Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 50

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Page 50
62 afmæli LAUGARDAGUR 22. MARS 1997 Inlínc Qnlnoc I Til hamingju JUIIUS uuinBu með afmælið Edvard Júllus Sólnes, verkfræð- ingur og prófessor við Hf, Miðbraut 31, Seltjamamesi, er sextugur í dag. Starfsferill Jfdíus fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1955, fyrrihlutaprófi í byggingaverkfræði frá HÍ 1958, prófi i byggingaverk- fræði frá Tækniháskólanum í Kaup- mannahöfn 1961, lic.techn.-prófi í æðri burðarþolsfræði og sveiflu- fræði 1965 og stundaði sérnám í jarðskjálftafræðum við International Institute of Seis- mology and Erthquake Engineering í Tokyo 1963-64. Júlíus var ráðgjafarverkfræðing- ur i Reykjavík 1965-68, rannsóknar- verkfræðingur við byggingarann- sóknastofnun Danmarks Ingeniör- akademi 1969-70, lektor við aflfræði- og burðarvirkjadeild Tækniháskól- ans i Kaupmannahöfn 1970-72, hefur verið prófessor í verkfræðideild HÍ frá 1972 og var gistiprófessor við rík- isháskóla Mexíkó í Mexíkóborg 1991-92. Júlíus var bæjarfúlltrúi á Sel- tjamarnesi 1978-86, formaður Sam- bands sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu 1983-86, alþm. Reyknesinga 1987-91, formaður þingflokks Borg- araflokksins 1987-88, formaður Borgaraflokksins frá 1988, ráðherra Hagstofu íslands 1989-90, samstarfs- ráðherra Norðurlanda 1989-91 og umhverfisráðherra 1990-91. Hann var formaður Verkfræðingafélags ís- lands 1982-84, í stjóm Vísindasjóðs 1983-87, formaðm- stjórnar Stálvíkur hf. 1987-89, sat þing Alþjóðaþing- mannasambandsins 1988 og 1990, var forseti Verkfræðideilda HÍ 1993-95, vararektor HÍ 1994-95 og varaformaður stjórnar Norræna- afríska útgerðarfélagsins í Úganda 1995. Fjölskylda Júlíus kvæntist 25.9. 1959 Sigríði Maríu Óskarsdóttur, f. 18.3. 1938, verslunarmanni. Hún er dóttir Ósk- ars Aðalsteins Gíslasonar, skipa- miðlari í Reykjavík, og k.h., Láru Ásgerðar Guðmundsdóttur húsmóð- ur. Börn Júlíusar og Sigríðar eru Lára Sólveig, f. 11.8. 1959, sagnfræð- ingur í Los Angeles; Jón Óskar, f. 12.9. 1962, fréttamaður hjá RÚV; Inga Björk, f. 12.9. 1962, stjómmála- fræðingur i Reykjavík. Systkini Júlíusar em Gunnar, f. 12.3. 1940, lögfræðingur á Akureyri; Jón Kristinn, f. 17.6. 1948, lögfræð- ingur á Akureyri; Inga, f. 11.4. 1951, húsmóðir i Reykjavík; Páll, f. 1953, auglýsingateiknari í Reykjavík. Foreldrar Júlíusar; Jón G. Sólnes, f. 30.9. 1909, d. 8.6. 1986, alþm. og bankastjóri á Akureyri, og k.h., Ingi- ríður Pálsdóttir, f. 12.8. 1910, húsmóðir. Ætt Kjörforeldrar Jóns voru Edvard Gabriel- sen Solnes, útgerðar- maður á Akureyri, og k.h., Lilja Daníelsdótt- ir. Jón var sonur Guð- mundar, sjómanns á ísafirði, Þorkelssonar. Júlíus Sólnes Móðir Guðmundar var Guðfinna, systir Guðnýjar, ömmu prófessoranna Jónasar og Halldórs, Elísar verkfræðings, Þorvarðs, skólastjóra VÍ, og Margrétar, mynd- listarkonu Elíasbarna. Guðfinna var dóttir Jóns, b. á Læk í Dýrafirði, Bjamasonar. Móðir Jóns Sólnes var Hólmfríður Jónsdóttir, oddvita í Arnartungu í Staðarsveit, bróður Guðbrands, afa Gunnars Guðbjartssonar, fyrrv. framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs landbúnaðarins. Annar bróðir Jóns var Jón yngri þjóðskjalavörður. Systir Jóns var Guðrún, amma Am- ar og Hauks Clausen. Jón var sonur Þorkels, prófasts á Staðastað, Ey- jólfssonar. Móðir Þorkels var Guð- rún Jónsdóttir, prests og skálds á Bægisá, Þor- lákssonar. Móðir Jóns var Ragnheiður Pálsdótt- ur, prófasts í Hörgsdal, Pálssonar, langafa Guð- rúnar, móður Péturs Sig- urgeirssonar biskups. Móðir Hólmfríðar var Kristín Kristjánsdóttir, b. í Arnartungu, Þor- steinssonar, og Guðrún- ar Þorleifsdóttur, læknis i Bjamarhöfn, Þorleifs- sonar. Móðurbróðir Júlíusar er Páll Kr., organleikari í Hafnarfirði, faðir Hrafns, deildar- stjóra og tónskálds. Ingiríður er dóttir Páls, lögregluþjóns í Reykja- vík, bróður Lýðs, langafa Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Þjóðhags- stofnunar. Páll var sonur Árna, b. á Skammbeinsstöðum í Holtum, bróð- ur Jóns, langafa Guðnýjar, móður Guðlaugs Tryggva Karlssonar hag- fræðings. Móðir Páls var Ingiríður, systir Jóns, afa Jóns Helgasonar prófessors og skálds. Ingiríður var dóttir Guðmundar, b. á Keldum, bróður Stefáns, langafa Magneu, ömmu Ólafs ísleifssonar hagfræð- ings. Friðrik Guðmundsson Friðrik Guðmundsson, fyrrv. yfir- tollvörður á Keflavikurflugvelli, Sunnuvegi 9, Hafnarfirði, er áttræð- ur í dag. Fjölskylda Starfsferill Friðrik fæddist að Syðra- Lóni á Langanesi og ólst þar upp. Hann gekk í Bamaskóla Þórshafnar, lauk prófum frá Héraðsskólanum á Laug- arvatni 1936, frá Samvinnuskólan- um í Reykjavík 1938 og lauk minna mótorvélstjóraprófi í Vestmannaeyj- um 1941. Friðrik hóf störf hjá Tollgæslunni 1938 og starfaði hjá henni allan sinn starfsferil. Hann var hjá Tollgæsl- unni í Reykjavík 1938-42, í Hafnar- firði 1943-46 og hjá Tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli 1947-87, þar af yfirtollvörður á Keflavíkurflugvelli. Þá gerði hann lengi út eigin trillu frá Hafnarfirði. Friðrik sat í stjóm Stangaveiðifé- lags Hafnarfjarðar og var kjörinn heiöursfélagi þess 1993 og sat í stjóm Bókasafhs Hafnarfjarðar um skeið. Friðrik kvæntist 29.3. 1956 Elínu Berg Kristbergsdóttur, f. 1.11. 1929, verslunarmanni. Hún er dóttir Kristbergs Dagssonar, múrara í Reykjavík og Keflavík, og k.h., Kristjönu Sigurrósar Jónsdóttur húsmóður. Börn Friðriks og Elínar eru Frið- rik, f. 21.12. 1956, arkitekt í Hafnar- firði, en kona hans er Guðrún Helga Sigurðardóttir blaðamaður og eru börn þeirra Aldís Eva Friðriksdótt- ir, f. 26.1. 1990, og Dagur Páll Frið- riksson, f. 6.12.1991; Herborg, f. 23.2. 1960, húsmóðir í Hafnarfirði en maður hennar er Guðjón Sigurðs- son verslunarmaður og eru börn þeirra Elín Gróa Guðjónsdóttir, f. 18.1. 1979, og Sigurður Guðjónsson, f. 21.1. 1990. Fóstursonur Friðriks og sonur El- ínar er Kristján Skúli Sigurgeirs- son, f. 29.3. 1951, lögfræðingur, en kona hans er Þorgerður Erlends- dóttir og era böm þeirra Erlendur Kári Kristjánsson, f. 19.9. 1982, og Friðrik Gunnar Kristjánsson, f. 15.9. 1989, auk þess sem dóttir Kristjáns frá því áður er Elín Ida Kristjáns- dóttir, f. 2.6. 1976. Systkini Friðriks: Sigríður Guð- mundsdóttir, f. 10.8.1911, ekkja eftir Ingvar Einarsson og eignuðust þau fjögur börn; Vilhjálmur Guðmunds- son, f. 1.3. 1913, d. 18.8. 1980, var kvæntur Brynhildi Halldórsdóttur og eignuðust þau þijú böm; Anna Guðmundsdóttir, f. 23.4. 1914, ekkja eftir Eirík Þorsteinsson og eignuð- ust þau átta börn; Jón Erlingur Guðmundsson, f. 18.3. 1916, d. 3.6. 1976, var kvæntur Huldu Karlsdótt- ur og eignuðust þau þrjú böm; Ámi Guðmundsson, f. 28.2. 1919, d. 28.12. 1981, var kvæntur Ingunni Einars- dóttur og eignuðust þau fjögur böm; Þuríður Guðmundsdóttir, f. 4.1. 1921, ekkja eftir Bjöm Óla Péturs- son og eignuðust þau fimm böm; Stefanía Amfríður Guðmundsdótt- ir, f. 23.11.1922, gift Reyni Ármanns- syni og eignuðust þau fjögur böm; Baldur Guðmundsson, f. 26.4. 1924, kvæntur Margréti Friðriksdóttur og eignuðust þau fjögur böm; Þorgeir Guðmundsson, f. 20.8.1926, kvæntur Sesselju Kristinsdóttur og eignuðust þau fimm böm; Sigtryggur Guð- mundsson, f. 15.8. 1929, d. 9.5. 1982, var kvæntur Sigríði Halldórsdóttur og eignuðust þau þijú börn; Herdís Guðmundsdóttir, f. 11.12. 1930, gift Knúti Páli Guðbjartssyni og eignuð- ust þau þijú böm. Foreldrar Friðriks voru Guð- mundur Vilhjálmsson, f. 29.3. 1884, d. 1.2. 1956, bóndi á Syðra-Lóni á Langanesi, og k.h., Herborg Frið- riksdóttir, f. 14.4. 1889, d. 28.7. 1958, húsfreyja. Ætt Guðmundar var sonur Vilhjálms Guðmundssonar, b. á Skálum og Ytri-Brekkum á Langanesi, og k.h., SigríðcU' Davíðsdóttur húsfreyju. Herborg var dóttir Friðriks Er- lendssonar, bónda í Svínadal, síðar á Syðri-Bakka, og k.h., Guðmundu Friðbjargar Jónsdóttur. Hálfdán Ólafur Pétursson Hálfdán Ólafur Pétursson verk- stjóri, Fumgmnd 28, Kópavogi, verður fimmtugur á morgun. Starfsferill Ólafur fæddist í Bolungarvík og ólst upp í Meiri-Hlíð og i Bolungar- vík. Hann gekk i Bamaskólann í Bolungarvík og var tvo vetur við Héraðsskólann í Reykjanesi við Djúp. Ólafur fór ungur til sjós og var þá lengst af á Guðmundi Péturs ÍS 8. Þá starfaði hann í þrettán ár hjá CATALINA Guðmundur Haukur spilar til kl. 3.00 Lambalæri bearnaise, kr. 790 Jarðborunum ríkisins. Ólafur flutti til Siglu- fiarðar og starfaði þar, fyrst hjá ísafold hf. en var síðan saltfiskmats- maður hjá Þormóði Ramma. Hann flutti síðan í Kópavoginn þar sem hann hefur átt heima síðan. Ólafur starfar nú hjá S. Gunn- arssyni í Hafnarfirði þar sem hann er verk- stjóri við saltfiskverk- un. CATALINA Hamraborg 11, sími 554 2166 Fjölskylda Ólafur kvæntist Kristrúnu Ástvaldsdóttur, f.16.5. 1952, húsmóður. Hún er dóttir Ást- valds Kristjánssonar og Sigrúnar Stefánsdóttur á Siglufirði. Sonur Kristrúnar og stjúpsonur Ólafs er Sigvaldi Júlíusson, f. 18.5. 1974, sjómaður í Kópavogi. Synir Ólafs og Kristrúnar eru Hálfdán Ólafur Péturs- son. 4.2. 1977 Ólafur Kristján Davíð, f. 21.3. 1985; Pétur Smári, f. 4.7. 1986. Systkini Ólafs em Friðgerður Pétursdóttir, búsett í Ólafsvík; Elísa- bet María Pétursdóttir, búsett í Bolungarvík; Jónas Sigurður Péturs- son, búsettur í Ólafsvík; Fjóla Pétursdóttir, bú- sett í Noregi; Jón Guðni Pétursson, tviburabróð- ir Ólafs, búsettur í Bol- ungarvík. Foreldrar Ólafs: Pétur Jónsson, f. 21.3. 1921, d. 12.8. 1995, bóndi og verkamaður í Meiri-Hlíð og í Bolungarvík, og k.h., Fjóla Ólafsdóttir, f. 10.6.1922, nú bú- sett í Þorlákshöfn. Tekið verðm' á móti gestum í safnaðarheimilinu í Bolungarvík eftir kl. 15.00 á morgun, sunnudag- inn 23.3. 22. mars 85 ára Þórunn Sigfúsdóttir, Víðilundi 8 B, Akureyri. Kristján Lýðsson, Holtsgötu 14, Reykjavík. Erika Guðjónsson, Helgubraut 7, Kópavogi. 75 ára Garðar Pálsson, Fornhaga 15, Reykjavík. Petrea Kristjánsdóttir, Melabraut 24, SeltjarncU'nesi. 70 ára Sigurður P. Þorleifsson, | Egilsgötu 12, Reykjavík. Guðmundur Júlíusson, Álftamýri 14, Reykjavík. Þórunn Theódórsdóttir, Vogatungu 107, Kópavogi. Sveinbjörg Kristjánsdóttir, Unnarbraut 6, Seltjamamesi. 60 ára Gréta Sína Jónsdóttir, Hveramörk 19 A, Hveragerði. Eva Jónsdóttir, Brimslóð 6, Blönduósi. Guðrún Ólína Gunnarsdóttir, Fjarðargötu 46, Þingeyri. Oddný Vilhjálmsdóttir, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Sigurður Jónas Jónasson, Hverfisgötu 32, Reykjavík. Ásgerður Skúladóttir, Kringlumýri 7, Akureyri. Jóhann Ámason, Hraunteigi við Vatnsveituveg, Reykjavík. 50 ára Halldór Rúnar Guðmundsson, Stigahlíð 8, Reykjavík. Arnþrúður Stefánsdóttir, Hrauntungu 41, Kópavogi. Erla Ólafsdóttir, Teigaseli 5, Reykjavík. Gunnar Haraldsson, Stuðlaseli 9, Reykjavík. Sæmundur Jóhannsson, Gilsbakka I, Hvítársíðuhreppi. Anna Ásgeirsdóttir, Birkigrund 71, Kópavogi. 40 ára Ragnheiður B. Guðjónsdóttir, Flúðaseli 72, Reykjavík. Sigurður Tryggvi Sigurðsson, Hnotubergi 31, Hafharfirði. Tryggvi Björn Tryggvason, Greniteigi 43, Keflavík. Auður Pétursdóttir, Mýrarási 3, Reykjavík. Tómas Júlian Höiriis Knútsson, Nónvörðu 8, Keflavík. Þorsteinn Bjamason, Langholti 2, Keflavík. Kristín Guðjónsdóttir, Jaðarsbraut 33, Akranesi. Stefán Vestmann, Fífumóa 3 E, Njarðvík. Guðmundur Geirsson, Bólstaðarhlíð 9, Reykjavík. Þórhildur Hjaltadóttir, Fjarðarseli 27, Reykjavík. Jósef Rúnar Magnússon, Bergþómgötu 29, Reykjavík. Hans Eiríkur Baldursson, Feflsmúla 19, Reykjavík. Þóra Ársælsdóttir, Bauganesi 3, Reykjavík. Magnús G. Öfjörð, Tryggvagötu 14, Selfossi. Pálmi Stefánsson, Laufvangi 12, Hafnarfirði. Magnús Tumi Magnússon, Þingholtsstræti 30, Reykjavík. Margrét Helena Másdóttir, Hamrabergi 13, Reykjavík. Atli Már Sigurðsson, Ljósalandi 23, Reykjavík. Ásta María Bjömsdóttir, Öldugötu 22, Hafnarfirði. Hafberg Magnússon, Frostafold 42, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.