Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 15.07.1997, Qupperneq 30
34 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 1997 Afmæli__________________ Kjartan Magnússon Kjartan Magnússon, fyrrv. kaup- maður, Lindargötu 11, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Kjártan fæddist í Ólafsvik en ólst upp á Hellissandi fyrstu árin. Hann flutti ungur með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur þar sem hann ólst upp í stórum systkinahópi í Vesturbæn- um, lengst af við Lágholtsveginn á Bráðræðisholtinu. Hann var í Mið- bæjarskólanum og stundaði síðar nám við Kvöldskóla KFUM. Faðir Kjartans fórst með togaran- um Jóni forseta 1928 og fór Kjartan því ungur að vinna fyrir heimilinu ásamt móður sinni og elstu systkin- unum. Hann hóf ungur störf hjá Dagbjarti Sigurðssyni kaupmanni við Vesturgötima og víðar, var þar fyrst sendisveinn, stimdað síðan af- greiðslustörf og var svo verslunar- stjóri við verslun Dagbjarts við Rán- argötu. Kjartan festi kaup á vörubíl ásamt öðrum og ók honum eitt sum- ar við gerð flugvallarins í Vatns- mýrinni, stundaði leigubílaútgerð ásamt Þórði Péturssyni og ók sjálf- ur leigubíl um skeið. Hann starfaði við verslunina Höfn við Vesturgötu í nokkur ár eða þar til verslunin hætti og í stuttan tíma við Heild- verslunina Eddu. Kjartan stofnaði ásamt Jason Sig- urðssyni kjöt- og nýlendu- vöruverslunina Jason og Co að Efstasundi 27 í Reykjavík árið 1947. Starfsræktu þeir verslunina saman til 1959 er Kjartan keypti hlut Jasonar í .fyrirtækinu. Hann rak síðan einn verslunina Kjartansbúð til 1984. Kjartan æfði og keppti með KR á sínum yngri árum, í knattspymu, handbolta, í hlaupumi og starfaði með skíðadeild KR við byggingu gamla KR-skálans í Skálafelli. Hann var einn af stofnendum IMA, inn- kaupasambands matvörukaup- manna, var í fulltrúaráði Sjálfstæð- isflokksins um árabil og félagi í Oddfellowreglunni. Fjölskylda Kjartan kvæntist 16.10. 1943 Guð- rúnu H. Vilhjálmsdóttur, f. 3.11. 1922, húsmóður og kennar. Hún er dóttir Vilhjálms Ámasonar, f. 16.10. 1873, d. 1956, húsasmíðameistara í Reykjavík, og s.k.h., Þóreyjar Jónsdóttur, f. 26.6. 1980, d. 1961, húsmóður. Börn Kjartans og Guð- rúnar era Vilhjálmur Þór, f. 28.12. 1943, verkfræðingur og kennari í Reykjavík, kvæntim Guðrúnu Hannesdóttur, forstöðumanni Starfsþjálfunar fatl- aðra; Magnús Rúnar, f. 7.6. 1946, leigubílstjóri í Reykjavík, en kona hans er Jóhanna Jónsdóttir, þroska- þjálfi við Bjarkarás; Anna, f. 4.11. 1949, starfsmaður við Landsbank- ann, gift Sigurði 0. Péturssyni bankastarfsmanni; Kjartan Gunnar, f. 27.6. 1952, blaðamaður við DV í Reykjavík, kvæntur Mörtu Guöjóns- dóttur kennara; Ingibjörg Ósk, f. 17.2. 1957, leikskólakennari í Reykjavík, gift Garðari Mýrdal, eðl- isfræðingi við Landspítalann í Reykjavík; Birgir, f. 16.3. 1962, vél- virki í Reykjavík; Sveinn Sigurður, f. 6.7. 1967, framkvæmdastjóri í Reykjavík, en kona hans er Stella Sæmundsdóttir kaupmaöur. Kjartan og Guðrún eiga þrettán bamabörn og eitt bamabarnabarn. Systkini Kjartans: Jóhannes Magnússon, f. 19.7. 1910, fyrrv. kaupmaður í Reykjavík; Hrefna Magnúsdóttir, f. 4.7. 1915, nú látin, húsmóðir í Reykjavík; Rósbjörg Beck Magnúsdóttir, f. 22.7. 1919, nú látin, húsmóðir í Reykjavík; Magn- ús Gunnar Magnússon, f. 3.10. 1923, nú látinn, húsasmiður í Reykjavík og á Seltjamarnesi; Bjami Magnús- spm, f. 5.7. 1926, fyrrv. yfirvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Kjartans voru Magnús Sigurðsson, f. 12.1. 1885, d. 28.2. 1928, sjómaður á Hellissandi og í Reykja- vík, og k.h., Guðrún Jóhannesdóttir, f. 16.2. 1890, d. 6.12.1968, húsmóðir á Hellissandi og í Reykjavík. Kjartan mun halda upp á afmælið með fjölskyldu sinni. Kjartan Magnússon. Andlát Jóakim Hjartarson Jóakim Hjartarson, skipstjóri frá Hnífsdal, til heimilis að Hæöargarði 29, Reykjavík, lést í Reykjavik þann 5.7. sí. Útfór hans fór fram frá Bústaðakirkju í gær. Starfsferill Jóakim fæddist í Hnífsdal 10.11. 1919 og átti þar heima til 1994 er hann flutti til Reykjavíkur. Hann stundaði nám við Vélskóla íslands í Reykjavík 1939-40 og Stýrimanna- skóla íslands 1942-43. Jóakim hóf sjómennsku um ferm- ingu. Hann var skipstjóri á ýmsum bátum á árunum 1943-67, var síðan verkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal en þar starfaði hann til 1993. Jóakim var einn af stofnendum Hraðfrystihússins hf. í Hnífsdal 1941, var varamaður í stjórn frá 1951 og sat í aðalstjórn 1967-94. Hann var einn af stofnendum Miðfells hf. 1964 sem gerir út togarann Pál Pálsson ÍS-102 og var þar stjómarmaður frá upphafi til 1994, lengst af stjómar- formaður, sat í stjóm Mjölvinnsl- unnar hf. í Hnífsdal 1970-94, í stjóm ísfangs hf. á ísafirði 1982-94 og var einn af stofnendum Slysavamafé- lagsins í Hnífsdal 1934. Fjölskylda Jóakim kvæntist 9.11. 1947 Ólaflu Guðfinnu Alfonsdóttur, f. 17.5. 1924, húsmóður. Hún er dóttir Alfons Gíslasonar, hreppstjóra og sím- stöðvarstjóra í Hnífsdal, og Helgu Sigurðardóttur húsmóöur. Böm Jóakims og Ólafiu eru Gréta, f. 4.9. 1948, sérkennari og ráðgjafi við skóla heymarskertra í Ósló, gift Odd Trygve Marvel hag- verkfræðingi; Helga Sigriður, f. 20.10. 1949, skrifstofumaður hjá Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal, gift Sigurði Borgari Þórðarsyni, vél- stjóra og starfsmanni hjá Orkubúi Vestfjarða, og eiga þau þrjú böm, Helgu, Halldór og Hildi; Jóakim Gunnar, f. 28.5. 1952, viðskiptafræð- ingur og framkvæmdastjóri Síldar- útvegsnefndar, kvæntur Sólveigu Þórhallsdóttur, hjúkrun- arfræðingi á Heilsu- gæslustöðinni á Sel- tjamamesi, og eiga þau þrjú börn, Dóru, Grétu og Jóakim Þór; Kristján Guðmundur, f. 19.2.1958, sjávarútvegsfræðingur, framleiðslustjóri og stjórnarmaður í Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal, kvæntur Sig- rúnu Sigvaldadóttur, meinatækni við Sjúkra- húsið á ísafirði, og eiga þau þijú böm, Gísla, Ólafíu og Ingi- björgu; Aðalbjörg, f. 14.11. 1959, við- skiptafræðingur og fjármálastjóri Kjötumboðsins hf. í Reykjavík, og á hún eina dóttur, Heiðu. Systkin Jóakims: Margrét Elisa- bet, f. 27.4. 1917, ekkja eftir Bjarna Ingimarsson skipstjóra; Kristjana, f. 1.7. 1918, gift Karli Kristjáni Sig- urðssyni skipstjóra; Ingibjörg Guð- ríður, f. 20.9. 1923, var gift Friðrik Maríassyni sjómanni sem lést 1966. Hálfsystkin Jóakims voru Helga, f. 11.8. 1904, d. 10.3. 1990, var gift Halldóri Ingi- mafssyni skipstjóra; Sig- ríður, f. 12.4. 1906, d. 9.9. 1986, var gift Snæbimi Tryggva Ólafssyni skip- stjóra; Jóakim, f. 5.4. 1907, d. 11.4. 1913; Guðrún, f. 21.5. 1908, d. 1.10. 1941, var gift Karli Ingimarssyni; Páll, f. 26.11. 1910, d. 5.1. 1911; Aðalbjörg, f. 22.1. 1912, ekkja eftir Geir Ólafsson loftskeytamann; Jóhanna Pálína, f. 22.2.1913, d. 16.11. 1913; María, f. 7.5. 1914, ekkja eftir Guðjón Guðjónsson kaupmann sem lést 1986. Foreldrar Jóakims vora Hjörtur Guðmundsson, f. 2.2. 1891, d. 4.3. 1967, formaður í Hnífsdal, og Mar- grét Kristjana Þorsteinsdóttir, f. 9.4. 1889, d. 2.8. 1958, húsmóðir. Margrét var ekkja Jóakims Pálssonar, f. 16.7. 1879, d. 17.12.1914, formanns í Hnífs- dal. Joakim Hjartarson. Brúðkaup Gefin voru saman þann 24. apríl f Digra- neskirkju af sr. Gunnari Sigurjónssyni Kartfn Lillý Sveinsdóttir og Kristinn Ragnarsson. Heimili þeirra er aö Gnipu- heiöi 11, Kópavogi. LJósm. Ljósmst. Mynd, Hafnarfiröi. Þann 3. maf voru gefin saman I Lágafells- kirkju af sr. Sigrföi Guömundsdóttur Eva Rakel Helgadóttir og Höskuldur Ólafs- son. Heimlli þeirra er aö Hraunbæ 188, Reykjavfk. Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long. Gefin voru saman þann 3. maf f Kópa- vogskirkju af sr. Karli Matthfassyni Úr- súla Ástríöur Auöunsdóttir og Jóhann Karl Lúövfksson. Heimill þeirra er aö Fff- urima 26, Reykjavfk. Ljósm. Ljósmst. Mynd, Hafnarfiröi. Pann 17. maf voru gefin saman f Akureyr- arkirkju, af séra Svavari Alfreð Jónssyni, Elfsabet Siguröardóttir og Jón Valdi- marsson. Heimili þeirra er aö Munkaþver- árstræti 15, Akureyri. Ljósm. Noröurmynd - Ásgrfmur. Þann 1. aprfl voru gefin saman f Hafnar- fjaröarkirkju af sr. Karli Matthfassyni Arn- heiöur Hafsteinsdóttir og Siguröur V. Sig- urösson. Heimili þeirra er aö Vindási 4, Reykjavfk. Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long. Þann 20. júlf 1996 voru gefin saman f Dómkirkjunni, af séra Einari Eyjólfssyni, Ásta Margrét Guömundsdóttir og Þórlr Kristinsson. Heimlli þeirra er f Reykjavfk. Ljósm. Ljósmyndarinn - Jóhannes Long. Þann 17. maf voru gefin saman f Kópa- vogskirkju af sr. Ægi Sigurgeirssyni Helga Gfsladóttir og Bjarni Bjarnason. Heimili þeirra er aö Asvöllum 11, Grinda- vfk. Ljósm. Ljósmyndarinn - Lára Long. Þann 17. maf voru gefln saman f Háteigs- kirkju, af séra Óskari Inga Ingasyni, Odd- ný Arnadóttlr og Guömar Guömundsson. Heimlli þeirra er aö Mávahlfö 13, Reykja- vfk. Ljósm. Svipmyndir - Frföur. DV Til hamingju með afmælið 15. júlí 85 ára Vilborg Helgadóttir, Hrafhistu í Hafnarfírði. 75 ára Ragnar Bergsveinsson, Ásholti 18, Reykjavík. Þórður Snjólfsson, Markarlandi 3, Djúpavogshreppi. Guðborg Kristjánsdóttir, Hringbraut 99, Reykjavik. 70 ára Karl Kristjánsson, Skaftahlið 8, Reykjavík. 60 ára Vilhelm Guðmundsson, Garðbraut 86, Garði. Katrin Sigurðardóttir, Hólagötu 7, Njarðvík. Þórhildur Skúladóttir, Miðtúni 16, Seyöisfirði. Jón Rafn Einarsson, Hringbraut 35, Hafnarfirði. Þorsteinn Sigurðsson, Mýrarbraut 4, Blönduósi. 50 ára Guðrún Helga Friðriksdóttir, Litluhlíð 6 B, Akureyri. Einar Jónsson, Borgarvegi 26, Njarðvík. Sólrún Björnsdóttir, Víðilundi 5, Garöabæ. Hildur Kjartansdóttir, Tjamargötu 44, Reykjavik. Þorgrímur Benjamínsson, Hjallabrekku 5, Ólafsvík. 40 ára Margrét Rósa Einarsdóttir, Ljósheimum 14 A, Reykjavík. Símon Már Ólafsson, Lækjarbergi 17, Hafnarfirði. Kristján Þór Júlíusson, Brautarholti 14, ísafirði. Helgi Pétursson, Hlíðarbyggð 28, Garðabæ. Jófríður Valgarðsdóttir, Njálsgötu 108, Reykjavík. Bergþóra Vigdís Ingimarsdóttir, Stekkjarhvammi 72, Hafnarfirði. Ingibjörg Jóna Gestsdóttir, Einigrund 19, Akranesi. Ingólfur Helgi Tryggvason, Jakaseli 16, Reykjavík. Sigurður Hallgrimur Jónsson, Mælivöllum, Jökuldalshreppi. Þann 10. maf voru gefln saman f Hafnar- fjaröarkirkju, af séra Siguröi Helga Guö- mundssyni, Brynhildur Ingibjörg Hauks- dóttir og Guömundur Ingvar Sveinsson. Heimili þeirra er aö Brautarlandi 19, Reykjavfk. Ljósm. Mynd, Hafnarfiröi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.