Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997
Neytendur
Óglæsileg landkynning
Tæplega fimmfaldur verðmunur - á íslenskum og Hong Kong Big Mac
172 kr.
Hong Kong
Bandaríkin
Bretland
Big Mac
vísitalan
Sviss
ísland
í FACE, víölesnu bresku glanstímariti, birtist á dögunum verösamanburður á Big Mac-hamborgurum víða um heim. Aö sögn Péturs Þóris Péturssonar, markaösstjóra Lystar ehf., sem rekur McDon-
alds á íslandi, „er áiagning fyrirtækisins sú lægsta sem gerist á meðal McDonalds-rekstraraöila í heiminum." Þá bendir hann á aö tilkostnaöurinn viö framleiösluna sé fyrirtækinu ákaflega óhag-
stæöur auk þess sem gengi íslensku krónunnar sé rangt skráö. -ST
Maga-vélinda bakflæði er
sjúkdómur þar sem inni-
hald magans gúlpast upp í
vélindað og veldur bólgum. Meginein-
kenni sjúkdómsins eru bijóstsviði og
nábítur sem fylgja því þegar súrt
magainnihald gúlpast upp. Mikill
ropi, uppþemba, verkir og óþægindi í
efri hluta kviðar fylgja einnig þessum
kvilla.
Samkvæmt niðurstöðum sænskrar
könnunar þjást á milli 20 og 30% Svía
af bijóstsviða
mánaðarlega eða
oftar. Sambæri-
leg rannsókn hef-
ur verið unnin
hérlendis en nið-
urstöður hennar
ekki verið kynnt-
ar. Liklegt þykir
þó að niðurstöö-
umar séu svip-
aðar og hjá
grönnum okkar
Svíum.
Þetta kemur
fram í viðtali við
Sigurbjöm Birg-
isson, sérfræðing
í lyflækningum
og meltingarsjúk-
dómum, í nýjasta
tölublaðinu af Lyfjatíðindum.
I greininni kemur fram að algeng-
asta orsök bijóstsviða sé að neðri
hringvöðvinn í magaopinu virki ekki
rétt. Verstu tilfellin koma fram þegar
þrýstingurinn á vöðvann er mjög lág-
ur, þá er hringvöðvinn alltaf opinn og
magainnihaldið gúlpast upp bæði dag
og nótt.
Þá hefúr og mikið verið rætt um
tengsl bakflæðis og astma en um 80%
astmasjúklinga era með bakflæði.
Bakflæði er orsök astmaveikinda hjá
stórum hluta þeirra sjúklinga sem fá
astma á fullorðinsárum. Fyrir því em
tvær ástæður: Sýran getur ert og kom-
ið af stað krampa í öndunarfærunum.
Einnig getur verið um að ræða að lít-
ið magn af sýra gúlpist niður í berkj-
umar og valdi krampa.
Maga-vélinda bakflæði getur einnig
verið orsök langvarandi hæsi, hósta,
brjóstverkja og andremmu.
Böm geta fæðst með slappan hring-
vöðva en það lagast yfirleitt með ár-
unum. Einkenni ungbama era marg-
breytileg, þau lýsa sér m.a. i uppköst-
um eftir máltíðir, kviðverkjum og óró-
leika. Á meðgöngu kvenna er brjóst-
sviði mjög algengur vegna hormóna-
breytinga og aukins þrýstings á maga-
opið. Tóbaksreyk-
ingar, áfengis-
drykkja,
súkkulaði, pipar-
myntur, feitt fæði
og ýmis lyf geta
valdið slökun á
vöðvanum.
Oft hefur verið
sett jafiiaðar-
merki milli þind-
arslits og bijóst-
sviða. Þetta er
misskilningur því
að þó að þindar-
sht sé algengt hjá
fólki þjást aðeins
um 10% þess af
bijóstsviða.
Sigurbjöm ráð-
leggur öllum
breyttan lifsstíl. Forðast þær fæðuteg-
undir sem valda vöðvaslökuninni,
borða ekki rétt fyrir svefii og forðast
súra drykki. Það getur verið gagnlegt
að hækka höfðalagið í rúminu um
10-15 cm. Þannig rennur innihald
magans síður upp í vélindað. Mimn-
vatn er basískt og hreinsar vélindað.
Því getur verið gott að tyggja tyggi-
gúmmí, það örvar munnvatnsfram-
leiðsluna.
Aðrar úrbætur era lyfjameðferð eða
jafiivel skurðaðgerð. í slíka aðgerð er
um þessar mundir margra mánaða bið
hjá sjúklingum. Lyfin sem sjúklingum
bjóðast gegn bijóstsviða era að sögn
Sigurbjöms mjög góð og ekki ástæða
til að þjást vegna þessa. -ST
Brjóstsviði er ein-
kenni á maga-vélinda
bakflæði. Meginein-
kenni sjúkdómsins
eru brjóstsviði og ná-
bítur, mikill ropi,
uppþemba, verkir og
óþægindi í efri hluta
kviðar.
Sumarsalat Sólar og DV
Samkeppnin um
besta sumarsalatið
og salatsósuna úr
Viola-olíum er í
fullum gangi. Þátt-
taka er ágæt enda
vinningamir ekki
af verri endanum;
10 innkaupakörfur
frá 10-11 á 10.000
kr. hver. Keppn-
inni barst eftirfar-
andi uppskrift af
salatsósu frá kepp-
anda sem kallar sig
„Skúmur":
1 rauðlaukur,
smátt saxaöur
1 msk. hunang
50 ml edik
150 ml Viola-olía
ögn af svörtum
pipar
1 hvítlauksrif,
smátt saxaö
Þeytt saman með
písk. Þessi salatsósa
er sérstaklega góð
með niðurskomum
tómötum og
grænkáli.
Uppskriftin ykkar
þarf að vera frum-
samin. Merkið hana
með dulnefni en setj-
ið rétt nafn, heimfl-
isfang og simanúmer
í lokað umslag með,
merkt dulnefninu.
Utanáskriftin er;
Sumarsalat 1997
DV
Þverholti 11
105 Reykjavtk
Skilafrestur er til
25. júlí. Úrslit verða
kynnt í blaðinu 1.
ágúst. -ST
Verðþróun á gúrkum 1.-14. júlí
50
300 kr.
250
200
150
ÍOO
Verö á gúrkum hefur sveiflast mikiö þaö sem af er júlímánaðar í stórmörkuöum á Reykjavíkursvæöinu. Bónus held-
ur alltaf lægsta veröinu og svarar öllum tilboöum samkeppnisaöilanna með enn lægra veröi. DV-graf Unnur
Færslur debetkorta
Nýlega hatði maður samband við
blaðið vegna undarlegra debetfærslna
í viðskiptum við stórmarkað á Reykja-
víkursvæðinu. Hann hafði keypt vör-
ur hjá fyrirtækinu 13. júní og andvirði
þeirra tekið af debetkortareikningi
mannsins sama dag. 23. júní endur-
greiddi verslunin manninum úttekt-
ina án sýnilegrar ástæðu. Þann 2. júlí
tók verslunin hins vegar endurgreiðsl-
una til baka af einkareikningi manns-
ins, að honum forspurðum.
Neytendasíðan kannaði málið og
samkvæmt viðskiptaskilmálum korta-
fyrirtækja við söluaðila stenst þessi af-
greiðsla replur um debetkortavið-
skipti. Heh’. H. Steingrímsson, for-
stjóri Re'I nistofu bankanna, staðfesti
það í viðtali við DV. Þannig er að þeg-
;r viðskiptin fóru fram var veitt heim-
Jd fyrir úttektinni og hún bókuð.
Verslunin sem fékk heimildina sendi
hins vegar ekki staðfestingarfærslu
fyrir henni til bankans innan 9 daga.
Því var hún sjálfvirkt bakfærð sam-
kvæmt reglum þar um. Verslunin
sendi færsluna inn til bankans þann 2.
júlí og bókaðist hún þá aftur á reikn-
ing korthafans. Svona síðbúnar færsl-
ur frá fyrirtækjum munu vera fremur
fátíðar. Eðlilega hefði staðfestingar-
færslan átt að berast bankanum þann
13. júní frá versluninni og hefði þá við-
skiptavinurinn ekki orðið fyrir nein-
um óþægindum vegna þessarar úttekt-
ar. -ST