Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Qupperneq 6
6
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997
Neytendur__________________________________________________________________________x>v
Frumskógur flugfargjaldanna innanlands:
Afsláttarsæti að klárast
Reykjavík - Akureyri
- fram og til baka -
íslandsflug
Flugfélag íslands
Noröurleiö (rúta)
16.000 krónur
14.000
12.000
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
14.130
Tilboð Almennt Verkalýðs- Hopp- Apex
fargj. fargj. fargj.
Pex
fargjald,
elli- og
ororkuþ.
FOTl
Ferðalangar sumarsins hafa
skyndilega fengið aukið val um
ferðamáta innanlands. Að nota
einkabílinn er ekki endilega hag-
kvæmasti kosturinn í öllum til-
fellum. Flug og rúta er kostur sem
fjölskyldunni býðst á ágætum
kjörum. Nýjasta útspil flugfélag-
anna hefur verið áberandi i frétt-
um að undanförnu. íslandsflug
reið á vaðið með tilboðsverð í júlí
og Flugfélag íslands fylgdi í kjöl-
farið með sumarglaðningsfar-
gjöldum sem gilda til 31. júlí.
Þrátt fyrir þessar tilboðs-
sprengjur hafa afsláttarverð ým-
iss konar verið í boði hjá flugfé-
lögunum um all langt skeið. Yfir-
leitt eru afsláttarfargjöldin fljót
að klárast og því betra að hafa
varann á þegar að pöntun far-
gjalda kemur. Tilboðsbomburnar
sem féllu núna síðast eru vel seld-
ar og algengt að flug um helgar í
júlí sé uppbókað.
Neytendasíðan gerði úttekt á
þeim verðkjörum sem ferðalöng-
um bjóðast. í ljós kom að verka-
lýðsfargjöld hjá Flugfélagi íslands
eru enn hagkvæmasti kosturinn á
algengustu flugleiðunum fyrir
fullorðna.
Eins og kom fram í DV í gær er
sætum í vélar Flugfélags íslands
skipt upp í kvóta. Aðeins þriðj-
ungur sæta í hverri vél er ráðstaf-
að undir sumarglaðningsfargjöld-
in, 5 sæti undir verkalýðsfargjöld,
10 fyrir apex og afgangurinn
skiptist á milli pex-miða, al-
mennra fargjalda, elli- og örorku-
lífeyrisþega og hoppfargjalda.
Tilboðsverð íslandsflugs nær til
allra sæta í vélum félagsins og ef
uppselt er í vélarnar fram og til-
baka, ætlar fyrirtækið að setja
inn aukavélar til að anna mark-
aðnum. Annar afsláttur í flug hjá
félaginu féll úr gildi á meðan til-
boðsverðið stendur.
Hjá Norðurleið er eitt verð í
rútuferð til Akureyrar, 7.000 kr.
Elli- og örorkulífeyrisþegar ásamt
handhöfum Einkaklúbbskorta fá
30% afslátt af því verði, eða á
4.900 kr.
Gjaldskrá barna
Gjaldtaka i rútur hefst fjórum
árum síðar fyrir börn en í flugi.
Fram að fjögurra ára aldri er frítt
i rútur fyrir börn í fylgd með full-
orðnum. í flugi borgar fólk trygg-
ingu fyrir ungbörn frá 0-2ja ára,
yfirleitt um 10% af fargjaldi þess
fullorðna einstaklings sem barnið
ferðast með. Frá 2ja til 11 ára er
greitt barnafargjald í flug en frá 4
til 11 ára í rútu.
Skilmálar
Ekki er sopið kálið þó í ausuna
sé komið. Til að nota fargjöldin
sem leynast í frumskóginum þarf
oftar en ekki að uppfylla ýmiss
konar skilyrði. Það á þó ekki við
um tilboðsverð íslandsflugs, sum-
arglaðning Flugfélags íslands og
almennt fargjald félagsins. Bókan-
ir og borganir eru frjálslegri sem
og dvalartíminn á áfangastað.
Fargjald fyrir elli- og örorkulíf-
eyrisþega hlítur sömu skilmálum
og almennt fargjald en bjóðast
eingöngu þeim sem tilheyra áður-
greindum hóp. Fyrir önnur far-
gjöld eru eftirfarandi skilmálar
settir:
Verkalýösfargjald
Lágmarksdvöl er 3 dagar og há-
marksdvöl 1 mánuður. Fargjaldið
er aðeins fyrir félagsmenn aðild-
arfélaganna og íjölskyldur þeirra.
Hægt er að breyta bókunum gegn
ákveðinni þóknun. Fargjaldið er
eingöngu selt eftir hádegi á laug-
ardögum og farþegi verður að
sýna persónuskilríki þegar hann
kaupir miða og ferðast til að
sanna rétt til afsláttar.
Apex-fargjald
Á apex-fargjaldi er lágmarks-
dvöl 3 dagar og hámarksdvöl 1
mánuður. Farseðla verður að
greiða um leið og bókað er en
bóka verður báðar leiðir á sama
tíma með minnst 2ja daga fyrir-
vara. apex-fargjaldi má ekki
breyta.
Pex-fargjald
Lágmarksdvöl á pex-fargjaldi er
2 dagar og hámark 1 mánuður.
Farseðla veröur að greiða um leið
og fyrra flug er bókað, fram að
brottfor. Bókunum má ekki
breyta. Seinni leggur má vera op-
inn, hann má bóka fram að brott-
för. Eftir að bókað hefur verið má
ekki breyta bókuninni nema gegn
greiðslu.
Hoppfargjöld
Til að ferðast á „hoppi“ er mið-
að við 12 til 25 ára aldur. Þetta
eru sæti sem eru enn laus rétt fyr-
ir brottför. Farþegar geta ekki
bókað í þau heldur mæta á flug-
völlinn 60 mínútum fyrir brottför
og taka númer. Það ræðst af far-
þegum vélarinnar í önnur sæti,
hversu mörg sæti eru laus á þessu
fargjaldi. Eingöngu er hægt að
kaupa eina leið í senn, ekki fram
og til baka.
Elli- og örorkulífeyrisþegum er
að sjálfsögðu frjálst að nota önnur
fargjöld en þau sem eru sérmerkt
hópnum. Þá verða þeir bara að
fylgja sömu skilmálum og aðrir.
Fjölskyldan á norðurleiö
Jón og Gunna ætla að skreppa
frá Reykjavík norður á Akureyri
og njóta þess að fá sér ís í Brynju
og sundsprett í lauginni. Eðlilega
taka þau bæði börnin sín með,
Stjána 7 ára og Tótu 1 árs. Bíllinn
er aðeins farinn að gefa sig og þvi
ætla þau að nota almenningsfar-
artæki. Þau báru saman það verð
sem þeim stendur til boða á far-
gjöldum fjölskyldunnar.
Ódýrasti kosturinn fyrir þau er
að fara með rútu, það kostar
17.500 fram og til baka. Á verka-
lýðsfargjöldum kostar ferðin
17.525 kr., á tilboðsverði íslands-
flugs 20.700 kr. og á sumarglaðn-
ingi Flugfélags íslands 21.566 kr.
Önnur fargjöld eru síðan talsvert
hærri en þessi. Ef þau hins vegar
ákveða, hvað sem líðan einkabíls-
ins líður, að fara á kagganum
norður þá er ekki óeðlilegt að
reikna með 15.000 króna kostnaði
við aksturinn. Inni í þeim kostn-
aði er bensín (8 á hundraði), slit,
hjólbarðar og tryggingar.-ST
Snyrtivörur
vanmerktar
í könnun sem Heilbrigðiseftirlitið
í Reykjavík gerði í verslunum í
Reykjavík á merkingum sólarolía
kom í ljós að um 79% olíanna var
án fymingardagsetninga og 2% með
fyrningardagsetningu sem var út-
runnin. Vegna þess að fyrningar-
dagsetningamcir vantaði á olíumar
er ekki hægt að fullyrða um hvort
viðkomandi vörur voru vanmerktar
eða ekki.
Vanmerktar snyrtivörur
Þá hefur Heilbrigðiseftirlitið
einnig látið kanna merkingar á
snyrtivörum sem seldar eru í
nokkrum verslunum borgarinnar.
Kannað var hvort snyrtivörumar
væru merktar með nafni og heim-
ilisfangi framleiðanda eða umboðs-
aðila, tungumálamerkingar væra á
íslensku, dönsku, norsku, sænsku
eða ensku og hvort þær væru sér-
staklega merktar ef vörurnar inni-
héldu hættuleg efni. Um 62% var-
anna reyndust vanmerktar. Verst
var ástand naglasnyrtivara en 97%
þeirra reyndust vanmerktar. -ST
Helmingshækk-
un á gúrkum
Gúrkuverð hækkaði mikið á
fóstudag. í Fjarðarkaupum fór
kílóverðið í 285 úr 145 kr. Hækk-
unin var talsvert minni í Bónusi.
Þar hækkaði kOóverðið í 149 kr.
úr 99 kr. Verð á tómötum hækk-
aði í Bónus úr 149 kr. kg í 229 kr.
Græn paprika hækkaði einnig í
Bónusi úr 269 kr. kg í 329 kr.
Verð á tómötum í Hagkaupi er
289 kr. kg og á grænni papriku
598 kr. kg. -ST
1‘í oK j w ** )-tt - \ 'Z' mmmm S*
1
Pá • QC
Ungir listamenn aö störfum á Austurvelli í vikunni. Sumir listamannanna voru á stultum og máluöu á léreftiö með
miklum tilþrifum. DV-mynd ÞÖK.