Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1997, Qupperneq 15
Franski skartgripahönnuðurinn Cartier var ekki hinn fyrsti í því fagi
til að hanna armbandsúr. Hann náði hins vegar athygli _
heimsins með tegund sem hann kallaði Santos í höfuðið á
brasilíska flugkappanum Santos-Dumont árið 1911. Sú Æf
tegund er enn í bullandi sölu í fínu búðunum. Önn-
ur vinsæl tegund er Panther sem kom á markað
árið 1983 og er kvenúr (sjá mynd). Það er úr ^Llll
18 kt. gulli, gegnheilt og nýtur sín sem
armband. Gwyneth Paltrow og
Madonna nota Panther frá Cartier mM
og Madonna gaf vinkonu sinni Alan- \
is Morissette eitt slíkt að gjöf. Pant- V
her úr skíra gulli kostar 11.400 doll-
ara en annars eru Cartier úr frá Spjj
1.200-547.000 dollurum.
Chanel úrið, eins og aðrar vörur undir '
því heiti, er kennt við Coco Chanel. Sjálf hannaði
hún ekkert úr um sína daga. Þessi tegund kom á mark-
að árið 1987 og hefur öll einkenni Coco Chanel, svo vel lágu hönnuðir yfir
verkinu. Það hefur formið frá hinum frægu Chanel-töskum og ilmvatninu
Chanel No. 5. Mira Sorvino og Céline Dion bera svona úr á handleggnum til
þess að vera í stil við fötin, skóna, töskumar og svo framvegis en þessar
tvær eru einlægir Chanel-aðdáendur. Þetta úr kostar 2.950 doOara en ann-
ars kosta Chanel-úrin frá 1.450 dollurum til 47.000 dollara.
V % T I Klassískt og gamaldags
^ *.|l útlit einkennir úrin frá
^Frank Muller Þetta
$ g fimm ára gamalt fyrirtæki
QÍ* jMm starfrækt í landi tímatök-
unnar, Sviss. Muller
^ *oio» v framleiðir einhver glæsi-
Qy /fí " legustu og flóknustu úr í
\ ^ ’ ,/Æ heimi. Ein tegundin hefur inn-
’L W /Æ byggt og afar nákvæmt dagatal
sÆ sem enclist til ársins 2100. Aðeins
7/***+/Æ eru framleidd 3.500 stykki af Muller-
Æ úrum á ári. Melanie Griffith gaf Ant-
W/s onio Banderas eitt slíkt í jólagjöf. Aðrir
Hr Muller-strákar eru Bruce Springsteen og
W George Bush. Þessi tegund kostar 12.200 dollara
en verðið er almennt frá 4.800 dollurum upp í
330.600 dollara.
Fyrstu uffn smíðaði Abraham-Louis Breguet áriö
1775 og þotulið allra tíma, með Marie
t Antoinette og Napolen í fararbroddi, hefur
■ skreytt sig með Breguet. í dag eru það nöfn
£9 eins og Linda Evangelista og Hakeem Ola-
m juwon sem nota þessa tegund. Harrison Ford
I ber eina útgáfu (sjá mynd) í kvikmyndinni
I Sabrina. Þetta úr kostar 13.500 dollara en þau
I dýrustu kosta 615.000 dollara.
verður opin fyrir og um
páskana sem hér segir:
þriðjudaginn 25. mars kl. 9-22
miðvikudaginn 26. mars kl. 9-18
mánudaginn 31. mars,
annan í páskum, frá kl. 16-22
Rolex er ekki síst frægt fyrir hið háa verð. Árið 1926 kom Rolex með
á markað fyrsta úrið sem var fullkomlega höggþétt, vatnsþétt og einangr-
að. Það þolir að fara í kaf, upp í háloftin og bruna. A1 Capone notaði Ro-
lex enda maðurinn í stöðugri lífshættu. Sir Edmund Hillary kleif Ever-
est með Rolex á handleggnum en í dag eru það Clint Eastwood og Paul
Newman sem bera Rolex. I kvikmyndinni Leaving Las Vegas lítur
Nicolas Cage á Rolexinn sinn. Sean Connery not-
aði tegundina Submariner (sjá mynd) í hlut- Æilf-
verki James Bond í Dr. No og Thunderball. 'MÆÆ
Verð á Rolex er frá 2.125 dollurum upp í /jSr^ÍÉÍ
17.950 dollara. J,/Æ ÆÆW.mí
Lokað:
skírdag, föstudaginn langa,
laugardaginn 29. mars og páskadag.
Athugið:
Síðasta blað fyrir páska kemur út
miðvikudaginn 26. mars.
Fyrsta blað eftir páska kemur út eldsnemma
að morgni þriðjudagsins 1. apríl.
smáauglýsingadeild
Þverholti 11 - sími 550 5000