Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
5
>
l
I
>
I
I
i
>
f
>
I
>
>
>
i
f
I
>
>
i
i
}
}
>
dv Fréttir
Margrét Frímannsdóttir:
Öryrkjar og
aldraðir fái
sómu
hækkun
„Ég held að þetta sé nokkuð gott
miðað við þær kröfur sem var lagt
af stað með. Ég hefði að vísu viljað
sjá lægstu launin hækka upp í 70
þúsund strax. Það á eftir að sjá nán-
ari útfærslu á tryggingum og upp-
sagnarákvæðum sem skipta veru-
legu máli,“ segir Margrét Frímanns-
dóttir alþingismaður um nýju kjara-
samningana.
„Mér finnst eðlilegt að öryrkjar
og aldraðir fái sömu hækkun og
náðist almennt í þessum samning-
um. Það hlýtur að fara að koma að
því að lægstu taxtar þeirra fari upp
í 70 þúsund krónur," segir Margrét.
-RR
EskiQörður:
Hagnaðurinn
312 milljónir
Hagnaður Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf. á árinu 1996 nam um 312
milljónum króna eftir að reiknaður
hefur verið tekju- og eignaskattur.
Heildarvelta félagsins nam 3.846
milljónum króna á árinu en að
teknu tilliti til afla til eigin vinnslu
var veltan 3.106 milljónir. -sv
Tekinn með
heimaslátrað
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
mann á vörubíl sem var að koma
vestan af fjörðum aðfaranótt mánu-
dags. í ljós kom að á palli bílsins
voru 8 eða 9 lambaskrokkar og 2
nautaskrokkar. Maðurinn viður-
kenndi að kjötið væri af heimaslátr-
uðu en sagði það vera ætlað fjöl-
skyldunni á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum DV er
miðað við að heimaslátrað kjöt fari
ekki út fyrir landareign viðkomandi
slátrara. Heilbrigðiseftirlitið gerði
kjötið upptækt og það verður
brennt. -sv
Steingrímsfjarðarheiði:
Voru fastir í
bílunum
Lögreglan í Hólmavík sótti í fyrri-
nótt fólk sem sat fast í fólksbíl á
Steingrímsfjarðarheiði. Vont veður
var á heiðinni, ofankoma og bylur,
og komst fólkið ekki leiðar sinnar.
Eitthvað var af flutningabílum á
heiðinni, að sögn lögreglu, en ekk-
ert var hægt fyrir þá að gera um
nóttina. Öflug ruðningstæki þurfti
til þess að ryðja þeim leið. -sv
Útgerðarfélagið:
Stærri hluti af-
urðanna beint til
neytenda
DV, Akureyri:
Sífellt stærri hluti af framleiðslu
Útgerðarfélags Akureyringa hf. fer
beint til neytenda erlendis, og hefur
sá hluti framleiðslunnar aldrei verið
jafn stór og á síðasta ári.
Með þessu er átt við afurðir sem
eru ekki unnar frekar eftir að þær
fara frá ÚA og þar til neytendur
kaupa þær í verslunum. Stærstur
hluti þessarar framleiðslu er laus-
fryst karfaflök sem ýmist eru seldar
í heimsendingarþjónustu eða á stór-
mörkuöum í Þýskalandi og Frakk-
landi.
Stærra hlutfall af þorski hefur
einnig farið i verðmeiri pakkningar,
bæði flakapakkningar á Bandaríkja-
markað og lausfrysta flokkaða bita
sem fer til stóreldhúsa í Bretlandi,
Þýskalandi og Frakklandi. -gk
PHILIPS n
11.990 ta
Fullkominn símboði með
tímastillingu, upplýstum
skjá, 30 nr. minni, titrara og
öryggiskeðju.
EKKERT AFNOTAGJALD!
frá
4980 kr.
Mikið úrval fyrir allar
fermingarstelpur
og stráka.
frá
980 k
- eins og t.d. þessi!
fjió
1490 kr.
Hárblásari á mynd:
4.490 kr.
Tveggja hnífa,
með og án hleðslu.
Rakvél á mynd:
7.990 kr.
(jló
5.190 kr.
fllQ
1.990 kr.
Fullvaxnar
reiknivélar fyrir
fullorðið fólk!
t
5
m
unum e
'jlir j^ermingcirbörnimum !
V)
© ©
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 15 OO
http.//www.ht.is
umboðsmenn um land allt