Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 52
i@ g§§ m lyiiMii'agE A ■ w 1 11 1 1 ! • S LT3 Æsu-málið: í skoðun að fá breska kafara „Ég er með Æsu-málið í athug- un,“ var það eina sem Halldór Blön- dal vildi segja þegar tíðindamaður DV spurði hann hvort það væri rétt að samgönguráðuneytið væri að fá breska kafara til að kafa niður að flaki skelveiðibátsins Æsu sem sökk í Amarfirði. DV hefur fyrir því heimildir að unnið sé að því að fá þessa kafara til landsins. Þeir munu vera sérfræð- ingar á þessu sviði. Þeim er ætlað að komast að því hvað olli því að báturinn sökk i blíðalogni auk þess að ná upp líkum mannanna tveggja, sem fóru niður með bátnum, séu þau enn um borð í því. -S.dór Bankamenn: Semjum bara til * tveggja ára „Við getum í sjálfu sér farið inn í það launamunstur sem gengið er út frá í samningunum frá síðustu helgi. Það kemur hins vegar ekki til greina að við semjum til lengri tíma en tveggja ára,“ sagði Friðbert Traustason, formaður Sambands ís- lenskra bankamanna, í morgun. í gær felldu bankamenn miðlun- artillögu ríkissáttasemjara með 92,5 prósent atkvæða þeirra 3.136 félaga sem atkvæði greiddu um tillöguna. ^ ~r Bankarnir felldu hana líka. -S.dór Ráðuneytið axli sína ábyrgð „Það er kominn tími til aðgerða og það verður að mínu mati aðeins gert með því að ríkið gangist í f]ár- hagslega ábyrgð fyrir hreinsuninni þar sem hún er 260 manna sveitarfé- lagi algerlega ofviða,“ segir Matt- hías Garðarsson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Suðurlands, í samtali við DV í morgun. -SÁ Smáauglýsingadeild DV er opin í dag, 26. mars, til kl. 18. Lokað verður skírdag, föstudaginn langa, laugardaginn 29. mars og páskadag. Opið verður mánudaginn 31. mars, annan í páskum, frá kl. 16-22. Blaðaafgreiðsla DV er opin frá kl. 9-20 i dag. Lokað verður skirdag, fóstu- daginn langa, laugardaginn 29. mars, páskadag og annan í páskum. Opið þriðjudaginn 1. apríl frá kl. 6-20. Fyrsta blað eftir páska kemur út eldsnemma að morgni þriðju- dagsins 1. apríl. Gleðilega páska! RÁÐHERRAR HLJÓTA AÐ SETJA KVÓTA Á RUSLIÐ! FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frjálstróháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 Einstæður dómur í hnífstungumáli þar sem fómarlambið lét stúlku passa bömin sin: Greiddi barnapíunni með fíkniefnum - móðir stúlkunnar dæmd fyrir hnífstunguna en refsing hennar verulega milduð Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað í gær að 8 mánaða fangels- isrefsing konu, sem var dæmd fyr- ir að stinga aðra konu í handlegg með hníf, skyldi verða skilorðs- bundin þar sem m.a. þótti ljóst að sú síðamefnda hafði greitt dóttur konunnar með flkniefnum fyrir bamapössun. Dómurinn telur að þó brotið hafi verið stórfellt og ekki sé algengt að skilorðsbinda slíkar refsingar eigi konan sér málsbætur því hún hafi framið brotið í ákafri geðshræringu með velferð barns síns að leiðarljósi. Málið á sér enga hliðstæðu hér á landi. Hnífstungan átti sér stað í heimahúsi á Réttarholtsvegi í maí síðastliðnum. Fram að þeim tíma höfðu tvær dætur ákærðu passað böm fyrir konu sem þar bjó. For- eldrum þeirra þótti ljóst að eftir að þær byrjuðu að passa böm í um- ræddu húsi hefði yngri dóttirin farið að sýna merki fíkniefna- neyslu - verið undir áhrifúm þegar hún kom heim. Þá þótti einnig ljóst að bréf, sem innihéldu fikni- efni, hefðu verið send á nöfn stúlknanna heim til afa þeirra og ömmu. Bréfin voru afhent lögreglu og reyndust þau innihalda kókaín. Foreldrar stúlknanna höfðu samband við lögreglu sem greindi þeim frá að konan, sem lét þær passa böm sín, væri hættuleg og hefði þegar hótað fjölskyldu eins lögreglumannanna. Móðirin komst síðan að því að yngri dóttir herrn- ar, sem fékk greitt með fikniefn- um, var að passa fyrir konuna á Réttarholtsveginum. Hún reyndi að fá hana heim en tókst það ekki. I málinu kom síðan fram að Bjöm Halldórsson hjá fíkniefnadeildinni hefði greint henni frá því að sér fyndist óhugnanlegt hversu mikið vald konan hefði yfir barnapíunni, dóttur ákærðu. Eftir að upplýsingar höfðu borist um að dóttirin væri að fara úr landi með konunni olli það móður- inni miklu hugarangri. Hún ákvað síðan kvöld eitt að taka hníf með sér að heimili konunnar, i varnar- skyni miðað viö aðvömn lögreglu, og freista þess að ná dótturinni heim á ný. Dóttirin kom siðan til dyra og upphófust átök sem end- L O K I Veðrið á morgun: Éljagangur norðan- lands Á morgun verður norðlæg átt. Það lægir smám saman á austan- verðu landinu en éljagangur verður norðanlands. Suðvestan- kaldi verður sunnanlands og slydduél síðdegis og vægt frost. Veðrið í dag er á bls. 66 Mokfiskirí er um allan sjó suður af landinu en það kemur ekki bara þorskur í veiðarfæri bátanna heldur einnig alls konar varningur úr hinu strandaða skipi, Vikartindi. Rusl úr farmi skipsins hefur dreifst um fjörur allt austan úr Mýr- dal og vestur að Ölfusárósum. Á myndlnni eru þeir Guðmundur Alexander Gíslason vélavöröur, t.v., og Sigurður Viggó Gunnarsson, skipstjóri á Haferni ÁR 115, með hiuta af „afla“ skipsins úr róðri í gær. Auk netabelgjanna og harviðarins var mikið af alls konar pakkasúpum og -sósum, hvers konar pasta og smávindlum í netunum og er Guð- mundur Alexander að reykja einn þeirra. Hann sagði nokkurt saltbragð af vindlinum og sjávarlykt af reyknum. DV-mynd Helga Sörensen uðu með því að móðirin stakk hina konuna í framhandlegg. Meiðsl konunnar reyndust ekki stórfelld en við leit lögreglu fund- ust ýmis áhöld til fiknefnaneyslu, s.s. nálar, sprautur og fleira. Dóm- urinn tók m.a. mið af því að báðar dæturnar staðfestu að sú yngri hefði þegið fikniefni hjá konunni sem hún passaði fyrir og þar hefði hún kynnst fólki tengdu neyslu. Dómurinn taldi að ákærða hefði haft réttmæta ástæðu til að óttast um dóttur sína vegna fikniefha- neyslu þótt óafsakanlegt hefði ver- ið að beita hníf. Hins vegar hefði örvænting, tilfinningatengsl og væntumþykja móður í garð dóttur ráðið ferð hennar að heimilinu á Réttarholtsveginum. -Ótt Björn Halldórsson: Ég hef akkúrat ekkert að fela „Ef þetta moldviðri verður til þess að þar til bærir aðilar setja loks þær vinnureglur sem beðið var um fyrir mörgum árum fagna ég þessari rannsókn. Ég hef akkúrat ekkert að fela en mér finnst óeðli- legt að tjá mig frekar mn þetta mál í fjölmiðlum áður en rannsókn fer fram. Ég hlýt að verða kallaður til. Ég vísa þessu að öðru leyti til lög- reglustjóra því ég lít svo á að hann sé ábyrgur fyrir embættinu," sagði Björn Halldórsson hjá fíkniefna- deild lögreglunnar í Reykjavík, að- spurður um rannsókn sem dóms- málaráðherra hefur fyrirskipað vegna samskipta embættisins við Franklín Steiner á síðustu árum. Atli Gíslason hæstaréttarlögmað- ur hefur verið settur sérstakur sak- sóknari málsins. -Ótt Líkamsárás um miðjan dag Ráðist var á mann á Lindargötu um miðjan dag í gær. Maðurinn hafði lagt bíl sínum við hús í götunni þegar tveir menn komu og réðust á hann. Fómar- lambið fékk minni háttar áverka. Lögreglan leitaði árásarmann- anna í gær en sú leit hafði engan ár- angur borið i morgun. -RR \ 533-1000 Kvöld- og helgarþjónusta f brother tölvu- límmiöa- prentari Nýbýlavegi 28 - Sími 554-4443

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.