Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Page 46
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
Nýdönsk skemmtir Akureyring-
um í kvöld.
Nýdönsk í
Sjallanum
Hljómsveitin Nýdönsk er kom-
in til Akureyrar og ætlar að
skemmta á dansleik í Sjallanum í
kvöld. Fyrr um kvöldið verður
haldin Fegurðarsamkeppni Norð-
urlands í Sjallanum. Nokkuð er
um liðið frá því meðlimir hljóm-
sveitarinnar hafa leikið nyrðra.
Með dansleikjahaldinu hyggst
Nýdönsk eyða páskunum í hýði á
Akureyri til æfinga og tónsmíða
Skemmtanir
en í bígerð er gerð safndisks með
þekktustu lögum hljómsveitar-
innar og er ætlunin að þar fljóti
með 2-3 ný lög. Meðlimir Nýd-
anskrar eru: Daníel Ágúst Har-
aldsson, Björn Jörundur Frið-
björnsson, Jón Ólafsson, Ólafur
Hólm og Stefán Hjörleifsson.
Sóldögg á
Gjánni
Hljómsveitin Sóldögg leikur á
Gjánni Selfossi í kvöld en halda
síðan á Vestfirði og skemmta á
nýjum veitinga- og skemmtistað
í Bolungarvík.
Siguröur Sigurjónsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir leika einu hlut-
verkin í leikritinu.
Á sama tíma
að ári
í kvöld verður Á sama tíma
að ári sýnt I Loftkastalanum, en
gamanleikrit þetta hefur gengið
nánast fyrir fullu húsi frá því í
sumar og er ein af vinsælustu
leiksýningum ársins. Persónur í
leikritinu eru aðeins tvær, Ge-
org og Dóra, og segir frá sam-
skiptum þeirra í þrjátíu ár, allt
Leikhús
frá árinu 1958 til 1988. Leikritið
er eftir Bernard Slate en stað-
fært og gerist á ótilteknu sveita-
hóteli einhvers staðar á íslandi.
Leikritið hefur áður verið sett á
svið hér á landi, en það var í
Þjóðleikhúsinu, og léku Bessi
Bjarnason og Margrét Guð-
mundsdóttir þá hlutverkin, en í
uppfærslu Loftkastalans eru það
Sigurður Sigurjónsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir.
Á sama tíma að ári var frum-
sýnt á Broadway árið 1975 og
hlaut það fádæma viðtökur hjá
áhorfendum og gekk það fyrir
fullu húsi í mörg ár. Verkið fékk
mörg verðlaun, sem og höfund-
urinn og þeir leikarar sem léku i
frumuppfærslunni, Alan Alda og
Ellen Burstyn, en þau léku síðan
hlutverkin í kvikmynd sem gerð
var eftir leikritinu árið 1978.
I>V
Éljagangur og snjókoma
Skammt norðaustur af landinu er
víðáttumikil 960 mb lægð sem þok-
ast austnorðaustur.
Allhvöss norðanátt og skýjað með
köflurn í dag en norðvestankaldi og
Veðrið í dag
léttskýjað suðvestan til í nótt. Norð-
vestan til verður hvöss norðanátt í
dag en minnkandi norðan- og norð-
vestanátt í nótt og éljagangur eða
snjókoma. Norðaustanlands er hægt
vaxandi norðvestanátt, kaldi eða
stinningskaldi og él síðdegis en all-
hvöss eða hvöss og snjókoma í
kvöld. Á Suðausturlandi verður
norðvestlæg átt, kaldi í dag en síðan
allhvöss eða hvöss og léttskýjað.
Hiti 0 til 4 stig í dag en vægt frost í
nótt um landið sunnan og austan-
vert. Frost verður 1 til 5 stig norð-
vestan til.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
allhvöss norðanátt, skýjað með köfl-
um og hiti 1 til 3 stig í dag en norð-
vestan kaldi, léttskýjað og vægt
frost í nótt.
Sólarlag 1 Reykjavík: 20.02
Sólarupprás á morgun: 07.03
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.56
Árdegisflóð á morgun: 08.09
Vedriö kl. 6 i morgun:
Akureyri snjókoma -0
Akurnes skýjaö 3
Bergstaöir snjóél -1
Bolungarvík snjóél -2
Egilsstaöir skýjaö 2
Keflavíkurflugv. skýjaö -0
Kirkjubkl. Raufarhöfn þokumóða 0
Reykjavík skýjað 0
Stórhöföi léttskýjað 1
Helsinki skýjaö -5
Kaupmannah. þokumóöa 2
Ósló þokumóöa 2
Stokkhólmur snjókoma -2
Þórshöfn skúr 5
Amsterdam þokumóða 8
Barcelona heiöskírt 9
Chicago alskýjað 3
Frankfurt þoka 6
Glasgow rigning 11
Hamborg þokumóöa 4
London skýjaö 10
Lúxemborg þoka 2
Malaga léttskýjaö 12
Mallorca hálfskýjaö 10
París skýjaö 5
Róm léttskýjaö 9
New York alskýjaö 13
Orlando léttskýjað 19
Nuuk snjókoma -8
Vín skýjaö 2
Washington alskýjaö 13
Winnipeg skýjaá -0
Karl Haraldur Gunnlaugsson, formaður skíðadeildar Leifturs:
Það verður nægur snjór
DV, Ólafsfirði:
„Viö höfúm engar áhyggjur af
snjónum eins og landsmótsárið
1992 þegar hér var engan snjó að
sjá,“ segir Karl Haraldur Gunn-
laugsson, formaður skiðadeildar
Leifturs. Skíðamót íslands verður
að þessu sinni haldið á Dalvík og í
Óiafsfirði, rétt eins og fyrir 5
árum. „Snjórinn hefur að visu
Maður dagsins
minnkað talsvert frá því í febrúar
en það verður örugglega nægur
snjór þegar mótið hefst.“
Karl Haraldur á von á 100 kepp-
endum á þetta landsmót. Mótið
hefst fimmtudaginn 26. mars með
5-10-15 km göngu karla og kvenna
á Dalvík. Keppt verður í göngu í
Ólafsfirði á fimmtudag og stór-
svigi karla og kvenna á Dalvik.
Eingöngu verður keppt í Ólafsfirði
á laugardag, í svigi. Mótinu lýkur
á sunnudag með risasvigi og 7,5-
15-30 km göngu.
Karl Haraldur Gunnlaugsson.
„Þetta er í annað sinn sem
Ólafsfirðingar og Dalvíkingar
vinna saman að svona móti, síðast
árið 1992. Við sóttum um á skíða-
þingi fyrir tveimur árum, þ.e. í
maí 1995, á 20 ára afmælisári
skíðadeildar Ólafsfirðinga og 25
ára afmælisári skíðafélags Dalvík-
inga.“
Ekki er annað vitað en að all-
ir sterkustu skíðamenn lands-
ins mæti til leiks, þar á meðal
Ólafsfirðingurinn Kristinn
Björnsson sem hefur verið að
gera það gott í vetur, Arnór
Gunnarsson frá ísafirði,
göngugarpurinn Daníel Jakobs-
son sem dvelur í Svíþjóð, Sigríð-
ur Þorláksdóttir frá ísafirði,
Brynja Þorsteinsdóttir frá Akur-
eyri, Lísebet Hauksdóttir frá
Ólafsfirði og Theódóra Matiesen
frá Reykjavík.
Sú nýbreytni verður í göngu-
keppninni að veita sérstök verð-
laun keppendum í flokki 35-49
ára annars vegar og hinsvegar í
flokki 50 ára og eldri. Þetta er
gert til að stækka mótið, að sögn
Karls Haraldar, til að vekja
áhuga þeirra eldri. Eftir sem
áður verður göngukeppnin einn
allsherjar flokkur, þannig að í
raun keppa allir til íslandsmeist-
aratitils. -HJ
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1769:
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
Juliette Binoche fékk ósk-
arsverölaun fyrir leik sinn í hlut-
verki hjúkrunarkonunnar.
Englendingur-
inn
Englendingurinn (The English
Patient), sem Regnboginn sýnir,
sópaði að sér óskarsverðlaunum
í fyrrnótt og var meðal annars
valin besta kvikmyndin. Eng-
lendingurinn hefst seint á árinu
1942 þegar flugvél flýgur yfir Sa-
hara-eyðimörkina. Innanborðs
eru maður og kona. Þýskar her-
flugvélar gera árás á flugvélina
og skjóta hana niður. Flugmað-
urinn fellur til jarðar í fallhlíf
Kvikmyndir
ásamt farþega sínum sem er dá-
inn. Flugmaðurinn fær síðar
hjúkrun hjá ungri ítalskri hjúkr-
unarkonu sem hefur farið hall-
oka í stríðinu og á engan að.
Hún leggur því allt í sölurnar
fyrir sjúkling sinn. Til sögunnar
kemur einnig þjófur en hæfileik-
ar hans í þeim efnum hafa gert
hann að hetju í stríðinu. I
klaustrinu er einnig ungur, ind-
verskur liðsforingi í her Breta.
Englendingurinn er gerð eftir
skáldsögu Michaels Ondaatje.
Handritið skrifaði leikstjórinn
Anthony Minghella. í aðalhlut-
verkum eru Ralph Fiennes,
Kristin Scott-Thomas, Juliette
Binoche og Willem Dafoe.
Nýjar myndir
Háskólabió: Star Wars
Laugarásbíó: Evita
Kringlubíó: Metro
Saga-bíó: Space Jam
Bíóhöllin: Innrásin frá Mars
Bíóborgin: Kostuleg kvikindi
Regnboginn: Rómeó og Júlía
Kyrrðardagar í
Skálholti
Hefðbundnir Kyrrðardagar verða
í Skálholti um bænadaga í dymbil-
viku 26.-29. mars. Hefiast kyrrðar-
Samkomur
dagamir með aftansöng í dag kl.
18.00 og lýkur á laugardag fyrir
páska með hádegisverði.
Afmælisfundur
AA-samtakanna
verður haldinn að venju föstudag-
inn langa, 28. mars, í Háskólabíói
kl. 21 og eru allir velkomnir. Þar
tala nokkrir AA-félagar og gestur
frá Al-Anon samtökunum.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 92
26.03.1997 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqenqi
Dollar 70,640 71,000 70,940
Pund 114,220 114,800 115,430
Kan. dollar 51,260 51,570 51,840
Dönsk kr. 10,9770 11,0350 10,9930
Norsk kr 10,6010 10,6590 10,5210
Sænsk kr. 9,1940 9,2450 9,4570
Fi. mark 14,0350 14,1180 14,0820
Fra. franki 12,4090 12,4800 12,4330
Belg. franki 2,0272 2,0394 2,0338
Sviss. franki 48,2400 48,5100 48,0200
Holl. gyllini 37,2100 37,4300 37,3200
Þýskt mark 41,8600 42,0700 41,9500
ít. líra 0,04170 0,04196 0,04206
Aust. sch. 5,9440 5,9810 5,9620
Port. escudo 0,4159 0,4185 0,4177
Spá. peseti 0,4926 0,4956 0,4952
Jap. yen 0,56870 0,57210 0,58860
írskt pund 111,040 111,730 112,210
SDR 96,62000 97,20000 98,26000
ECU 81,2500 81,7300 81,4700
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Biður um umhverfismat