Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.1997, Blaðsíða 37
MÁNUDAGUR 7. JÚLÍ 1997
45
Einvígisbyssur eftir Helga
Hjaltalín.
Kjör-
aðstæður
Helgi Hjaltalín myndlist-
armaður hefur opnað sýningu á
verkum sínum á Sjónarhóli að
Hverfisgötu 12. Sýningin ber
yfirskriftina Kjöraðstæður.
Helgi er fæddur í Reykjavík árið
1968. Hann hefur sótt listmennt-
un sina víða. Að loknu námi við
listabraut Fjölbrautaskólans í
Breiðholti stundaði hann nám
við Myndlista- og handíðaskóla
íslands. Þaðan lá leiðin til Lista-
akademíunnar í Diisseldorf.
Helgi stundaði einnig nám við
Akademie vor Beelende Kunst í
Hollandi og við listaakademíuna
í San Francisco. Sýning Helga á
Sjónarhóli er sjöunda einkasýn-
ing hans. Sýningin samanstend-
ur af 74 verkum sem skiptast í
fimm einingar. Sýningunni lýk-
m- þann 27. júlí. Sjónarhóll er
opinn fimmtudaga til sunnudaga
milli kl. 14 og 18.
Sýningar
íslensk
náttúra,
íslenskt
landslag
í Listhúsinu í Laugardal
stendur nú yflr myndlistarsýn-
ing á verkum Sjafnar Hai-. Sýn-
ingin ber yfirskriftina íslensk
náttúra, íslenskt landslag. Gall-
eríið er opið aUa virka daga
milli kl. 13 og 18 og laugardaga
milli kl. 11 og 14.
Aöaltöffararnir í Djöflaeyjunni.
Djöflaeyjan
í sumar verða íslensk kvik-
myndakvöld í Norræna húsinu á
mánudagskvöldum. í kvöld kl. 19
verður sýnd kvikmynd Frið.
Þórs Friðrikssonar, Djöflaeyj^,,
sem gerð er eftir verki Einars
Kárasonar rithöfundar. Myndin
Samkomur
gerist á sjötta áratugnum og seg-
ir frá lífi fólks í braggahverfinu í
Reykjavík. Með aðalhlutverk
fara Baltasar Kormákur, Gísli
Halldórsson og Sigurveig Jóns-
dóttir. AUir ættu að geta notið
myndarinnar, jafnt innlendir
sem erlendir gestir, því myndin
hefur verið textuð á ensku. Allir
eru velkomnir þvi aðgangur að
myndinni er ókeypis.
Tónleikar í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar
Sigurlaug Eövaldsdóttir, Guðríður St. Siguröardóttir og Peter Tompkins.
Annað kvöld kl. 20.30 verða
haldnir tónleikar í Listasafhi Sigur-
jóns Ólafssonar. Þar koma fram Sig-
urlaug Eðvaldsdóttir fiðluleikari,
Peter Tompkins óbóleikari og Guð-
ríður St. Sigurðardóttir píanóleik-
ari. Þau flytja verk eftir G.F.
Handel, Oliver Kentish, Jaques
Ibert, César Cui og J.S. Bach.
Sigurlaug stundaði nám við Tón-
listarskólann í Reykjavík og fram-
haldsnám við Manhattan School of
Music í New York. Sigurlaug er
fiðluleikari með Sinfóníuhljómsveit
íslands.
Skemmtanir
Peter Tompkins stundaði nám í
óbóleik við The Royal Academy of
Music í London og sótti einkatíma í
barokkóbóleik. Hann er fæddur í
Englandi en hefur verið búsettur
hér frá árinu 1988. Hann starfar
einnig með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands.
Guðríður lauk einleikaraprófi frá
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
stundaði framhaldsnám við háskól-
ann i Michigan. Hún hefur m.a.
starfað með hljómsveit íslensku óp-
erunnar og Sinfóníuhljómsveit ís-
lands.
» 5
Hlýjast suðaustan til
í dag er gert ráð fyrir vestan- og
suðvestangolu eða kalda. Skýjað
verður um landið vestanvert og við
Veðrið í dag
norðurströndina og sums staðar dá-
lítil súld. Yfirleitt verður léttskýjað
annars staðar á landinu. Hiti verður
á bilinu 5 til 15 stig, kaldast allra
nyrst en hlýjast suðaustan til.
Á höfuðborgarsvæðinu er gert
ráð fyrir að þykkni upp og gangi í
suðvestangolu. Skýjað verður og dá-
lítil súld af og til. Hiti verður á bil-
inu 8 til 11 stig.
Veðrið kl. 12 á
hádegi í gær:
Akureyri alskýjaö 7
Akurnes skýjaö 13
Bergsstaöir súld 5
Bolungarvík rigning 7
Egilsstaöir alskýjað 10
Keflavíkurflugv. léttskýjaö 10
Kirkjubkl. léttskýjað 15
Raufarhöfn rigning 5
Reykjavík skýjað 9
Stórhöföi léttskýjaö 10
Helsinki léttskýjaö 25
Kaupmannah. hálfskýjaö 19
Ósló úrkoma 25
Stokkhólmur léttskýjaö 26
Þórshöfn skúr 11
Amsterdam súld 15
Barcelona léttskýjaö 23
Chicago skýjaö 17
Frankfurt skýjaö 19
Glasgow rigning 17
Hamborg skýjaö 17
London skýjaó 23
Lúxemborg skýjaö 18
Malaga léttskýjaö 24
Mallorca léttskýjaó 25
París léttskýjaö 22
Róm hálfskýjaö 24
New York heiöskírt 21
Orlando skýjaö 23
Nuuk léttskýjaö 7
Vín rigning 14
Winnipeg heiösklrt 7
Vífilsfell
Vífilsfell er eitt af þessum
ágætu fjöllum í nágrenni höfuð-
borgarinnar sem seiða til sín
göngufólk. Segja má að Vífils-
fell sé norðurendinn á Bláfjöll-
Umhverfi
um. Hæð Vífilsfells eru 656
metrar. Þar er útsýnisskífa og
er frábært útsýni þaðan. Hægt
er að velja nokkrar leiðir upp á
Vífilsfell. Ein sú vinsælasta er
frá gamla Sandskeiðsveginum.
Þá er fyrst gengið inn með Víf-
ilsfellsöxl sem gengur norður
úr undirhlíðum fjallsins og far-
ið upp gilið upp frá Vífilsfells-
krók. Þegar komið er upp úr
gilinu má fara til hægri og
nokkum veginn beint á hátind-
inn. Flestir kjósa þó frekar að
fara inn á sléttuna og upp aust-
ast á háhrygginn því þar er
haldreipi.
Önnur leið að norðan er að-
eins austar og er þá farið upp
frá Þórishamri og upp norð-
austurhrygginn. Lokakaflinn
verður sá sami eftir að upp á
sléttuna er komið.
Fossvallaó Efrl-F6elluvótn
AmjBnýpuF.^ ÖMuhorn
Gunnar, Hilmar og Hulda
eignast systur
Litla stúlkan á mynd-
inni er litla systir þeirra
Gunnars Torfa, sem er tíu
ára, og tvíburanna Hilm-
ars Páls og Huldu Lilju
sem eru þriggja ára. Litia
Barn dagsins
prinsessan fæddist á
Landspítalanum þann 1.
júlí kl. 11.59. Þegar hún
var vigtuð og lengdar-
mæld reyndist hún vera
13 merkur að þyngd og 50
sentímetrar að lengd. For-
eldrar hennar eru Hannes
Hilmarsson og Dóra Berg-
lind Torfadóttir.
Aöalleikendurnir í Ijúfum dansi.
Einræðisherra
í upplyftingu
Háskólabíó hefur tekið til sýn-
ingar gamanmyndina Einræðis-
herra í upplyftingu eða The
Beutician and the Beast með
Timothy Dalton og Fran
Drescher í aðalhlutverki.
Söguþráðurinn er á þá leið að
einræðisherrann Boris (Timothy
Dalton) hefur ákveðið að snúa
landi sínu Slovetziu til vest-
rænna siða og veita börnum sín-
um bestu mögulegu kennsluna í
þeim siðum. Til starfans ræður
hann konu sem hann heldur að
sé kennari en reynist vera
snyrtifræðingur frá Oueens i
Bandaríkjunum. Úr þessu verður
hinn mesti misskilningur því
snyrtifræðingurinn Joy Miller,
sem leikinn er af Fran Drescher,
heldur að hún hafi verið ráðin til
Kvikmyndir
að hressa upp á ímynd einræðis-
herrans.
Timothy Dalton er þekkastur
fyrir hlutverk sitt sem James
Bond og Fran Drescher þekkja
flestir sem bamfóstruna úr sam-
nefndum þáttum sem sýndir hafa
verið á Stöð 2. Leikstjóri mynd-
arinnar er Ken Kwapis.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Einræðisherra í
Upplyftingu
Laugarásbíó: Men in Black
Kringlubíó: Fangaflug
Saga-bíó: Fangaflug
Bíóhöllin: Men in Black
Bíóborgin: Fangaflug
Regnboginn: Togstreita
Stjörnubíó: Men in Black
Krossgátan
Lárétt: 1 kjarkm-, 5 féll, 6 stólpann, 9
bergmála, 10 gabb, 11 tækinu, 14
háttur, 16 ullarílát, 18 varðandi, 19
sjór, 22 kveikur, 23 aular.
Lóðrétt: 1 hæð, 2 vít, 3 spýja, 4 utan,
5 kaup, 8 kvæði, 9 ær, 12 gagnslaus,
13 gangflöturinn, 15 kerald, 17 geisla-
baugur, 20 varúð, 21 kind.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 vær, 4 klók, 8 æður, 9 úra,
10 sigaðir, 11 kólfur, 14 iða, 16 trúu,
17 ha, 18 manir, 20 nit, 21 áni.
Lóðrétt: 1 veski, 2 æði, 3 rugl, 4
krafta, 5 lúður, 6 óri, 7 karmur, 12 ^
óðan, 13 rúin, 15 ami, 17 há, 19 ná.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr.
kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tcllgenqi
Dollar 70,200 70,560 71,810
Pund 118,340 118,940 116,580
Kan. dollar 51,050 51,370 51,360
Dönsk kr. 10,5390 10,5950 10,8940
Norsk kr 9,6360 9,6890 10,1310
Sænsk kr. 9,1140 9,1650 9,2080
Fi. mark 13,4770 13,5570 13,8070
Fra. franki 11,9060 11,9740 12,3030
Belg. franki 1,9443 1,9560 2,0108
Sviss. franki 47,9300 48,1900 48,7600
Holl. gyllini 35,6500 35,8600 36,8800
Pýskt mark 40,1300 40,3300 41,4700
It. lira 0,041200 0,041460 0,04181
Aust. sch. 5,7000 5,7350 5,8940
Port. escudo 0,3979 0,4003 0,4138
Spá. peseti 0,4751 0,4781 0,4921
Jap. yen 0,619500 0,623200 0,56680
írskt pund 107,310 107,980 110,700
SDR 97,140000 97,720000 97,97000
ECU 78,9200 79,4000 80,9400
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270