Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Blaðsíða 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997
Fréttir
Allsherjarnefnd og skipan biskups:
Tímabundin skipun
- ráðherra ræður hvort hann auglýsir embættið á fimm ára fresti
Svo virðist sem mistök hafi orðið
við setningu laga um skipunartíma
biskups. Alþingi virðist hafa gleymt
því að hafa nokkru áður samþykkt
lög um skipunartíma helstu emb-
ættismanna ríkisins. í eldri lögum
voru þeir skipaðir ótímabundið
nema annað væri tekið fram en í
þeim nýju til aðeins fimm ára nema
annað sé tekið fram. Það orðalag í
frumvarpinu um stjórn, stöðu og
starfshætti kirkjunnar og athuga-
semdum, þar sem fjallaö er um skip-
un biskup, segir að gert sé ráð fyrir
óbreyttri skipan frá því sem nú er.
Þegar þingmenn samþykktu það
sem lög áttuðu þeir sig fæstir á því
að þeir voru búnir að samþykkja
fimm ára skipunartíma sem megin-
reglu og orðalagið ....gert er ráð
fyrir óbreyttri skipan," á því við um
fimm ára skipun í embætti.
Allsherjamefnd Alþingis kom
saman í gær til að ræða biskupsskip-
unarmáliö vegna þess ágreinings
sem kirkjunnar menn hafa haft uppi
um málið. Nefndarmenn urðu sam-
mála um að túlka bæri lögin á þann
veg að biskup skuli skipa til fimm
ára í senn. Kirkjunnar menn hafa
sagt að þessi tímabundna skipan sé
ekki í samræmi við vilja kirkjunnar
og kirkjuþings. Nýju lögin um stjórn
og starfshætti kirkjunnar eiga að
taka gildi 1. janúar 1998.
Sr. Hjálmar Jónsson, einn nefnd-
armanna í allsherjamefnd, sagði í
samtali við DV í gær að ljóst væri
að löggjöfin hefði mátt vera skýrari.
Nefndarmenn væru þó sammála um
túlkun laganna og að samkvæmt
þeim skuli skipa biskup til fimm
ára, en í valdi ráðherra væri að slá
upp embættinu á fimm ára fresti
eða ekki. -SÁ
Veiddu risaloðnu:
Ein sú stærsta
sem ég hef séð
- segir Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur
Þegar verið var að landa loðnu úr
Antares VE fyrir skömmu rákust
menn á risaloðnu. Hún reyndist vera
20,5 sentímetrar að lengd en venjuleg
fúllvaxin loðna er 16 til 17 sentímetrar
að lengd.
„Ég hef séð álíka stórar loðnur en
þær era ekki margar. Við eram ekki
búnir að aldursgreina þessa risaloðnu
en hún þarf ekki að vera eldri en
þriggja ára. Hún hefði því orðið fjög-
urra ára 1. janúar en það er opinber af-
mælisdagur allra fiska. Það er dálítið
hjákátlegt varðandi loðnuna að segja
hana þriggja ára í desember en fjög-
urra ára í nóvember, en veiðitímabil
hennar teygist yfir áramótin," sagði
Hjálmar Vilhjálmsson, sem lengst allra
manna hér á landi hefur stundað
loðnurannsóknir.
Loðnan reyndist vera 60 grömm að
þyngd, að vísu full af átu, en venjulega
loðna er um 30 grömm.
Að sögn Hjálmars veiddist stærsta
loðna sem vitað er um við Nýfundna-
land um 1970. Hún mældist 25,2 sentí-
metrar að lengd og reyndist 10 ára göm-
ul.
Sem kunnugt er verður loðna kyn-
þroska þriggja til fjögurra ára gömul og
almennt drepst fiskurinn eftir hrygn-
ingu. Hjálmar segir að frá því séu
nokkrar undantekningar eins og með
risaloðnuna sem veiddist við Ný-
fundnaland fyrir 27 árum síðan. -S.dór
Risaloðna
Venjuleg loðna
Búnaðarbanki Islands hefur tekið lán að upphæð 100 milljónir dollara, eða 7 milljarða íslenskra króna hjá Sumitomo Bank,
Limited í Londan og sautján öðrum erlendum bönkum. Upphaflega var ráðgert að taka 50 milljónir Bandaríkjadollara aö
láni en vegna hagstæðra kjara var ákveðiö að tvöfalda lánsupphæöina. Þetta er iangstærsta lán Búnaðarbankans erlendis
hingað til. Lánið verður notaö til þess aö greiða upp eldri, óhagstæörari lán og einnig til nýrra útlána.
Engin samkeppni í bensín- og olíusölu
- segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB
„Við höfum sagt það lengi að
samkeppnin í eldsneytinu er engin
hjá olíufélögunum. Samkeppnin fer
fram í formi blaða- og vörusölu í
litlum kjörbúðum og virðist hún
vera orðin aðalmarkmiðið. Eins-
leitnin er alger í eldsneytisverðinu
nema hvað menn eru að fá mismun-
andi happdrættisvinninga eftir því
hvar þeir versla. Samkeppnin í
bensin- og olíusölunni virðist því
vera í formi þess hvort menn vilja
heldur vinna Parísarferð eða Lund-
únaferð í happdrætti," sagði Runólf-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
um það sem er að gerast hjá olíufé-
lögunum.
Varðandi hinar miklu fjárfesting-
ar oliufélaganna í nýjum og endur-
bættum bensínstöðvum sagði Run-
ólfur að annað hljóð hefði verið í
strokknum þegar Erwing-feðgar
ætluðu að setja hér upp bensín- og
olíusölu og báðu um lóðir í Reykja-
vík og nágrannasveitarfélögunum.
„Þá sögðu forráðamenn olíufélag-
anna að markaðurinn á höfuðborg-
arsvæðinu væri mettur. En nú
heyri ég frá markaðsstjóra eins ol-
íufélaganna að nú sé svo komið að
framboð á bensínafgreiðslustöðvmn
á höfuðborgarsvæðinu, samanborið
við nágrannalönd okkar, væri
miklu minna en þar gerist. Svona er
þetta nú fljótt að breytast,“ sagði
Runólfur Ólafsson. -S.dór
Dagfari
Eins gott að enginn veikist
Þrátt fyrir alla tæknivæðingu og
nútímalega þekkingu kom í ljós nú
fyrir helgina hversu öll þjónusta og
atvinnulíf hangir á bláum þræði.
Flugumferðarstjórar voru svo
óheppnir að veikjast allir í einu og
gátu ekki mætt til vinnu einn
morguninn með þeim afleiðingum
að flugumferð hér við land lamað-
ist og tafðist.
Mörg þúsund manns máttu bíða
eftir að flugumferðarstjóramir
næðu aftur heilsu sinni og tug-
milljónatap varð að sjálfsögðu af
þeim seinkunum og breytingum
sem gera varð á flugáætlunum
allra þeirra farþega og flugfélaga
sem veikindin bitnuðu á. Alla jafna
er heilsa flugumferðarstjóra góð og
að minnsta kosti gerist það afar
sjaldan að þeir veikist allir í einu.
En þetta getur hent og þetta henti
fyrir helgi og það sjá allir á svip-
stundu hve mikið ríður á að flug-
umferðarstjórar séu heilsugóðir
þar sem veikindi þeirra og heilsu-
far ræður bókstaflega öllu um þær
miklu samgöngur sem fara fram
um loftin blá.
íslendingar geta bókstaflega ein-
angrast frá umheiminum við það
eitt að flugumferðarstjórar leggist í
rúmið. Þjóðin er strand,
ferðamannastraumurinn
stöðvast og jafnvel ráðherrar
og mikilvægir viðskiptajöfrar
mega sín einskis ef flugum-
ferðarstjórar mæta ekki til
vinnu vegna heilsubrests.
Það þýðir ekki einu sinni fyr-
ir þjóðarleiðtogana að ferðast
með einkaþotum því þær eru
strand eins og aðrar vélar
vegna þess að það flýgur eng-
inn án flugumferðarstjómar.
Ástandið verður jafnvel verra
heldur en áður en norsku
víkingarnir sigldu hingað til
lands í upphafi landnáms
vegna þess að þá gátu þeir
siglt eftir sólstöðu, vindáttum
og veðurskyggni. Seinna
komu farþegaskipin.
Nú er búið að leggja niður
skipulegar skipaferðir milli
íslands og annarra landa og
það kemst enginn úr landi né
hingað til lands nema ís-
lenskir flugumferðarstjórar
mæti til vinnu og haldi heilsu
sinni. Þessi skyndilegu og óvæntu
veikindi þeirra allra á sama tíma
vöktu upp spumingar hjá flug-
málastjóra og Flugleiðamönnum
um hvort bráðapest hefði gripið
um sig í flugumferðarstöðinni og
menn höfðu um tíma miklar
áhyggjur af hinum sárþjáðu flug-
umferðarstjórum sem lágu allir
heima, fárveikir og illa haldnir.
Enginn hafði einu sinni rænu á að
kalla á læknisaðstoð og það var
ekki fyrr en flugmálastjóri sjálfur
sá ástæðu til að kalla á lækna og
biðja um læknisvottorð sem
alvara veikindanna kom í ljós
og veikindin vom af margvís-
legum toga og sum voru
meira að segja þess eðlis að
þau höfðu gengið yfir þegar
læknir mætti á vettvang. Sem
sýnir náttúrlega hvað flugum-
ferðarstjórar eru í rauninni
hraustir menn og vel á sig
komnir að þeir hristu veik-
indin af sér á tiltölulega
skömmum tíma og gátu mætt
til vinnu eftir að læknar
höfðu útkljáð þá við góða
heilsu. Enda bera þeir hag
flugumferðar og ferðaþjónust-
unnar fyrir brjósti og rífa sig
í vinnuna þótt þeir haldi að
þeir séu veikir eftir að læknir
hefur úrskurðað þá hrausta.
Það er líka eins gott því
flugumferðarstjórar standa í
kjaraviðræðum sem ganga
seint og illa vegna þess að
þeir hafa mikið að gera í vinn-
unni og mega í rauninni ekki
vera að því að veikjast nema þegar
þeir halda að þeir séu veikir þegar
þeir eru ekkki veikir þegar illa
gengur í kjaraviðræðum.
Dagfari