Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Side 42
62
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
Afmæli
Torfi Jónsson
Torfi Jónsson, skipstjóri og út-
gerðarmaður, Mýrum 6, Patreks-
flrði, verður sjötugur á skýrdag.
Starfsferill
Torfi fæddist í Kollsvík í Rauða-
sandshreppi og ólst þar upp, í
Vatnsdal í Rauðasandshreppi og á
Patreksfirði þar sem hann hefur
lengst af búið. Hann lauk prófi frá
fiskimannadeild Stýrimannaskól-
ans 1954.
Torfi var tólf ára er hann hóf sjó-
róðra á árabátum með föður sínum.
Hann var sjómaður á togurum
1947-60, fyrst á bv. Verði frá 1947 og
þar til togarinn fórst í janúar 1950,
var síðan á bv. Ólafi Jó-
hannessyni BA 77
1951-60, þar af skipstjóri
síðustu þrjú árin, var
stýrimaður á vertíðar-
bátunum Sigurfara og
Dofra 1960-63 en hefur
verið eigandi og skip-
stjóri á Skúla Hjartar-
syni BA 250 frá 1963.
Fjölskylda
Torfi kvæntist 13.11.
1955 Oddbjörgu Þórar-
insdóttur, f. 29.9. 1927,
húsmóður. Hún er dóttir Þórarins
Kristjánssonar og Kristínar Pálinu
Torfi Jónsson.
Jóhannsdótfru'.
Böm Torfa og Oddbjargar
era Kristín Bergþóra, f.
18.6. 1955, bóndi í Neðri-
Tungu í Örlygshöfh en
maður hennar er Rúnar
Ámason bóndi og eiga þau
fimm böm; Jón, f. 2.3.1958,
húsasmiður í Garðabæ en
kona hans er Kolbrún Sig-
mimdsdóttir sjúkraliði og
eiga þau þrjár dætur; Þór-
arinn, f. 2.1. 1966, rithöf-
undur í Reykjavik en kona
hans er Bjarnheiður Jó-
hannsdóttir leirlistamaður og eiga
þau tvö börn.
Systkini Torfa em Jónína Helga,
f. 21.7. 1925, búsett á Patreksfirði;
Valgerður, f. 11.4. 1929, búsett í
Reykjavík; Lilja, f. 14.3. 1931, búsett
á Patreksfirði; Kristin Fanney, f.
23.8. 1933, búsett á Patreksfirði;
Unnur Laufey, f. 23.5. 1938, búsett í
Reykjavík; Björgvin, f. 28.1.1941, bú-
settur í Reykjavík.
Foreldrar Torfa vora Jón Torfa-
son, f. 21.1. 1892, d. 12.11. 1971, og
Bergþóra Egilsdóttir, f. 17.9. 1898, d.
11.2. 1971.
Torfi verður að heiman á afrnæl-
isdaginn.
Jóhann Júlíusson
Jóhann Júliusson, útgerðarmað-
ur, Hafnarstræti 7, ísafirði er átta-
tíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist á Atlastöðum í
Fljótavík. Hann stundaði sjó-
mennsku frá unglingsámm og fram
undir 1940. Um árabil stundaði
henn veitingarekstur og var ökur-
kennari og bifreiðastjóri á leigu- og
vörubílum. Árið 1955 stofnaði hann
ásamt fleimm útgerðarfélagið
Gunnvör hf. og var framkvæmda-
stjóri þess frá upphafi og um tutt-
ugu ára skeið. Jóhann sá um rekst-
ur Skóverslunar Leós ásamt eigin-
konu sinni Margréti Leósdóttur í
íjölda ára og starfa þau þar enn.
Jóhann hefur setið í stjórn
margra fyrirtækja þ.m. Gunnvör
hf., íshúsfélag ísfirðinga,
Mjölvinnslunni hf. og Olíufélagi Út-
vegsmanna hf.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 8.3. 1945, Mar-
gréti Leósdóttur, húsmóður og
kaupmanni, f. 22.6. 1914. Hún er
dóttir Leós Eyjólfssonar, kaup-
manns á ísafirði, og Kristínar Hall-
dórsdóttur húsmóður.
Böm; Leó Júlíus f. 20.5. 1948, ljó-
myndari, búsettur í Austuríki, maki
Erica Jóhannsson; Kristán Guð-
mundur f. 11.1. 1954, framkvæmda-
stjóri á ísafirði, maki Inga Steinunn
Ólafsdóttir ferðafræðingur.
Fósturdóttir Jóhanns og Margrét-
ar er Jónína Högnadóttir f. 29.11.
1942, kaupmaður búsett á ísafirði,
maki Birkir Þorsteinsson, umboðs-
maður.
Systkyni, Ingibjörg f. 1906 látin,
Geirmundur f. 1908 látinn, Sigurlína
f. 1909 látin, Jón Ólafur f. 1910 lát-
inn, Guðmundína f. 1915 búsett í
Bandaríkjunum, Snorri f. 1916 lát-
inn, Þórður f. 1918 búsettur á ísa-
firði, Judith f. 1920 búsett í Reykja-
vík, Júlianna f. 1921 látin, Anna f.
1923 búsett í Reykjavík og Guð-
mundur f. 1925 látinn.
Foreldrar Júlíus Geirmundsson
útvegsbóndi, Atlastöðum Fljótavík
og Guðrún Jónsdóttir.
Jóhann og Margrét taka á móti
gestum á heimili sinu að Hafnar-
stræti 7, fsafirði á afmælisdaginn
frá kl. 15 til 18.
Angela
Angela Guðbjörg Guðjónsdóttir,
starfsmaður Reykjavíkurborgar,
Austurströnd 12, Seltjamamesi,
verður sextug á annan í páskum.
Starferill
Angela fæddist á Svarfhóli í
Svínadal í Borgarfirði. Hún stund-
aði nám við Kvennaskólann í
Hveragerði.
Angela átti heima á Eyrarbakka
um skeið en flutti til Reykjavíkur
1956 þar sem hún stundaði verslun-
arstörf lengst af, einkum hjá versl-
unum Silla og Valda og hjá heild-
versluninni fslensk erlenda.
Guðbjörg Guðjónsdóttir
Hún flutti til Sand-
gerði 1981 og starfaði þar
hjá versluninni Skiphól
til 1984. Þá hóf hún störf
við mötuneyti varnar-
liðsins í Rockville. Hún
flutti síðan aftur til
Reykjavíkur 1995 og
starfar nú við umönnun
aldraðra á vegum
Reykjavíkurborgar.
Fjölskylda
Eiginmaður Angelu er
Einar Grétar Bjömsson,
f. 17.8. 1927, matsveinn.
Angela Guðbjörg
Guðjónsdóttir.
Dóttir Angelu og Sigurðar
Sigurdórssonar er Fjóla
Sigurðardóttir, f. 17.10.
1954, húsmóðir í Reykja-
vík, gift Inga Rúnari Ell-
ertssyni skipstjóra og eiga
þau fjögur böm.
Hálfsystkini Angelu, sam-
mæðra: Steinunn Ingvars-
dóttir, f. 27.2. 1943, hús-
móðir og starfsmaður hjá
Reykjavíkurborgar, búsett
í Reykjavík; Gunnar
Randver Ingvarsson, f.
31.3. 1944, starfsmaður
íþróttaráðs í Reykjavík;
Guðfinnur Ingvarsson, f. 11.6. 1946,
d. í janúar 1986, vélstjóri á Sauðár-
króki; Hólmfríður Ingvarsdóttir, f.
21.5. 1948, starfsmaður hjá Sund-
laugum Reykjavíkur, búsett í
Reykjavík; Agnes Ingvarsdóttir, f.
2.5. 1951, d. 24.12. 1990, starfsmaður
vamarliðsins.
Foreldrar Angelu vom Guðjón
Hjálmarsson, f. 11.10. 1903, d. 22.7.
1954, trésmiður og bóndi á Svarfhóli
í Svindal, og Guðný Fjóla Gísladótt-
ir, f. 4.2. 1917, d. 7.10. 1967.
Til hamingju með aímælið 30. mars
85 ára
Jón Óskar Guðmundsson, Langholtsvegi 44, Reykjavík.
80 ára
Einar Eysteinsson, Hraunbergi 7, Reykjavík. Hann er að heiman. Olgeir Þorsteinsson, Bárugötu 18, Akranesi.
75 ára
Sigurjón Þórðarson, Hrafnistu við Skjólvang, Hafnarfirði. Eirikur Örn Gíslason, Hamrabergi 38, Reykjavik.
70 ára
Málmfríður Sigurðardóttir, Löngumýri 12, Akureyri. Guðný Pálsdóttir, Húnabraut 10, Blönduósi.
60 ára
Skjöldur Þorláksson, Kirkjuvegi 14, Keflavik. Jón Ingvar Þorvaldsson, Túngötu 3, Ólafsfirði.
50 ára
Dofri Eysteinsson, Stóragerði 7, Hvolsvelli. Ellen Hekla K. Andersson, Heimalandi við Vatnsenda, Kópavogi. Sigurður J. Guðjónsson, Blikabraut 9, Keflavík. Steindór Gunnarsson, Espilundi 4, Akureyri. Ástríður Guðmundsdóttir, Skeljagranda 3, Reykjavík. Jóhann Johansen, Hátúni 8, Reykjavík.
40 ára
Einar Albertsson, Sólheimum 25, Reykjavík. Ásgrímur Grétar Jörundsson, Sogavegi 115, Reykjavík. Guðlaug Jónsdóttir, Hofsvallagötu 59, Reykjavík. Þorkell Gunnar Hjaltason, Njálsgötu 44, Reykjavík. María Antonsdóttir, Leirabakka 16, Reykjavík. Jón Pétur Ólafsson, Staðartungu, Skriðuhreppi. Ólafur Sigurðsson, Sundabakka 12, Stykkishólmi.
Fréttir
Áttræður vildi DV-áskrift
Haukur Pétursson varð áttræður á dögunum og í afmælisgjöf færði frúin,
Jytte Lis Ostrup, honum áskrift að DV. Haukur sagðist í samtali við DV alltaf
hafa lesið blaðið á vinnustað áður en hann hætti störfum og að hann sakn-
aði þess að sjá það ekki. Því var það eina ósk hans fyrir afmælið að hann
fengi áskrift að blaðinu. Ekki stóð á frúnni að uppfylla þá ósk hans. Myndin
er tekin að morgni afmælisdagsins. DV-mynd Hari
Halldór Viðar Halldórsson
Halldór Viðar Halldórsson húsa-
smiður, Austurgötu 9, Hafnarfirði,
verður fimmtugm- þann 1.4. nk.
Starfsferill
Halldór fæddist i Reykjavík og
ólst þar upp á Grímsstaðarholtinu.
Hann gekk í Melaskólann í Reykja-
vík, lauk miðskólaprófi frá Haga-
skólanum, stundaði nám við Iðn-
skólann i Reykjavík og lauk sveins-
prófi í húsasmíði 1969.
Halldór hefur síðan lengst af
stundað sína iðngrein, fyrst hjá
ýmsum húsasmíðameistumm en
hefur undanfarin ár rekið eigið
smíðaverkstæði í félagi við Hlyn S.
Þórðarson í Reykjavík.
Fjölskylda
Halldór kvæntist 16.5. 1970 Auði
Gísladótfru-, f. 19.5. 1948, kirkjuverði
við Fríkirkjuna í Hafnar-
firði. Hún er dóttir Gísla
Guðmundssonar, fyrrv.
forstjóra í Vélsmiðjunni
Kletti í Hafnarfirði og
Guðlaugar Högnadóttur
húsmóður.
Börn Halldórs og Auð-
ar eru Fanney Eva Hall-
dórsdóttir, f. 7.3. 1970,
starfsstúlka við leik-
skóla, búsett í Reykjavík
en maður hennar er
Kristmundur Birgisson
og eiga þau tvær dætur,
Katrínu Evu og Söndm
Dögg; Elínbjört Halldórs-
dóttir, f. 7.12. 1972, starfsstúlka við
bakarí, búsett í Hafnarfirði en mað-
ur hennar er Sigurður Jón Sveins-
son og eiga þau einn son, Kristófer
Inga; Halldór Viðar, f. 30.11. 1978,
nemi og verkamaður í foreldrahús-
um.
Systkini Halldórs eru
Birgir Viðar Halldórsson,
f. 22.10. 1948, búsettur i
Kópavogi; Konráð Viðar
Halldórsson, f. 12.10. 1950,
búsettur í Bandarikjun-
um.
Hálfsystir Halldórs, sam-
feðra, er Ásgerður Hall-
dórsdóttir, f. 27.5. 1944,
búsett á Selfossi.
Foreldrar Halldórs: Hall-
dór Oddsson, f. 4.12. 1924,
d. 20.10. 1952, skrifstofu-
maður í Reykjavik, og
Fanney Magnúsdóttir, f.
3.3. 1928, starfsmaður við
sambýli í Reykjavík.
Halldór Viðar og Auður taka á
móti ættingjum og vinum á heimili
sínu á annan í páskum eftir kl.
15.00. Vonast þau til að sjá sem
flesta.
Halldór Viðar Hall-
dórsson.
Áskrifendur fá 19%
aukaafslátt af
aW rnil// h/m.
Smáauglýsingar
'É
smáauglýsingum DV
550 5000