Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Side 14
14
ÞRIÐJUDAGUR 15. JULI1997
Þaö hefur veriö mikið aö gera hjá Maríu og Helgu undanfarna daga.
vigt sem þær nota til að vigta fótin.
„Öll fötin í búðinni eru á þessu tilboði
nema gallabuxur. Fólk er að ganga
héðan út með 3-5 flíkur á ekki nema
þúsund krónur. Sumt er eitthvað sem
við áttum hjá okkur á lager og er
kannski pínulítið gallað en annað er
úr Spútnik við Hverfisgötu.
Spútnik er búin að vera héma í
mörg ár og er ekkert á leiðinni í
burtu. Viðtökurnar við þessu tilboði
hafa verið hreint út sagt frábærar og
það er búið að vera hérna eins og á
útihátíð."
Haustspá
Tilveran bað þær Maríu og Helgu
að spá fyrir um haust- og vetrartísk-
una.
„Það verður vítt að neðan og þröngt
að ofan til dæmis viðar buxur og
þröngur toppur. Skórnir verða svip-
aðir og þeir eru núna, klossaðir og
með þykkum botni. Buxur verða ann-
að hvort hólkvíðar eða þröngar og ei-
iítið útvíðar. Það kemur eitthvað nýtt
i yflrhöfnum, dúnúlpurnar „fara út“
og ullarkápur „koma inn“.
-ME
Á þúsund krónur
kílóið
Þetta eru allt notuð föt og ekkert
af þessu er minna en tíu ára
gamalt. Við kaupum öll fötin
- - erlendis frá en það eru risafyr-
irtæki erlendis sem versla einungis
með notuð fót,“ segir María Péturs-
dóttir, sem er afgreiðslustúlka í versl-
uninni Spútnik við Vesturgötuna.
Verslunin hefur tekið upp á þeirri
skemmtilegu nýjung að selja fót á þús-
und krónur kúóið. Á borðinu hjá
þeim stöllum, Maríu og Helgu, er lítil
árshátíð
Þegar Til-
v e r a n
kom í
heimsókn
var Svava Hrafn-
kelsdóttir að máta
glæsilegan sum-
arkjól. Svava
sagöist versla
af og til í
Spútnik þar
sem það væri
mun ódýrara
en annars
staðar. „Það
geta allir fund-
ið hérna eitt-
hvað við sitt
hæfi, bæði kon-
ur og karlar. Ég
versla yfirleitt í
ódýrum búðum og
mörkuðum enda
hafa fátækir náms-
menn ekki efni á
öðru.“ Kjóllinn sem
Svava er í vegur 350
grömm og því getur
hún bætt við
nokkrum flíkum til
að ná kílóinu, (fötin
eru aðeins seld í heil-
um kílóum). „Svo er
bara að drífa sig á
árshátíð," segir
Svava og hlær við.
Þessi glæsilegi sumar-
kjóll kostar aðeins 350
krónur.
Drífa sig á
Ragnheiður Gísladóttir er fastakúnni
í Spútnik. „Það eru fín föt hérna og
mjög ódýr. Ég á fullt af fótum héð-
an en ég ætla ekki að kaupa fótin sem ég
er að máta núna, buxumar em of víðar.
Ég á samt örugglega eftir að finna eitthvað
sem mig langar í,“ segir Ragnheiður og er
strax farin til að máta nýtt dress.
Fötin sem Ragnheiöur er að
móta vega 750 grömm.
Ys og þys
- á útsölum
Útsölumar eru í fullum gangi.
Landsmenn fylkjast í búðir og
kaupa alla mögulega og ómögulega
hluti. Sumir em búnar að bíða
lengi með að kaupa það sem þá
vantar og rjúka af stað um leið og
útsölumar byija. Aðrir líta inn í
búðimar þegar aðeins er farið að
hægja um og kaupa það sem þeim
líst á.
Það er hægt að spara stórfé með
þvi að versla á útsölum svo framar-
lega sem fólk fellur ekki í þá gildru
að kaupa eitthvert drasl bara af því
að það er ódýrt. Tilveran leit inn á
útsölurnar.
í Hagkaupi er útsalan í fullum gangi og mikiö um aö vera.
Ásta og Hermann fóru meö tveggja mánaöa gamlan son sinn, Benedikt Rúnar, á útsöluna í Ikea.
Ásta Benediktsdóttir og Hermann
Hermannsson eru ein af þeim fjöl-
mörgu fjölskyldum sem hafa ákveð-
ið að notfæra sér útsölur sumarsins.
Þau fóru ásamt tveggja mánaða
gömlum syni sínum, Benedikt Rún-
ari, á fyrsta dag útsölunnar í Ikea.
Ásta og Hermann segjast spara mik-
ið á því að versla á útsölum en í þetta
skipti séu þau aðallega að skoða.
„Við bíðum yfirleitt ekkert sérstak-
lega eftir útsölunum en þegar þær
koma er sjálfsagt að nýta sér þær.“
Það er fullvist að margir eiga eftir
að gera góð kaup á útsölum borgar-
innar og er um að gera að drífa sig
meðan eitthvað er eftir í búðunum.
-me