Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997 13 Velferð kerfisins eða velferð fólks? Það er einkenni á ríkisvaldinu að þegar stofnanir og aðgerðir á vegum þess eru farnar að gera al- mennt viðurkennt ógagn að þær eru ekki lagðar niður heldur eru nýjar stofnanir búnar til sem leiðrétta eiga mistök þeirra sem fyrir eru. Ágætt dæmi um þetta er hin opinbera Samkeppnisstofnim. Eftir áratuga þver- móðsku hafa íslensk- ir vinstri menn við- urkennt að ýmis rík- isrekstur og opinber- ar reglur geta þvælst fyrir atvinnurekstri. En í stað þess að leggja þessi ríkisfyrirtæki nið- ur eða selja þau og afnema regl- umar var Samkeppnisstofnun komið á fót og á hún að fylgjast með að aðrar ríkisstofhanir og rík- isfyrirtæki níðist ekki um of á einkafyrirtækjum. Annað dæmi er Landgræðsla ríkisins sem er svar ríkisins við hinni ríkisreknu rollubeit sem breytt hefur grónu landi í örfoka eyðimörk. Rétta svarið við gróðureyðingunni var auðvitað að afnema styrkina til sauðfjárbúskapar en ekki að ausa skattfé í landgræðslu. Fjölskyldan sem afsökun Nú í maí var samþykkt á Al- þingi „þingsályktun um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og að- gerðir til að styrkja stöðu fjöl- skyldunnar". Þessi opinbera fjöl- skyldustefna „hefur það markmið að efla fjölskylduna í nútímaþjóð- félagi“. Eins og frægt er orðið af fréttum undanfarin ár hvetur skatt- og bótakerfið mjög til þess að fjölskyldur séu leystar upp, a.m.k. á pappirunum. Jafnvel aldraðir eru hvattir til að skilja til að hafa meira út úr bótakerfinu. í stað þess að leiðrétta þetta aug- ljósa ranglæti í skatt- og bótakerf- inu ætlar ríkisstjómin með félags- málaráðherrann í broddi fylkingar að nota tækifærið til að stofna nýjar nefndir og ráð. í þessu tilviki er það sérstakt fjöl- skylduráð sem heyra mun undir félags- málaráðuneytið. Ekk- ert bólar hins vegar á raunverulegum úr- bótum, þ.e. að dregið verði úr jaðaráhrifum í skatt- og bótakerf- inu og að réttindi breytist ekki með hjú- skaparstöðu eða fjöl- skyldustærð. Vanda- málið er ekki leyst heldur er það notað sem afsökun fyrir fleiri nefndum og ráð- um á vegum ríkisins. Og hver get- ur verið á móti því að „efla fjöl- skylduna í nútímaþjóðfélagi"? Það lítur líka vel út fyrir ríkisstjóm- ina að geta bent á splunkunýtt fjölskylduráð þegar spurt verður hvað ríkisstjómin hafi gert fyrir fjölskylduna. Óplægöur vandamálaakur Annað einkenni á aðgerðum ríkisvaldsins er hversu sérhags- munahópar hafa mikil áhrif. Þessi nýja fjölskyldustefna er ágætt dæmi um það. Greinilegt er að ým- iss konar vandamálafræðingar hafa plantað sinum hagsmunamál- um í fjölskyldustefnuna. Þannig á samkvæmt hinni opinberu fjöl- skyldustefnu að „hvetja til að- gerða á sviði fjölskyldumála í sam- félaginu", „stuðla að rannsóknum á högum og aðstæðum íslenskra fjölskyldna", „staða og afkoma barnafjölskyldna í nútímasamfé- lagi verði könnuð sérstaklega“, „forvamir vegna áfengis- og vímu- efnaneyslu verði auknar" og „auka stuðning við fjölskyldu- rannsóknir og fræðslu um fjöl- skylduáætlanir" svo vitnað sé í þessa þingsálykt- un. Það blasir því við að þessi fjöl- skyldustefna er fyrst og fremst fyrir fagfólkið í fé- lagsmálageiran- um. Hún er óplægður akur fyrir ný vanda- málaapparöt, rýnihópa, sérfræðinefndir, fræðslu- og rannsóknamefndir. Opinbera fjölskyldustefnan fjallar því fyrst og fremst um velferð kerfisins en ekki velferð fólks. Glúmur Jón Bjömsson Kjallarinn Glúmur Jón Björnsson efnafræðingur „/ stað þess að leiðrétta þetta augljósa ranglæti í skatt- ogbóta- kerfínu ætlar ríkisstjórnin með félagsmálaráðherrann í broddi fylkingar að nota tækifærið til að stofna nýjar nefndir og ráð.“ Orð og gerðir eigi samleið I fjölmiðlum að undanfornu hafa hljómað og birzt auglýsingar tengdar hinum margnefnda vimu- efnavanda og skal hverju því fagnað vel sem vekur athygli á þessu alvarlega þjóðfélagsvanda- máli. Auglýsingarnar nú munu tengjast hinu mikla markmiði um vímuefnalaust ísland árið 2000. Háleit markmið Það er hollt að setja sér háleit markmið og enn hollara og affara- sælla að beita sér einarðlega og af afli að því að þau nái sem fyrst fram að ganga. Sumir mundu ef- laust segja að ekki einungis væri það háleitt markmið að ísland verði vímuefnalaust eftir 3 ár, heldur einnig fráleitt miðað við hrikalegt umfang þess vanda sem við blasir svo víða. Svo alltum- vefjandi er þetta vandamál, þó að- eins sé nú hugað að hinum ólög- legu vímuefnum, að ekki sé nú um vá vínsins talað. Mér skilst hins vegar að þetta markmið beinist eingöngu að hinum ólög- legu efnum og er það ágætt svo langt sem það nær. Það leiðir hins vegar hugann að þeirri óvé- fengjanlegu staðreynd að neyzla hinna ólöglegu vímuefna á í yfir- gnæfandi tilvikum beina rót sína að rekja til áfengisneyzlu og því erfítt að sjá það fyrir sér að afleið- ingunni sé útrýmt án þess að or- sökinni sé hug- að og gegn henni snúist. Ég sá einhvern tímann áskorun um vímuefna- laust ísland árið 2000 undirritaða af miklum fjölda virðingarmanna í þjóðfélaginu og lúmskur en ljót- ur grunur minn sá, að ekki myndu nú allir þeir ágætu aðilar hafa ljáð nafn sitt til áskorunar, ef áfengið hefði verið með í spil- inu og gegn því átt að hefja út- rýmingarherferð. En máske er það minn leiði misskilningur. Ég heyri það hins vegar á aug- lýsingunum sem í upphafivar um getið að fólk er einnig með áfeng- ið í huga, þegar að hinu háleita mark- miði er stefnt eða svo gæti maður haldið miðað við eðli þeirra og inntak. 96% for- eldra vilja ekki að unglingar yngri en 16 ára neyti áfengis, þannig einhvem veg- inn er sagt og kemur engum á óvart, fjögur prósentin vekja m.a.s. furðu. En þessi eindregni vilji gagn- vart unglingunum, góðra gjalda verður, vekur upp umhugsun um viðhorf þessara sömu foreldra til eig- in neyzlu, jafhvel til þeirra eigin reynslu á unglingsár- um áður fyrr. Tvískinnungur Að baki hjá svo alltof mörgum liggur sú skoðun að þeirra eigin áfengisneyzla sé í lagi og vel það, jafnvel þó úr böndum sé farin meira og minna, en jafnframt er unnt öðrum að leiðbeina og vanda um við unglingana, sem ekki eiga að venja sig á ósiðina. Sannleikurinn er sá að ungling- arnir sjá oftar en ekki í gegnum tvískinnung foreldra sinna og skella eðlilega skollaeyrum við viðvörunum þeirra. Þessi tviskinningur kemur svo einnig fram í harðri and- stöðu margra við ólögleg vímuefhi, enda þeirra ekki neytt, samhliða lof- gjörð um áfengið af því að þess er neytt. Þennan tvískinnung þarf að uppræta og til allra þátta þessara mála að líta ef árang- ur á að nást. Ég ætla rétt að vona að það ágæta fólk sem stefnir að hinu háa markmiði um vímuefnalaust ísland setji hlutina í -rétt samhengi og hagi sér sjálft í sam- ræmi við það. Ég sat eitt sinn ráðstefnu um heilbrigði og hollustu þar sem einn æðsti legáti heilbrigðismála í heiminum hafði framsögu m.a. og áfengið og vá þess fékk ágæta og vandaða umfjöllun. Að ráð- stefnu lokinni var boðið til hana- stéls þar sem áfengar veigar flutu vel og eflaust hafa einhverjir skál- að fyrir eilífu heilbrigði. Orð og gerðir verða að hafa vísa samleið, ef vel á til að takast. Helgi Seljan „Sumir myndu eflaust segja að ekki einungis væri það háleitt markmið að ísland verði vímu- efnalaust eftir 3 ár, heldur einnig fráleitt miðað við hrikalegt um- fang þess vanda sem við blasir svo víða. “ Kjallarínn Helgi Seljan félagsmálafulltrúi Með og á móti Er rétt að fjalla um fjárhag ríkissaksóknara í fjölmiðlum? Lúövik Geirsson, formaöur Blaöa- mannafólags ís- lands. Með gætni „Það segir sig sjálft að þegar dómsmálaráðherra og ráðuneyt- ið sér sérstaka ástæðu til þess að láta fara ofan í þessi mál og kanna hver staða viðkomandi embættis- manns er þá hlýtur að vera einhver grund- völlur fyrir því að málið sé til umræðu á op- inberum vett- vangi. Hitt er svo annað mál að öll svona umræða er vandmeðfarin og menn þurfa að gæta sín í henni en ég hef ekki rekist á neitt í fréttum und- anfarinna daga þar sem að mínu mati hefur verið gengið of langt. Það sem er lykilatriði í þessu máli sem öðmm sem fjallað er um á opinberum vettvangi er að þeir sem fara með æðsta embætt- isvald í stjórhsýslunni, hvort heldur er hjá stjórnsýslunni eða dómsvaldinu, þurfa að vera yfir alla gagnrýni hafnir og fjárhags- lega sjálfstæðir þannig að enginn vafi leiki á hlutleysi þeirra í embættisfærslunni. Með þessum orðum er ég ekki að fella dóm um að þessi tiltekni embættis- maður sé kominn í þá stöðu að hann sé orðinn óhæfur til að gegna stöðu sinni vegna fjárhags- stöðu sinnar. Það er allt annar handleggur. Einelti og ofsóknir Það er í lagi þótt fjölmiðill geri fjárhagskröggur ríkissaksókn- ara, eða manns í svipaðri stöðu, að umtalsefni, jafnvel þó það hafi verið uppsláttarefni í fjölmiðlum fyrir nokkrum misserum. Þegar hins vegar aðrir fjölmiðlar lepja sömu súpuna án þess að nokk- uð nýtt komi fram þá er það orðið einelti. Þegar sami maður er svo meðhöndlaður eins og hálfgerður glæpamaður fyrir það eitt að hafa í raunum sínum fundið sér skjól í sumarbústaö við Elliða- vatn þá eru það ofsóknir. Þá er ekki verið að Qalla um embættismanninn heldur prívat- persónuna Hallvarð Einvarðsson. Hann, eins og aðrir, á hins vegar fortakslausan rétt á sínu einkalífi. Þegar ríkissjónvarpið smjattar á aðstæðum hans felst í því niðurlæging á honum og fjöl- skyldu hans. Sjónvarpið verður svo að eiga það við sjálft sig hvort það er farsæl ritstjórnar- stefna að gera uppislægjumyglur DV að helsta fréttaefni sínu. Málfrelsið er að sönnu heilagt. Það þýðir hins vegar ekki að fréttamenn með gúrkubragð í munninum hafi heilagan rétt til að hafa mannorðið af mönnum, bara af því að þeir liggja vel við höggi. -JSS/-SÁ Ossur Skarpheölns- son, ritstjóri Al- þýöublaðsins. Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekiö við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centmm.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.