Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 pjónar Hestaeign hefur vaxiö mikiö á undanförnum árum. Nú er í garö genginn sá tími þegar hestamenn finna hestum sínum sumarhaga. Þá nýta þeir sér oftar en ekki þjónustu svo- kallaöra hestaflutningamanna. Tilverunni lék forvitni á aö kynnast betur vertíöabundinni vinnu þessarar þjónustustéttar. estaflutningamenn og bændur. Sjálfur er ég hestamað- ur og er búinn að vera í fimmtán ár. Stundum gengur erfiðlega að koma ótömdu hrossunum í bílinn en þaö gengur þó alltaf að lokum.“ -VÁ ^öökoupsveislur—úttsamkomur—skemmtanir—tónleikar—sýningar—kynningar og tl. og fl. og ti. i8§@ífl)0(2l «= Wi8§0(yjufi)ö(oloo ••og ýmsir ■fyigihiutir (£t* ^skiDuk % ^ Ekki treysta á veðrið þegar i Atn» stópuleggia á eftirminnilegan viðburð - I (O Tryggið ykkur oa leigið stórt tjald á staðinn - það marg borgar sig. f /- &- Tjöld af öllum stœrðum frá 20 - 700m2. Einnig: Borð, stólar, tjaldgótf og /mk\. tjaldhitarar. a sDcðta) ..mð skátum á heimaveili rfmi 562 U90 • fax S52 6377 Guðmundur Sigurðsson: Skemmtileg atvinnugrein Vinna okkar skiptist einkum í tvær vertíðir - vor og haust. Tímabilið frá nóvember og fram í mars er aðalvertíðartími okk- ar. Vorvertiðin hefst aftur í júníbyij- un. Við skiptumst tveir á að keyra því akstursklukkan hamlar því að við get- um unnið lengi fram eftir. Klukkan er reyndar ágæt þvi hún gerir það að verkum að maður skipuleggur sig bet- ur og dreifir vinnunni frekar yfir vik- una. Það hefúr gengið mjög vel hjá mér,“ segir Guðmundur Sigurðsson hestaflutningamaður. Guðmundur hefur nánast undan- ekki með göslagangi. Sum hross passa ekki saman og þarf að huga að því þegar verið er að raða í stíumar. Sum hross þurfa meira pláss en önnur og þá er það ekki bara sverleikinn sem ræður heldur einnig geð þeirra. Mað- ur þarf oft að beita vissri sálfræði á hestana." Bíll Guðmundar hefur tvöfalda lyftu, þ.e. tvílanga og tvíbreiða, með afliðandi gangpalli. Honum er skipt í þijú hólf og í honum eru sérstaklega útbúnir blásarar, sem gefa tíu rúmmetra af hreinu lofti á mínútu. Á þaki hans eru svo tvær stórar lúgur og fjórar litlar og að auki lúga að aft- an. „Loftræstingin á húsinu sem hrossin eru i er mjög mikilvæg, svo þau ofhitni ekki. Ég passa einnig allt- af að hafa þykkt lag af spónum undir þeim svo þau standi vel. í langferðum brynni ég þeim á leiðinni og gef þeim þegar svo ber undir. Þetta er mjög mikilvægt svo hrossunum líði vel en á það legg ég mikla áherslu. Bíllinn er útbúinn fyrir sextán meðalhross en ég hef þau frekar færri á bílnum en fleiri svo sem best fari um þau.“ -VÁ Guðbrandur Úli Þorbjörnsson: tekningarlaust með sér mann í allar langferðir. Hann keyrir aðallega fyrir fólk sem er með hross á höfúðborgar- svæðinu og þá einkum austur fyrir fjall. Annars er allt Suðurland, Vest- urland og Norðurland lagt undir. Mjög víða er farið með hross í sumar- haga. Elstur í greininni „Ég hef verið lengst í hestaflutning- unum af öllum þeim sem eru í þessu núna, eða í 25 ár. Hestaflutningar hafa aukist mikið á undanfómum árum og nú jafiiast þeir mun meira yfir árið en áður. Umsvif i kringum hestamennsk- una eru einnig meiri. Maður keyrir í hrossin hey, flytur þau til þegar eig- endaskipti verða og flytur þau í og úr sumarhaga. Hestamir em heldur aldrei allt sumarið á sama staðnum heldur em þeir færðir milli hólfa eða landshluta. Svo flytur maður grað- hesta og merar í girðingar." Hestamennskan er mest stunduð að vetri til að sögn Guðmundar. Hann segir sumrin því í raun vera daufasta tímann hjá sér. Beiti vissrí sálfræði „Þetta er skemmtileg grein. Maður hittir margt skemmtilegt fólk. Hvert hross hefur sitt geð og hrossin em jafii breytileg og fólkið sem maður kynnist. Þetta er vandasamt og það þarf að fara vel að skepnunum en Hrossum fjölgað mikið Eg hef verið í þessu af og til frá árinu 1984. Síðan 1964 hef ég ekið leigubíl fyrir Bæj- arleiðir en hætti að keyra þar um mitt ár í fyrra og síðan þá hef ég einungis verið í hestaflutningun- um. Maður er orð- inn það gamall að það er kominn tími til að maður prufi að vera bara í einu starfi," seg- ir Guðbrandur Óli Þorbjörnsson hestaflutninga- maður en hann var staddur í Hvolhreppi þegar Tilveran náði tali af honum. „Þetta er mjög árstíðabundið starf. Á vorin stendur vertíðin yfir í tvær vikur. Þá er mikið leitað til mín. Tengdasonur minn leysir mig af ferð og ferð. Hrossum hefur fjölg- að mikið á undanfömum árum og sífellt era þau flutt meira á milli. Fleiri hross era auk þess tamin en áður.“ -VÁ Páll Jóhann Briem: Það er gaman að ferðast um landið Bílarnir batnað mikið Hörður flutti sjálfur inn bílinn sem hann ekur og fékk mann til að innrétta hann með sér. „Bíllinn er að margra sögn sá best innréttaði. Mikilvægast er að þær innréttingar sem era í hestaflutningabílum valdi ekki slysúm. Stíumar í míniun bíl era stillanlegar og svo er ég líka Eg vinn í afleysingum við hestaflutninga á sumrin og er þetta annað sumarið mitt. Þetta er ágætis sumarvinna. Annars er ég smiður og vinn við smíðar yfir vetrartímann," segir Páll Jóhann Briem hestaflutninga- maður. Páll vinnur hjá Hestaflutninga- þjónustu Ólafs og Jóns og skiptast þeir þrír á að keyra tvo bíla. Hann segir dijúgt leitað til þeirra um flutninga. Mest keyrir hann í Borg- arfjörð og svo norður í Skagafjörð og Eyjafjörð. „Það er gaman að ferðast og skoða landið. Maður kynnist mörg- um á þessum ferðalögum. Ég keyri mest fyrir hestamenn í Reykjavík Hörður Hermannsson: Klukkan setur skorður Eg er tiltölulega nýr í faginu en þó er töluvert leitað til mín. Ég fékk bílinn sem ég ek síðastliðið haust. Fyrir þann tíma var ég í þessu meðfram öðrum störfum," segir Hörður Hermanns- son hestaflutningamaður. „Hestaflutningar hafa mikið auk- ist síðastliðin ár. Eftir að aksturs- klukkan kom eru okkur settar ákveðnar skorður á hvað við meg- um keyra lengi á sólarhring. Við megum keyra átta aksturstíma, sem má taka tíu tíma. Tvisvar í viku megum við lengja vinnutímann í 12-14 klukkustundir á dag. Menn þurfa eflaust stundum að fara fram úr því.“ með sjö stóðhestastíur sem ég get sett inn í hann. Annars tekur bíll- inn 18-19 hross í einu. Bilamir hafa mikið batnað á undanfómum árum. Áður voru gjaman notaðir gamlir bílar í þetta, sem vora orðnir ónot- hæfir til annarra hluta. í dag era í flestum bílunum sérútbúnar inn- réttingar og lyftur sem notaðar era til að koma hestunum upp í bilana. Hættan við flutningana hefur því minnkað til muna.“ Hörður keyrir aðallega vestur á Snæfellsnes og í Dalina. Auk þess er hann með ferðir norður i land einu sinni í viku. „Ég keyri mest fyrir einstaklinga og safna í ferðimar. Einnig hef ég keyrt fyrir hópa sem hafa smalað saman hrossum sínum. Nú fer sá tími í hönd þegar menn láta flytja hóp hesta fyrir sig á stað sem þeir hyggjast leggja upp í út- reiðartúr frá.“ -VÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.