Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Side 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 1997
Fréttir
7 ára telpa á Eyrarbakka bjargaði leikskólastýrunni:
Lá kvalin og ósjálf-
bjarga í snjónum
- þegar ég sá Selmu litlu og kallaði á hjálp, segir Kristín Eiríksdóttir
„Ég var að á leið milli húsa þeg-
ar ég datt illa í hálkunni við leik-
skólalóðina. Ég lá ósjálfbjarga og
kvalin í snjónnm í nokkra stund
og gat ekki hreyft mig. Það snjóaði
mikið og ég var frekar illa klædd,
orðið ískalt og farið að svima. Mér
var hætt að lítast á blikuna en
varð mjög fegin þegar ég loks sá
Selmu litlu koma þarna að og mér
tókst að kalla á hana. Hún horfði
imdrandi á mig og spurði af
hverju í ósköpunum ég væri liggj-
andi þama í snjónum," segir Krist-
ín Eiríksdóttir, leikskólastýra á
Eyrarbakka.
Kristín slasaðist illa á fæti þeg-
ar hún féll í hálku þar í bæ í síð-
ustu viku. Kristín þríbrotnaði á
fætinum og var Qutt á sjúkrahús-
ið á Selfossi. Hún kom heim til
sín í gær og var þá við ágæta
heilsu. Kristín var á leið frá heim-
ili sínu í leikskólann þegar slysið
varð við leikskólalóðina. Selma
Friðriksdóttir, 7 ára gömul telpa á
Eyrarbakka, kom Kristínu til
bjargar og sótti hjálp. Kristín er
fyrrverandi fóstra Selmu á leik-
skólanum.
Selma Friðriksdóttir, 7 ára telpa á Eyrarbakka, og Kristín
Eiríksdóttir leikskólastýra með gifs á fætinum eftir slys-
ið. Kristín þríbrotnaði á fæti við að detta í hálku. Selma
litla kom Kristínu til bjargar þar sem hún lá kvalin og
ósjálfbjarga í snjónum. DV-mynd KE
„Selma lét
manninn vita af
mér og hann
keyrði mig síð-
an á sjúkrahús
á Selfossi. Þetta
var svo sárt að
þaö leið yfir
mig á leiðinni
og ég fékk lost
þegar ég rank-
aði við mér á
spítalanum. Eft-
ir á að hyggja
er þetta svolítið
skondið því að
ég var aö dreifa
bæklingum frá
Slysavamafé-
laginu þar sem
fjallað er um
hálkuslys og
fólki bent á að
nota mann-
brodda til að
komast hjá slys-
um. Bækling-
amir dreifuðust
um allt hverfið
og manninum
mínum o.fl. finnst þetta ansi fynd-
ið. Ætli ég verði ekki að nota
mannbrodda þegar ég kemst aftur
á fætur,“ segir Kristín, en hún
þarf að vera nokkrar vikur með
gifs á fætinum.
„Þetta er ekki heppilegasti tími
því þaö á að ferma hjá mér annan í
páskum. Ég er alla vega ekki í
ástandi til að baka núna en þetta er
allt í lagi því veislan verður haldin
á Kafii Lefolii," segir Kristín á léttu
nótunum þrátt fyrir slysið.
Hjólaöi eftir hjálp
„Ég var að hjóla þarna við leik-
skólann þegar ég sá Kristínu
liggja í snjónum. Ég fór til hennar
og spurði hana af hverju hún væri
liggjandi i snjónum. Hún sagði
mér að hún hefði meitt sig og bað
mig að sækja aðstoð. Ég hjólaði þá
heim til hennar til að sækja hjálp.
Maðurinn hennar Kristínar var
heima og ég sýndi honum hvar
hún lá. Ég er mjög ánægð að ég
gat hjálpað Kristínu," segir bjarg-
vætturinn Selma Friðriksdóttir, 7
ára.
-RR
Haugabrim á Háfsfjöru:
Lyfjagámur í
sjóinn og pillur
um alla fjöru
Haugabrim var á Háfsfjöru suður
af Þykkvabæ á strandstað Vikart-
inds í gær og hefur grafið undan
skipinu og slagsíðan á því aukist
enn, sem eykur á erfiðíeika við að
dæla olíu úr skipinu.
í gærmorgun féllu allmargir gám-
ar af dekki skipsins í sjóinn og einn
þeirra sem innihélt ýmiss konar lyf
opnaðist og dreifðust lyfin, þar á
meðal ýmis konar pilluglös, um fjör-
una. Fleiri gámar féllu síðar um
daginn og er talið að alls hafi í gær
farið í sjóinn 10-12 gámar
Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli
hefur gengið þokkalega aö koma ol-
íunni úr skipinu i burtu úr fjörunni.
Draga hefúr þurft hlaðna olíubfiana
með jarðýtu upp fjöruna, en þegar
ofar dregur hefin sandurinn og jörð-
in verið frosin og tankbílamir kom-
ist leiðar sinnar af eigin rammleik.
Að sögn lögreglunnar hefur ekki
verið reynt að fara niður í lestar
skipsins, en í þeim eru vörugámar,
en auk þess rúmlega tugur nýrra
bíla, en ekkert er vitað um ástand
þeirra. -SÁ/Jón Ben.
Eldur í vélarrúmi
Snemma í gærmorgun kom eldur
upp í vélarrúmi Friðriks Sigurðs-
sonar ÁR þar sem skipið var statt út
af Stafhesi.
Talið var að ölíurör hefði gefið
sig og olía slest á heita vélina með
þeim afleiðingum að eldurinn gaus
upp. Enginn var í vélarrúminu þeg-
ar þetta gerðist en skipverjum tókst
að dæla úr handslökkvitækjum yfir
eldinn og loka vélarrúminu.
Einn skipveiji fékk snert af reyk-
eitrun og fór hann með varðskip til
hafnar. -sv
já J rödd
FOLKSINS
904 1600
Verður Afturelding
íslandsmeistari í handbolta?
Myndin var tekin um helgina þegar veriö var aö dæla svartolíu úr Vikartindi.
Hallinn á skipinu jókst mjög í gær og varö aö hætta dælingu af þeim sökum.
DV-mynd Jón Benediktsson
Útgerðarfélag Akureyringa:
Enginn Noregsfiskur
DV, Akureyri:
Útgerðarfélagi Akureyringa hef-
ur ekki tekist það ætlunarverk sitt
að fá þorsk frá Noregi til vinnslu í
frystihúsi félagsins á Akureyri eins
og áformað var, og er um að kenna
miklum aflabresti á Lófótensvæð-
inu þar sem ÚA-menn hugðust
kaupa fiskinn. Frekari tilraunum til
kaupa á fiski frá Noregi hefúr verið
slegið á frest fram yfir páska en
málin verða skoðuð þá.
Þrátt fýrir þetta hefur verið næg
atvinna í frystihúsum ÚA bæði á
Akureyri og Grenivík, og hefur
hluti starfsfólksins m.a. hafið störf
klukkan fjögur á morgnana. Skip
ÚA hafa gert það gott við karfaveið-
ar að undanfornu, svo dæmi sé
nefnt.
-gk
Hasshundurinn Jens, sem er hér
meö eiganda sínum, Daníel
Snorrasyni, fann hass í fbúö á
Akureyri um helgina. Jens er nýr
í þjónustu yfirvalda á Akureyri en
hefur verið f þjálfun Daníels aö
undanförnu. DV-mynd gk
Akureyri:
Lögreglan
fann hass
og kókaín
DV, Akureyri:
Lögregla og rannsóknarlög-
regla á Akureyri höfðu hendur í
hári vímuefiianeytenda um helg-
ina, og var reyndar um tvö að-
skfiin mál að ræða.
Á laugardagsmorgun réðst lög-
reglan til inngöngu í heimahús
þar sem veisla stóð yfir. Lögregl-
an beitti hundi við leit í íbúðinni
og fann hann 4 gr af hassi sem
falin voru auk þess sem lögreglan
gerði upptækar fjórar hasspípur
og handtók einn aðila undir
áhrifum. Gnmur leikur á aö fleiri
hafi verið þama til staöar en
komist undan og jafhvel með eitt-
hvað af hassi meö sér.
Eftir hádegi á laugardag hand-
tók lögreglan svo mann undir
áhrifum fíkniefna og fannst á
honum lítið magn af kókaíni. -gk
Stuttar fréttir
Þorskmengun
Það er neyðarástand vegna
mikillar þorskgengdar á mið
Suðumesjamanna og hið mesta
basl aö veiða aörar tegundir, seg-
ir Grétar Mar Jónsson skipstjóri
við Alþýðublaðiö.
Endurreisn eggjabakka
Norskt hlutafé að upphæð 300
milljónir verður lagt í fyrirtækið
Silfurtún sem m.a. framleiöir
eggjabakka úr endurunnum
pappír. Fyrirtækið hefúr átt í
erfiðleikum að undanfomu. Dag-
ur-Tíminn segir frá.
Átta vilja Iðnó
Átta aðilar hafa sótt um að fá
að reka Iðnó þegar búið er að
endurbyggja húsiö. Dagur-Tím-
inn segir frá.
11 lambaskrokkar teknir
Lögreglan gerði upptæka 11
kjötskrokka sem verið var aö
flytja tfi borgarinnar utan af landi.
Flytjandi sagðist ætla það vanda-
mönnum sínum. Stöð 2 sagði frá.
Þyrla fyrir misskilning
Þyrlan TF LÍF var send fyrir
misskilning til að sækja fjóra
franska lögreglumenn í Nýjadal á
dögunum. Frakkamir sendu út
Mayday neyðarmerki á sérstakt
merkjatæki sem þeir höfðu með-
ferðis. Neyðarkallið sendu þeir út
vegna þess að þeir kunnu ekki á
tækið, segir Morgunblaðið. -SÁ