Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Qupperneq 33
UV LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 útlönd 45 Breska pressan liggur ekkert á skoðunum sínum í kosningabaráttunni: Oft gert of mikið úr áhrifum dagblaðanna á kjósendur John Major, forsætisráðherra Bretlands, klórar sér áreiðanlega í hausnum yfir því hve gengi flokks hans er lélegt í skoðanakönnunum. Símamynd Reuter Svo bregðast krosstré sem önnur tré. Nú er svo komið að John Major, forsætisráðherra Bretlands, og íhaldsflokkur hans geta ekki lengur treyst á dyggan stuðning mikils hluta dagblaða landsins til að snúa kjósendum á sveif með sér og tryggja með því að þeir fari með sig- ur af hólmi i fimmtu kosningunum í röð. Skýrasta dæmið um það er kúvending æsihlaðsins Sun sem lýsti yfir stuðningi sínum við Tony Blair og Verkamannaflokk hans í vikunni. „Sun styður Blair,“ sagði fyrir- sögn á forsiðu blaðsins á þriðjudag, sama dag og John Major tilkynnti að kosið yrði til þings á baráttudegi verkalýðsins, þann 1. maí næstkom- andi. Fimm árum áður var annað hljóð í strokknum. Þá lagðist Sun, sem er í eigu ástralska blaðakóngsins Ru- perts Murdochs, á sveif með fram- boði íhaldsflokksins. „Það var Sun sem gerði útslagið,“ sagði á forsíðu blaðsins eftir að íhaldsmenn mörðu sigur á Verka- mannaflokknum, þrátt fyrir að allar skoðanakannanir fyrir kosningar hefðu hent til hins gagnstæða. Major hefur ekki áhyggjur af Sun En nú vill Sun sem sé gefa breyt- ingunum tækifæri, eins og ritstjór- ar blaðsins sögðu. Major reyndi þó að gera lítið úr sinnaskiptum rit- stjóranna sem segja að tíu milljónir manna lesi blaðið á degi hverjum. Upplag þess er fjórar milljónir ein- taka á dag. „Ég hef ekki áhyggjur af afstöðu ritstjóra Sun,“ sagði Major í sjón- varpsviðtali í vikunni. „Það eina sem ég fer fram á við Sun og önnur dagblöð er að þau segi satt og rétt frá því sem við segjum og gerum." Major mátti hins vegar varla við því að glata stuðningi jafn áhrifa- mikils blaðs og Sun er þar sem ekki blæs byrlega fyrir íhaldsflokknum um þessar mundir, ef eitthvað er að marka skoðanakannanirnar sem birst hafa að undanfórnu. Sam- kvæmt þeim hefur Verkamanna- flokkurinn allt að 28 prósentustiga forskot á íhaldsflokkinn. Munið að slökkva Ijósin þegar þið farið Um sjötíu prósent breskra dag- blaða styðja íhaldsflokkinn alla- jafna og fyrir kosningamar fyrir fimm árum studdu þau dyggilega við hakið á Major og hans mönnum. Hvert tækifæri var aftur á móti not- að til að skjóta á Neil Kinnock, þá- verandi leiðtoga Verkamanna- flokksins, og stefnuskrá hans. Kjós- endur voru varaðir við því að treysta kosningaloforðum Verka- mannaflokksins. „Ef Kinnock vinnur í dag er síð- asta manneskjan sem yfírgefur Bretland beðin um að slökkva ljósin um leið og hún fer,“ sagði í skila- boðum Sun til kjósenda og forsíð- una prýddi andlitsmynd af Kinnock sem var römmuð inn í ljósaperu. Major hefur átt í miklu basli með að halda íhaldsflokknum saman vegna sífelldra deilna flokksmanna um afstöðuna til Evrópusambands- ins og það hefur aftur leitt til geng- isfalls hans meðal íhaldsblaðanna, ef svo má að orði komast. Mörg blaða þessara vilja að stjómin taki miklu harðari afstöðu gegn Evrópu- sambandinu en nú er. „Hann (Major) er ekki leiðtogi. Hann er sporgöngumaður," sagði Sun á þriðjudag. Ritstjórarnir vom líka ósparir á lofið á Blair: „Blair er sá ferski andblær sem þetta mikla land þarfnast." Stjórnmálin stýra jafn- vel fráttaflutningi Bresku dagblöðin hafa aldrei far- ið leynt með hvaða stjórnmálaöfl þau styðja. Ekki einasta geta leiðar- ar þeirra verið harðorðir í garð and- stæðinganna, heldur ber fréttaflutn- ingurinn einnig keim af stjórnmála- skoðunum eigendanna og ritstjór- anna. Svo rammt kveð- ur að því að útlending- ar era margir hverjir furðu lostnir. Stjórnmálamönnum er mikill akkur í að fá stuðning blaðanna þar sem blaðaútbreiðsla í Bretlandi er mikil, þótt hún hafi smám saman verið 'að dragast saman á undanförnum árum. Að meðaltali seljast samtals um fjórtán milljón eintök daglega af blöðunum sem koma út um allt land. Daily Mirror og hið skoska systurblað þess, Daily Record, voru einu útbreiddu svokölluðu æsiblöðin sem studdu Verkamanna- flokkinn í kosning- unum 1992. Daily Mail og Daily Ex- press héldu sig við íhaldsflokkinn, eins og allajafna, svo og Sun, títtnefnt blað Murdochs. Af svokölluðum breiðsíðublöðum, eða gæðablöðum, studdu Times, sem er í eigu Murdochs, og Daily Telegraph, sem er í eigu Kanadamanns- ins Conrads Blacks, ríkisstjórnina en Gu- ardian lagðist á sveif með Verkamanna- flokknum. Blaðið Independent stóð undir nafni og tók ekki afstöðu. Það sem kom hins vegar mest á óvart var rit- stjómargrein í hinu virta blaði Financial Times, hálfgerðri biblíu kaupsýslumanna, á kjördag þar sem lýst var yfir stuðningi við Verkamannaflokkinn. Búast við hinu versta af hálfu blaðanna Tony Blair gerir sér góða grein fyrir því valdi sem dablöðin hafa. Erlent fréttaljós á laugardegi Hann þáði því boð árið 1995 um að ávarpa ráðstefnu í Ástralíu sem skipulögð var af fjölmiðlafyrirtæki Ruperts Murdochs. Sú ákvörðun hans olli miklu fjaðrafoki. Gordon Brown, talsmaður Verkamanna- flokksins í fjármálum, þvertók fyrir það í vikunni að nokkurt samkomu- lag hefði verið gert við Murdoch í skiptum fyrir stuðning Sun. Mur- doch ræður yfir um 35 prósentum blaðamarkaðarins i Bretlandi. Blair hefur snætt með fjölmörg- um blaðaeigendum og ritstjórum sem hafa síðan farið lofsamlegum orðum um hann í blöðum sínum. Blaðafulltrúi Blairs er þó enn þeirr- ar skoðunar að blöðin muni reyna að klekkja á Verkamannaflokknum, ef þau fái tækifæri til. Þótt Sun hafi eignað sér sigur íhaldsflokksins í kosningunum 1992 eru ekki allir á einu máli um hversu mikil áhrif dagblöðin geti haft á hverjum kjósendur greiði at- kvæði sitt. Skoðanakannanir sýna þó að lesendur blaða á borð við Daily Telegraph, Sun og Times ætla í síauknum mæli að kjósa Verka- mannaflokkinn. Auðveldara að hafa áhrif á suma en aðra „Svo virðist sem æsiblöðin geti breytt afstöðu fólks og þar virðist Sun hafa vinninginn á Daily Mirror," segir Bill Miller, stjómmálafræðipró- fessor við háskólann í Glasgow. „Meiri líkur eru á að lesendur Mir- ror hafi tekið afstöðu en meirihluti lesenda Sun er ekki pólitískur og því er auðveldara að hafa áhrif á þá.“ Miller hefur rannsakað áhrif dag- blaða á hvernig menn kjósa og hann segir að hægt sé að gera of mikið úr þeim. Hann bendir til dæmis á að Sun seljist aðeins í fjórum milljón- um eintaka á dag í landi þar sem kjósendur eru 35 milljónir. „Áhrifin eru kannski eitt prósent til eða frá sem síðast hefði ráðið úr- slitum um sigur Majors eða patt- stöðu i þinginu," segir Miller. Nú er þvi ekki að heilsa vegna þeirrar yfirburðastöðu sem Verka- mannaflokkurinn hefur í skoðana- könnunum. „Ef maður vill gera væntanlegri ríkisstjórn lífið leitt verður maður að taka afleiðingunum. Það má vel vera að æsiblöðin sem allajafna styðja íhaldsflokkinn átti sig á því að þetta eru ekki þeirra kosningar," segir Bill Miller. Byggt á Reuter Ben Chapman, þingmaöur Verkamannaflokksins, les breiösíöublaöiö Guardian sem studdi Verkamanna- flokkinn í kosningunum 1992. Símamynd Reuter FORVAL um gerö samanburöartillagna Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu Byggingadeild Borgarverkfræðings f.h. byggingarnefndar Hafn- ar- og Safnahúss Reykjavíkur óskar eftir umsóknum arki- tekta/teiknistofu um gerð samanburðartillagna vegna Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Rétt til þátttöku í forvalinu hafa allir þeir sem rétt hafa til að skila inn aðaluppdráttum til bygginganefndar Reykjavíkur. Að loknum viðtölum við 8-10 umsækjendur verða valdir þrír til fimm þátttakendur til að gera samanburðartillögur. Við val á þátttakendum verður árangur í samkeppnum(verð- laun, innkaup) lagður til grundvallar, ásamt færni, menntun, reynslu, afkastagetu og hæfileikum til samvinnu og stjórnunar. Byggingarnefnd Hafnar- og Safnahúss Reykjavíkur mun velja þátttakendur í gerð samanburðartillagna. Forvalsgögn liggja frammi hjá byggingadeild Borgarverkfræö- ings í Reykjavík, Skúlatúni 2, fimmtu hæð, 105 Reykjavík, frá og með mánudeginum 24. mars 1997. Umsóknum skal skila til byggingadeildar Borgarverkfræðings í Reykjavík, Skúlatúni 2, fimmtu hæð, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13.00 þriðjudaginn 1. apríl 1997, merktum: FORVAL um gerö samanburðartillagna Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsinu Tony Blair, leiötogi Verkamannaflokksins, gerir sér góöa grein fyrir áhrifa- mætti dagblaðanna. Hér ræðir Blair viö nemendur í bílgreinaskólanum í Birmingham sem eiga áreiðanlega eftir aö lesa blööin vandlega fyrir kosn- ingarnar 1. maí í vor. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.