta sín þar sérlega vel.
Flutningur Sinfóníuhljómsveitarinnar
á þessum verkum er fýrsta flokks og
frammistaða stjómandans með ágætum.
Eitt af því sem setur mikinn svip á
diskinn er valið á upptökustað, sem er
Hallgrímskirkja með sínum mikla ómi.
Hljómurinn er ríkur og litmikill eins og
vænta mátti og merkilega skýr miðað við
hinn mikla hljómburð og verður furðu lít-
ið vart við óþægindi af hans sökum.
Sum verkanna á diskinum era til í
eldri upptökum. Þannig er fróðlegt að
bera saman þessa upptöku af Geysi og
Trois peintures við upptöku sem Sinfón-
íuhljómsveit Islands gerði undir stjóm
Pauls Zukofskys fyrir nokkrum árum.
Þar er farin leið í flestu þveröfug þeirri
sem Vánská velur. Upptakan er mjög
Þjóðarbókhlaðan í París. Nýtt kennileiti í heimsborginni.
Franska bóka-
safnið fékk
verðlaunin
Mies van der Rohe Pavilion verð-
launin í evrópskri húsagerðarlist
voru fyrir skömmu veitt í fimmta
sinn. Það var þjóðarbókhlaðan nýja
í París, teiknuð af arkitektinum
Dominique Perrault, sem þau hlaut
i þetta sinn.
Þjóðarbókhlaðan var valin úr
hópi 127 bygginga sem til greina
komu fyrir árið 1996, en 35 komust í
undanúrslit. Úrskurðurinn var
kveðinn upp 10. mars á fundi verð-
launanefndarinnar í Þessalóníku,
sem er menningarborg Evrópu 1997.
Formaður nefndarinnar var Fritz
Neumeyer og með honum sátu sjö
aðrir nafnfrægir arkitektar.
Verðlaunin eiga að auka áhuga
almennings á menningarlegu gildi
nútímahúsagerðarlistar og áhrifum
hennai’ á þróun evrópskra borga.
Þau vora sett á fót fyrir tíu árum af
Evrópuráðinu og Mies van der Rohe
stofnuninni i Barcelona, en húsa-
kynni hennar era álitin gott dæmi
um nýjungar í húsagerðarlist.
Myndabók um verkin 35 sem til
greina komu verður gefin út á ár-
inu.
í rökstuðningi dómnefndar segir
að Franska þjóðarbókhlaðan hljóti
verðlaunin í ár vegna þess hvað
hún setji mikilsverðan svip á borg-
ina. Hún er fyrsta stórhýsið á
vinstri bakka Signu í austurborg-
inni og opnar umtalsvert rými í
kringum sig sem kallast á við önn-
ur kunn torg borgarinnar. Tumam-
ir fiórir eiga eftir að verða kenni-
leiti í borginni, viðmiðanir íbúa
hennar og gesta líkt og önnur lóð-
rétt minnismerki enn þá frægari.
Efsti hluti þeirra er upplýstur á
kvöldin svo að þau speglast glæsi-
lega í ánni bæði á nóttu og degi.
Enn fremur var dómnefiidin hrif-
in af þvi hvemig bókasafhið er líka
hugsað sem rannsóknarstofnun í
hugvísindum.
Vísanir, berg-
mál, áhrif
eða hvað?
Breski rithöfundurinn Graham Swift hlaut
Booker-verðlaunin á dögunum, mestu viðurkenn-
ingu sem breskur rithöfundur getur hlotið í
heimalandinu, fyrir skáldsögu sína Last Orders
(sem þýða mætti lauslega með Hinstu fyrirmæli).
í lesendabréfi til ástralska dagblaðsins The
Australian segir John Frow, kennari við háskól-
ann í Queensland, að margt í byggingu og efni
Last Orders minni á skáldsöguna As I Lay Dying
(Meðan ég lá á banabeði) eftir William Faulkner,
sem kom út 1930.
„Það er erfitt að taka á svona málum," skrifar
hann, „en lánið (ef þetta er lán) er umtalsvert. Bók
Faulkners fjallar um flutninginn á líki Addie
Bundren til Mississippi þar sem á að jarða hana; Last
Orders fjallar um flutninginn á ösku Jack Dodds sem
á að dreifa yfir hafið við Margate. As I Lay Dying er
sögð í stuttum fyrstupersónufrásögnum nokkurra að-
ila; Last Orders notar nákvæmlega sömu byggingu,
jafnvel passar saman röðin á einstökum köflum."
Times Literary Supplement segir að margir rithöf-
undar hafi risið upp til vamar Graham Swift. Philip
Hobsbaum leit eins og fleiri alveg fram hjá skyldleika
í byggingu og fannst ástæðulaust að þrefa um þótt
efni væri svipað í tveim skáldsögum, annað eins
hefði nú gerst, og Julian Bames sagði: „Þegar
Brahms skrifaði fyrstu sinfóníuna sína var hann sak-
aður um að hafa notað stef úr Níundu sinfóníu Beet-
hovens. Svar hans var að hver bjáni gæti séð það!“
Graham Swift var fljótur að kvitta fyrir skuldina
við Faulkner og orðaði það svo að bók hans geymdi
„bergmál" af sögu Faulkners. En það sem breskum
áhugamönnum um bókmenntir finnst merkilegast er
að dómnefnd Booker-verðlaunanna skyldi ekki ræða
þetta, því gagnrýnandi The Times hafði raunar haft
orð á þessu í ritdómi um bókina þegar hún kom út.
Tveir dóm-
nefndar-
manna hafa
tjáð sig um
málið og sagt
að þeim hafi
aldrei dottið
í hug skyld-
leiki milli
þessara
tveggja
verka - ein-
faldlega af
því að þeir
höfðu aldrei
lesið bók
William Faulkner: var hann stældur?
Heimur Guðríðar í Kópavogi
Næsta sýning á Heimi Guðríðar eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur er í Kópavogskirkju á sunnudaginn kl.
17.
Leitin að fjársjóðnum
í Leitinni að fjársjóðnum tekur ungur áheyrandi
eða lesandi þátt í að búa til söguna
með því að finna hin ýmsu kennileiti
sem máli skipta á myndunum. Símon
frændi - sem er sjóræningi - kemur
í heimsókn til Maríu litlu og fer
með hana í fjársjóðsleit. Ótal hætt-
ur verða á vegi þeirra, en fjársjóð-
urinn er sannarlega erfiðleikanna
virði.
Sagan er eftir Susönnuh
Leigh en teiknarinn heitir
Brenda Haw. Vaka- Helgafell gefúr út.
Jón Leifs - haföi hugrekki til aö
standa sér.
þurr, nákvæmni og skýrleiki dregin fram
á fremstu brún með eindrægni sam-
bærilegri þeirri sem tónskáldið hamr-
ar með á sérkennum sínum í tónlist-
inni. Hvor leiðin er betri er aö sjálf-
sögðu smekksatriði, en gaman er að
hafa báðar við höndina.
Ekki er hægt að skilja við disk
þennan án þess að nefna ágæta rit-
gerð Hjálmars H. Ragnarssonar í
fylgibæklingi þar sem fjallað er um
tónskáldið og verkin af góðum skiln-
ingi og þekkingu.
Nú fær Böðvar fréttirnar
Við sögðum frá því í fyrradag að Böðvar Guð-
mundsson hefði ekkert frétt af kvikmyndun hóka
sinna, en nú getum við sagt honum að útgefandi
hans, Mál og menning, sem hefúr fullt umboð Böðv-
ars til að semja fyrir hans hönd, hafi gefiö Kvik-
myndafélaginu Umba leyfi til að sækja um styrk til
Menningarsjóös útvarpsstöðva til að kvikmynda
verðlaunasögur hans. Umbi hefur því tryggt sér for-
kaupsrétt að þessum verkum og era samningar á
lokastigi.
Þá er bara að slá á þráðinn til höfundarins.
Námskeið í biblíulestri
I dymbilvikunni, nánai- tiltekið á þriðjudagskvöld-
ið kemur, hefst námskeið á vegum Endurmenntunar-
stofiiunar HÍ um Biblíuna, sögu hennar, tilurð, áreið-
anleika og áhrif. Námskeiðið tekur fimm þriðjudags-
kvöld og kennari verður Sigurður Pálsson guðfræð-
ingur, framkvæmdastjóri Hins íslenska Biblíufélags.
Upplýsingar og skráning í síma 525 4923/24.
Myndverk Magnúsar
Á pálmasunnudag verður opnuð sýning á verkum
Magnúsar Tómassonar myndlistarmanns í anddyri
Hallgrímskirkju í Reykjavík. Þetta era verk með trú-
arlegu ívafi og hefur sýningin þann tilgang að vekja
jafnt kirkjugesti sem aðra gesti til umhugsunar um
píslargöngu og upprisu Krists.
Tveim vikum seinna, eða sunnudaginn 6. apríl,
verður haldið Sjónþing um Magnús og verk hans í
Gerðubergi og sama dag verður opnuð sýning á nýj-
um verkum hans á Sjónarhóli.
Magnús Tómasson beygir sig undir ok.
Icarus í Listaklúbbnum
Á mánudagskvöldiö koma í heimsókn í Listaklúbb
Leikhúskjallarans góðir gestir frá Hollandi. Þetta er
Icarus-kvintettinn sem var stofnaður 1991 og leikur
barokk-tónlist og tónlist frá endurreisnartímanum.
Kvintettinn leikur bæði þekkt verk og lítt þekkt,
mestmegnis á gömul hljóðfæri, og hefur fengið af-
burða dóma fyrir leik sinn. Hann er nú á leið í tón-
leikaferð um Bandaríkin.
Tónleikamir era haldnfr í samráði við Ræðisskrif-
stofu Hollands á íslandi og hefjast kl. 21, en húsið er
opnað kl. 20.30.