Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1997, Page 8
8
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1997
Mosfellsprestakall
Lágafellssókn
Aöalfundur safnaöarins veröur haldinn í safnaöarheimil-
inu þriöjudaginn 13. mai, kl. 20.30. Venjuleg aöalfundarstörf
Sóknarnefnd
Menntamálaráöuneytiö
Laus staða deildarsérfræðings
í háskóla- og vísindadeild
Menntamálaráöuneytiö auglýsir til umsóknar tímabundna stööu deildar-
sérfræðings í háskóla- og vísindadeild á skrifstofu menntamála og vísinda
til allt að þriggja ára.
Viðkomandi skal hafa þekkingu á háskóla- og rannsóknarstarfsemi.
Góö tungumálakunnátta er nauösynleg og reynsla af stjórnsýslustörfum
æskileg.
Laun greiöast samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Starfsmaður-
inn þarf aö geta hafið störf eigi síöar en 1. ágúst nk.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Baldursson, skrifstofustjóri skrifstofu
menntamála og vísinda.
Umsóknir meö upplýsingum um menntun og starfsferil skulu sendar
menntamálaráöuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 25. maí nk.
NÝKOM 10
Teg. 7001
Svart nubukleður
stærð 36-4!
V«ti kr. 4.350
Teg. 6001
Svart nubukleður
Stærð 36-41
Verð kr. 4,350 .Skóverslun
ÞÓRRAR
GÆÐI & ÞjÓNUSTA
Laugavegl 40 • s. 551 4181
FORVAL
F.h. Rafmagnsveitu Reykjavíkur er auglýst eftir áhugasömum
framleiðendum til að taka þátt í forvali vegna lokaðra útboða í eftir-
farandi verk.:
1. 36 kV aflrofabúnað fyrir aöveitustöö í Mosfellsbæ. Um er aö
ræða gaseinangraöan (SF6) hólfaöan rofabúnaö, með 5 stk.
aflrofaeiningum. Safnteinar veröa einfaldir. Rofabúnaöinum skal
fylgja stafræn liðavernd.
2.12 kV aflrofsbúnað fyrir aðveitustöð í Mosfellsbæ. Um er aö
ræöa 12 stk. hólfaöa aflrofaskápa meö tvöföldum safnteinum.
Rofabúnaöinum skal fylgja stafræn liðavernd.
3. Nesjavallalínu, 145 kV jaröstrengur ásamt tengiefni og tengi-
vinnu. Um er aö ræöa 1 500 mm2 álstreng meö XLPE einangr-
un og PE hlífðarkápu. Áætlaö magn er 3 x 15.500 m, samtals
46.500 m.
4. Nesjavallalínu, stálmöstur fyrir háspennulínu. Um er aö ræöa 41
stk. stöguð möstur úr ferstrendum stálprófílum (112 tonn) og 10
stk. stálturna (65 tonn).
Útboöin fara fram á EES-markaöi.
Forvalsgögm fást afhent á skrifstofu vorri aö Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík. Væntanlegir bjóðendur sem áhuga hafa og telja sig
uppfylla þær kröfur sem fram koma í forvalsgögnum þurfa aö skila
inn umbeðnum upplýsingum fyrir föstudaginn 13. júní 1997 á
skrifstofu vora.
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16
Ástandiö var bágborið meðal þeirra sem komust lífs af úr jaröskjálftanum í íran á laugardag. Á myndinni er kona aö
hlúa aö ungum börnum sínum sem slösuðust í hamförunum. Simamynd Reuter
Jarðskjálfti, 7,1 á Richter, skók austurhluta írans:
2400 fórust og 200
þorp urðu að rústum
Geysiöflugur jarðskjálfti, sem
mældist 7,1 á Richter, skók austur-
hluta írans seinni partinn á laug-
ardag. Taliö er að um 2400 manns
hafi farist í skjálftanum sem lagði
200 þorp í rúst.
Hjálparstarfsmenn leituðu í rúst-
um þorpanna allan daginn í gær en
lítil von var til að fmna nokkum á
lífi. Örvinglaðir ættingjar hjálpuðu
við leitarstörfm og grófu í rústun-
um með berum höndum. Um miðj-
an dag í gær var tala látinna komin
í 2.396 en talið er að um sex þúsund
manns hafi slasast.
Ali Mohammad Besharati innan-
ríkisráðherra óskaði í gær eftir að-
stoð Sameinuðu þjóðanna til að að-
stoða fórnarlömb skjálftans. Hann
sagði við útvarpið í Teheran að leit-
arflokkar hefðu leitað á stórum
hluta skjálftasvæðisins í gær og
vonaðist til að þeir mundu ljúka
störfum seint í gærkvöld.
Tjón af völdum skjálftans er talið
nema um 5 milljörðum íslenskra
króna. Þetta er stærsti jarðskjálfti
sem orðið hefur í Iran frá 1990. Þá
fórust hátt í 35 þúsund manns.
í gær höfðu 4.300 hjálparstarfs-
menn sett upp 9 þúsund tjöld sem
hýsa eiga um 10 þúsund heimilis-
lausar fjölskyldur. íranar báðu
Sameinuðu þjóðimar um matvæli,
lyf, tjöld, fatnað, vatnstanka og far-
artæki með drifi á öllum hjólum til
að auðvelda leitarstörf í fjallahéruð-
unum. Frakkar og Bandaríkjamenn
tilkynntu að þeir væru reiðubúnir
að hjálpa.
Um 130 eftirskjálftar skóku jarð-
skjálftasvæðið sólarhring eftir að
stóri skjálftinn reið yfir. Ibúar Mas-
hhad, næststærstu borgar írans,
fundu fyrir skjálftanum en hún er
einungis í 370 kílómetra fjarlægð
frá upptökum hans.
Skjálftinn olli því að veggur á
spítala í Herat í vesturhluta
Afganistans hrundi og flmm menn
létust.
Jarðskjálftar ollu víðar usla.
Þannig reið jarðskjálfti, sem
mældist 5,8 á Richter, yfir norður-
og miðhluta Kólumbíu. Engar frétt-
ir bárust hins vegar um tjón eða
mannskaða. Reuter
Chirac öruggur samkvæmt skoðanakönnunum:
Sigurviss meðal
stjarna í Cannes
Jacques Chirac, forseti
Frakklands, heimsótti
kvikmyndastjörnurnar á
kvikmyndahátíöinni í
Cannes í gær og fagnaði
um leið góðri útkomu úr
skoöanakönnunum. í nýrri
könnun sem birt er í Le
Figaro í dag vinnur ríkis-
stjómin 338-370 þingsæti í
kosningunum sem fram
fara 25. maí til 1. júní með-
an vinstri flokkarnir vinna
einungis 183-213 þingsæti.
Þjóðfylkingu Le Pens er
spáð 1-3 sætum.
Samkvæmt könnuninni
munu 41,5 prósent kjósa
vinstri flokkana, 39,5 pró-
Jacques Chirac
ásamt Isabellu
Adjani, leikkonu
og formanni kvik-
myndadóm-
nefndar, í Cannes
í gær.
Símamynd Reuter
sent hægri flokkana og 14
prósent Þjóðfylkinguna. í
seinni umferð kosning-
anna munu kjósendur
Þjóðfylkingarinnar hins
vegar styðja hægri flokk-
ana og tryggja öruggan
þingmeirihluta þeirra.
Svipaðar niðurstöður
mátti sjá í annarri könnun
í síðustu viku.
Athygli vakti að 31 pró-
sent aðspurðra í könnun-
inni sögðust kannski
mundu skipta um skoðun
og ríflega 60 prósent sögðu
að úrslit kosninganna
mundu hafa afar takmörk-
uð áhrif á líf þeirra. Reuter
Djúpblá malaði Kasparov
Skáktölvan Djúpblá hafði sigur í
sjöttu og síðustu skák sinni við
Garrí Kasparov, heimsmeistara í
skák meðal mannanna. Er Djúpblá
fyrsta tölvan sem vinnur ríkjandi
heimsmeistara í skák. Hlaut Djúp-
blá þrjá og hálfan vinning á móti
tveimur og háifum vinningi
Kasparovs. Sigraöi tölvan í
annarri og sjöttu skákinni og náði
þremur jafnteflum.
Eftir klukkutíma taílmennsku
og aðeins 19 leiki varð Kapsarov
að játa sig sigraðan. Voru skáksér-
fræðingar furðu lostnir yfir yfir-
burðum tölvunnar. Kasparov, sem
hafði svart, var brugðið þegar
hann gaf skákina og lyfti höndum
í undrun þegar hann gekk úr saln-
um. Reuter
Stuttar fréttir
Langl í frið
Benjamin Netanyahu, forsæt-
isráðherra ísraels, spáir því að
það muni taka sendifulltrúa
Bandaríkjanna nokkurn tíma
að fá ísraela og Palestínumenn
að samningaborðinu á ný.
Mannrán
Hópi rússneskra sjónvarps-
manna var rænt í Tsjetsjeníu.
Er það talið spilla andrúmsloft-
inu fyrir fvmd sem aðskilnaðar-
sinnar mimu eiga með Boris
Jeltsín.
Bað um frið
Jóhannes Páll páfi lauk vel
heppnaðri ferð sinni til Lí-
banon með því að hvetja til frið-
ar og fulls sjálfstæðis Líbanons
sem lýðræðisríki.
Heræfingar
Þúsundir íranskra hermanna
stunduðu heræfingar í lofti og á
sjó. Yfirmaður í her Banda-
rikjamanna sagðist mundu
verja Hormuzsund yrði því ógn-
að af írönum.
Hótar banni
John Bruton, forsætisráð-
herra írlands, hótaði að banna
allar viðræður ráðherra viö
Sinn Fein þar til írski lýðveld-
isherinn hefði lýst yfir vopna-
hléi.
Reuter