Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
23
I
!
I
1
Opið
laugordaga
kl. 10-16
Paö kom víst fáum á óvart aö tékkneska myndin Kolya skyldi fá óskarsverölaunin fyrir bestu erlendu kvikmyndina í
Hollywood á mánudagskvöld. Margir kættust við þau tíðindi, ekki síst aöstandendurnir. Þeir eru Zdenk Sverak, Eric Abra-
ham, Jan Sverak og Andrei Schalmon. Hér brosa þeir breitt. Zdenk skrifaöi handritið og lék aðalhlutverkiö en sonur hans,
Jan, leikstýröi. Andrei litli lék titilhlutverkiö. Myndin hefur notiö mikilla vinsælda í heimalandinu. Símamynd Reuter
finna rósailm
Skallapopparinn Elton John, sem
kominn er með frægustu
hárígræðslu sögunnar, er hættur að
drekka og éta dóp og lifa eins og
svín. Hann ætlar nefnilega að
tryggja að hann geti fundið ilminn
af öllum rósunum sem hann fær á
fimmtugsafmælinu sínu á morgun,
skírdag. Hann hefur líka sjaldan
verið hressari en einmitt nú. Allt er
fimmtugum fært!
Úlpur
kápur (stuttar og síðar)
ullarjakkar
(flllt n kr. 5.000)
Elton John vill
Leonardo DeCaprio:
Vísar á bug orðrómi
hann sé hommi
um
■ r
Kvikmyndaleikaranum unga og
efnilega, Leonardo DeCapri, þótti
ekki auðvelt að leika í myndinni
Rómeó og Júlía því ýmis óhöpp
urðu meðan á tökum stóð í Mexíkó.
„Allir urðu mjög veikir af niður-
gangi, það voru framin ofbeldisverk
á götunum og einum úr hópnum var
rænt og það var heimtað lausnar-
gjald fyrir hann,“ segir Leonardo í
nýlegu viðtali.
Hann var í upphafi í vafa um
hvort hann ætti að taka boðinu um
að leika i myndinni en leikstjóran-
um tókst að telja hann á það. Það
var svo Leonardo sem aðstoðaði
leikstjórann við að finna leikkonu í
hlutverk Júlíu. Fyrir valinu varð
Claire Danes sem þekkt er úr
myndaflokknum My So Called Life.
„Ég hafði séð hana í sjónvarps-
þáttunum og ég vissi að hún gæti
Leonardo DeCaprio og Claire
Danes.
verið mjög tilfinninganæm og áköf.
Það var nákvæmlega þannig sem
Júlía á að vera,“ sagði Leonardo.
Samvinna þeirra var góð en þau
urðu ekki nánir vinir utan hvíta
tjaldsins. Leonardo segist ekki hafa
þörf fyrir miklu fleiri vini en þá
sem hann á frá því í grunnskólan-
um. Hann vísar á bug öllum
orðrómi mn að hann sé fíkill og
hornmi og bendir á að hann hafi
verið með Bridget Hall í heilt ár. Le-
onardo vill ekki ræða ástarmál en
segist hafa elskað og misst.
Hann er alinn upp í Hollywood
þar sem faðir hans gaf út teikni-
myndasögur. Þegar Leonardo var 14
ára sagði hann foreldrum sínum að
hann ætlaði að verða leikari og
hann hrósar þeim fyrir þann stuðn-
ing sem þeir veittu honum til að
hann gæti látið drauminn verða að
veruleika. Hann lærði aldrei leiklist
og lífið í Hollywood var erfitt í byrj-
un. Umboðsmaður nokkur heimtaði
að hann léti klippa sig og breytti um
nafn. „Ég hét Lenny Williams um
skeið," segir hann.
Eftir að hafa farið 50 sinnum í
prufu fékk hann loks hlutverk í aug-
lýsingamynd. „Ég fékk peninga fyr-
ir það sem mér þótti gaman að gera
og var fjarverandi frá skólanum i
tvo daga. Það var æðislegt."
Þrátt fyrir slæma reynslu af kvik-
myndatöku í Mexíkó er Leonardo
kominn þangað aftur til að leika í
kvikmyndinni Titanic.
Billy var frá-
bær hiá óskari
Billy Crystalvar fyndinn að venju
við afhendingu óskarsverðlaunanna
á mánudagskvöld. Hann var helsti
kynnir hátíðarinnar og fékk því að
segja brandara eins og hann lysti.
Viðstaddur hlógu víst mikið og inni-
lega. Þá talaði hann líka fallega um
Madonnu og hina frönsku stút-
mynntu Juliette Binoche.
Sumarvömmar
streyma inn
Páskatilboð