Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1997, Blaðsíða 60
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Björn og byssurnar: Lögreglustjóri tjáir sig ekki DV hafði samband við Böðvar Bragason, lögreglustjórann í Reykja- vík, og kannaðist hann strax við málið, a.m.k. að hluta, þegar blaða- maður bar upp erindið. Hann sagð- ist hafa reynt að greiða götu þess sem um ræðir eftir mætti eins og hann reyndi að gera fyrir hvern þann sem leitaði til hans. Böðvar kvaðst ekkert vilja láta hafa eftir sér um málið, hvorki um þátt Bjöms Halldórssonar né viðmælanda DV. Hann sagðist ekki vilja hlýða á það sem blaðamaður hefði að segja og spurningar í framhaldi af því og sagðist eðli máls samkvæmt ekki geta tjáð sig um það sem hann hefði ekki heyrt. -sv Reykjavík: Maður hand- tekinn eftir ofsalegan elt- ingaleik Þekktur aðili úr fikniefnaheimin- um var handtekinn eftir ofsalegan eltingaleik um götur Reykjavíkur á fjórða tímanum i gær. Maðurinn var stöðvaður á bifreiö sinni á Hverfisgötu. Lögreglubílar króuðu hann af en á ævintýralegan hátt slapp hann með því að aka upp á gangstétt. Þrír lögreglubílar eltu hann frá Hverfisgötu og alla leið vestur á Hringbraut. Þar tókst að króa hann af og stöðva fór hans. Lögreglumenn þurftu að beita valdi til að handtaka manninn og m.a. að brjóta rúður í bifreið mannsins. Hann var færður í fangageymslur lögreglunnar og var yfirheyrður seint í gærkvöld. -RR ‘í brother. | tölvu- límmiöa- H 1 prentari i. # Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443 SIMOIdÍL-AS'TÖ'l 533-1000 7 ‘S&t Kvöld- og helgarþjónusta L O K I Þremur stolnum byssum skilað til yfirmanns fikniefnalögreglunnar: Björn hét þeim sem skil- aði byssunum nafnleynd - hefur ítrekað tekið við stolnum byssum, segir í skýrslu hans „Mér finnst það í hæsta máta undarlegt að Björn Halldórsson, yf- irmaður hjá lögreglunni í Reykja- vik, skuli veita, samkvæmt eigin skýrslu, manni sem tengist inn- brotsþjófum og skemmdarvörgum nafnleynd. Á sama tíma og hann semur beint eða óbeint við glæpa- menn hef ég, með 40 ára flekklaust byssuleyfi, þurft að verjast ákærum vegna þess að ég hafði m.a. fengið úr dánarbúi látins ættingja byssur sem voru ónýtar og óvirkar fyrir mörgum áratugum," segir karlmað- ur, sem ekki vill láta nafns síns get- ið opinberlega, í samtali við DV. í ágúst 1995 var brotist inn í íbúö mannsins í Reykjavík um hábjart- an dag á meðan fjölskyldan var er- lendis í fríi. Auk þess sem hurðir og skápar voru stungnir með egg- járnum og töluverðar aðrar skemmdir unnar á ibúðinni var nokkrum byssum stolið úr safni mannsins. Lögreglan var kölluð á staðinn og lagði hún hald á byssu- safh húsráðanda þar sem hann var fjarverandi. Viku eftir að innbrotið var framið skrifaði Björn Halldórsson, yfirmaður fikniefnalögreglunnar, skýrslu, sem DV hefur undir hönd- um, þar sem hann segist hafa veitt þremur byssum viðtöku frá manni sem hann hafi heitið nafnleynd. í skýrslunni kemur fram að um- ræddur maður hafi ítrekað látið Björn hafa skotvopn úr undir- heimunum. Ennfremur segir að nefndur maður hafi fengið byss- urnar hjá þeim aðila sem hafi stolið þeim í áðumefndu innbroti hjá viðmælanda DV. Meðal annars vegna nafnleyndarinnar upplýstist innbrotið aldrei. „Það er undarlegt aðhannskuli geta afgreitt sakamál, þar sem brotið er gegn mér og fjölskyldu minni, og að ég skuli síðan vera kærður af sama efbætti." Rannsóknarlögregla ríkisins fór með rannsókn innbrotsins á sínum tíma. Þremur vikum eftir að Bjöm skrifaði sina skýrslu vissi aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá RLR ekkert um að vopnin væru komin í hend- ur Björns, að sögn viðmælanda DV. „Það hlýtur að vera verulegt um- hugsunarefni fyrir alla að yfirmað- ur í lögreglunni skuli geta samið viö fulltrúa innbrotsþjófa og aö þeir skuli ekki þurfa að taka út refsingu fyrir það sem þeir gerðu,“ segir maðurinn. -sv Þeir Jón Bjarnason og Snorri Baldursson meö mjólkina sem þeir keyptu noröur á Akureyri og tóku með sér í hand- farangrinum í flugvélinni. DV-mynd E.ÓL Reykj avíkurflugvöllur: Mjólk í hand- farangri farþega Þó að mjólkurleysi hrjái íbúa á höfuðborgarsvæðinu er nóg til af mjólk annars staðar á landinu. í gær rákust DV-menn á farþega á Reykjavíkurflugvelli með mjólkur- femur í handfarangri sínum. Þeir vom að koma frá Akureyri með mjólk handa ættingjum og vinum. „Ég er í söluferð en notaði að sjálfsögðu ferðina og tók með mér mjólk handa afabarninu mínu hér í Reykjavík," segir Jón Bjarnason sölumaður. Hann var með verðmæta tösku fulla af úrum í annarri hend- inni en poka með mjólk í hinni. „Það er spuming hvort er verð- mætara hér núna,“ segir Jón 1 gam- ansömum tón. „Ég var fyrir norðan og keypti auðvitað nokkra lítra af mjólk til að taka með handa strákunum mínum litlu. Þetta dugir alla vega fram yfir helgi. Ég var að spá í að taka bens- ín með í leiðinni en vissi ekki hvort flugmennirnir hefðu leyft það,“ seg- ir Snorri Baldursson, sem einnig var að koma með innanlandsflugi frá Akureyri. -RR Veðriö á sunnudag: Hlýnandi veður sunnanlands Á morgun er gert ráð fyrir austankalda, léttskýjuðu og vægu frosti um landið norðanvert en gengur í vaxandi suðaustanátt með hlýn- andi veðri sunnanlands og vestan. Fer að rigna þegar líður á daginn. Veðrið á mánudag: Rigning víðast hvar Á mánudag verður austan-stinningskaldi og jafnvel allhvasst meö þíðu og rigningu um mestallt landið. Veðrið í dag er á bls. 65 ofuísl9rids Mánudagur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.