Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997 47 íþróttir íþróttir Theodóra stendur sig vestanhafs Theodóra Mathiesen skíða- kona hefur staðið sig vel á mót- um í Bandaríkjunum í vetur en þar dvelur hún við nám. Fyrir skömmu varð hún þriðja í stór- svigi á svæðismeistaramóti í Anchorage í Alaska. Þá varð hún fimmta í svigi á boðsmóti Nevada-háskóla í Reno og hafn- aði loks í sjötta sæti í stórsvigi á háskólameistaramóti Bandaríkj- anna. -vs Kolbrún og Örn með unglingamet Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir frá Akranesi og Örn Amarson úr SH settu nokkur unglingamet á sprettsundsmóti Ármanns og KR á sunnudaginn. Kolbrún setti fimm sinnum telpnamet í þremur greinum en hún synti 50 m flugsund á 30,18 sekúndum, 50 m baksund á 31,52 sekúndum og 100 m fjórsund á 1:08,87 mín. Öm tvíbætti eigið piltamet í 50 m baksundi, synti á 27,27 sek- úndum. Ríkarður Ríkarðsson úr Ægi vann besta afrek mótsins þegar hann synti 50 m flugsund á 25,62 sekúndum. Það gefur 856 stig og Ríkarður fékk farandbikar til varðveislu. -VS Ásmundur og Edda sigursæl Ásmundur ísak Jónsson og Edda Lúvísa Blöndal úr Þórs- hamri voru sigursæl á íslands- meistaramótinu í kata sem fram fór um síðustu helgi. Þau urðu íslandsmeistarar karla og kvenna og vom jafn- framt bæði i sigursveitum Þórs- hamars í hópkata. Með Ásmundi í karlasveitinni vora Jón Ingi Þorvaldsson og Sigþór Markús- son en með Eddu i kvennasveit- inni vom Björk Ásmundsdóttir og Sólveig Krista Einarsdóttir. Keppendur á mótinu vom 30 frá fjórum félögum. -VS Haukur vann þre- falt á Seyöisfiröi Haukur Amórsson úr Ár- manni varð þrefaldur sigurveg- ari á bikarmóti SKÍ sem hcddið var á Seyðisfirði um helgina. Haukur sigraöi tvívegis í svigi karla og síðan í stórsvigi. í flokki 15-16 ára vann Rann- veig Jóhannesdóttir, Akureyri, tvo sigra í svigi og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík sigraði bæði í svigi og stórsvigi. Krist- inn Magnússon, Akureyri, og Dagný Linda Kristjánsdóttir, Ak- ureyri, sigruðu ennfremur í stór- svigi. -hiá/VS Leiftur gerði þrjú gegn Selfossi Leiftur frá Ólafsfirði vann ör- uggan sigur á liði Selfoss í leik liðanna í deildabikarnum í knattspymu um síðustu helgi. Lokatölur urðu 3-1 en ekki 2-1 eins og missagt var í DV. Mörk Leifturs skoruðu þeir Davíð Garðarsson, Arnar Grétarsson og Magnús Þorgeirsson. Ikvöld Handbolti karla - undanúrslit: Fram-Aftureiding (0-1) .....20.00 Reykjavíkuraiótið í knattspyrau: Fram-lR..................... 20.30. Haukar komnir með undirtökin gegn KA: Sjóaðir í að spil spennuleiki - rafmögnuð spenna í Firðinum þegar Haukar unnu, 25-24 „Það var frábært að vinna því ég hefði ekki viljað fara norður með tap á bakinu. Þetta var baráttuleik- ur. Við spiluðum góða vöm og vor- um komnir með góða stöðu í síðari hálfleik en þá fómm við að flýta okkur of mikið og létum boltann ekki fljóta í sókninni. Það má segja að við séum orðnir sjóaðir að spila svona spennuleiki og hafa betur í lokin. Með þessum sigri stigum við stórt skref í átt að úrslitaleiknum," sagði Haukamaðurinn Aron Krist- jánsson, nýkominn úr leikbanni, eftir sigur á KA, 25-24, í æsispenn- andi leik í undanúrslitum 1. deildar karla í handknattleik i gær. Það var rafmönguð spenna á loka- mínútum leiksins. Eftir aö hafa lent gómm mörkum undir um miðjan síðari hálfleik sýndu KA-menn mikla seiglu og tókst að jafna leik- inn í 23-23 þegar rúmar 6 mínútur vom eftir. í hönd fór mikið tauga- strið þar sem góð færi fóru forgörð- um hjá báðum liðum. Rúnar Sig- tryggsson kom Haukunum yfir, 24-23, en Björgvin Björgvinsson jafnaði metin fyrir KA þegar ein og hálf mín- úta var eftir. Rúnar var aftur á ferðinni þegar hann kom Haukum yfir með góðu marki 40 sekúndum fyrir leikslok og KA-menn höfðu því nægan tíma til að jafna metin og knýja fram framlenginu. Þegar 10 sekúndur voru eftir skaut Duranona þrumu- skoti í stöngina, Haukar náðu knett- inum og héldu honum út leiktím- ann. Mætum aftur í Fjöröinn „Þetta er langt frá því að vera búið. Við mætum aftur í Fjörðinn og leggjum þá Haukana að velli. Við gerðum okkur seka um marga feila í sókninni, hentum boltanum hvað eftir annað í lúkumar á Haukunum og þessi mörgu mistök vora okkur dýrkeypt," sagði Jóhann G. Jó- hannsson, homamaður KA- manna, eftir leikinn. Siguröur feikisterkur í jöfnu liði Hauka átti Sigurður Þórðarson einna besta leikinn. Hann skoraði 6 góð mörk úr jafn- mörgum tilraunum og var feiki- sterkur í öflugri Haukavörn. Gústaf Bjarnason og Halldór Ingólfsson vom mjög drjúgir og Þorkell Magn- ússon ógnandi í hominu. Ekki má gleyma þætti Rúnars undir lokin og Bjami Frostason kom sterkur inn í markið í síðari hálfleik. Alfreö tveggja manna maki í vörn KA KA-menn þurftu að hafa mun meira fyrir sínum mörkum og sókn- arleikur þeirra var oft ráðleysisleg- ur og leikmenn liðsins að gera of marga tekniska feila. Vamarleikur liðsins var hins vegar mjög traustur þar sem Alfreð Gíslason var oft tveggja manna maki. Jóhann G. Jó- hannson átti mjög góðan fyrri hálf- leik og þeir Björgvin Björgvinsson og Leó Öm Þorleifsson vom sterkir í þeim síðari. Róbert Julian Duranona náði sér hins vegar ekki á strik, virkaði kraftlaus og á köflum utanveltu. Eigi KA-mönnum að takast að kom- ast í úrslitaleikinn þriðja árið í röð en lykilatriði fyrir þá aö Duranona sýni styrk sinn. -GH Haukar - KA1-0 Jakob Jónsson, KA-maöur, fær aö kenna á kröftugri Haukavörninni í leiknum í Hafnarfiröi í gærkvöldi. Óskar Sigurösson og Siguröur Þóröarson stööva hann af mikilli ákveöni. Þaö má búast viö svipaöri baráttu í öörum leik liöanna á Akureyri annaö kvöld. DV-mynd ÞÖK Ekki í Þórstreyjunni Stuðningsmenn KA spurðu Akureyringinn í liði Hauka, Rúnar Sigtryggsson, í hálfleik hvort hann væri í Þórstreyjunni undir Haukapeysunni, eins og þegar liðin áttust við í bikarúrslitunum á dögunum. Rúnar sýndi þeim að svo væri ekki og þá sögðu KA- menn: „Þú þorðir ekki!“ KA-menn voru ósáttir við sigurmark Rúnars. Þeir sögðu að Egill Már Markússon dómari hefði verið bú- inn að flauta aukakast áður en skotið reið af og því voru þeir ekki nægilega vel á verði. Egill Már Markússon var nýkominn frá Dallas í Texas þar sem hann dæmdi á stóm unglingamóti í knattspymu. Nóg að gera hjá honum á tvennum víg- stöðvum. Sólin hafði greinilega skinið í Texas þvi þeir dómarabræður, hann og Öm, vom með sinn hvom lit- arháttinn. Sigurður Þórðarson átti besta leik sinn fyrir Hauka í vetur. Einn dyggur Haukamaður sagði ástæð- una vera einfalda. Mjólkurfræðingar hefðu gengið frá kjarasamningum um morguninn en Sigurður starfar sem mjólkurfræðingur - enda frá mjólkurbænum Sel- fossi. -GH Haukar (14) 25 KA (13) 24 0-1, 3-2, 5-7, 8-7, 10-10, 14-12, (14-13), 14-14, 17-16, 20-16, 22-18, 23-20, 23-23, 24-24, 25-24. Mörk Hauka: Sigurður Þórðarson 6, Halldór Ingólfsson 5/1, Gústaf Bjamason 4, Rúnar Sigtryggsson 4, Þorkell Magnússon 3, Aron Kristjáns- son 2, Óskar Sigurðsson 1. Varin skot: Magnús Sigmundsson 5, Bjami Frostason 9. Mörk KA: Róbert Julian Dura- nona 6/1, Jóhann G. Jóhannsson 5, Leó Öm Þorleifsson 4, Björgvin Björgvinsson 4, Jakob Jónsson 2, Al- freð Gíslason 1, Heiömar Felixson 1, Sævar Ámason 1. Varin skot: Guðmundur Amar Jónsson 7, Hermann Karlsson 2. Brottvlsanir: Haukar 8 mín., KA 4 mín. Dómarar: Egill og Öm Markús- synir, ekki sannfærandi. Áhorfendur: Um 1.000. Maður leiksins: Sigurður Þórð- arson, Haukum. Liðin mætast aftur á Akureyri annað kvöld ki. 20.30. NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Rodman tók 21 frákast - aðeins 123 stig skoruð þegar SA Spurs sigraði Cleveland Cavaliers Níu leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt. Úrslit urðu þessi í leikjunum: Toronto-Indiana ..................84-98 Orlando-Sacramento..............114-103 Atlanta-Portland .................96-89 Houston-Minnesota...............112-103 SA Spurs-Cleveland ...............64-59 Chicago-Dallas....................94-92 Phoenix-Milwaukee...............117-112 LA Clippers-Vancouver...........110-104 Golden State-Seattle.............89-126 Langt er síðan stigaskor hefur verið jafn lágt og það var i leik SA Spurs og Cleveland Cavaliers. Það er ekki á hverjum degi sem aðeins 123 stig eru skoruð í leik í NBA-deildinni en það gerðist þó í þessum leik. Grant Hill skoraði 16 stig fyrir Cleveland en hjá Spurs var Vemon Maxwell stigahæst- ur með 10 stig. Chicago heldur áfram á sigurbraut- inni og þrátt fýrir mikla yfirburði í deildinni virðast leikmenn liðsins halda fullri einbeitingu og það er aldrei gefið eftir. Meistararnir lentu þó í nokkrum vandræðum með sprækt lið Dctllas í nótt en höfðu sigur í lokin. Michael Jordan skoraði 20 stig, sem þykir ekki mikið á þeim bæ, og Steve Kerr skor- aði einnig 20. Miðherjinn Luc Longley skoraöi 14 stig og Scottie Pippen 13. Það var hins vegar furðufuglinn Denn- is Rodman sem stal senunni í þessum leik og ekki í fyrsta skipti. Hann átti mjög góðan leik, tók alls 21 frákast, 9 í sókn og 12 í vörn. Orlando er í góðum gír þessa dag- ana og í nótt vann liðið öruggan heimasigur gegn Sacramento Kings sem átt hefur erfiðan vetur að venju. Snillingurinn Penny Hardaway fór fyrir liði Orlando og skoraði 30 stig. Miöherjinn skapmikli, Roney Seikaly kom skammt á eftir en hann skoraði 26 stig og hirti 14 fráköst. Indiana vann í nótt góðan útisigur gegn Toronto. Hollenski miðherjinn í liði Indiana, Rik Smits, átti afbragðs- leik, skoraði 28 stig og tók 14 fráköst. Að vanda lék Reggie Miller einnig vel hjá Indiana en hann skoraði 24 stig í nótt. Portland réði ekki við Atlanta á úti- velli. Smith skoraði 27 stig fýrir Atl- anta, Dikembe Mutombo 24 og Christi- an Laettner 17. Hjá Portland var Isai- ah Rider stigahæstur með 22 stig. -SK Tap gegn Belgum á Ítalíu íslenska unglingalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir Belgum, 2-1, í fyrsta leik sinum á alþjóðlega mótinu á Ítalíu sem hófst í gær. Haukur Ingi Guðnason, Keflvíkingurinn efhilegi, skoraði mark íslands í fyrri hálfleik. ísland sigraði óvænt á þessu móti í fyrra eftir að hafa tapað fyrsta leik sínum. í dag leikur liðið við Bandaríkin og á morgun við Rúmeníu og þarf að vinna riðilinn til að komast í undanúrslitin sem fara fram á laug- ardagimi. -VS Válsmenn voru sektaðir Aganefnd Handknattleikssambands íslands sektaði í gær Val um 50 þúsund krónur og veitti félaginu alvarlega áminningu vegna atviks eftir leik liðsins gegn Haukum síðasta föstudagskvöld. Stuðningsmenn Vals ruddust inn á völlinn þegar flautað var af og veittust að dómurunum. Einn þeirra sló Sigurgeir Sveinsson dómara í höfuðið og skammir og svívirðingar dundu á þeim svartklæddu. -VS Sampras auðveldlega áfram Pete Sampras var ekki í vandræðum með að sigra Magnus Larsson frá Svíþjóð í gærkvöldi og tryggja sér sæti í átta manna úrslitum á stigamóti Alþjóða tennissambandsins í Key Biscyane í Bandaríkjunum. Sampras sigraði, 6-2 og 6-0. Thomas Muster og Goran Ivanisevic unnu einnig til- tölulega örugga sigra og þeir Jonas Björkman og Andrei Medvedev eru líka komnir áfram. í kvennaflokki er Monica Seles komin í undanúrslit ásamt Barböm Paulus. -VS Valur aftur í úrvalsdeildina - eftir stórsigur í Stykkishólmi DV, Stykkishólmi: Valsmenn em komnir í úrvals- deildina í körfubolta á ný eftir eins árs fjarveru eftir stórsigur á Snæ- felli, 60-84, í þriðja úrslitaleik lið- anna í 1. deildinni í Stykkishólmi í gærkvöld. „Við unnum þetta á vöminni og þetta var sigur liðsheildarinnar. Strákamir vinna vel saman og það er engin eigingimi í liðinu. Við ákváðum í haust að ef viö gætum ekki unnið 1. deildina án útlendings hefðum við ekkert upp að gera,“ sagði Torfi Magnússon, þjálfari Valsmanna. Þeir vora eina liðið í efri hluta deildarinnar sem ekki tefldi fram erlendum leikmanni. Þeir komust yfir í fyrsta skipti seint í fyrri hálfleik og eftir það átti Snæfell aldrei möguleika. Staðan var 37-46 í hálfleik og munurinn jókst jafnt og þétt. Valsmenn eru með mjög skemmtilegt lið þar sem leikgleðin er allsráðandi og breidd- in er mjög góð. Á meðan vora heimamenn að reyna hver í sínu homi að bjarga því sem bjargað yrði, án árangurs. Þeir sitja áfram í 1. deild þrátt fyrir að hafa unnið deildakeppnina í vetur. í úrslitakeppninni saknaði Snæ- fell Dalons L. Bynum sem handar- brotnaði fyrir hana og lék ekki með. í hans stað kom Terence Harris og fyllti engan veginn í skarðið. Stig Snæfells: Terence Harris 17, Tómas Hermannsson 12, Lýöur Vignis- son 10, Bárður Eyþórsson 10, Helgi R. Guðmundsson 4, Sæþór Þorbergsson 3, Þorkell Þorkelsson 3, Jón Þ. Eyþórsson 1. Stig Vals: Bergur Emilsson 17, Ragnar Þór Jónsson 15, Bjöm Sigtryggsson 13, Guðni Hafsteinsson 12, Gunnar Zoega 8, Jónas Páll Jónasson 6, Ólafur Jóhanns- son 5, Guðmundur Bjömsson 4, Hjörtur Þór Hjartarson 2, Bjarki Gústafsson 2. -KS |Xy ENGLAND David Seaman, markvörður Arsenal, var í gær sæmdur heiðursorðu breska heimsveldisins fyrir framlag sitt til knattspymunnar og frábæra frammistöðu með enska landsliðinu í úrslita- keppni EM síðasta sumar. Joe Jordan er hættur sem framkvæmdastjóri 2. deildar liðs Bristol City eftir slæma útkomu í síðustu leikjum. Sheffield United keypti Carl Tiler frá Aston Villa i gær fyrir 66 miHjónir króna. Gordon Cowans, fyrrum leikmaöur með enska landsliðinu og Aston Viila, gekk í gær til liðs við 2. deildar liðið Stockport. Stan Collymore frá Liverpool og Stuart Pe- arce frá Forest vom gær valdir í enska landslið- ið sem mætir Mexíkó í vináttuleik á laugardag. Fimm leikmenn hafa dregið sig úr hópnum vegna meiðsla og átta í viðbót em tæpir. Glenn Hoddle á því í miklum vandræðum með að stilla upp liði og mikil gagnrýni er komin upp í Eng- landi á að þessi leikur skuli hafa verið settur á. Mark Crossley, markvörður Forest, er meidd- ur og getur ekki varið mark Wales gegn Belgíu í undankeppni HM á laugardag. Phillipe Albert frá Newcastle getur ekki spil- að meö Belgum í umræddum leik vegna meiösla. Portsmouth sigraöi Reading, 1-0, í ensku 1. deildinni í gærkvöldi. Skíðamót íslands hefst í fyrramálið Skíðamót íslands 1997 fer ffarn á Ólafsfirði og Dalvík um páskana. Keppni hefst í fyrramálið og lýkur síðdegis á páskadag. Mótiö verður formlega sett í Dalvíkurkirkju annað kvöld og því verður slitið í Tjamarborg á Ólafsfirði að kvöldi páskadags. Mótið er að þessu sinni jafnframt FlS-mót og gefur al- þjóðleg styrkleikastig. Það er liður í FlS-mótaröð sem fram fer á Dalvík, Ólafsfirði og Akureyri. Flest af besta skíðafólki landsins verður á meðal þátttak- enda en keppt er í hefðbundnum alpagreinum og norræn- um greinum. Dagskrá og keppnisstaðir era hér til hliðar á siðunni. Greinunum er skipt á milli kaupstaðanna en Dal- víkingar verða með meirihlutann af alpagreinunum og Ólafsfirðingar með megnið af norrænu greinunum. KSÍ 50 ára í dag Knattspymusamband íslands, stærsta sérsambandið innan ÍSÍ, er 50 ára í dag. KSÍ var stofnað þann 26. mars 1947. Afmælisins verður minnst með margvíslegum hætti í ár. Þar má nefna að úrslitakeppni Evrópumóts unglinga- landsliða fer fram hér á landi í sumar en þar leika átta lið um Evrópumeistaratitilinn. Þá gefur KSÍ út bók um knatt- spymuna í landinu frá upphcifi. Bókin nefnist „Knatt- spyma í heila öld“ og kemur út með vorinu. Leikið viö Kín- verja á ísafirði ogSelfossi ísland og Kina mætast í tveimur landsleikjum í handknattleik karla hér á landi í næstu viku. Sá fyrri verður háöur á ísafirði á miðvikudaginn kemur, 2. apríl, og sá síðari á Selfossi kvöldið eft- ir. Af þessum sökum verður fyrsti úrslitaleikurinn um íslandsmeistaratitil karla ekki leikinn fyrr en sunnudaginn 6. apríl. Leikmenn úr þeim tveimur liðum sem komast í úrslitin munu ekki taka þátt í landsleikjunum við Kínverja. -VS Bandaríkin ekki með í Kumamoto - Brasilía í staðinn Bandaríkjamenn hafa tilkynnt Alþjóða handknatt- leikssambandinu að þeir sendi ekki landslið sitt í heimsmeistarakeppnina sem hefst í Kumamoto í Jap- an 17. maí. Engin skýring hefur verið gefin á ákvörð- un Bandaríkjamanna sem hafa leikið í flestöllum lokamótum HM undanfama tvo áratugi. Það verður aö öllum líkindum Brasilia sem tekur sæti Bandaríkjanna. Brasilía hafnaði í fjórða sæti í undankeppninni í Norður- og Mið-Ameríku en Banda- ríkin i því þriðja, á eftir Kúbu og Argentinu. -VS Albanir með ein- tóma „útlendinga" Albanir þurfa að leika tvo heimaleiki sína í und- ankeppni HM í knattspymu næstu dögu í Granada á Spáni vegna ástandsins heima fyrir en þar hefur jaðr- að við borgarastyrjöld síðustu vikur. Þeir fá Úkraínu í „heimsókn" þangað á laugardag og síðan Þjóðverja næsta miðvikudag. Landsliðshópur Albana var tilkynntur í gær og at- hygli vekur að allir 20 leikmennirnir í honum spila utan heimalandsins, flestir í Grikklandi og Þýska- landi. Ekki era nema fimm ár síðan fyrsti albanski knattspymumaðurinn fékk að yfirgefa heimalandið til að spila atvinnuknattspyrnu erlendis. -vs FIFA hrósar Robbie Fowler Sepp Blatter, framkvæmda- stjóri Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, sagði í gær að Robbie Fowler, miðherji Liverpool, ætti mikinn heiður skilinn fyrir við- brögð sín við vítaspymunni sem dæmd var á Arsenal í leik lið- anna í fyrrakvöld. Vítaspyrnan var dæmd á Dav- id Seaman, markvörð Arsenal, sem virtist fella Fowler. En Fowler fagnaði ekki dómnum og gaf greinilega til kynna að hann væri rangur. Fowler tók síðan spymuna sjálfur, Seaman varði en Jason McAteer fylgdi á eftir og tryggði Liverpool sigur í þess- um mikilvæga leik. „Viðbrögð þín voru þér til mikils sóma og undirstrika þann heiðarleika sem við viljum að sé viðhafður í knattspyrnunni," sagði Sepp Blatter og beindi orð- um sínum til Fowlers. Félagar Fowlers í liði Liver- pool, Stan Collymore og David James, sögðu að með þessu væri Fowler rétt lýst. Hann væri heið- arleikinn uppmálaður. -VS Hertha áfram efst Eyjólfur Sverrisson og félagar í Herthu Berlín halda toppsæt- inu í þýsku 2. deildinni í knatt- spyrnu eftir 0-0 jafntefli Mainz og Kaiserslautem í fyrrakvöld. Hertha er með 43 stig, Kaisers- lautem 42, Wolfsburg 37 og Mainz 35 stig. Þrjú efstu liðin vinna sér sæti i 1. deild. -VS Úrtökumót en ekki meistaramót Vegna misskilnings varðandi fréttir af sigri Rúnars Alexand- erssonar á fimleikamóti í Stokk- hólmi um helgina skal tekið fram að þetta var ekki sænska meistaramótið. Þarna var um að ræða úrtökumót fyrir fjögurra landa keppni á Spáni. Rúnar stóð sig eftir sem áður með miklum sóma og sigraði í fjöl- þraut og á þremur áhöldum. Skotarnir í Reyni Skosku knattspymumennirn- ir Kevin Docherty og Scott Ramsey koma aftur til Reynis úr Sandgerði og spila með liðinu í 2. deildinni í sumar. Þeir vora í lykilhlutverkum í fyrra þegar Reynir vann sig upp úr 3. deild- inni. -VS Umpáskana Handbolti karla - undanúrslit: KA-Haukar (0-1) ..........Fi. 20.30 Afturelding-Fram (?)......Fö. 16.30 Haukar-KA (?) .............L. 16.00 Körfubolti kvenna - úrslit: KR-Grindavík (0-2) .......Fi. 20.00 Grindavík-KR (?)...........L. 16.00 Deildabikarinn f knattspymu: Njarðvík-Þróttur, R. . Hafn. Fi. 11.00 Valur-Skallagr. . . Leiknisv. L. 13.00 KR-Keflavík......Leiknisv. L. 15.00 Skíðalandsmótiö Haldið á Ólafsfírði og Dalvík. 5 km ganga kvenna . . .. Ól. Fi. 11.00 10 km ganga pilta......Ól. Fi. 11.00 15 km ganga karla . . . . Ól. Fi. 11.00 Stórsvig karla . . . Dal. Fö. 9.30/12.00 Stórsvig kvenna . Dal. Fö. 10.30/13.00 3x3,5 km ganga kvenna Ól. Fö. 15.00 3x10 km ganga karla .. Ól. Fö. 15.00 Svig kvenna........Ól. L. 9.30/12.00 Svig karla........Ól. L. 10.30/13.00 Skíðastökk..............Ól. L. 15.00 Risa-/samhliðasvig kv. Dal. S. 10.30 Risa-/samhliðasvig ka. . Dal. S. 11.15 7,5 km kanga kvenna . . . Ól. S. 14.00 15 km ganga pilta......ÓI. S. 14.00 30 km ganga karla......Ól. S. 14.00 Mótsslit................Ól. S. 18.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.