Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1997, Page 47
MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 1997
67
Myndasögur
Fréttir
Sh
(Ö
N
U
(ð
E-
>H
3
2
K
73
:0
co
'<D
'S
4
-(Ö
0)
O
(ð
co
nq
§
s
<+H
SJ
RETTARA GAjST TRIENTALIS
ERUOPÆA. HUN ER MEP SJÖ,
STJÖRNJJLAGA BLOM OG VEX I
SURUM JARÐVEGI.
Svalbarðasvæðið:
Norðmenn
taka vel á
móti Arnar-
borginni
DV, Aknreyri:
„Öll samskipti okkar við Norð-
mennina hafa verið vinsamleg og
öllum reglum hefur verið fylgt út i
æsar, það er ekki yfír neinu að
kvarta í þeim efnum,“ segir Sigurð-
ur Friðriksson, skipstjóri á Arnar-
borginni frá Dalvík, en skipið fór
frá Tromsö í Noregi í gær til rækju-
veiða við Svalbarða.
Arnarborgin var reyndar komin
á Svalbarðasvæðið á dögunum, en
bilun sem upp kom í frystibúnaði
áður en veiðamar hófust varð þess
valdandi að leita varð hafnar í
Tromsö til viðgerðar. Sigurður Frið-
riksson segir að hann hafi tilkynnt
sig til norskra yfirvalda, bæði á
leiðinni frá íslandi og eins áður en
hann fór inn í lögsöguna við Sval-
barða. Engar athugasemdir voru
gerðar og öll samskipti vinsamleg.
Vitað er að Norðmenn fylgjast vel
með ferðum Arnarborgarinnar, og
ekki síður því hvort fleiri íslensk
skip halda á rækjuveiðar við Sval-
barða. Norsk yfirvöld viðurkenna
rétt eins íslensks skips til rækju-
veiða á þessum slóðum, en það mun
vera vegna þess að Stakfellið frá
Þórshöfn „dýfði trolli þarna“ eins
og viðmælendur DV hafa orðað það.
Á þeirri forsendu fær Arnarborg að
fara á Svalbarðamiðin óáreitt, en
ætli fleiri íslensk skip í kjölfarið
mun það án efa ekki ganga átaka-
laust.
Áhöfn Arnarborgar var vel tekið
í Tromsö og engin fyrirstaða að fá
viðgerðarþjónustu. Þá stendur frek-
ari þjónusta til boða, t.d. ef Arnar-
borg vildi fá olíu á miðin, þá þarf
einungis að tilkynna það með góð-
um fyrirvara.
-gk
Tilkynningar
Kvenfélag Óháöa safnaðar-
ins
Kvenfélag Óháða safnaðarins
heldur fund þriðjudaginn 1. apríl kl.
20.30 í Kirkjubæ.
Skíðasvæöið í Stafdal Seyð-
isfirði
Skíðasvæðið í Stafdal Seyðisfirði
er opið alla páskana frá kl. 11-17.
Nægur snjór og vel troðnar brautir.
Undur veraldar
Fimmtudaginn 27. mars end-
urtekur Gunnlaugm: Bjömsson
stjarneðlisfræðingur fyrirlesturinn
„Sólir og svarthol: Nýjustu fréttir af
furðum alheimsins" í fyrirlestraröð-
inni „Undur veraldar“. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 14 i sal 3 í Háskólabiói.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Páskavaka í Hafnarfjarðar-
kirkju á páskanótt
Á páskanótt verður haldin páska-
vaka í Hafnarfjarðarkirkju. Hefst
hún kl. 20.30 laugardagskvöldið og
stendur til 00.30 á páskamorgun.
Tónlistin og upprisugleðin skipa
veglegan sess á páskavökunni. Söng
annast félagar úr hljómkómum.
Einsöngvari verður Signý Sæ-
mundsdóttir. Prestur páskavökunn-
ar er sr. Þórhallur Heimisson.
Yfir Strikið
Danshljómsveitin Yfir Strikið
spilar á Kaffi Krók, Sauðárkróki,
föstudaginn langa, 28. mars, frá mið-
nætti til 04.00.
Hana nú í Kópavogi
Vikuleg laugardagsganga Hana
nú i Kópavogi verður laugardaginn
fyrir páska. Lagt af stað frá Gjá-
bakka, Fannborg 8, kl. 10. Nýlagað
molakaifi.
Leikhús
ÞJÓDLEIKHÚSID
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20.00
VILLIÖNDIN
eftir Henrik Ibsen
Id. 5/4, örfá sæti laus, Id. 12/4.
KÖTTUI? Á HEITU
BLIKKÞAKI
eftir Tennesse Williams.
5. sýn. föd 4/4, uppselt, 6. sýn. sud 6/4,
uppselt, 7. sýn. fid. 10/4, uppselt, 8.
sýn. sud. 13/4, örfá sæti laus.
ÞREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Aukasýning fid. 3/4.
LITLI KLÁUS OG STÓRI
KLÁUS
eftir H.C. Andersen
Sud. 6/4 kl. 14.00, sud. 13/4, kl. 14.00.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20.30
LEITT HÚN SKYLDI
VERA SKÆKJA
eftir John Ford
Id. 5/4, Id. 12/4.
Athygli er vakin á aö sýningin er ekki
viO hæfi barna. Ekki er hægt aö hleypa
gestum inn í salinn eftir aO sýning
hefst.
Gjafakort í leikhús -
sígild ogskemmtileg gjöf.
Miöasaian er opin mánudaga
og þriöjudaga kl. 13-18, frá
miövikudegi til sunnudags kl.
13-20 og til 20.30 þegar
sýningar eru á þeim tíma.
Einnig er tekiö á móti
símapöntunum frá kl. 10 virka
daga.
Miöasalan veröur lokuö um
páskana frá skírdegi. Miöasalan
opnuö aftur þriöjudaginn 1.
aprít.
SÍMI MIÐASÖLU: 551 1200.
r Hfgleikub
sýnir í Tjarnarbíói
Embættismannahvörfin
Leikstjóri: Jón St. Kristjánsson
Frumsýning miö. 26.mars
2. sýn. fimmtud. 27. mars
3. sýn. föstud. 4. apríl
4. sýn. laugard. 5. apríl
5. sýn. sunnud. 6. apríl
Sýningar hefjast kl. 20.30.
Miöasala opin sýningardaga frá kl. 19.
Símsvari allan sólarhringinn: 551 25 25.
Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna.
Nauðungar-
sala
Á nauðungarsölu sem fram á að fara
föstudaginn 4. apríl 1997 kl. 14.00 við
Stapafell hefur að kröfu Eggerts B. Ólafs- "
sonar hdl. verið krafist nauðungarsölu á
sandhörpu af gerðinni Vibrascreen sem
staðsett er við Stapafell.
Greiðsla áskilin við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í KEFLAVÍK
Smáauglýsingar
550 5000