Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.1997, Blaðsíða 11
JjV MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 1997 ennmg S ankta E vita „Perón var ekki Perón og Eva var ekki Eva. Þau voru dularfullt nafnlaust fólk og við þekkj- um hvorki þeirra réttu ásýnd né nöfn.“ Á þessari tilvitnun í orð skáldsins Jorge Luis Borges lýkur sýningu Pé-leikhópsins í íslensku óperunni á Evítu. Og það er ekki út í hött að nota þessi um- mæli sem lykilorð í sýningunni því að vissu- lega stangast margt á í hinni einstöku sögu þeirra Perón- hjóna. Þversagnirnar blasa alls staðar við og ýmislegt verður um aldur og ævi þoku hulið. Því fer auðvitað víðs fjarri að Evíta flytji áhorfendum einhverja kórrétta sagnfræði; þvert á móti, hér er fyrst og fremst skáldskap- ur á ferðinni þó að stuðst sé við raunverulegt fólk og atburði. Söngleikurinn hefur flest það til að bera sem tryggir vinsældir: Heillandi tónlist og lög sem eru löngu orðin alþekkt enda flestöll bæði fal- leg og sönghæf, seiðandi dansa og innlit til al- múgafólks jafnt sem í glæsilíf yfirstéttar þar sem pólitískar sviptingar endurspegla eldfimt stjórnmálaástand. En fyrst og fremst segir verkið sígilda sögu um alþekkta draumsýn. Það er sagan af Ösku- busku, fátæku stúlkunni sem öðlaðist auð og völd og hófst til æðstu metorða við hlið eigin- manns síns. Mörgum þótti nóg um, enda þurfti ekki sterk gleraugu til að sjá í gegnum prjálið. Á sviðinu birtist sú Eva Peron sem argent- inska þjóðin gaf gælunafnið Evíta. Hún heillar alþýðuna („ein af okkur!“) en er fyrirlitin af yf- irstéttinni. Rauður þráður í persónsköpuninni er harkan, sem knýr hana áfram frá upphafi, en í túlkuninni þarf líka að koma fram mýkt og viðkvæmni, að ógleymdri þeirra óskilgreindu út- geislun, sem dáleiðir fiöldann og fær hann til að gleyma fátækt og misrétti um stund, þegar „Sankta Evíta“ talar til fólksins síns. Smávegis frumsýningarhik gerði það að verk- um að upphafið á sýningunni kvöldið fyrir þjóð- Leiklist Auður Eydal hátíð var dálítið þvingað. En skriðurinn jókst og það er ljóst að mikill metnaður hefur verið lagð- ur í alla vinnu við uppsetninguna. Andrés Sigurvinsson leikstjóri hefur sér við hlið Ástrósu Gunnarsdóttur dansahöfund og tón- listarstjóri er Þorvaldur Bjami Þorvaldsson. Þau bera hitann og þungann af því stórvirki að koma maðurinn Ché. Hann gengur vasklega fram og smellpassar í hlutverkið, syngur vel og texta- framburður hans er skýr. Egill Ólafsson i hlut- verki Peróns er fulltrúi hinna gamalreyndu á sviðinu og eins og fyrri daginn skapar hann eft- irminnilega týpu. Söng hans þekkja allir. Andrea Gylfadóttir tekst á við hlutverk Evu og gerir það um margt vel, einkum í atriðum með Agli Ólafssyni þar sem dramatík og góður söngur haldast í hendur. Helst skorti á sann- færingarkraftinn í upphafi þegar Eva, ung og fátæk, er að stíga fyrstu skrefin sem færa hana á fund Peróns í fyllingu tímans. Andrea styrkt- ist þegar á leið og skilaði lokaatriðinu vel. Vigdís Hrefna Pálsdóttir söng undurfallega „Hvert liggur leiðin nú?“ í hlutverki ástkonu Peróns og átti þar með einn af hápunktum kvöldsins. Kórinn hefur fallegan hljóm og dans- atriðin eru sérstaklega vel útfærð, falla inn í heildina og tala sínu máli. Það mætti raunar skrifa sérstaklega um hæði tónlist og dans í Evítu þó að ekki gefist til þess rúm hér. Tangódansam- ir eiga stóran þátt í glæsfiegu útliti og stemn- ingu sýningar- innar og þar fara fremst þau Bryndís Hall- dórsdóttir og Hany Hadaya, höfundur dansanna. Töfrar Evítu eru á sínum stað og yfirbragð sýningarinnar ferskt. Pé-leikhópurinn sýnir í íslensku óperunni: Evita Höfundar: Tlm Rice og Andrew Loyd Webber Þýðing: Jónas Friðrik Guðnason Ljósameistari: Björn Bergsteinn Guðmundsson Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson Búningar: Ásta Guðmundsdóttir Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Höfundur tangódansa: Hany Hadaya Dansahöfundur og aðstoðarmaður leikstjóra: Ástrós Gunnarsdóttir Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson Andrea Gylfadóttir og Egill Ólafsson í hlutverkum sínum. Evítu á svið. í íslensku óperunni er töfrað fram ótrúlega flott baksvið fyrir söngleikinn með leikmynd og lýsingu og það gleymist hversu lítið sviðið er í raun. Búningar em mikilvægur þáttur í útliti sýningarinnar og óhætt að gefa sfiörnur fyrir smekkvísi í gerð þeirra. Tónlistin hefur ferskt og nútímalegt yfirbragð en stundum þarf að hyggja betur að hljóðblöndun og gæta þess að hljóðfærin yfirgnæfi ekki söng aðalpersónanna. Þessu brá fyrir, einkum í fyrri- hlutanum. Það er frískandi að sjá svo margt ungt hæfi- leikafólk þreyta sína frumraun á sviði með jafn- góðum árangri þó að óhætt sé að segja að for- svarsmenn sýningarinnar hafi ekki farið troðnar slóðir í vali sínu á ílytjendum. Baldur Trausti Hreinsson (hreint ekki ólíkur Antonio Banderas í útliti á sviðinu) ber hitann og þungann af því að tengja atriðin saman sem sögu- Rás tvö: Á ég heima á Bítlandi? Miklir Bítlavinir erum við Islendingar. Nú erum við jafnvel búnir að gera Bítlana að íslandsvinum, og það án þess að þeir hafi hugmynd um það sjálfir. Engri annarri þjóð datt í hug að færa gamla Bítlaplötu á svið í sinfóníubúningi. Sann- arlegur alheimsviðburður þar á ferð. Það var ágætt að hlusta á þetta í beinni útsendingu á leiðinni norður. Strawberry Fjölmiðlar Hallgrímur Helgason fields forever inn eftir Blöndudal. Kannski vegna þess að þá hélt maður að þar með væru Bítlaárin loksins liðin í dagskrá Rík- isútvarpsins eftir „Bítlasumarið mikla“ í fyrra sem var eitt samfellt Bítla- námskeið. En nei nei. Bítlaæðið virðist viðvarandi riðuveiki í rollukollunum á Rás tvö og engar sauðfiárveikivamir sem ráða við hana. Þvert á móti. Rimlahliðin loka hverri höfuðborgarstöð- inni á fætur annarri þar til Rás tvö ríkir ein í öllu sínu Bítlaveldi. „Séra Páll“ syngur messu á Lísuhóli á hverjum morgni og Gestur Einar gef- ur svo hvítum mávrnn bítlabrauð eftir hádegið. Og svo kemur Ámi Þórarinsson á laugardögum og tekur viðtal við gamlan Bítlavin sem filaði þó Rollingana betur og svo ræða þeir þessa skáldjöfra tuttugustu aldarinnar eins og um Lax- ness eða Þórberg sé að ræða. Eftir langan og góðan Bítladag í Mývatnssveit varð mér síðan á að kveikja á næturvaktinni. í hótelglugga í Reynihlíð brast ég allt í einu í grát þegar Magnús Einarsson kynnti lagið „Lucy in the Sky with Diamonds" og sagði mér frá því hvemig Lennon fann titill lagsins. Mér taldist til að þetta væri í 1893ðja sinn sem ég heyrði lagið og í 17nda sinn sem ég heyrði útskýringuna á því. Eöa þannig tralla þessir menn. Þessir mannfreönu menn góöan júlídag áriö ’69 stöönuöu þeir fyrir lífstíð og eru sömu gallabuxunum. Andlit mitt ummyndaðist í „Ópið“ eftir Munch og síðan lyppaðist ég niður I gluggakistuna og snökti örvæntingarfullt út á næturlygnt vatnið. Ég gat ekki meir. Það var búið að bítla mig nið- ur andlega. Aldrei að gefast upp Laugardagur á leið í bæinn var ein samfelld Bítladagskrá. „Syndaselur dagsins" fékk að velja tíu gítarskrums-lög frá Bítlaárunum og svo kom Gestur Einar grár í vöngum eins og fiöllin við Eyjafiörð og lék allar gömlu ofbökuðu lummum- ar frá 69. Manni leið eins og Kananum góða í Cold Fever; fóstum i bíl með útvarpi fóstu á Þursaflokknum: „Im into folk-music but this shit must go!“ Þegar við renndum fram hjá Brekku - gamla bænum mínum - ofan við Varmahlíð leið mér eins og ég væri enn á leiðina í sveitina 69; Manfred Mann að fylgja mér í hlað, alveg eins og Einn enn í forðum tíð. It was thirty years ago today and everyt- hing is still the same. Eða þannig tralla þessir menn. Þessir mannfreðnu menn. Einn góðan júlídag árið ’69 stöðnuðu þeir fyrir lífstið og eru enn í sömu gallabuxunum og enn með sömu stelp- unni og þeir pína hana til að ganga enn í sama pilsinu og þeir segja við hana: „ég ætla að fara niðrí bæ og kaupa nýju plötuna með Troggs" og hún segir - með vonarblik á vör: „var að koma ný?“ en þeir svara í sinni gargandi geðveiki „Mæja. Ekki. Þú rnanst..." í tilfelli Gests Einars virðist þessi tiltekni júlidagur reyndar hafa verið sólríkur norð- an heiða því liðinn laugardag afkynnti hann lögin með þvi að nú væri „kominn tími til að fara að hita grillið" þegar Akureyringar voru í óðri önn að skafa af því snjóinn. ’68-kynslóðin ætlar með fimmtugri frekju sinni að halda áfram að valta yfir allar aðr- ar kynslóðir með nú löngu geldu grað- hestarokki sínu. Hún lifir enn i þeirri trú að unglingabólur hennar teljist til stórviðburða ald- arinnar og heldur áfram að kreista gröftinn fram- an í okkur með gítamöglum sínum. Það eina sem við getum gert er að safna nógu miklum eyrna- merg á móti. Bítlaæðið hefur breyst í hundaæði, ólæknandi smitsjúkdóm. Og eina ráðið er að húrra þessum eilífðar-gemlingum í sóttkví; á Stjömuna: Stöð fyrir staðnaðar sálir. En hún er einmitt nýkomin í loftið þegar við rennum f bæinn, reyndar í þvf bili sem Magnús Einarsson kynnir þjóðhátíðar- dagskrá Rásar tvö: 17. júní og séra Páll McCartn- ey með hátíðarguðþjónustu! Bítlarnir em orðnir meira en íslandsvinir. Þrír aldraðir flauelshaus- ar frá Liverpool era orðnir fiórir af sjálfstæðis- hefium okkar! Eins konar Fjölnismenn. Give us a break. Kæru ráðamenn Rásar tvö. Við erum búin að fá nóg. Það er búið að bítla okkur í hel. Ekki meira. Plís. Veðmálið í Loftkastalanum Leikfélag íslands og Flugfé- Ilagið Loftur ætla með sínu fyrsta samstarfsverkefni, Veð- málinu, að frumsýna i Loftkast- alanum 18. júlí næstkomandi. Höfundur verksins er Mark Medoff og leikstjóri Magnús Geir Þórðarson. Stígur Stein- þórsson er hönnuður leikmynd- ar og búninga. | Veðmálið er að sögn kunn- ugra þrangið spennu samofið farsakenndum húmor. Þar seg- | ir frá fiórum ungmennum sem búa öll á stúdentagarði í ónefndum háskóla í Bandaríkj- í unum. í hlutverkum ungmenn- anna eru þau Margrét Vil- | hjálmsdóttir, Kjartan Guðjóns- son, Benedikt Erlingsson og Baltasar Kormákur. -ST Ungmenni á stúdentagörðum eru I aðalhlutverkunum í Veð- málinu eftir Mark Medoff. DV-mynd Hilmar Þór f Hugmyndir að tónlistarhúsi Menntamálaráðherra kynnti | nýlega álitsgerð nefndar um tónlistarhús. Nefndin lagði Ifram þrjár hugmyndir að tón- listarhúsi: 1. Húsið verði reist í Laugar- dal í Reykjavík. 2. Gengið verði til samninga við eigendur Hótel Sögu um að tónlistarhús verði tengt fyrir- hugaðri ráðstefnumiðstöð hót- elsins. 3. Gengiö verði til samninga við Reykjavíkurborg á grund- velli tillögu borgarsfióra, um að tónlistarhús verði reist neðan- I jarðar í Öskjuhlíð, þar sem ’ unnt væri að byggja upp ráð- stefhuaðstöðu í tengslum við Perluna. Ríkisstjórnin samþykkti til- . lögu menntamálaráðherra um að fengið yrði sérfræðilegt mat á kostum og göllum þessara þriggja hugmynda nefndarinn- ar. Sem sagt: Ný nefnd er kom- in i máliö! Danskt-íslenskt málþing Kjeld Mollgárd, rektor Kaup- mannahafnarháskóla, mun af- É henda Sveinbirni Björnssyni, rektor Háskóla íslands, tvö síð- j ustu handritin sem hingað eiga að koma, við setningu dansks- ( íslensks málþings um handrit í | hátíðarsal Háskóla íslands. Handritin tvö eru: AM 237 a fol., tvö varðveitt blöð úr pré- 8 dikanasafni, skrifuð á 12. öld og * ef til vill það elsta sem til er ’ skrifað á íslensku. Hitt er AM 227 fol., annað aðalhandrit | Stjórnar, þýðingar úr Gamla testamentinu með skýringum. Málþingið fer fram í hátíðar- sal Háskóla íslands næstkom- | andi fimmtudag og fostudag og 8 er öllum opið. -ST

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.