Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1997, Page 20
32
FÖSTUDAGUR 21. MARS 1997
íþróttir unglinga
Bikar- og meistaramótið í íslenska fimleikastiganum 1997:
.Jafnvægissláin
er langerfiðust“
- sögðu stelpurnar eftir keppnina í fimleikastiganum
Þaö voru glæsileiki og tign í
fyrirrúmi í Laugardalshöll um síð-
ustu helgi - þar fór nefnilega fram
bikar- og meistaramótið í íslenska
fimleikastiganum. Á laugardegin-
um, 15. mars, var bikarmótið á dag-
skrá, sem er liðakeppni, og voru lið
Ármanns mjög sigursæl en þau sigr-
uðu í báðum þrepum pilta og þrem
þrepum stúlkna af fjórum, sem er
frábær árangur.
Á sunnudeginum, 16. mars, fór
Umsjón
Halldór Halldórsson
siðan fram íslandsmeistaramótið í
íslenska fimleikastiganum sem er
einstaklingskeppni í áhaldaleikfimi
sem er samin af tækninefndum og
byrjar 1 4. þrepi. Keppendur halda
siðan áfram upp stigann eftir að
þeir hafa náð ákveðnum stigafjölda
í hverju þrepi og enda loks í
frjálsum æfingum. Til að fá að
keppa á þessu móti verða keppend-
ur að hafa náð tilteknum stiga-
fjölda. Mótin voru mjög skemmtileg
enda í góðri umsjón Ármanns.
slandsmeistarar f fimleikastiganum, sem fór fram á sunnudeginum, frá vinstri; Róbert Kristmannsson, Gerplu, og
Jónas Valgeirsson, Árm. (jafnir í 4. þrepi), Saga Huld Benediktsdóttir, Gerplu (3. þrepi), Hiidur Jónsdóttir, Björk (4.
þrepi), Aðaiheiöur Gunnarsdóttir, Árm. (2. þrepi), Lilja Erlendsdóttir, Gerplu (1. þrepi) og Viktor Kristmannsson,
Gerplu (sigurvegari í 3. þrepi). DV-myndir Hson
í liðakeppni bikarmótsins á laugardeginum voru Ármannskrakkarnir sterkir. Hér er lið
félagsins sem sigraði í 3. þrepi, frá vinstri, aftari röð: Ásdís Björk Pétursdóttir þjálfari,
Sóley Valgeirsdóttir, Guöríður Guölaugsdóttir, Hrefna Halldórsdóttir og Vilborg
Hlöðversdóttir. Fremri röö frá vinstri, Ásdís Guðmundsdóttir, Sif Baldursdóttir, Mfa
Jónsdóttir og Birta Benónýsdóttir.
Ármannsliðið vann 3. þrepið:
Asdís er uppáhalds-
Ásdis Björk Pétursdóttir,
þjálfari Ármannsliðsins, sem
sigraði í 3. þrepi á laugardeg-
inum, er í miklu uppáhaldi
hjá „stelpunum sínum“.
„Uppáhaldsfimleikakonan
okkar er hún Ásdís Björk,“
sögðu þær allar einum rómi
og eru það góð tíðindi fyrir
félagið að hafa svona vin-
sælan þjálfara innanborðs.
Ásdís hefur að auki verið ís-
landsmeistari í þolfimi síð-
astliðin tvö ár og ekki spillir
það fyrir. Annars verður það
að segjast eins og er að fim-
leikadeildimar hafa ávallt
haft á að skipa góðum þjáifur-
um sem hafa, að því er séð
verður, sýnt krökkimum til-
litssemi og hlýhug og hvatn-
ingar þeirra til bamanna
hafa ávallt verið með jákvæð-
um tóni sem er mikilvægt.
Sem betur fer er mikið af
menntuðum og góðum leið-
beinendum fyrir ungt íþrótta-
fólk í landinu - og þeim fer
fjölgandi. Enda þarf svo að
vera ef vel á að takast.
fslandsmótið í tennis unglinga:
DV
íslenski fimleikastiginn:
Úrslit
Hér á eftir fara úrslit í bikar-
og meistaramóti íslenska fim-
leikastigans sem fór fram um sl.
helgi.
Bikarmótiö á laugardag
3. þrep, piltar
1. Ármann................. 278,46
2. Gerpla................. 269,85
4. þrep, piltar
1. A-lið Ármanns.......... 279,95
2. Gerpla................. 268,80
3. B-lið Ármanns.......... 250,35
1. þrep, stúlkur
1. Ármann................. 94,281
2. Björk...................91,870
3. Gerpla...................82,46
2. þrep, stúlkur
1. Ármann...................80,189
3. þrep, stúlkur
1. Ármann................ 160,498
2. Gerpla................ 150,857
4. þrep, stúlkur
1. Grótta................ 169,834
2. Björk................. 169,647
3. KR.....................161,756
Fimleikastiginn á
sunnudag
3. þrep, piltar
1. Viktor Kristmannss., Gerplu. 56,30
2. Steinn Finnbogason, Gerplu . 54,70
3. Amar Vilbergsson, Gerpiu .. 54,50
4. þrep, piltar
1.-2. Róbert Kristmannss., Gerp. 56,45
1.-2. Jónas Valgeirsson, Árm . . 56,45
3. Friörik Benediktsson, Gerplu 55,65
1. þrep, stúlkur
1. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu . 33,082
2. Marín Þrastardóttir, Björk . 31,766
3. Ema Sigmundsdóttir, Árm . 31,283
2. þrep, stúlkur
1. Aðalheiður Gunnarsd., Árm 31,883
2. Vala V. Guðmundsd., Árm . 29,716
3. Sóldís L. Benjaminsd., Árm. 24,882
3. þrep, stúlkur
1. Saga Benediktsd., Gerplu .. 35,717
2. Hrefna Halidórsdóttir, Árm. 35,716
3. Sóley Valgeirsdóttir, Árm. . 33,266
4. þrep, stúlkur
1. Hildur Jónsdóttir, Björk . . . 35,933
2. Kristbjörg T. Ásbjömsdóttir 35,482
3. Dasia Kolomenska, Gróttu. . 35,400
„Sláin erfiðust"
Stelpumar, sem urðu íslands-
meistarar í fimleikastiganum,
sem keppt var í á sunnudeg-
inum, vom á einu máli um að
jafnvægissláin hefði verið lang-
erfiðust. „Jú, hún var erfið en
um leið skemmtileg - og þetta er
búið að vera frábær dagur, alveg
ógleymanlegur," sögöu krakk-
£imir.
Landskeppni gegn írum
Þess má geta að nýverið var
valið landsliðið í fimleikum 1997
og næstkomandi laugardag, þ.e.
22. mars, verður keppt við íra og
má segja að þetta sé upphitun
fyrir smáþjóðaleikana, sem
haldnir verða hér á landi í
sumar, en þar verður keppt í
fyrsta sinn í fimleikum. Keppnin
fer fram í Laugardalshöll og
hefst kl. 13,00.
„Tennis er skemmtileg íþrótt"
- sagði Ingunn í Fjölni sem sigraði í flokki 14 ára
íslandsmótið i tennis 10-16 ára
fór fram um síðustu helgi í Tennis-
höllinni í Kópavogi. Góð þátttaka
var og ljóst að vinsældir tennis-
íþróttarinnar aukast hægt og síg-
andi.
Fjölnir hlaut fiesta meistara eða
4, TFK 2 og BH og Umf. Bessastaða-
hrepps 1 meistara hvort.
Gaman í tennis
Ingunn Erla Eiríksdóttir, Fjölni,
varð meistari í keppni 14 ára.
„Mér finnst mjög gaman í tennis
enda er það skemmtileg íþrótt. Það
er mjög mikill tennisáhugi í Fjölni,"
sagði Ingunn.
Aöstaöan er nokkuð góð
Heiða, Brynhildur og Bergþóra
eru allar í Umf. Bessastaðahrepps:
„Aðstaðan er nokkuð góð í
íþróttahúsinu á Álftanesi og við
æfum reglulega. Þetta er þriðja árið
okkar í tennis og þetta er alveg
frábær íþrótt - auðvitað ætlum við
okkur að ná langt,“ sögðu stúlkurn-
ar úr UMFB.
Úrslit
Stelpur, 10 ára og yngri:
1. Rakel Pétursdóttir............Fjölni
2. Kolbrún Hallgrinisdóttir.......Fjölni
3. Lilja Dögg Vignisdóttir...........TFK
Stelpur, 12 ára og yngri:
1. Sigurlaug Sigurðardóttir.........TFK
2. Nina Cohagen...................Þrótti
3. Sunna Friðbertsdóttir..........Fjölni
Stelpur, 14 ára og yngri:
1. Ingunn Erla Eiríksdóttir......Fiölni
2. Sigurlaug Sigurðardóttir..........TFK
3. Ingibjörg Snorradóttir.........Fjölni
Stelpur, 16 ára og yngri:
1. Rakel Pétursdóttir............Fiölni
2. Ingunn Erla Eiríksdóttir....Fjölni
3. Ingibjörg Snorradóttir.....Fiölni
Strákar, 10 ára og yngri:
1. Sturla Óskarsson...........Fjölni
2. Gunnar H. Gunnsteinsson........BH
3. Erik Bjarnason..................BH
Strákar, 12 ára og yngri:
1. Margeir Ásgeirsson.............BH
2. Kári Pálsson..............Vikingi
3. Þórir Hannesson.............Fjölni
Strákar, 14 ára og yngri:
1. Jón Axel Jónsson.......Umf. Bess.
2. Eyvindur A. Pálsson............BH
3. Andri Jónsson..................BH
Strákar, 16 ára og yngri:
1. Amar Sigurðsson...............TFK
2. Davíð Halldórsson..............TFK
3. Jón Axel Jónsson.......Umf. Bess.
Krakkamir sem skipuðu efstu
sætin í íslandsmótinu eru mjög lof-
andi og gætu náð langt í tennis-
íþróttinni - en bara ef rétt er á
málum haldið.
Þessir krakkar voru að keppa í undanrásunum þegar DV kom á staðinn sl.
laugardag. Frá vinstri: Ingunn Erla Eiríksdóttir, Fjölni, sem vann í flokki 14
ára, Heiða Björk Ingvarsdóttir, Umf. Bess., Brynhildur Jónasdóttir, Umf.
Bess. og Bergþóra Magnúsdóttir, Umf. Bess. DV-mynd Hson