Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1997, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 12. MAÍ 1997
45
DV
Eitt málverka Önnu-Evu Bergmann f
Listasafni Kópavogs.
Afstrakt með
snertingu af
norskri náttúru
Um þessar mundir stendur yfir
sýning í Listasafiii Kópavogs á
myndum eftir norsku listakonuna
Önnu-Evu Bergmann (1909-1987).
Hún haslaði sér völl á alþjóðavett-
vangi á sjötta áratugnum með
málverkum sem höfðu afstrakt yf-
irbragð þótt kveikjan í þeim væri
norskt landslag.
Anna-Eva Bergmann starfaði
víða í Evrópu með eiginmanni
sinum, hinum nafntogaða þýska
málara, Hans Hartung. Listrænt
sjálfstæði Önnu-Evu var jafnan
óumdeilt enda höfðu verk hennar
mikla sérstöðu á uppgangstímum
afstraktlistarinnar. Frumlegan og
kraftmiklan stíl sinn þróaði lista-
konan með því að stílfæra til hins
ýtrasta grunnform í norskri nátt-
úru uns eftir stóðu algild frum-
tákn, haf, firðir, bátar, fjöll, stein-
ar og dulmagnað ljós norðursins.
Sýningin stendur til 8. júní.
Sýningar
Tvær sýningar
í Reykholti
í safiiaðarheimili Reykholts-
sóknar standa nú yfir tvær sýn-
ingar. Um er að ræöa sýningu dr.
Jónasar Kristjánsson um Snorra
Sturluson og verk hans og mál-
verkasýningu Vignis Jóhannsson-
ar. Sýnir Vignir olíumálverk
tengd íslensku landslagi. Sýning-
amar standa til 15. júní.
Notkun áttavita
Björgunarskóli Landsbjargar
og Slysavamafélag íslands stend-
ur fyrir námskeiði fyrir almenn-
ing um notkun áttavita og landa-
korta í samvinnu við Ferðafélag
íslands í dag og á morgun í húsi
Ferðafélagsins, Mörkinni 6, og
hefst það kl. 20 báða dagana.
Kirkjan og lífsskrefin
{Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11,
Akureyri, verður haldið í dag kl.
17 málþing um fræðslu kirkjunn-
ar og hvemig hún tengist ævi-
ferli einstaklinga. Námskeiðið er
ætlað prestum, starfsmönnum
safnaða og öðrum sem tengjast og
hafa áhuga á kristnidóms-
fræðslu.
Samkomur
Ráðstefna um vamir
gegn áfengis- og
vímuefnavandanum
verður haldin í Borgartúni 6 á
morgun, þriðjudaginn 13. maí.
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra
flytur ávarp, Bjöm Halldórsson,
yfirmaður ávana- og fikniefna-
deildar lögreglunnar, og Þórólfur
Þórlindsson prófessor flytja er-
indi.
SVDK Hraunprýði
Hin árlega kafíi- og merkjasala
SVDK Hraunprýði verður i dag
frá kl. 15 til 22. Kafíisalan verður
að Hjallahrauni 9. Merki deildar-
innar verða afhent sölubömum í
Bæjarbíói frá kl. 9.
Félag eldri borgara
í Reykjavík
Bridge verður spilað í Risinu í
dag kl. 13.00.
Hlaup
Því fjölgar með hveijum
degi fólki sem er að hlaupa
sér til heilsuhressingar eða
ganga í sama tilgangi.
Margir hafa það fyrir sið að
ganga eða hlaupa frá sund-
laugum bæjarins og er
Breiðholtslaug engin und-
antekning í því tilliti. Frá
henni er hægt að velja
margar leiðir.
Á kortinu má sjá tvær
leiðir um Breiðholt sem era
þriggja kílómetra og fimm
kílómetra langar. Þetta era
Umhverfi
mjög svo hæfilegar göngu-
leiðir og góðar hlaupaleiðir
fyrir fólk sem er ekki langt
komið í skokkinu. Fyrir þá
sem vilja lengri hlaupaleið-
ir er hægt að benda á
Elliðaár- og Víðidalinn en
þar era vinsælar skokk- og
hlaupaleiðir.
og ganga í Breiðholti
Pétur Östlund og kvartett á Jómfrúnni:
Uppáhaldslög Péturs
Pétur Östlund trommuleikari er einn
okkar þekktasti djassmaður og þótt hann
hafi lengi starfað í Svíþjóð kemur hann
hingað til lands til aö spila við ýmis tæki-
færi. Pétur hefur ieikið inn á margar plöt-
ur en aldrei undir eigin nafhi en nú er
komið að því að hann gefi út plötu og er
hann hér á landi i þeim tilgangi.
Pétur hefur stofhað kvartett til að sinna
þessu verkefni sínu sem hann kallar
Power Flower. í kvartettinum era engir
aukvisar. Eyþór Gunnarsson leikur á pí-
anó og Þórður Högnason leikur á bassa en
þeir léku með Pétri á síðustu RúRek-hátiö
Skemmtamr
á eftirminnilegum tónleikum. Fjórði með-
limur kvartettsins er sænski saxófónleik-
arinn Frederik Ljungkvist sem lék hér á
landi í fyrra í hljómsveit Frederiks Nor-
ens. Kvartettinn hefur haldið tvo tónleika,
á Akureyri og í gærkvöldi á Jómfrúnni.
Leikurinn veröur endurtekinn í kvöld og
hefjast tónleikamir kl. 21.
Pétur Östlund, sem stendur í stórræðum þessa dagana, mun
leika ósamt kvartett sínum á Jómfrúnni f kvöld.
ListaJdúbbur Leikhúskjallarans:
Frátekið borð
Tvær konur utan af landi, önnur
frá Akureyri og hin frá Homafirði,
eiga frátekið borð í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans í kvöld. Nánar
tiltekið er hér á ferðinni leiksýning
eftir Jóninu Leósdóttur, einn verð-
launahöfunda í samkeppni Leikfé-
lags Reykjavíkur um bestu leikritin
í tilefni 100 ára afmælis félagsins.
Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir en
konumar leika þær Saga Jónsdóttir
og Sofíia Jakobsdóttir en þjónustu-
stúlku Leikhúskjallarans leikur Þó-
rey Sigþórsdóttir.
Leikhús
Frátekið borð er örlagaþrangin
kómedía í einum þætti með
ísmeygilegu plotti. Um er að ræða
tilbúna leiksýningu en ekki leiklest-
ur en verkið var fyrst flutt hjá Höf-
undasmiðju Leikfélagsins.
Saga Jónsdóttir, Soffía Jakobsdóttir og Pórey Sigþórsdóttir leika persón
urnar þrjár í Frátekið borð.
Pétur Jónsson
Myndarlegi drengurinn
á myndinni, sem hefur
hlotið nafnið Pétur, fædd-
ist á fæðingardeild Land-
spítalans 1. maí kl. 17.12.
Barn dagsins
Hann var við fæðingu
4485 grömm að þyngd og
mældist 55 sentímetra
langur. Foreldrar hans
eru Sigrún Magnúsdóttir
og Jón Gauti Jónsson og
er Pétur þeirra fyrsta
bam.
Jim Carrey leikur lögfræðinginn
Fletcher Reede sem lendir í
óvæntum þrengingum. Meö hon-
um á myndinni er Jennifer Tilly.
Lygari, lygari
í Lygara, lygara (Liar Liar),
sem sýnd er Laugarásbíói, er
hinn vinsæli gamanleikari Jim
Carrey í miklum ham sem
Fletcher Reede, metnaðargjam
lögfræðingur sem er í lífsgæða-
kapphlaupi og lætur ekki sann-
leikann hindra sig í að vinna
mál fyrir rétti. í réttarsalnum er
hann mjög sannfærandi og á létt
með að tala alla upp úr skónum,
enda óforbetranlegur lygari sem
gerir engan mun á hvað er satt
og hvað ósatt. Þessar lygar lenda
einnig á syni hans sem tekst þó í
einn dag að láta fóður sinn segja
sannleikann og ekkert annað en
sannleikann. Allt í einu er kjaft-
urinn á Fletcher, sem hefur
bjargað honum á lífsleiðinni,
orðinn það sem bakar honum
ekkert nema vandræði.
Kvikmyndir
Mótleikarar Jims Carreys í
Liar Liar eru Jennifer Tilly,
Swoosie Kurtz, Amanda
Donohoe, Maura Tiemey og
Cary Elwes. Leikstjóri er Tom
Shadyac.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Háöung
Laugarásbió: Lygari, lygari
Kringlubió: Veislan mikla
Saga-bíó: Lesið í snjóinn
Bíóhöllin: Michael
Bíóborgin: Tveir dagar í dalnum
Regnboginn: Supercop
Stjörnubíó: Einnar nætur gaman
Krossgátan
Lárétt: 1 stærðfræðitákn, 6 hross-
húð, 8 eftirréttur, 9 rola, 10 mánuð-
ur, 11 ólykt, 12 timi, 13 handlegg, 15
napurt, 17 gleði, 20 snemma, 21
strax.
Lóðrétt: 1 samningur, 2 borgarar, 3
hvítrófu, 4 álandsvindur, 5 blessa, 6
garmur, 7 dýpi, 12 spírun, 14 sjór, 16
traust, 18 féll.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 ómynd, 6 ás, 8 lofa, 9 rim,
10 urr, 11 funi, 13 skinnið, 14 sinna,
16 sa, 18 enn, 19 áttu, 21 Ingi, 22 eim.
Lóðrétt: 1 61, 2 morkinn, 3 yfrinn, 4
nafn, 5 druna, 6 ái, 7 snið, 12 nisti,
15 nái, 17 aum, 18 ei, 20 te.
Gengið
Almennt gengi 09.05.1997 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollqengi
Dollar 70,530 70,890 71,810
Pund 114,740 115,280 116,580
Kan. dollar 50,915 51,225 51,360
Dönsk kr. 10,8630 10,9330 10,8940
Norsk kr 9,9820 10,0420 10,1310
Sænsk kr. 9,1740 9,2300 9,2080
Fi. mark 13,6850 13,7750 13,8070
Fra.franki 12,2610 12,3390 12,3030
Belg. franki 2,0035 2,0175 2,0108
Sviss. franki 48,8800 49,1800 48,7600
Holl. gyllini 36,7600 37,0000 36,8800
Þýskt mark 41,3620 41,6180 41,4700
lt. líra 0,04176 0,04204 0,04181
Aust. sch. 5,8750 5,9150 5,8940
Port. escudo 0,4109 0,4139 0,4138
Spá. peseti 0,4895 0,4929 0,4921
Jap. yen 0,57440 0,57880 0,56680
irskt pund 106,770 107,410 110,700
SDR 96,45000 97,05000 97,97000
ECU 80,4800 81,0400 80,9400
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270