Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997 13 Þrjár ókeypis „Blönduvirkjanir" - án umhverfisáhrifa „Veröi íslenska raforkukerfið tengt viö það evrópska meö sæstreng hagnast bæöi kerfin, þaö íslenska þó hlutfallslega meira.“ Þekkt er sú kenn- ing í hagvísindum að ef tvö misstór kerfi, af einhverj- um toga, eru tengd saman, hagnast litla kerfið að jafn- aði meira en það stóra. Dæmi um þetta er tenging ís- lenska tölvunetsins við veraldarvefhm. Með öðrum orðum, litla kerfið fær á þann hátt notið hagkvæmni stærð- arinnar. Verði íslenska raforkukerfið tengt við það evrópska með sæstreng hagn- ast bæði kerfin, það íslenska þó hlutfallslega mun meira. Án fjárfestinga Ef íslensku fallvötnin verða fullnýtt með skynsamlegum hætti til raforkuframleiðslu og völ er á hagkvæmum orku- flutningi um sæ- strengi fram og til baka milli íslands og Evrópu, getur framleiðsla ís- lenska raforku- kerfisins aukist um sem nemur raforkufram- leiðslu þriggja Blönduvirkjana og það án nokkurra fjárfestinga eða umhverfisáhrifa. Viðskipti með raforku Sæstrengir líkt og rafstrengir til flutnings raforku á landi eru fyrst og fremst tæki til að auð- velda viðskipti með raforku líkt og símastrengir yfir lönd og sæ auðvelda boðskipti, skip og flug- vélar auðvelda flutning á vörum og farþegum innanlands og milli landa og svo má lengi telja. Þessi tæki er einnig hægt að misnota ef þröngsýni og ein- angrunarhyggja ræður ríkjum. Orðið „viðskipti“ er einkar gagnsætt og fel- ur í sér „skipti" á t.d. vörum og þjónustu „við“ aðra. Raforkuvið- skipti geta verið bein sala, þ.e. skipti á raf- orku gegn greiðslu við aðila utan orkugeirans og viðskipti innan hans, t.d. með sölu á raforku að degi til eða um haust og vetur þeg- ar verðlag er hátt og kaupum í svipuðum mæli að næturlagi, að vori eða sumri þegar verðlag er lágt. Vegna smæðar og ósveigjan- leika hins einangraða íslenska markaðar er erfitt að koma við slíkum raforkuskiptum. Sæstrengir gjörbreyta dæminu Raforkukerfi Evrópu er risa- vaxið og mjög opið fyrir orkuvið- skiptum milli mismrmandi tíma- bila. Verði íslenska raforkukerfið tengt þessu kerfi, virkar það sem risavaxin miðlun fyrir rigninguna og fjalllendið sem er „hráefni" raf- orkuframleiðslunnar á íslandi. Nýting hennar getur þess vegna batnað um sem svarar framleiðslu þriggja Blönduvirkjana okkur að kostnaðarlausu og án nokkurra minnstu umhverfisáhrifa. Það ætti að vera sönnum umhverf- issinnum fagnaöarefni. Edgar Guðmundsson Kjallarinn Edgar Guömundsson verkfræöingur „Raforkukerfi Evrópu er risavaxið og mjög opið fyrir orkuviðskiptum miili mismunandi tímabila. Verði ís- lenska raforkukerfið tengt þessu kerfi, virkar það sem risavaxin miðlun fyrir rigninguna og fjalllend- ið sem er „hráefni“ raforkufram- leiðslunnar á íslandi.“ Aö falla á tíma A 17du öld vissi svo að segja hvert mannsbarn í Evrópu einhver deili á íslandi. ísland var inn- gönguop helvítis, nánar tiltekið í Heklu. Á því méli var helvíti ekki orðin tóm og athyglin því ósvikin. Ekki voru íslendingar þeirra tima þó allskostar ánægðir með þessa „heimsfrægð" og þáverandi menntapáfi og biskup, Guðbrandm Þorláksson, hrærði himin og jörð til að fá þessum áburði hnekkt, m.a. ýtti hann á skólameistara sinn, Arngrím lærða, til að setja saman landkynningarbækling um ísland (þann fyrsta), á málinu sem heimurinn skildi þá, latinu. Því miður hafði Arngrímur ekki erindi sem erfiði hvað helvíti varð- ar, það hélt áfram að lifa góðu lífi á íslandi út alla öldina. Svo lengi eimdi eftir af orðrðmnum að þegar ferðamenn hófu komu sína til ís- lands á átjándu öld var Hekla jafn- an efst á óskalistanum og mátti sjá þá tipla lotningarfulla kringum eld- fjallið._________________________ Aö endurreisa helvíti Var það ekki Hegel gamli sem taldi sig hafa fundið lögmál í þá veru að öll stórmæli kæmu fyrir tvisvar? Og Marx sem hnýtti aftan við: „en í síðara skiptið jafnan sem skopstæling". Þannig hvarflar að manni að nú eigi að endurreisa helvíti á íslandi, en í þetta skipti eru það íslensk stjórnvöld sem bera á okkur óhróðurinn. Það er ekki Arngrímur lærði sem hrekur ósómann á latínu heldur markaðs- deild iðnaðar- ráðuneytisins sem kallar hann yfir okkur á ensku. „Lowest energy prices" heitir bækling- urinn sem tíund- ar kosti þess að hér búi lægst- launaða vinnuafl norðanverðrar Evrópu, ásamt lágmarks kröf- um til umhverfismála og orku á útsöluprís. Það sé því óþarfi að fara með eiturspúandi málm- bræðslur til hinna vanþróuðu ríkja þriðja heimsins þegar eitt slíkt sé einmitt staðsett við bæjar- lækinn. í dag er helviti mengun. Hver sem betur getur reynir að koma henni af höndum sér. Munaðar- laus skip eigra um heimshöfin með banvæna farma, aðrir grafa í jörð, sökkva í sæ, áform eru jafn- vel uppi um að losa sig við úrgang- inn til annarra hnatta og sú framleiðsla sem mengar mest flyst til þeirra svæða þar sem almenningur má sín minnst og vanþekking- in er mest. Klappar sama steininn Nú er ég búinn að gleyma hver sagði: „ís- lands óhamingju verð- ur allt að vopni“, en það nær vel þeim martraðarkennda hrakfallabálki sem ís- lensk stóriðja virðist ofurseld. Þegar álverið í Straumsvik var á teikniborðinu hamraði þáverandi iðnaðarráðherra á því að við værum að falla á tíma, senn myndi kjarnorkan leysa vatnsork- una af hólmi og íslendingar sætu uppi með óseljanlega fossa. Tveim- ur árum eftir að fabrikkan var ræst brast á olíukreppan mikla með stórhækkuðu orkuverði um allan heim - alis staðar nema á ís- landi sem var búið að binda sig í báða skó. Mannsaldri síðar er íslenskur iðnaðarráðherra enn að klappa sama steininn: íslendingar séu að falla á tíma að laða hingað meng- unariðju sem ekki er boðleg ann- ars staðar í Evrópu. Sömu stjórn- völd og samþykktu alþjóðlegan samning í Ríó 1992 sem skuldbatt þau til að frysta koltvísýrings- mengun þjóðarinnar frá 1990 til ársins 2000, þau samþykkja nú 11% aukningu koltvísýr- ings á íslandi með nýju álveri. Og rétt- lætingin: það er svo atvinnuskapandi á meðan á því stend- ur. íslensk stjómvöld virðast hugsa um ís- land eins og bónda- bæ þar sem aðeins framhliðin snýr að veginum, bak við hús megi hrúga upp ófögnuðinum. Það er hægur vandi að plata útlendinginn. Sú staðreynd að mál okkar er óskiljan- legt öðrum hefur líka veitt vissa vemd. Nú berast hinsvegar þau tíðindi að komin séu til sögunnar mögnuð þýðingarforrit, íslensk forstöðukona þýðingarmiðstöðvar í Aþenu ræður yfir tækni sem snarar heilsíðu yfir á fjögur tungumál á einni mínútu. Hún hefur boðist til að bæta íslensk- unni við. Þá mun verða heyrinkunnugt um gervalla heimsbyggðina að á íslandi sé umhverfisráðherra sem hafi að vígorði: „Svo berist burt með vindum!“. En hvemig skyldi tölvan ráða við „Hollustuvemd ríkisins"? Pétur Gunnarsson „íslensk stjórnvöld virðast hugsa um ísland eins og bóndabæ þar sem aðeins framhliðin snýr að veginum, bak við hús megi hrúga upp ófögnuðinum. Það er hægur vandi að plata útlendinginn.“ Kjallarinn Pétur Gunnarsson rithöfundur Með og á móti Frikortið nýja Gagnkvæm tryggð „Þetta er vel þekkt bæði í Evrópu og Am- eríku og bygg- ist á gagn- kvæmri tryggð viðskiptavin- anna og fýrir- tækjanna. í flestum tilvik- um standa mjög stórir að- iiar að svona kortum, staðir sem hafa marga afgreiðslustaði og em, eins og í okkar tilviki, á landsvísu. Við höfum skoðað þetta mjög gaumgæfilega í tvö ár og vitum að svona kort hefur ver- ið til í tólf ár á Bretlandseyjum og þrátt fyrir að öðm hafi verið haldið fram em þrjú svona kort í Noregi. Við erum að reyna að fá fólk til þess að skipta við þau fyrirtæki sem að þessu standa og veitum því ákveðna umbun fyrir, lækk- um verð á vörunni en leyfum fólki að velja hvað það fái í stað- inn, flugmiða, leikhúsmiða, máls- verð á veitingáhúsi eða eitthvað allt annað þegai- fram líða stund- ir. Það er fásinna að halda því fram að Fríkort bijóti í bága við samkeppnislög. Okkar samkeppn- islög eru byggð á sama granni og í Skandinavíu og þangað hölum við leitað að fyrirmyndinni að þessu. Það skal engum detta í hug að fyrirtækin sem að tryggðar- kortinu standa séu ekki vandari að virðingu sinni en svo að þau eyddu tíma og fjármunum í svona verkefni til þess eins að standa upp og detta. Fyrirtækj- unum á eftir að fjölga strax á næstu vikmn og umræðan um að það taki menn allt að nitján ár að vinna sér ferð til Glasgow er víðs fjarri nokkra sanni.“ Jóhannes Gunnars- son, framkvæmda- stjórl Neytenda- samtakanna. Tilræði við samkeppni „Það sem okkur finnst alvarlegast við þetta er að þetta er til- ræði við sam- keppni í land- inu. Við minn- um á að þama era fimm sterk fyrir- tæki að taka sig saman, eitt er á einokunarmarkaði og tvo til þrjú á fákeppnismarkaði. Þetta fyrirbæri þekkist víða og er oftast bundið við eitt fyrirtæki. Hér í okkar litla viðskiptasamfélagi era fimm stór fyrirtæki sem taka sig saman og beina viöskiptunum til hvers annars. Þetta dregur úr samkeppni. í ljósi smæðar mark- aðar hér verður viðskiptakeðja af þessu tagi til þess að draga úr möguleikum samkeppnisaðila og fækka þeim og einnig að draga enn frekar úr möguleikum á nýj- um aðilum á markað. Þetta segj- um við vera hrot á 17. grein sam- keppnislaga og viljum að á því verði tekið. í kynningu á þessu korti finnst okkur farið fijálslega með það hversu fljótt fólk er að vinna sér inn punkta en ég treysti á dóm- greind fólks og veit að einhveijir hafa verið að reikna út frá heim- ilisbókhaldinu hversu langan tíma það tæki það að fá fría ferð. Það hefur fengið út allt aðrar töl- ur en komið hafa fram í kynn- ingu fyrirtækjanna. Þetta sér fólk sjálft þegar það reiknar hlutina út frá eigin forsendum en það al- varlegasta er samkeppnisþáttur-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.