Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 19
18 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNl 1997 23 íþróttir Golf: Annar sigurinn Kjá Haraldi Haraldur H. Heimisson, GR, sigraði á öðru stigamóti img- linga á vegum GSÍ sem haldið var á Garðavelli um helgina en hann bar einnig sigur úr býtum á fyrsta stigamótinu. Haraldur hafði betur í bráðabana gegn Ómari Halldórssyni, GA, en báð- ir léku þeir á 157 höggum. Svanþór Laxdal, GKG, varð i þriðja sæti á 158 höggum en hann þurfti að heygja bráðabana við Ófeig Guðjónsson, GR, sem einnig lék á 158 höggum. Eftir tvö mót er Haraldur Heimisson, GR, efstur að stigum meö 72 stig. Gunnar Jóhannsson, GS, er annar með 65 stig og Kristinn Árnason, GR, þriðji meö 59 högg. -GH Nína vann sigur hjá stúlkunum Hjá stúlkunum sigraöi Nína Geirsdóttir, GKJ, á 160 höggum. Halla Erlendsdóttir, GSS, varö önnur á 164 og Helga Rut Svan- bergsdóttir þriðja á 167 höggum. Alda Ægisdóttir, sem varð í flmmta sæti á 170 höggum, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 3. braut. Þetta er ný braut og hún er því fyrst til að ná þessu draumahöggi á brautinni. -GH Ásgerður vann kvennamótið Ásgerður Sverrisdóttir, GR, sigraði á opna Guinot-kvenna- mótinu í golfi sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru um síðustu helgi. Ásgerður lék á 75 höggum eins og Þórdís Geirsdóttir, GK, en þær háðu bráðabana. í þriðja sæti var Magdalena Sirrý Þóris- dóttir, GS, á 83 höggum. Hafdís Gunnlaugsdóttir, GS, sigraði meö forgjöf á 64 höggum. -ÆMK Þórdís best á Valkyrjumótinu Svonefnt Valkyrjumót var haldið á Svarfhólfsvelli hjá Golf- klúbbi Selfoss. Keppt var í þrem- ur flokkum án forgjafar. í fyrsta flokknum sigraði Þórdís Geirs- dóttir, GK, á 74 höggum. Helga Gunnarsóttir, GK, varð í öðru sæti á 84 og Auöur Jóhannsdótt- ir, GK, þriðja á 85. í öðrum flokki sigraöi Stefanía Jónsdóttir, GR, á 88 höggum. Elín Gunnarsdóttir, GS, varð önnur á 90 höggum og Jóna Gunnarsdóttir þriðja á 94. í þriðja flokknum sigraði Sig- urbjörg Gunnarsóttir, GS, á 96 höggum. Erna Ámadóttir varð önnur á 104 höggum og Sigríður Sigurjónsdóttir þriðja á 105 höggum. -GH Kristinn vann Bláa-lóns-mótið Kristinn G. Bjamason, GR, sigi-aöi án forgjafar á Bláa-lóns- móti Golfklúbbs Sandgerðis um síöustu helgi. Kristinn lék á 71 höggi eins og Helgi Þórisson, GS, en Kristinn hafði betur í bráða- bana. Einnig þurfti að leika bráðabana um 3. sætið en Bjöm V; Skúlason, GS, náði þriðja sæt- inu. Hann og Guðmundur R. Hallgrímsson léku báðir á 73 höggum. íkeppni með forgjöf sigraði Alma Jónsdóttir, GSG, á 64 högg- um nettó. Bláa-lóns-meistari án forgjafar var krýndur Davís Jónsson, GS, meö 54,5 stig og með forgjöf Gylfl Héðinsson, GR, með 51,25 stig. -GH Nýkrýndir Spánarmeistarar: Raul í dýrlingatölu - Jupp Heynckes næsti þjálfari Fagnaðarlæti stuðningsmanna knattspyrnuliðs Real Madrid á Spáni voru gríðarleg eftir að liðið hafði tryggt sér meistaratitilinn þar í landi um helgina með því að sigra nágranna sína og meistara fyrra árs í Atletico, 3-1. 800 þúsund manns flykktust út á götur höfuðborgarinn- ar til að fagna sínum mönnum og upphafi á nýrri sigurgöngu félags- ins en síðustu ár hafa verið félaginu ansi rýr. Raul Gonzalez Aðdáendur liðsins eiga þó einum manni fyrst og fremst að þakka gott gengi Real á nýlokinni leiktíð. Það er hinn 19 ára gamlí Raul Gonzalez sem fyrir löngu er kominn í dýr- lingatölu hjá blóðheitum knatt- spymuáhugamönnum á Spáni. Raul þykir hafa sýnt frábæra takta með liðinu i meistarabaráttunni og unn- ið hug og hjörtu stuðningsmanna liðs síns þrátt fyrir að hafa spilað áður með Atletico. Raul hefur skot- ið sér reyndari og frægari löndum ref fyrir rass og borið höfuð og herð- ar yfir þá á leiktímabilinu. Aðeins einn maður á Spáni er nú sagður varpa skugga á Spánverjann spræka en það er brasilíski snilling- urinn Ronaldo hjá Barcelona. Hann er þó sagður á fórum frá Spáni og því næsta víst að stjama'Rauls mun rísa hæst allra á næstu leiktíð. Nýr þjálfari Þrátt fyrir að hafa gert Madridar- liðið að Spánarmeisturum hefur Fabio Capello, þjálfari liðsins, ákveðið að hætta og snúa aftur heim til Ítalíu eins og áður hefur komið fram. Hann átti í sífelldum erjum við forseta félagsins sem leit- ar nú að nýjum þjálfara og er Þjóð- verjinn Jupp Heynckes, sem þjálfar lið Tenerife á Spáni, þar efstur á óskalistanum. -ÖB BTy tWGlAND Veðbankinn William Hill spáir því að Manchester United verði bæði Englands- og bikar- meistari á næstu leiktíö. Líkum- ar á að liðið vinni deildina eru 11/8 og 11/2 að það vinni bikar- inn. Stephan Henchoz, svissnesk- ur varnarmaöur, er á leið til Blackburn frá þýska liðinu Ham- borg fyrir 4 milijónir punda. Stoke hefur borið víumar í Ian Rush. Félagið vill fá hann í fram- kvæmdastjórastólinn en liðið hef- ur verið stjóralaust síðan Lou Macari hætti. Harry Redknapp, stjóri West Ham, hefur mikinn áhuga á að fá Stuart Pearce, landsliðsmann og leikmann Nottingham Forest, í sínar raöir til að styrkja vömina. Leeds keypti í gær Bruno Ribiero, U-21 árs landsliðsmann Portúgala, fyrir 1 milljón punda. Fer Arnar til AEK? Amar Grétarsson, knatt- spymumaður með Leiftri á Ólafs- firði, hefur náð samkomulagi við forráðamenn gríska liðsins AEK Aþenu um að hann gerist at- vinnumaður með félaginu næstu þrjú árin. Forráðamenn AEK hafa hins vegar ekki rætt form- lega við Leiftursmenn en Arnar er samningsbundinn Ólafsfjarð- arliðinu til næstu tveggja ára. Þorsteinn Þorvaldsson, for- maður knattspymudeildar Leift- urs, sagði í samtali við DV í gær að hann hefði ekkert heyrt frá gríska liðinu en ætti von á að heyra frá því innan tíðar. Megum illa viö því aö missa Arnar „Við ætlum ekkert að hlaupa til fyrr en við sjáum hvað þeir hafa fram að færa. Við megum illa við því að missa Amar enda margt í gangi hjá okkur þessa dagana," sagði Þorsteinn við DV. Takist samningar á milli félag- anna fer Amar til Grikklands á morgun ásamt Sigurði bróöur sínum og skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Hann mun síðan kom heim um helgina og fara alfarið út i byrjun júlí. AEK Aþena er eitt af stóru lið- inum í Grikklandi og hefur verið það í gegnum tíðina. Á síöasta keppnistímabili hafnaði liðið í 2. sæti í deildakeppninni á eftir Panathinaikos og varð bikár- meistari og leikur því í Evrópu- keppni bikarhafa á næstu leiktíð. -GH DRAUMALIÐ-FELAGASKIPTB NAFN ÞÁTTTAKANDA___________________________ NAFN UÐS_________________________NÚMER LIÐS SEL LEIKMANN: NÚMER_____NAFN_____________________________VERÐ Nýr 18 holu völlur á Korpúlfsstöðum Nýr glæsilegur 18 holu golf- völlur var óformlega tekinn í notkun á Korpúlfsstöðum á dög- unum en hann er í eigu Golf- klúbbs Reykjavíkur. Þar með er GR fyrsti Golfklúbbur landsins sem hefur yfir að ráða tveimur 18 holu golfvöllum. Það vom gamlir formenn í GR, starfsmenn borgarverkfræð- ings og starfsmenn GR sem tóku fyrstu höggin á veUinum en formlega verður hann opnaður þegar landsmótið verður í sum- ar. KAUPI LEIKMANN: NÚMER_____NAFN------------------------------VERÐ--------- SENT TIL: DV - ÍÞRÓTTADEILD/DRAUMALIÐ, ÞVERHOLT 11 105 REYKJAVÍK Á þessum nýja veUi, sem er lengsti vöUur landsins frá öft- ustu teigum, verður keppt í 2. og 3. flokki karla á landsmótinu en kvenfólkið og meistaraflokkur karla keppir í Grafarholtinu. -GH/DV-mynd Hilmar Þór 250.000 stuðningsmenn Chicago Bulls fögnuðu hetjum sínum þegar þær héldu upp á NBA-meistaratitilinn í körfuknattleik í miðborg Chicago í gær. Hér er Michael Jordan að veifa til stuöningsmannanna og heldur á meistarabikarnum. Símamynd Reuter Atli Eðvaldsson spáir i spilin um knattspyrnuleiki kvöldsins: „KR-ingar sýna og sanna að allt sé komið í lag í þeirra herbúðum" - KR-ingar fá topplið Keflvíkinga í heimsókn kl. 18 Sjötta umferðin á íslandsmótinu í knattspymu verður leikin í kvöld. Stórleikur umferðinnar verður að teljast leikur KR-inga og toppliðs Keflvíkinga á KR-velIinum. Keflvik- ingar hafa komið gríðarlega á óvart, þeir hafa fullt hús stiga eftir fimm umferðir og hafa verið að leika mjög skemmtilega knattspyrnu. Sömu sögu er ekki að segja af KR- ingum. Frammistaða þeirra hefur valdið miklum vonbrigðum sem leiddi til þess að Lúkas Kostic var rekinn úr þjálfarastarflnu hjá félag- inu. Haraldur Haraldsson, nýráðinn þjálfari KR, hefur fengið það verk- efni að rétta KR-skútuna við og leik- urinn gegn Keflvíkingum gæti því orðið nokkur vendipunktur fyrir liðiö. Aðrir leikir í kvöld eru Skalla- grímur-ÍA, Grindavík-Fram, Leift- ur-Stjaman og Valur-ÍBV. DV sló á þráðinn til Atla Eö- valdssonar, þjálfara U-21 árs lands- liðsins og Fylkis í 1. deildinni, og bað hann að spá fyrir um úrslit leikjanna í kvöld. KR-Keflavík 1-0 „KR-ingar sýna og sanna að það sé allt komið í lag í þeirra herbúð- um og vinna þennan leik. Nú fer fyrst að reyna á Keflavíkurliðið því í næstu fjórum leikjum mæta þeir „stóru liðunum". Ef þeir standa sig vel i þessum fjórum leikjum er þeim hins vegar treystandi til að vinna mótið. Eftir allt sem á undan er gengið tel ég að KR-ingar vinni þennan leik á heimavefli því þeir hafa svo sannarlega þörf á honum.“ Skallagrímur-ÍA 0-2 „Ég held að litli frændi muni eiga erfítt uppdráttar í þessum leik og að Skagamenn vinni nokkuð ömggan sigur. Borgnesingar hafa lent í smásjokki í síðustu leikjum og ég held að Skagamenn séu ekki bestu andstæðingamir til að mæta núna. Skaginn eru með hörkulið sem erfitt er að slá út af laginu." Reynist Atli Eðvaldsson sannsspár um úrslit leikjanna í kvöld? Grindavík-Fram 0-0 „Þarna veröur hörkubarátta á báða bóga en ég held að liðin komi til með að deila stigunum sem em í boði. Ég held að Framarar muni reyna að lokka Grindvíkinga fram á völlinn en heimamenn munu fara að öllu með gát og bíða eftir að Framararnir opni sig.“ Leiftur-Stjarnan 2-0 „Þama er engin spurning. Leift- ursmenn vinna. Mér sýnist á öllu að Ólafsfiröingar séu að smella saman. Þeir hafa yfir að ráða góðum mann- skap. Sumarið á eftir að reynast Stjömumönnum mjög erfitt og þá sérstaklega ef þeir ná ekki stigum á heimavelli. Enn eitt árið virðist svo sem fólk í Garðabæ ætli að láta Stjörnuna falla án þess að gera svo sem minnstu tilraun til að hvetja liðið. Þessir strákar í liðinu þurfa hvatn- ingu og sérstaklega á heimavelli. Þetta er synd, liðið er í neðsta sæti í deildinni án þess að nokkur fatti það í svefnbænum." Valur-ÍBV 1-2 „Ég hef trú á mínum mönnum í ÍBV og þeir taka þrjú stig að Hlíðar- enda. Það er mjög mikilvægt fyrir Eyjastrákana að taka stig á útivöll- unum ef þeir ætla að vera með i bar- áttunni um íslandsmeistaratitilinn og þeir gera sér alveg grein fyrir því. Ef að líkum lætur standa Eyja- menn best að vígi í deildinni með fæst stig töpuð eftir þessa umferð." -GH EN6LAHD Manchester United hefur titilvömina í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu gegn Tottenham á útivelli laugardaginn 9. ágúst. ífyrstu umferðinni mætast þessi liö: Bamsley-West Ham Blackbum-Derby Coventry-Chelsea Everton-C. Palace Leeds-Arsenal Leicester-Aston Villa Newcastle-Sheff. Wed Southampton-Bolton Tottenham-Man. Utd Wimbledon-Liverpool Arsenal hefur keypt hollenska lands- liðsmanninn Marc Overmars fyrir 5 millj. punda frá Ajax. Þessi 24 ára gamli leikmaður er sagður vera lykilmaður í uppbyggingu Arsene Wenger, stjóra Arsenal, á Highbury. Andy Gray hefrn- nú gefiö Everton þaö svar að hann sé tilbúinn að verða framkvæmdastjóri félagsins svo framar- lega sem hann fái fuil yfirráö yllr liðinu. Gray hefur undanfarin ár. starfað hjá Sky Sport við lýsingar á knattspymuleikjum. Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Newcastle, ætlar ekkert að gefa eftir í kapphlaupinu um Paul Ince og ætlar að yfirbjóða sitt gamla félag Liverpool. Newcastle hefur sagt fulltrúum Ince að það sé tilbúið að samþykkja kröfur hans um 115 millj. ísl. kr. i árslaun! Colin Todd, framkvæmdastjóri Bolton, hefur nú verið orðaður við framkvæmda- stjórastöðuna hjá Southampton en lið- in mætast i 1. umferð næsta leiktímabils. Steve McMahon, framkvæmdastjóri Swindon Town, hefur boðið Ian Rush tveggja ára samning við félagið en þeir vora áöur félagar hjá Liverpool. -ÖB/GH Sterkasta hjá KR KR-ingar tefla fram sínu sterkasta liði í stórleiknum gegn Keflavík í kvöld. Ólafur H. Kristjánsson, sem ekki var með í bikarleiknum gegn. KS um síðustu helgi vegna meiðsla, er klár í slaginn og allir leikmenn liðsins eru heilir. Guðmundur Benediktsson mun heija leikinn á bekknum en hver veit nema að hann fái að spreyta sig í fyrsta sinn í deildinni í ár í þessum leik. Davíö er meiddur Davíð Garðarsson leikur ekki með Leiftursmönnum gegn Stjörnunni í kvöld en hann hefur átt við meiðsli að stríða. -GH Tiger Woods er hér að siá kúluna á opna bandaríska mótinu á dögunum. Stofndeildin: Breiðablik og KR efst - Haukar enn án stiga Liðsstyrkur til Skallagríms? Nýliðar Skallagríms eiga von á liðsstyrk á næstunni. Að sögn Jak- obs Skúlasonar, formanns knatt- spymudeildar Skallagríms, eru við- ræður við Skagamenn komnar vel á veg um aö Borgnesingar fái miðvall- arleikmanninn Vladan Tomic í sinar raðir eftir leik liðanna í kvöld. Þá kemur Alan Johansen frá Færeyjum til skoðunar á fimmtudaginn. Hann er miðjumaður sem leikið hefur með Klakksvík og færeyska landsliðinu. „Ef allt gengur að óskum verða báðir þessir leikmenn með okkur gegn Fram á sunnudaginn," sagði Jakob við DV í gær. -GH Golf: VJoods átoppinn Bandariski kylfingurinn Tiger Woods er kominn á toppinn á listanum yfir bestu kylfinga dagsins í dag en nýr listi var gefinn út á mánudaginn. Woods, sem er ekki nema 21 árs gam- afl, er sá yngsti frá upphafi sem náð hefúr þessu sæti og tók það af ekki ómerkari manni en Ástralanum Greg Norman. Emie Els, frá S-Afnku, sem sigraði á opna bandaríska meistara- mótinu um síðustu helgi, hækkaði sig úr áttunda sæti í það fjórða. Þeir fimm efstu á listanum eru þess- ir 1. Tiger Woods . . . Bandaríkjunum 2. Greg Norman ....Ástralíu 3. Colin Montgomerie . . Skotlandi 4. Emie Els .......S-Afríku 5. Nick Price .....Zimbabwe -ÖB Eftir fjórar umferðir í efstu deild kvenna í knattspymu eru lið Breiðabliks og KR efst og jöfn að stigum, bæði með fullt hús. í Kópavogi sigraðu Blikastúlkur lið Hauka, 8-1, í fyrrakvöld. Mörk Blika gerðu Erla Hendriksdóttir 2, Sigrún Óttarsdóttir 1, Kristrún L. Daðadóttir 1, Hildur Ólafsdóttir 1, Katrín Jónsdóttir 1 og svo gerðu Haukastúlkur tvö sjálfsmörk en Halldóra Hálfdánardóttir gerði mark Hauka réttum megin. Á Akranesi sigraði KR heimamenn, 0-3, og gerðu Edda Garðarsdóttir, Olga Færseth og Dregið var í 16 liða úrslitum Coca Cola-bikarsins á Hótel Loftleiðum á mánudaginn og drógust þessi lið saman: Grindavík - Breiðablik ... .25. júní Þróttur, R - Þór, Ak............25. júní Leiftur - ÍA ..............25. júní Valur - Fylkir ............25. júní FH- Skallagrímur...............26. júní KA - ÍBV ..................26. júní Stjaman - KR ..............26. júní Keflavík - Fram ...........26. júní Stórleikur 16 liða úrslitanna verður án efa á Ólafsfirði þar sem heimamenn í Leiftri fá núverandi bikarmeistara frá Akranesi í heim- sókn. Sigurlín Jónsdóttir mörk KR. í Vestmannaeyjum tapaði heimaliðið fyrir Stjömustúlkum, 1-2. Fanný Yngvadóttir gerði mark ÍBV en mörk Stjömunnar gerðu Auður Skúladóttir og Guðný Guðnadóttir. Breiðablik 4 4 0 0 23-4 12 KR 4 4 0 0 7-0 12 Stjaman 4 3 0 1 12-7 9 Valur 4 2 0 1 10-7 9 ÍBA 4 1 0 3 6-14 3 ÍBV 4 0 1 2 3-8 1 ÍA 4 0 1 3 2-7 1 Haukar 4 0 0 4 2-18 0 -ÖB „Það er fint að fá Skagann. Það hefúr sýnt sig að við erum bestir gegn sterkari liðunum og við ætlum okkur sjálfsögðu alla leið. Nú er loks komið sumar í Ólafsfirði og það verður nóg að gera hjá okkur heima næstu dagana, Stjarnan á miðvikudaginn (í kvöld), Hamburg- er SV á laugardaginn og svo Skag- inn þann 25,“ sagði Friðrik Einars- son, sendiherra Leifturs í Reykja- vík, eftir að búið var að draga. Ljóst er að a.m.k. eitt 1. deildar félag kemst áfram í átta liða úrslitin þar sem Þróttur R. og Þór Ak. drógust saman. -ÖB 16 liöa úrslit í Coca Cola-bikarnum: Stórleikur á Ólafsfiröi - Stjarnan fær KR í heimsókn Iþróttir Knattspyrna og nám í Bandaríkjunum ÍT Ferðir ehf. hafa verið beðn- ar um að kynna íslenskum knattspyrnumönnum möguleika á skólastyrkjum í Bandaríkjun- um. Allir leikmenn á aldrinum 17-26 ára geta sótt um styrk til náms í menntaskóla og háskóla. Þannig geta ungir leikmenn af báðum kynjum notað knatt- spyrnulega getu sína til að greiða skólagjöld og ýmsan ann- an kostnað erlendis um leið og þeir afla sér menntunar fyrir framtíðina. Þeir íslenskir leikmenn sem hafa áhuga á ofanrituðu geta sett sig í samband viö Hörð Hilmars- son hjá ÍT Ferðum í s. 588-9900. -GH Knattspyrna: Mutti þjálfar liö Napoli Bortolo Mutti hefur verið ráð- inn þjálfari ítalska 1. deildar liðsins Napoli. Mutti kemur frá Piacenza en félaginu tókst undir hans stjórn aö halda sæti sínu í 1. deildinni. -GH Brassarnir í gang í seinni hálfíeik Brasilía vann sigur á Mexíkó, 3-2, í Copa Ameríku-keppninni í knattspymu í fyrrinótt. Það leit ekki vel út fyrir Brasilíumenn í leikhléi því þá var staðan 2-0 fyrir Mexíkó og skoraði Luis Hernandez bæði mörkin. En í síðari hálfleik sýndu heimsmeistararnir sitt rétta andlit og skoruðu þrjú mörk. Fyrst Aldair, síðan Romario og Leonardo skoraði sigurmarkið 10 mínútum fyrir leikslok. Öruggt hjá Kólumbíu Kólumbía vann öruggan sigur á Kosta Ríka í sama riðli. Loka- tölur urðu 4-1. Þegar tveimur umferðum er lokið í riðlinum er Brasilía með 6 stig, Kólumbía og Mexókó eru meö 3 stig og Kosta Ríka er án stiga. -GH Tennis: Sampras bestur Samkvæmt nýjasta listanum yfir bestu tennisspilara karla, sem gefinn var út á mánudaginn, er Bandaríkjamaðurinn Pete Sampras sem fyrr efstur. Gusta- vo Kuerten frá Brasilíu, sem sigraði á opna franska meistara- mótinu um daginn, er 12. á list- anum en Þjóöverjinn Boris Becker er fallinn niður í 18. sæti. Topp tíu listinn er þannig: 1. Pete Sampras ... Bandarikjúnum 2. Michael Chang . . Bandaríkjunum 3. Goran Ivanisevic .Króatíu 4. Thomas Muster .... Austurríki 5. Yevgeny Kafelnikov . . Rússlandi 6. Richard Krajieek .... Hollandi 7. Alex Corretja ....Spáni 8. Sergi Bruguera ...Spáni 9. Thomas Enqvist ..Svíþjóð 10. Marcelo Rios .....Chile -OB, íkvöld Sjóvár-Almennra deildin KR-Keflavík ................18.00 SkaUagrímur-Akranes.........20.00 Grindavík-Fram ........... 20.00 Leiftur-Stjarnan ...........20.00 Valur-lBV...................20.00 3. deild karla HvolsvöUur: KFR - Framherjar 20.00 Coca Cola-bikar kvenna Fáskrúösfj: Leiknir, F. - KVA 20.00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.