Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 37
LAUGARDAGUR 22. MARS 1997
49
*
±1
IPl
>
Fákk Flórídaferð úr sólarpotti DV og Flugleiða:
Ætla sem fyrst eftir erfiðan vetur
- segir Guðrún M. Guðjónsdóttir
„Jesús minn, hvað ég er hamingjusöm," voru
fyrstu viðbrögð Guðrúnar M. Guðjónsdóttur, sem
dregin var úr sólarpotti DV og Flugleiða í vik-
unni. Hún er skuldlaus áskrifandi DV og sem
slík fær hún ferð til St. Petersburg Beach á Flór-
ída með Flugleiðum og gistingu í viku. Farmið-
inn gildir fyrir tvo.
„Ég ætlaði bara alls ekkert að fara í sumarfrí-
inu en með þessu er fríinu bjargað og ég get
skellt mér í sólina. Ég hugsa að ég bjóði systur
minni með mér og á frekar von á því að fara í
fyrra fallinu, eftir þennan langa og erfiða vetur,“
segir Guðrún.
Guðrún hefur verið áskrifandi að DV síðan
1991 og er sjötti skuldlausi áskrifandi blaðsins
sem dreginn er úr sólar-
pottinum góða.
St. Petersburg
Beach er það sem
Flugleiðir kynna sem
sannkallaða sólar-
paradís og því ætti
enginn að vera
svikinn af því að
bregða sér í sæl-
una í vikutíma,
ekki síst fyrst DV og
Flugleiðir bjóða. í heild
verða tíu heppnir og skuld-
lausir, nýir og gamlir, áskrif-
Guðrún M. Guðjóns-
dóttir heldur hér á
gjafabréfinu að
Flórídaferöinni en
hún var dregin úr
hópi skuldlausra
áskrifenda aö
DV og ætlar að
bjóða systur
sinni með sér á
St. Petersburg
Beach í viku
í sumar.
DV-mynd
á uppleið
Ferðamynstur fólks tekur sífellt
breytingum og ferðaskrifstofúr leit-
ast sífellt við að hafa í boði nýjar
áherslur í ferðamennsku sem full-
nægja kröfum neytandans. Umræð-
an um ómengað umhverfi og vemd-
un landsvæða hefur sífellt verið að
færast í aukana og viðbrögðin eru
þau að bjóða vistvænar ferðir þar
sem lögð er áhersla á að spilla ekki
umhverfinu og njóta þess sem
óspillt náttúra hefur að bjóða.
Undir þeim formerkjum starfar
íslenska ferðaskrifstofan Landnáma
og er raunar eina ferðaskrifstofan á
íslandi sem sérhæfir sig sem vist-
væn ferðaskrifstofa. Meðal margra
þátta í starfsemi Landnámu er að
byggja upp vistvænan rekstur inn-
an skrifstofunnar jafnframt þvi sem
leitast er við að skipta eingöngu við
þjónustufyrirtæki sem tileinka sér
umhverfisvænan rekstur. Fjöldi
þátttakenda í hverri ferð er tak-
markaður og ferðirnar eru skipu-
lagðar meðal annars með það í huga
að kveikja og dýpka áhuga og skiln-
ing ferðamanna á ólíkum menning-
arheimum, náttúru og vísindum.
Slóðir Hróa hattar
Landnáma hefur gefið út ferða-
bækling (að sjálfsögðu á endurunn-
inn pappír) þar sem feröir skrifstof-
unnar eru kynntar. Meðal þeirra er
13 daga ferð til Bretlands sem nefn-
Arctic '97
Grænlendingar ætla að halda
alþjóðlega skíðagöngukeppni á
Grænlandsjökli í aprílmánuði
og skráningarfrestur er nú þeg-
ar útrunninn. 110 skíðamenn frá
14 löndum hafa tilkynnt þátt-
töku sína, meðal annars norsku
heimsmeistaramir Vegard Ul-
vang og Grete Nykkelmo og
svissneski meistarinn Koni Hal-
lenbarter. Sænskar og danskar
sjónvarpsstöðvar ætla að fylgj-
ast náið með keppninni.
ist „Kastalar og sveitasæla". Hún
verður farin 25. maí til 6. júní. Fyrst
er farið til London, síðan á slóðir
Jane Austin í Sussex, slóðir Hróa
hattar í Skírisskógi, leiksýningar
Shakespeares í Stratford-upon-Avon
skoðaðar, víkingasafnið í York og
kastalar í Wales svo eitthvað sé
nefnt.
Önnur ferð er farin „Á vit sögu,
menningar og lista“ til Þýskalands
25. ágúst-3. september. Hún er farin
undir leiðsögn dr. Colettu Búrling,
forstöðumanns menningarstofnun-
ar Þýskalands, og þema ferðarinnar
er þýsk menningarsaga.
Vestræn menning á rætur sínar
að rekja til Grikklands og þangaö til
lands er skipulögð ferð á vegum
Landnámu dagana 25. maí-8. júní.
Þar verður komið víða við á helstu
sögustöðum landsins undir leiðsögn
Arthúrs Björgvins Bollasonar heim-
spekings. Ítalía er land fegurðar og
í ferð Landnámu þangað, 13.-27.
júní, gefst tækifæri til að kynnast
fjölbreytni landsins. í þeirri ferð
verða skoðaðar glæsilegar bygging-
ar borganna, útivistar notið í faðmi
Dólómítafjallanna og þræddar
fáfamar götur lítilla fiskimanna-
bæja.
Einng verða á vegum Landnámu
famar nokkrar ferðir til fjarlægra
staða. Ein þeirra er safaríferð til
Tansaníu 6.-23. nóvember undir
leiðsögn Tómasar Gíslasonar líf-
fræðings. Costa Rica í Mið-Ameríku
er framarlega í flokki þeirra þjóða
sem leggja áherslu á vemdun nátt-
úrunnar. 27% landsins heyra undir
þjóðgarða og náttúruverndarsvæði.
Landnáma hyggst skipuleggja hóp-
ferð þangað í desember næstkom-
andi sem nánar verður auglýst síð-
ar.
Af öðmm ferðum Landnámu má
nefna hópferð á slóðir Leifs heppna
og norrænna kappa í Vesturheimi í
síðari hluta ágústmánaðar og einnig
hópferð til S-Ameríku í lok septemb-
er undir leiðsögn Ara Trausta Guð-
mundssonar jarðeðlisfræðings.
-ÍS
e n d u r
dregnir úr sólarpott-
inum og fjórir mega
því eiga von á símtali
frá DV um það að þeir
hafi hreppt ferð til
Flórída fyrir tvo í
viku. -sv
Heathrow
Bandaríska flugfélagið Delta
Air, sem hefur átt í samstarfi
við breska flugfélagið Virgin
Air á flugi til London í gegnum
Heathrow, hefur sagt upp sam-
starfssamningi félaganna. Delta
áformar að fljúga sínum eigin
vélum til Heathrow. Virgin Air
hefur tilkynnt að það muni leita
samstarfs við bandaríska flugfé-
lagið Continental Airways í
stað Delta.
Vandræði
Breska flugfélagið British
Airways hefur hætt við að nota
Boeing 777-risaþotumar í Atl-
antshafsflugi félagsins. Ástæð-
an er síendurtekin tæknivanda-
mál sem komið hafa upp í þess-
ari tegund flugvéla. Boeing 777
eru með öflugustu flugvélar-
hreyfla veraldar í farþegaflugi.
Hætta yfirvinnu
Það er víðar en á íslandi sem
verkfoll trufla starfsemi. Flug-
menn hjá TAP Air í Portúgal
ætla að hætta að vinna yfir-
vinnu til að leggja áherslu á
kröfur sínar um kauphækkanir
og búist er við talsverðum trufl-
unum á flugleiðum félagsins
vegna þessa.
Umræðan um ómengað umhverfi og verndun landsvæða hefur sífellt verið
að færast í aukana og viðbrögðin eru þau að bjóða vistvænar ferðir þar sem
lögð er áhersla á að spilla ekki umhverfinu og njóta þess sem óspillt náttúra
hefur að bjóða.
Græn ferðamennska
350 krónur
300
250
200
150
100
50
Verð á biórflösku
319
-12 dýrustu löndin -
263
184 184
201 202
214 216 217 220 224 229
CO
o
f
C/)
£
'c
<D
E
o
cr
o
cr
03
±í
>
X
tU)
C
'cn
<D
V)
<D
>>
<D
cn
o
cr
~o
c
03
c
jB
O
Hvar er bjórinn dýrastur?
Island sígur niður listann
Alþjóðlega ferðatimaritið
Business Traveler gerir með reglu-
legu millibili kannanir á verði á
ýmsum „nauðsynjavörum". Á
hverju ári er til dæmis kannað með-
alverð á bjórflösku í flestum lönd-
um heims og síðan sett upp súlurit
sem sýnir 12 dýrustu lönd heims. í
þeim samanburði var ísland ofar-
lega á blaði á síðasta ári, með
fimmta hæsta meðalverðið út úr
búð. f könnun ársins nú, sem birtist
í marshefti Business Traveler, hef-
ur ísland sigið nokkuð niður listann
(sjá meðfylgjandi graf).
Listi 12 dýrustu landanna hefur
reyndar tekið miklum breytingum
frá í fyrra. Noregur var dýrasta
„bjórland" heims í fyrra, en er nú í
6. sæti. Grænland, sem áður var i 3.
sæti, nær þeim vafasama heiðri að
sitja á toppi listans í ár. f öðru sæti
er Rússland, sem var í 9. sæti í
fyrra. ísland fellur um 3 sæti á list-
anum. Til samanburðar má geta
þess að meðalverð á bjórflösku út úr
búð er um 160 krónur í Bretlandi,
tæpar 80 krónur í Frakklandi og
tæpar 65 krónur í Þýskalandi í
könnun blaðsins.
.jf--
Uf. í , &
Páskaliljur
í potti kr. 149
Krýsur
kr. 390
Króton
kr. 390
Páskagreinar
30% afsláttur.
Tilboöin gilda til þriöjudagsins 25/3
j Pottaplöntutilboö
Fikus (tvílitur), 30-40 cm. kr. 360 Fíkus 60-70 cm, kr. 490 100-130 cm, kr. 990 Sólhlífarblóm 60 cm. kr. 490 Friðarlilja 40 cm. kr. 440 Rósahjarta (á hengi) kr. 490 Gúmmítré 50-60 cm, kr. 490 Einir frá kr. 177 Kaktusar, 30-50% afsláttur Smáplöntur 5 plönturað eigin vali á aðeins kr. 990
Opið alla daga kl. 10-21
Blómabúðin
Garðskom
^ Suðurhlíð 35 - Sími 55 40 500