Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
63
Afmæli
Til hamingju með afmælið 31. mars
90 ára
Þórlaug Bjömsdóttir, Stórholti 8, Akureyri.
85 ára
Sigríður Elisdóttir, Brekkustíg 27, Njarövík.
80 ára
Ásta Guðmundsdóttir, Rauðalæk 34, Reykjavík.
70 ára
Lilja Sigurjónsdóttir,^ Hraunbæ 103, Reykjavík. Sveinn Indriðason, Árskógum 8, Reykjavík.
60 ára
Helga S. Árnadóttir, Aragerði 6, Vatnsleysustrandarhreppi.
50 ára
Ólafur Karlsson, Oddeyrargötu 24 A, Akureyri. Kristján Bergþórsson, Sævangi 33, Hafnarflröi. Sigurður Jónsson, Vesturbergi 157, Reykjavík. Öm Sævar Ingibergsson, Safamýri 35, Reykjavík. Erna Eiríksdóttir, Ljárskógum 24, Reykjavík. Guðný Guðmundsdóttir, Álftamýri 2, Reykjavík. Jón Ragnar Höskuldsson, Reynimel 35, Reykjavík.
40 ára
Anna Antonsdóttir, Hverafold 50, Reykjavík. Valgerður Jónsdóttir, Sjávargötu 36, Bessastaðahreppi. Jón Valdimar Gunnbjömsson, Öldugötu 22 A, Hafnarfírði. Halldór Jónsson, Borgarhrauni 30, Hveragerði. Guðný Stefánsdóttir, Bergþórugötu 17, Reykjavík. Vigfús Sigurðsson, Sólbrekku 1, Húsavík. Sighvatur Kristinn Pálsson, Tjamarbóli 8, Seltjamarnesi. Hildur Ríkharðsdóttir, Miðhúsum 32, Reykjavík. Þorgerður Nielsen, Sjávargötu 23, Bessastaðahreppi. Guðjón Ingi Gestsson, Jófríðarstaðavegi 6, Hafnarfirði. Erlingur Örn Kristjánsson, Keilusíðu 12 G, Akureyri. Lúðvík Trausti Gunnlaugsson, Rimasíðu 8, Akureyri. Guðmundur Þorleifur Helgason, Tunguseli 4, Reykjavík.
Barði Friðriksson
Barði Fi’iðriksson, hrl. og fyrrv.
lögmaður VSÍ, til heimilis að Úthlíð
12, Reykjavík, verður sjötíu og fimm
ára á fostudaginn langa.
Starfsferill
Barði fæddist að Efri-Hólum í
Presthólahreppi í Norður-Þingeyjar-
sýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá
MA 1943, embættisprófi í lögfræði
frá HÍ 1949.
Barði var skrifstofumaður hjá 01-
íuverslun íslands hf. 1943-46, skrif-
stofumaður í dómsmálaráðuneytinu
1947-48, stundakennari við Kvenna-
skólann í Reykjavík 1952-72, erind-
reki VSÍ 1949-51, fulltrúi VSÍ
1951-53, skrifstofustjóri VSÍ 1953-77,
framkvæmdastjóri samninga- og
vinnuréttarsviðs VSÍ 1977-92 og lög-
maður VSÍ 1983-92.
Barði sat í stjórn Orators 1946-47,
var formaður Stúdentafélags HÍ
1947-48, í stjóm Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar 1950-92, formað-
ur Félags Þingeyinga í Reykjavík
1951-59, í stjóm Landsmálafélagsins
Varöar og varaformaður þess
1954-57, formaður Stúdentafélags
Reykjavíkur 1955-56, í stjóm eða
varastjórn Lifeyrissjóðs verslunar-
manna 1959-92, í stjórn Stangaveiði-
félags Reykjavíkur 1969-76 og for-
maður um skeið, í atvinnumála-
nefnd Reykjavíkur
1969-92, í stjórn Sam-
bands almennu lífeyris-
sjóðanna 1971-76 og í
framkvæmdastjórn
1976-85, varaformaður Fé-
lags eldri borgara í
Reykjavík 1986-88, sat í
stjórn Sigurplasts hf.
1961-85, var formaður
Seifs hf. 1969-85, stjórnar-
formaður íslenska járn-
blendifélagsins 1984-92, í
stjóm Samskipa 1992-94
og hefúr setið í fjölda op-
inberra nefnda. Hann veit ritstjóri
Vinnuveitandans 1962-79, ritstjóri
afmælisblaðs VSÍ 1984 og stjórnaði
sjónvarpsþættinum Vitið þér enn?
veturinn 1972. Barði var sæmdur
gullstjömu Stúdentafélags Reykja-
víkur 1957 og er riddari Fálkaorð-
unnar frá 1982.
Fjölskylda
Barði kvæntist 15.6. 1946 Þuríði
Þorsteinsdóttur, f. 22.6. 1925, safn-
verði hjá Reykjavíkurborg. Hún er
dóttir Þorsteins Jóhannessonar,
prófasts í Vatnsfirði við Djúp, og
Laufeyjar Tryggvadóttur húsfreyju.
Böm Barða og Þuríðar eru Lauf-
ey, f. 2.10.1946, húsfreyja á Seltjam-
amesi, gift Ævari Guðmundssyni
forstjóra; Margrét, f. 9.5.
1952, sérkennari í
Reykjavík; Þorsteinn, f.
11.11. 1953, jarðfræðingur
í Reykjavík, kvæntur Jó-
hönnu Lovísu Viggós-
dóttur meinatækni.
Systkini Barða: Halldóra,
f. 3.6. 1903, d. 21.10. 1985,
skólastjóri á Kópaskeri;
Sæmundur, f. 28.6. 1905,
d. 3.8.1977, framkvæmda-
stjóri í Reykjavík; Dýr-
leif, f. 14.10. 1906, d. 1996,
Ijósmóðir í Reykjavík;
Þómý, f. 24.12. 1908, d. 18.8. 1968,
skólastjóri á Hallormsstað; Margrét,
f. 11.6. 1910, d. 9.10. 1989, húsfreyja í
Kópavogi; Kristján, f. 21.7. 1912, d.
26.4. 1980, framkvæmdasfjóri í
Reykjavík; Svanhvít, f. 27.9. 1916,
skólastjóri á Laugalandi; Guðrún
Sigríður, f. 29.9. 1918, fyrrv. kennari
á Akureyri.
Foreldrar Barða vom Friðrik Sæ-
mundsson, f. 12.5. 1872, d. 5.10. 1936,
b. á Efri-Hólum og víðar, og k.h.,
Guðrún Halldórsdóttir, f. 12.7. 1882,
d. 15.10. 1949, húsfreyja og ljósmóð-
ir.
Ætt
Meðal fóöursystkina Barða var
Torfi, langafi Höskuldar Þráinsson-
ar prófessors. Friðrik var sonur Sæ-
Baröi Friöriksson.
mundar, b. í Narfastaðseli, Jónsson-
ar, b. á Höskuldsstöðum, bróður Jó-
hannesar, langafa Salome, fyrrv. al-
þingisforseta og Sigurðar ríkisfé-
hirðis Þorkelsbarna. Annar bróðir
Jóns var Sæmundur, afi Valdimars
Ásmundssonar ritstjóra, fóður Héð-
ins alþm. og forstjóra. Sæmundur
var einnig faðir Helgu, langömmu
Indriða Indriðasonar ættfræðings
og Hrings Jóhannessonar listmál-
ara. Jón var sonur Torfa, b. í Holta- ^
koti, Jónssonar, b. á Kálfborgará,
Álfa-Þorsteinssonar.
Móðir Friðriks var Þómý Jóns-
dóttir, b. á Fjöllum, Gottskálksson-
ar, b. á Fjöllum, Pálssonar, ættföður
Gottskálksættarinnar, fóður Magn-
úsar, afa Benedikts Sveinssonar al-
þingisforseta, föður Bjama forsætis-
ráðherra. Móðir Þómýjar var Ólöf
Hrólfsdóttir, b. á Hafralæk, Runólfs-
sonar, b. í Kílakoti, Pálssonar, af
ætt Hrólfunga.
Guðrún var dóttir Halldórs, b. á
Syðri-Brekkum á Langanesi, Guð-
brandssonar, og k.h., Dýrleifar, syst-
ur Kristins í Nýhöfn, afa Níelsar
Áma Lund alþm. og systur Jóhanns
ættfræðings. Dýrleif var dóttir
Kristjáns, b. á Leirhöfn á Sléttu,
Þorgrímssonar. Móðir Kristjáns var
Vigdís Hallgrímsdóttir, b. í Hraun-
koti, Helgasonar, ættfoður Hraun-
kotsættarinnar.
Eyvör Baldursdóttir
Eyvör Baldursdóttir.
Eyvör Baldursdóttir,
leigubílstjóri hjá BSR,
Meistaravöllum 23,
Reykjavík, verður fimm-
tug á annan í páskum.
Starfsferill
Eyvör fæddist í
Skriðuseli í Aðaldal og
ólst þar upp. Hún stund-
aði nám við Húsmæðra-
skólann á Laugum.
Eyvör flutti til
Reykjavíkur 1962 og hef-
ur átt þar heima síðan.
Hún starfaði hjá Sláturfélagi Suður-
lands 1964-70, vann við útkeyrslu
hjá versluninni Hólagarði 1970-73,
var aftur hjá Sláturfélaginu 1973-80,
starfaði hjá Sól 1980-83, var enn hjá
Sláturfélaginu 1983-86, var vagn-
stjóri hjá SVR 1986, starfaði hjá Slát-
urfélaginu 1986-91 og hefur verið
leigubílstjóri á BSR frá 1991.
Fjölskylda
Böm Eyvarar em Sigríður Krist-
björg, f. 30.5. 1967, hár-
greiðslumeistari en maður
hennar er Gunnar Skúla-
son rafvirkjameistari og er
sonur þeirra Guðjón Skúli,
f. 1992; Svava Brynja, f.
25.2.1969, en sonur hennar
er Arnþór Einar, f. 1994;
Hulda Ósk, f. 5.12. 1973,
húsmóðir, en hennar mað-
ur er Kristján Pálmason
og em böm þeirra Sigur-
jón, f. 1993, og Kristjana
Rós, f. 1996; Berglind
Harpa, f. 28.11. 1975, hús-
móðir, en maður hennar er
Berg Valdimar tannlæknanemi;
Bjöm, f. 26.7. 1988, nemi.
Systur Eyvarar eru Hallfríður, f.
1944, ræstitæknir í Reykjavík; Val-
gerður, f. 1950, hjúkrunarfræðingur
hjá NLFÍ; Jóna, f. 1953, dagmóðir í
Reykjavík, og Magnea, f. 1960, hús-
móðir í Reykjavík.
Foreldrar Eyvarar vom Baldur
Finnsson, f. 30.3. 1915, d. 3.12. 1993,
og Hulda G. Óskarsdóttir, f. 27.4.
1925, d. 31.3. 1984.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Samvemstund fyrir
foreldra ungra barna kl. 10-12.
Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Dómkirkjan: Hádegisbænir kl.
12.10. Orgelleikur á undan. Léttur
málsverður á kirkjuloftinu á eftir.
Æskulýðsfundur í safnaðarheim-
ilinu kl. 20.
Grensáskirkja: Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14. Biblíulestur
og bænastund. Samvemstund og
veitingar. Sr. Halldór S. Gröndal.
Starf fyrir 10-12 ára börn kl. 17.
Hallgrímskirkja: Opið hús fyrir
foreldra ungra bama kl. 10-12.
Jóna Margrét Jónsdóttir, hjúkr-
unarfr. Kyrrðarstund með lestri
Passíusálma kl. 12.15.
Háteigskirkja: Mömmumorgunn
kl. 10. Sr. Helga Sofiia Konráðs-
dóttir. Kirkjukvöld kl. 20.30. Sam-
félagið og einstaklingurinn. Missa
Solenelle fyrir kór og tvö orgel
eftir Luis Vierna í flutningi kóra
Háteigs- og Seltjamarneskirkna
og orgelleikaranna dr. Pavel Smid
og Viera Manasek. Stjórnandi
mgr. Pavel Manasek. Upplestur
ísak Harðarson, skáld.
Langholtskirkja: Foreldramorg-
unn kl. 10-12. Kirkjustarf aldr-
aðra: Samverustund kl. 13-17.
Akstur fyrir þá sem þurfa. Spilað,
dagblaðalestur, kórsöngur, ritn-
ingarlestur, bæn. Kaffiveitingar.
Neskirkja: Kvenfélag Neskirkju
hefur opið hús kl. 13-17 í safnað-
arheimilinu. Kaffl og spjall. Fót-
snyrting á sama tíma. Litli kór-
inn æfir í dag kl. 16.15. Nýir söng-
félagar velkomnir. Umsjón hafa
Inga Backman og Reynir Jónas-
son. Bænamessa fellur niður.
Seltjarnarneskirkja: Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður
í safnaðarheimilinu.
UPPBOÐ
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp að Skútahrauni 2a, Hafn-
arfirði, laugardaginn 5. apríl 1997 kl. 13.30.
Ingibjörg Halldórsdóttir
Ingibjörg Halldórs-
dóttir húsmóðir, Stekk-
um 9, Patreksfirði, verð-
ur áttatíu og fimm ára á
föstudaginn langa.
Starfsferill
Ingibjörg er fædd á
Fjarðarhomi í Austur-
Barðastrandarsýslu og
ólst upp í Múlasveit í
sömu sýslu. Hún hlaut
barnaskólakennslu sem
þá var og sótti síðar þau
handavinnunámskeið
sem í boði vom, bæði
fyrir vestan og í Reykjavík.
Ingibjörg hefur unnið margvísleg
störf um ævina, t.d bústörf í sveit-
inni og við handavinnu og handa-
vinnukennslu á Patreksfirði. Hún
hefur löngum verið kunn fyrir
hannyrðir sínar, einkum fyrir list-
saum sinn.
Fjölskylda
Ingibjörg giftist 25.12. 1948 Krist-
jáni Jónssyni, f. 29.7. 1896, d. 16.3.
1978, verkstjóra hjá Patrekshreppi.
Foreldrar hans vom Jón Gíslason,
bóndi og verkamaður, og
k.h., Herdís Teitssdóttir
húsfreyja, en þau bjuggu á
Tálknafirði og í Raknadal
í Patreksfirði.
Dóttir Kristjáns af fyrra
hjónabandi er Svanhvít, f.
11.3. 1927, húsmóðir í
Reykjavík, gift Þórólfi
Pálssyni, starfsmanni hjá
Eimskip, og eiga þau þrjár
dætur.
Systkini Ingibjargar:
Pálína Rebekka, f. 4.2.1909,
hún er búsett á Patreks-
firði og á tvær dætur;
Þórður Einar, 11.1.1917, hann er bú-
settur í Reykjavík og á einn son;
Sesselja Kristín, f. 28.8. 1920, hún er
búsett í Hafnarfirði og á eina dóttur.
Foreldrar Ingibjargar vom Hall-
dór Sveinsson, f. 22.9. 1877, d. 22.9.
1964, bóndi, og Guðrún Þórðardótt-
ir, f. 15.8. 1879, d. 29.6. 1965, hús-
freyja, en þau bjuggu í Skálmardal
og á Svínanesi í Múlasveit, á Má-
bergi á Rauðasandi og á Patreks-
firði frá 1950 til dauðadags.
Ingibjörg Halldórs-
dóttir.
A11390 A5221 AK-782 D749 DO-382 EM-498 EÞ-627
FL-420 FN-200 FO-169 FX- 412 G1443 G15419 G24411
G306 G8176 G8835 G9741 GE- 037 HG-391 HI-210
HI-937 HL-606 HR- 940 HT-810 HÖ-304 IE-980 IG-758
IJ-489 IT-322 IT-809 IV- 876 IY-325 IZ-613 IÞ-218
JF-371 JI-117 JI-453 JI- 973 JP-703 JT-975 JU-460
JV-325 JX-186 JX-321 JY-672 JÞ-625 JÖ-292 KF-074
KF-323 KJ-211 KS- 833 KT-050 KT-976 KV-146 LD-090
LD1537 LM-344 LO- 065 LT-551 LT-900 LU-698 LZ-848
M2021 M4089 M912 MK-628 MS-490 MV-312 NG-858
OD-044 ON- 361 P2866 PB-613 PI-358 PO-319 PV-146
PV-281 PX-569 R13164 R15596 R17963 R27837 R33112
R36784 R3861 R53256 R5401 R54859 R55916 R5951
R62875 R63744 R64854 R65965 R67694 R74831 R8377
R8878 R9550 R9851 RJ-38 RT102 RT121 SA-677
SI-036 SI-145 T169 T78 TB-227 TC-109 TI-090
TO-741 UA- 548 UF-856 UH499 UM-506 UN-763 UY-946
V1383 V564 VG-374 VJ-077 VP-420 XG-777 XP-355
Y2898 Y6042 Y728 YA-897 YT-385 YT-483 Z1890
ZE-938 ZT-110 011611 ÖT97
Einnig hefiu verið krafist sölu á eftirfarandi lausafé; kantlímingarvél,
réttingarbekk, rennibekk, spónlimingarpressu, gluggapressu, trésmíöavél,
hefli, radial sög, hjólsög, plötusög, loftpressu, dílaborvél, beygjuvél, slípivél,
Cat. beltagröfu, Cat. rafstöð, millikæli, faxtæki, myndbandstæki, sjónvarps-
myndatökuvél, skrifborðum, stólum, prentvél, bílalyftu, tölvu, tólf 500.000
kr. víxlum o.fl.
Þá hefur verið krafist sölu á ca 300 stk. af sófaborðum og
borðstofuborðum úr verslunarlager.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki
uppboðshaldara eða gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI