Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 6
LAUGARDAGUR 22. MARS 1997
6 utlönd
Jeltsín og Clinton kátir eftir fundinn í Helsinki í gær:
Sammála um annað en
stækkun NATO í austur
Bill Clinton Bandarikjaforseti og
Borís Jeltsín Rússlandsforseti inn-
sigluðu samstarf sitt með samkomu-
lagi um allt frá kjarnorkuflaugum til
efnahagsaðstoðar á fundi sínum í
Helsinki í gær en ekki tókst þeim að
jafna ágreining sinn um stækkun Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) til
austurs.
Forsetarnir sögðu að þrátt fyrir
ósamkomulagið um stækkun NATO
hefði fundur þeirra heppnast vel og
þeir hétu því að draga úr spennu
vegna stækkunaráformanna eins og
kostur væri með þvi að efla tengsl
Rússlands og bandalagsins.
„Þetta var frábært," sagði Clinton
hress í bragði að loknum sameigin-
legum blaðamannafundi þeirra. „Ég
get sagt ykkur að hann (Jeltsín) hefur
það mjög gott og mér líður vel.“
Jeltsín og Clinton ætla að taka
höndum saman um að blása lífi í
markaðsvæðingu efnahagslífsins í
Rússlandi, efla erlendar tjárfestingar
og viðskipti til þess að rússneska
þjóðin fái að njóta afraksturs umbóta-
stefnu stjórnar Jeltsíns.
Þá gáfu forsetarnir ádrátt um enn
frekari niðurskurð á langdrægum
kjarnavopnum þannig að þau verði
aðeins um fimmtungm- af því sem
mest var í kalda stríðinu. Þeir náðu
einnig samkomulagi um takmörkun
annars konar vígbúnaðar.
Clinton sagði að markmiðið með
þessu öllu væri að byggja upp óskipta
og lýðræðislega Evrópu í fyrsta sinn í
sögunni.
Fundur leiðtoganna, sem fór fram í
embættisbústað Marttis Ahtisaaris
við ísilagt Eystrasaltið, stóð ekki
nema í rétt rúmar fjórar klukku-
stundir.
Bæði Clinton og Jeltsín sögðust
vera reiðubúnir að leita málamiðlana
í erfiðum ágreiningsmálum og virtust
staðráðnir í að gera að engu spár um
að fundurinn mundi fara út um þúfur
vegna ágreiningsins um NATO.
Stjómvöld í Moskvu eru hörð í
andstöðu sinni gegn inngöngu fyrrum
bandalagsþjóða Sovétríkjanna sálugu
í NATO þar sem slíkt mundi ein-
angra Rússland og ógna öryggi þess.
Stjórnvöld í Washington segja að ekki
verði hvikað frá þeirri ákvörðun að
taka inn ný aðildarríki og að Evrópa
öll muni hagnast á því.
Reuter
stuttar fréttir
Dýrara að hlæja
Malcolm Kushner, kímniráð-
gjafi margra amerískra stórfyrir-
Ítækja, segir að það hafi verið
þremur prósentum dýrara að
hlæja á undanfómum tólf mánuð-
um en árið á undan, ef miðað er
við 16 þátta hláturvísitölu.
Ægivald brennivínsins
Einn af hverjum tuttugu Bret-
um er ofurseldur áfengi, eða
meira en tvisvar sinnum fleiri en
era háðir öllum öðrum fikniefn-
um. Afleiðingarnar eru ofbeldis-
| glæpir, skipbrot fjölskyldna og
milljónir tapaðra vinnudaga.
f-
Fast á hæla Asíu
Kynferðisleg misnotkun á
: börnum í rómönsku Ameríku er
að verða jafn mikil og hún er í
, Asíu, segja sérfræðingar á þingi í
Argentínu.
Land vonarinnar
Hillary Rodham Clinton, for-
setafrú í Banda-
ríkjunum, hlóð
Suður-Afriku-
menn lofi í gær
og kallaði land
þeirra land von-
arinnar, áður
en hún og Chel-
sea dóttir hennar héldu áfram fór
sinni um nokkur ríki Afríku.
Of margir arabar
Nærri tveir þriðju hlutar
Frakka telja að of margir arabar
búi í Frakklandi, jafnvel þótt
flestir þeirra harmi um leið kyn-
þáttafordóma, segir í nýrri
skýrslu um mannréttindamál.
Lenín ekki bjargað
Tillaga um að koma í veg fyrir
að lík Leníns verði flutt úr graf-
hýsinu í Moskvu og jarðsett var
felld í rússneska þinginu. Reuter
Hlutabréfamarkaður:
Enn lækkun
Gengi hlutabréfa Evrópu og Wall
Street hafa lækkað nokkuð síðustu
daga eftir að Alan Greenspan, banda-
ríski seðlabankastjórinn, varaði við
því að vextir í Bandaríkjunum kynnu
að hækka strax í næstu viku. í London
var á fimmtudaginn lokað á nokkuð
hærra gengi en því sem verst lét þann
daginn og í Frankfurt var gengi hluta-
bréfa komið niður fyrir svokallaðan
sálfræðiþröskuld en hann er miðaður
við 3300 stig. Lokaverð á fimmtudag
var 3264,67. Frí var á markaðinum í
Tokyo í fyrradag en tölur frá miðviku-
degi sýna að gengi hlutabréfa hafði
hækkað nokkuð frá fyrri viku. Enn má
greina lækkun í Hong Kong.
Bensínverð hækkaði nokkuð í lok
vikunnar þegar vonir stóðu til mikillar
sölu til Bandaríkjanna. Tonnið af 95
oktana bensíni fór í 216 dollara tonnið
og 98 oktana í 220 dollara. Um er að
ræða sex dollara hækkun á milli
vikna. -sv
Kona sem særðist í sprengjuárásinni á kaffihúsið í Tel Aviv í gær rekur upp öskur um leið og hún er flutt á brott.
Símamynd Reuter
Þrír týndu lífi í sjálfsmorðsárás á kaffihús í Tel Aviv:
Palestínumenn og ísraelar
kenna hvorir öðrum um
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, fordæmdi sprengjutilræði
sem var þremur að bana á kaffihúsi í
Tel Aviv i gær og talsmaður hans vís-
aði reiðilega á bug ásökunum ísrael-
skra stjórnvalda um að Arafat bæri
óbeint ábyrgð á árásinni.
Talsmaðurinn, Marwan Kanafani,
kallaði Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra ísraels, lygara vegna
ásakananna á hendur Arafat og sagði
að ísraelski leiðtoginn bæri sjálfur
ábyrgð á blóðbaðinu.
Kanafani sagði í viðtali við Reuters
fréttastofuna að Arafat hefði hringt í
Ezer Wizman, forseta ísraels, og for-
dæmt hryðjuverkið.
Þrír týndu lífi í sprengingunni, þar
á meðal Palestinumaður sem var með
sprengjuna á sér, og 43 hlutu sár, að
sögn lögreglunnar.
Sprengjan sprakk á útisvæði kaffi-
hússins þar sem fjölskyldur voru að
slaka á í hádeginu og búa sig undir
frídag gyðinga.
Yfirmenn öryggismála í ísrael
höfðu varað við hugsanlegum ofbeld-
isverkum Palestínumanna, þar á með-
al sjálfsmorðsárásum, vegna fram-
kvæmda við nýja byggð gyðinga í ar-
abíska hluta Jerúsalem.
Maður sem hringdi f lögregluna
sagði að skæruliðasamtökin Hamas
bæru ábyrgð á tilræðinu.
Talsmaður hinna róttæku samtaka
Alþýðufylkingarinnar til frelsunar
Palestínu sagði í gær að Netanyahu
skyldi búa sig undir frekari árásir af
hálfú Palestínumanna þar sem hann
hafnaði friðargerð við araba.
Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis
216
S/t D J F M
*s*i
220
210
$/t D
n»v»jj
Major verst
{ ásökunum um
spillingu
John Major, forsætisráðherra
>; Bretlands, bar í gær til baka nýj-
ar ásakanir í
fjölmiðlum um
spillingu í
íhaldsflokknum.
Hann sagði það
tóman þvætting
að hann hefði
leyft þingmann-
* inum Tim Smith að gegna áfram
embætti aðstoðarráðherra í mál-
efnum Norður-írlands árið 1994
| eftir að honum hafði verið skýrt
íi frá því að Smith hefði þegið fé
' fyrir að bera upp spumingar í
j þinginu fyrir kaupsýslumenn.
Svíar óhressir
út í ESB vegna
þorskkvóta
Svíar hafa fengið minni þorsk-
, kvóta í Eystrasaltinu en þeim var
lofaö í samningaviðræðunum um
inngöngu í Evrópusambandið
í árið 1995 og þeir undirbúa nú
málsókn á hendur ráðherranefnd
ESB, að sögn sænska blaðsins
Dagens Nyheter.
Sjávarútvegsráðherrar ESB
ákváðu kvótann í desember á síð-
i; asta ári. Belgar vom óhressir
með langlúrukvótann sem þeim
var skammtaður og Svíar með
þorskkvótann. Ráðherramir
höfðu hugsað sér að kvótaskipt-
« ingin skyldi leyst með samning-
um við Þjóðverja og Dani. Finnist
hins vegar ekki lausn á málinu
fljótt, er bara dómstólaleiðin eftir.
Fagna játning-
um tóbaks-
framleiðanda
Sérfræðingar í krabbameini og
j hjartasjúkdómum fögnuðu í gær
óvæntum játningum forráða-
manna bandaríska tóbaksfram-
leiðandans Ligget um að sígarett-
ureykingar væm skaðlegar hefls-
1 unni og ávanabindandi.
Liggett komst að samkomulagi
; við 22 fylki í Bandaríkjunum sem
höfðu farið í mál við tóbaksfram-
leiðendur til að reyna að endur-
heimta útlagðan kostnað vegna
1 læknismeðferðar á reykinga-
mönnum.
| „Þetta er upphafið að endalok-
1 um 40 ára blekkingarleiks," sagði
Richard Peto sem starfar hjá
krabbameinsrannsóknarstofnun
í Englandi. Hann mun bera vitni
sem vísindamaður í málaferlum
sem hefjast i Missisippi í júní.
ITalið er að játningar forráða-
manna Liggett muni hafa víðtæk-
ar afleiöingar um heim allan og
að þær geti leitt til mikfls fjölda
lögsókna.
Eiginkona
Jeltsíns forð-
ast sviðsljósið
| Naína Jeltsín, eiginkona
Rússlandsforseta, fór í skoð-
unarferð um Helsinki i gær á
meðan eiginmaður hennar
ræddi við
Clinton
Bandaríkjafor-
seta en henni
tókst þó að
mestu að forð-
ast sviðsljós
fjölmiðla,
1 nokkuð sem ekki hefði verið
: hægt ef bandariska forsetafrú-
I in hefði einnig verið i bænum.
Eeva Ahtisaari, forsetafrú
| Finnlands, fylgir rússneskri
: stallsystur sinni í félagsmiö-
I stöð aldraðra og í barnaskóla,
auk þess sem þær kíktu að-
eins í búðir. Á aðalmarkaði
Helsinki smakkaði Naína kalt,
I reykt hreindýrakjöt sem hún
sagði algjört lostæti.
Reuter