Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 8
8 MIÐVTKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 Útlönd Maraþonfundi leiötoga ESB lauk í Amsterdam í morgun: Endurskoðaður sáttmáli er hvorki fugl né fiskur Vel fór á með þeim Jacques Chirac Frakklandsforseta og Helmut Kohl Þýskalandskanslara á leiðtogafundi ESB f Amster- dam í gær. Deila ríkisstjórna þeirra um myntbandalagið hefur verið leyst, í bili að minnsta kosti. Símamynd Reuter vinnuskapandi aðgerðum væri gert lögðu áherslu á aðhald í fjárlagagerð. hærra undir höfði en Þjóðverjar Reuter Leiðtogakjör breska íhaldsflokksins: Reiknað með sigri Hagues í 3. umferð Danir áforma að halda þjóðarat- kvæðagreiðslu á næsta ári um endur- skoðaðan sáttmála Evrópusambands- ins sem leiðtogar sambandsríkjanna komu sér saman um nú í morgunsár- ið í Amsterdam. „Já, það verður haldin þjóðarat- kvæðagreiösla. Ég mun leggja það til við þingið," sagði Poul Nyrup Ras- mussen, forsætisráðherra Danmerk- ur, við fréttamenn í morgun eftir maraþonfund leiðtoganna. Hinn nýendurskoðaði sáttmáli þyk- ir hvorki fugl né fiskur. Hann þykir ekki koma mjög til móts við borgara ESB-landanna sem gerast sífellt frá- hverfari Evrópusamstarfinu og enn minna græða á honum þau ríki sem bíða eftir að fá inngöngu í ESB í ná- inni framtíð. „Á sumum sviðum náðum við ekki fram því sem við stefndum að en við ættum að geta gengið frá myntbanda- laginu og snúið okkur að stækkun sambandsins," sagði Wim Kok, for- sætisráðherra Hollands, á fundi með fréttamönnum í lok fundarins. Hol- lendingar eru í forsæti Evrópusam- bandsins. Samkomulag um endurskoðun sátt- mála ESB náðist eftir tveggja daga stíf- ar fundasetur leiðtoganna. Embættis- menn höfðu áður unnið í fimmtán mánuði að því að undirbúa jarðveg- inn. Sáttmálinn inniheldur m.a. kafla um atvinnumál og ákvæði um aukna samvinnu í málefnum innflytjenda, þeirra sem leita hælis í löndum ESB og í baráttunni gegn glæpastarfsemi. Breytingum á valdajafnvægi innan sambandsins var hins vegar slegið á frest þar til eftir að ný riki fá aðild, einhvern tíma snemma á næstu öld. Leiðtogunum mistókst einnig að leysa ágreining sinn um hvort inn- lima ætti Vestur-Evrópusambandið í ESB. „Sáttmálinn er spor í rétta átt en ekki eins stórt og við vonuðumst eft- ir,“ sagði Romano Prodi, forsætisráð- herra Ítalíu, eftir að fundi lauk í morgun. Þótt málamiðlun hafi náðst á mánudag í deilu Frakka og Þjóðverja um myntbandalagið er almennt litið svo á að ágreiningur þjóðanna eigi eftir að skjóta aftur upp kollinum. Frakkar höfðu krafist þess að at- Þingmenn breska íhaldsflokksins verða að greiða atkvæði um nýjan leiðtoga í þriðja sinn á fimmtudag þar sem enginn frambjóðendanna þriggja fékk hreinan meirihluta í at- kvæðagreiðslunni í gær. Baráttan stendur nú milli Kenneths Clarkes, fyrrum fjármálaráðherra, og Willi- ams Hagues, fyrrum ráðherra mál- efna Wales. Clarke, sem er yfirlýstur Evrópu- sinni, fékk stuðning 64 þingmanna í gær en Hague, sem telst fulltrúi hóf- samra hægrimanna í íhaldsflokkn- um, kom fast á hæla honum með 62 atkvæði. Þriðji maðurinn, John Redwood, fyrrum ráðherra og efa- semdarmaöur um ágæti Evrópu- samstarfsins, fékk 38 atkvæði og er þar með úr leik. Fyrirfram var ekki búist við sigri Clarkes í gær. Hague er hins vegar talinn sigurstranglegri á fnnmtudag þar sem reiknað er með að hann fái flest atkvæði stuðningsmanna Red- woods á hægrivæng flokksins. „Ég er mjög ánægðm með úrslit annarrar umferðarinnar. Ég tel að ég hafl nú nægan stuðning til að sigra i þriðju umferð atkvæða- greiðslunnar á fimmtudag," sagði Hague og ljómaði af ánægju. Hann er aðeins 36 ára og yrði yngsti leið- togi íhaldsflokksins í meira en tvö hundruð ár. Stuðningsmenn Clarkes voru hins vegar nokkuð sigurvissir í gær. Þeir sögðu að sinn maður mundi fá nægilega mörg atkvæði úr herbúðum Redwoods til að fara með sigur af hólmi. Reuter • Starfsmannapartý • Brúðkaupsveislur • Fermingarveislur • Útskriftarveislur • Afmælisveislur • Erfidrykkjur • Ráðstefnur • Fundahöld • Kynningar • Árshátíðir • Þorrablót XjODDUBMLUK Glæsilesir salir fyrir öll tilefni l-átið Leitið nánari sja uní upplýsinga veisluna hjá söludeild! sInii 568 7111 .................HÚTflIþjJ.AND ABNÓL EHF FflX 568 9934 - hejun luusnmu Stuttar fréttir dv Barátta um hvalkjöt Japan og Noregm töpuðu bar- áttunni um verslun meö hval- kjöt á ráðstefnu um alþjóðleg viðskipti með dýrategundir sem eru i útrýmingarhættu. Neita heræfíngum Heryfirvöld í S-Kóreu vísuðu í morgun á bug ásökunum N- Kóreu um að þau hefðu aukið heræfingar sinar í þeim tilgangi að gera árás. Samþykkja Robinson Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að skipa Mary Robinson, for- seta írlands, sem yfirmann manméttinda- mála hjá stofnuninni. Kofl Annan, framkvæmda- stjóri SÞ, út- nefndi Robinson til embættisins í síðustu viku. Erbakan víkur Talsmaðm Velferðarflokksins í Tyrklandi sagði í morgun að Erbakan forsætisráðherra færi líklega á fund Demirels forseta í dag til að biðjast lausnar. Spenna í Hong Kong Hong Kong-búar óttast að ráð- gerð mótmæli Lýðræðisflokks- ins í þingi fyrsta daginn undir stjórn Kína fari úr böndunum. Tapaði fyrir Netanyahu Fjármálaráðherra ísraels, Dan Meridor, sagði af sér í morgun eftir að hafa tapaö í valdabaráttu við Netanyahu for- sætisráðherra. Díana í herferð Díana prinsessa af Wales er í Washington til að leggja Rauða krossinum liö í baráttu sam- takanna fyrir alþjóðlegu banni við jarð- sprengjum. Bandarísk yf- irvöld hika við að banna jarðsprengjm nema Kína og Rússland geri það líka. Loka sendiráði Bandaríkin hafa lokað sendi- ráði sínu í Brazzaville í Kongó tímabundið. Bardagar hafa staö- ið yfir þar milli uppreisnar- manna og stjórnarhermanna siðan 5. júní. Hvetja ísraela Evrópusambandið hefur í fyrsta sinn hvatt ísrael til að leyfa stofnun palestínsks ríkis. Byssumaður fyrir rétt Mir Aimal Kansi, sem grunað- ur er um skotárás fyrir utan aö- alstöðvar bandarísku leyniþjón- ustunnar 1993 1 Virginíu, verðm leiddm fyrir rétt í dag. Albright til Kambódíu Madeleine Albright, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, ætl- ar til Kambó- díu í næstu viku þrátt fyr- ir bardaga milli stuðn- ingsmanna forsætisráð- herranna tveggja í land- inu. í gær- kvöld létu lífverðir úr rööum beggja lífið í átökum. Neita samsæri Hópm gagnrýnenda Newt Gingi-ich, forseta fulltrúadeild- arinnar á Bandaríkjaþingi, neit- ar að hafa ætlað að bola honum frá vegna óánægju með viðbrögð leiðtoga repúblikana þegar Clinton beitti neitunarvaldi gegn frumvarpi um neyðarað- stoð. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.