Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Qupperneq 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997 íþróttir unglinga Reykjavíkurmótið í knattspyrnu - 5. flokkur stelpna: Pabbi, hvað á ég eiginlega aö gera? - hrópaði Jóna litla i vörn Fylkis þegar andstæðingarnir voru aðgangsharðir „Pabbi, hvaö á ég eiginlega aö gera?“ hrópabi Jóna í Fylki þegar Valsstelpurnar sóttu hvaö stífast. Arnar Sigurösson, TFK, hefur nóg aö gera f tennis þessa dagana Tennis: Arnar og Davíð á ferðinni Arnar Sigurðsson, hin unga tennissljama í TFK, fékk styrk til keppnisferöalaga frá alþjóöa tennissambandinu vegna góðs árangurs í mótum í Moldavíu og Wales. Dagskrá hans er eftirfar- andi. 6.-13. júlí keppti hann í Danmörku en þar hefur hann titil að veija. 14.-20. júlí í Birkeröd í Dan- mörku á sterku alþjóðlegu móti. 21.-26. júlí keppir hann ásamt Davíð Halldórssyni í London í EM unglinga u-16 ára. 27.-31. júlí ásamt Davíð Hall- dórssyni í EM landsliða í Boumemouth á Englandi. 4.-10. ágúst keppa Amar og Davíö á firnasterku móti í Bad- en-Baden í Þýskalandi sem gefur punkta á heimslistann. 11.-16. ágúst keppa þeir fél- agar ásamt öðrum íslenskum spilurum á íslandsmótinu á Vík- ingsvelli. 19.-28. ágúst keppir Arnar á mótum í Grikklandi og Egypta- landi sem gefa stig á heims- listann. DV mun birta fregnir af árangri íslensku spilaranna. Re^javíkurmót í knattspyrnu stelpna í 6. flokki fór fram á Fylkis- velli fyrir skömmu. Það var að frumkvæði Fylkis sem þetta mót fór fram og með leyfi KRR og að sjálfsögðu voru verðlaun veitt. Það var magnað hvað stelpurnar stóðu sig vel þegar haft er í huga stuttur fyrirvari og ekki er langt síðan þessar stelpur byrjuðu að æfa fótbolta. Keppt var í A- og B-liðum. Keppni A-liða íjölnir-Valur.......................7-1 Ejölnir-Fylkir......................2-1 Valur-Fylkir........................3-0 Lokastaöan: 1. Fjölnir 2 2 0 0 9-2 6 2. Valur 2 1 0 0 4-7 3 3. Fylkir 2 0 0 2 2-4 0 Umsjón Halldór Halldðrsson Keppni B-liða Valur-íjölnir.......................2-0 Fylkir-Fjölnir......................1-0 Fylkir-Valur........................2-0 Lokastaðan: Valsstelpurnar voru mjög ánægöar meb árangurinn en stelpurnar náöu ööru sætinu, bæöi f A- og B-liði. Viö getum þó miklu meira, hrópuöu þær - og auövitar geta þær þaö. Þaö sama má líka segja um hinar stelpurnar - en þaö er bara ekki alltaf hægt aö geta meira f fótboltanum. Þjálfari stelpnanna er Elísabet Gunnarsdóttir. DV-myndlr Hson 1. Fylkir 2 2 0 0 3-0 6 2. Valur 2 10 12-2 3 3. Fjölnir 2 0 0 2 0-3 0 í fyrsta skipti „Þetta er í fyrsta skipti sem við hjá Fylki teflum fram svo ungun stelpum í fótbolta og reyndar í fyrsta sinn sem 6. flokkur stelpna keppir í Reykjavíkurmóti. Við hjá Fylki höfðum frumkvæðið og ég held að mér sé óhætt að segja að það hafi tekist vel til,“ sagði Ólafur K. Ólafs, þjálfari Fylkisstelpnanna. Pabbi, hvað á ég að gera? Leikur Vals og Fylkis í keppni B- liða var mjög spennandi og skemmtilegur. Fylkir sigraði að vísu 2-0. I nokkur skipti var Jóna (4), .sem átti góðan leik í vöm Fylkis, oft í vandræðum með Valsstelpumar sem beittu skyndi- sóknum um tíma og voru mjög grimmar. í eitt skiptið var Jónu alveg nóg boðið og kallaði hástöfum: „Pabbi, hvað á ég eiginlega að gera?“ Þetta getur líka komið fyrir bestu leikmenn. Besta liðiö í bænum eða á öllu landinu Valsstelpumar voru mjög ánægð- ar með annað sætið í keppni A-liða og sögðust vera miklu betri en þær hefðu sýnt í mótinu. Svo sagðist Magga litla hafa spilað með Sindra og helling af öðrum liðum og hún væri að reyna að finna sig núna. „Við æfum mjög vel og aðstaðan er góð og líka þjálfarinn, hún Sunna, hún er sko frábær," sögðu Valsstelpumar einum rómi. Fjölnir er besta félagið Stelpurnar í Fjölni úr Grafarvog- inum sigmöu með nokkrum yfir- burðum í keppni A-liða og unnu í báðum leikjunum. í myndatöku af hópnum var eng- inn vafi á því hvaða félag væri best, auðvitað íjölnir. Stelpumar sýndu mikið öryggi - þó var leikurinn gegn Fylki mjög spennandi og ógnaði Fylkir mjög um tíma. En Fjölnisstelpurnar sýndu þrautseigju og börðust vel allan timann og náðu að sigra, 2-1, og vom þaö nokkuð réttlát úrslit. Frá hinum skemmtilega leik Fjölnis og Fylkis í keppni A-liöa. Eins og sést greinilega eru stelpurnar vel æföar. Sjáiö þiö bara hvaö þær bera sig vel. Fjölnir vann, 2-1, f skemmtilegum og spennandi leik. Fylkir tefldi fram sterkum liöum f Reykjavfkurmótinu í 6. flokki stelpna eins og alltaf f öllum mótum og uröu sterlpurnar meistarar í keppni B-liöa. Þjálfari þeirra er íþróttaunnandinn mikli, Oiafur K. Ólafs. Fjölnisstelpurnar stóöu sig mjög vel og unnu f keppni A-liöa. Stelpurnar unnu alla leiki sfna í mótinu sem er glæsilegur árangur. Þjálfari þeirra er Guöbjörg Heiöa Guömundsdóttir. „Hún er frábær," hrópuöu allar f kór.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.