Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Síða 11
DV MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
%lk
Alþjóðlegt átak til varnar ráttindum flóttafólks:
Fjölmennasti hópur flóttafólks er
Mannréttindindasamtökin Am-
nesty International hafa hrundið af
stað alþjóðlegu átaki til vamar rétt-
indum flóttafólks. 1 heiminunm eru
meira en fimmtán milljónir karla,
kvenna og barna flóttamenn. Þar að
auki eru tuttugu milljónir á flótta
innan eigin landamæra vegna þess
að fólkið hefur neyðst til að yfirgefa
heimili sín.
Fjölmennasti hópur
flóttafólks er konur og
börn. Konur eru í hættu
og nauðganir eru notaðar
í auknum mæli til að
pynda og ógna konum og
hrekja þær á flótta. Mann
réttindabrot eru ástæða þess að fólk
tekur sig upp frá heimilum sínum
og flýr.
Á bak við sögu alls þessa flótta-
fólks liggja miklar hörmungar.
Sumir þeirra hafa lent í því að ætt-
ingjum þeirra hefur verið slátrað á
miskunnarlausan hátt, heimili
þeirra gjöreyðilögð og þau rúin inn
,að skinni. Grimmileg
stríð hafa eyðilagt
mörg lönd og morð og
hryllingur er notaðm-
til þess að ná valdi yfir
fólkinu. Eini möguleiki
fólks er að reyna að flýja
hryllinginn.
Sumir flýja harðstjórnir,
sumir eru gagnrýnendur
sem hafa verið fang-
elsaðir og pynt-
aðir, aðrir eru
eftirlýstir.
Sumir verða
auðveld skot-
mörk vegna
uppruna,
tungumáls
eða trúar-
bragða. Allir
eiga þeir
sameiginlet
að of hættu-
legt er að
vera þar sem
þeir eru.
Samtökin
hafa mikl-
ar áhyggj-
ur af af-
skipta- og
virðingar-
„Þeir afklæddu mig og
niðurlægðu mig
Ég bað þá að
drepa
heldur en
þá skáru
þeir af
mér hend-
urnar með
sveöju.,“ segir
Sallay Goba frá
Sierra Leone.
Hún flúði heim-
ili sitt í árás
skæruliða þar
sem eiginmaður
hennar, tengda-
sonur og þrjú
barnabörn létu
lífiö.
erlend bóksjá
Flóttamenn eru oft lokaðir inni í fangelsum þegar þeir
eru að sækja um landvist. Þeir erti ekki glæpamenn og
því þreyttir að láta koma þannig fram við sig.
leysi ríkisstjórna gagnvart réttind-
um flóttafólks. Ríkisstjómir reyna í
síauknum mæli að hindra að fólk,
sem er að flýja ofsóknir, fái tæki-
færi til að nýta rétt sinn til að sækja
um hæli og fá þá vernd sem því ber.
Aðgerðir ríkisstjórna til að koma í
veg fyrir móttöku flóttafólks hafa í
fór með sér að fjöldi fólks fær aldrei
tækifæri til að komast undan pynd-
ingum, morðhótunum og öðrum of-
sóknum og æ fleiri eru sendir aftur
heim þar sem þeirra bíður oft fang-
elsun eða opinn
dauðinn.
Hér á eftir
fara myndir og
sögur af hörm-
ungum fólks
sem hefur tek-
ist að flýja.
-em
konur og börn
Assam flúði íran eftir að yfirvöld höfðu kallað hana til yfir-
heyrslu. Hún vissi að hún yrði pyntuð og drepin ef hún
færi þangað. Assam flúði til Svíþjóðar í gegnum Tyrkland
en var send þangað aftur. Tyrkir senda venjulega flótta-
menn til síns heima nema þeir séu evrópskir. Assam
komst aftur til Svíþjóöar og hefur fengið pólitfskt hæli þar.
Metsölukiljur
• • • ••••••••é00<
Bretland
Skáldsögur:
1. Catherlne Cookson:
The Upstart.
2. Graham Swift:
Last Orders.
3. Josephine Cox:
A Time for Us.
4. Helen Forrester:
Mournlng Doves.
5. Nlck Hornby:
Hlgh Fidelity.
6. Marlan Keyes:
Lucy Sullivan Is Getting Married.
7. Marian Keyes:
Lucy Sulllvan is Gettlng Married.
8. Mlchael Klmball:
Undone.
9. Hugh Laurie:
The Gun Seller.
10. Nlcholas Evans:
The Horse Whisperer.
Rit almenns eðlis:
1. Bill Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Paul Wllson:
A Little Book of Calm.
3. John Gray:
Men Are From Mars, Women Are
From Venus.
4. Sebastian Faulks:
The Fatal Englishman.
5. Griff Rhys Jones ritstjóri:
The Nation's Favourite Poems.
6. Fergal Keane:
Letter to Daníel.
7. D.J. Goldhagen:
Hitler's Wllling Executioners.
8. Blll Bryson:
The Lost Contlnent.
9. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
10. Jung Chang:
Wlld Swans.
Innbundnar skáldsögur:
1. Catherine Cookson:
Bondage of Love,
2. Mary Wesley:
Part of the Fumlture.
3. Kate Atkinson:
Human Croquet.
4. Minette Walters:
The Echo.
5. Wilbur Smith:
Birds of Prey.
Innbundin rit almenns eðlis:
1. Dava Sobel:
Longitude.
2. Anne Frank:
Diary of a Young Girl.
3. Scott Adams:
The Dllbert Prlnclple.
4. Majorle Rlddell:
M for Mother.
5. Tim Smlt:
The Lost Gardens of Hellgan.
(Byggt a The Sunday Tlmes)
Waugh endursýndur
Evelyn Waugh.
Islenska sjónvarpið hefur
að undanförnu endursýnt
sjónvarpsþætti sem gerðir
voru af breska sjónvarpinu
eftir einni merkustu skáld-
sögu enska rithöfundarins
Evelyn Waugh - Brideshead
Revisited. Þættirnir vöktu á
sínum tíma mikinn áhuga al-
mennings á íslandi, eins og
reyndar annars staðar þar
sem þeir voru sýndir, og
gerðu Waugh frægan hér á
landi, um hríð að minnsta
kosti.
Þungamiðja sögunnar -
vinátta Charles Ryders og
Sebastians Flytes allt frá
skólaárum þeirra i Oxford - á
djúpar rætur í lífi höfundar-
ins sjálfs en Waugh var gjam
á að nota vini sína, kunn-
ingja og fjandmenn og eigin
reynslu sem efnivið skáld-
sagna sinna.
Syndin í Oxford
Evelyn Waugh fæddist árið
1903 í London, þar sem faðir
hans rak útgáfufyrirtæki, en
lést fyrir rúmum þrjátíu
árum, 1966. Hann hafði lítið
af fóður sínum að segja á æskuárun-
um; uppeldið var einkum í höndum
móður hans og barnfóstru allt þar
til hann var sendur til náms í
heimavistarskóla sem var honum
lítt að skapi, að minnsta kosti til að
byrja með.
Háskólaárin í Oxford breyttu
miklu í lífi Evelyns sem kynntist
þar nýju fólki af svokallaðri yfir-
stétt - fólki sem hann átti mikið
samneyti við það sem eftir var æv-
innar. Þar kynntist hann líka
glaumi og gleði hins ljúfa lífs ungs
fólks sem hugsaði um það eitt að
skemmta sér. Eitt sinn skrifaði
hann vini sínum: „Ég hef lifað eins
og brjálæðingur síðustu fjórtán dag-
ana og eyðilagt dagbók mína frá
þeim tíma. Kannski segi ég þér ein-
hvem tíma hvers vegna.“
Hann kvæntist konu af aðalsætt-
um, Evelyn Gardner, 1928 - sama
árið og fyrsta skáldsagan hans kom
út; Decline and Fall. En hjónaband-
ið stóð stutt; konan hélt fram hjá
honum með nánum vini þeirra. Það
var Waugh mikið áfall og hann
Umsjón
Elías Snæland Jónssnn
reyndi að hefna sín með skáldsög-
unni Vile Bodies árið 1930 en þar
fór hann háðulega með yfirstéttar-
liðiö sem eiginkonan fyrr-
verandi tilheyrði. Sagan
varð metsölubók og gerði
höfundinn í senn frægan og
fjárhagslega sjálfstæðan
um sinn - en Waugh var
gjarn á að eyða langt um
efni fram.
Sex barna faðir
Á fjórða áratugnum
stundaði Waugh blaða-
mennsku með ágætum ár-
angri en notaði um leið
reynslu sína til að semja
skemmtilegar skáldsögur
sem vöktu athygli. Þar á
meðal var ein snjallasta
saga sem samin hefur verið
um breska blaðamennsku;
sú nefnist Scoop.
Waugh, sem hafði snúist
til kaþólskrar trúar, kvænt-
ist öðru sinni árið 1937. Þau
hjónin settust að i enskri
sveit og eignuðust þar sex
böm. Síðari heimsstyrjöld-
in setti hins vegar strik í
reikninginn; Evelyn gekk í
herinn og gegndi herþjón-
ustu m.a. á Krít og í
Júgóslavíu.
Árið 1944 fékk hann leyfi hjá
hernum, kom sér fyrir á krá
skammt frá Dartmoor og hóf að
semja frægustu bók sína, Brides-
head Revisited. Hann skrifaði sög-
una i einni striklotu á fimm mánuð-
um. Þegar hún kom út áttu þeir sem
til þekktu auðvelt með að sjá fyrir-
myndir allra helstu persónanna í
skáldsögunni sem varð með árun-
um mest selda ritverk Evelyns
Waugh.
Seinna sendi hann frá sér margar
aðrar bækur sem sumar hlutu góð-
ar viðtökur en náðu samt ekki að
jafnast á við vinsældir sögunnar um
Charles Ryder og örlagarík kynni
hans af systkinunum Sebastian og
Júlíu, fjölskyldu þeirra og vinafólki.
Metsölukiljur
i ♦«•••«•••••••
Bandaríkin
Skáldsögur:
I
1. John Grlsham:
Runaway Jury.
2. Wally Lamb:
She’s Come Undone.
3. Davld Baldaccl:
Absolute Power.
4. LaVyrle Spencer:
The Camden Summer.
5. Mlchael Ondaatje:
The Engllsh Patlent.
6. Tom Clancy & Steve Pleczenlk:
Acts of War.
7. Sandra Brown:
Love’s Encore.
8. Ullan Jackson Braun:
The Cat Who Sald Cheese.
9. Jane Hamllton:
The Book of Ruth.
10. Marlo Puzo:
The Last Don.
11. Danlelle Steel:
Flve Days In Parls.
12. John Saul:
The Blackstone Chronlcles: Parts
1 & 2.
13. Judlth Krantz:
Spring Collectlon.
14. Llnda Howard:
Son of the Morning.
15. Taml Hoag:
Gullty as Sln.
Rlt almenns eðlis:
*.
1. Jonathan Harr:
A Clvll Action.
2. Mary Plpher:
Revlvlng Ophella.
3. Jon Krakauer:
Into the Wlld.
4. Thomas Cahill:
How the Irlsh Saved Clvillzatlon.
5. Kay Redfield Jamlson:
An Unquiet Mlnd.
6. Andrew Well:
Spontaneous Heallng.
17. Dava Sobel:
Longttude.
8. Mary Karr:
The Llar's Club.
9. James McBrlde:
The Color of Water.
10. C. A. Darden & J. Walter:
In Contempt.
11. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
12. Isabei Fonseca:
Bury Me Standlng.
13. Danaiel Jonah Goldhagen:
Hltler's Wllling Executloners.
14. Richard W. Lewls:
Absolut Book.
n 15. Barbara Klngsolver:
Hlgh Tlde In Tucson.
(Byggt á New York Times Book Review)