Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997
Fréttir
Gordon Stockdale og Hörður Þormóðsson - tvífarar og tæknifræðingar:
- spurði eiginkona Harðar þegar hún sá fyrst ljósmynd af Gordon
„Ég sá um leið þegar hann kom
inn um dyrnar hvað hann var líkur
pabba. Við skiptumst á ljósmynd-
um. Hann fór með mynd af pabba og
sýndi eiginkonu sinni. Hún sá ekki
að þetta væri pabbi minn og spurði
hvar sinn maður hefði fengið þessa
skyrtu,“ sagði Priscilla Bjamason,
enskukennari í Tómstundaskól-
anum, sem í vikunni tókst að koma
saman tvíförum sem eiga margt
annað sameiginlegt en að vera ótrú-
lega líkir í útliti. Annars vegar föð-
ur sínum, Gordon Stockdale frá
Kanilworth í Englandi, og hins veg-
ar Herði Þormóðssyni, tæknifræð-
ingi í Reykjavík, sem hún kenndi á
enskunámskeiði sl. vetur. Þar
hófust kynni þeirra.
Hún fékk foreldra sína til að
koma til íslands svo pabbi hennar
gæti hitt íslenskan tvífara sinn. Þau
höfðu ráðgert að fara i sumarfrí á
suðlægari slóðir en breyttu ferða-
áætluninni. Tvífararnir hittust á
heimili Harðar í vikunni. Þá kom í
ljós að þeir voru með svipaða
menntun, báðir tæknifræðingar.
Gordon lengstum starfandi hjá Rolls
Royce í Englandi og Hörður hjá
Scania á íslandi. Báðir hafa þeir
óstjómlegan áhuga á garðyrkju og
eru einstaklega vinsælir hjá barna-
börnunum segir Priscilla. Sjö ár em
á milli þeirra, Gordon er 74 ára og
Hörður að verða 67 ára.
Gordon Stockdale, lengst til vinstri, og Höröur Þormóösson, ásamt eiginkonum sínum, Beatrice Stockdale, önnur
frá hægri, og Inger Pedersen. Þeir eru svo líkir aö konurnar ruglast á þeim!
Eins hreyfingar
„Þetta gekk mjög vel. Oft eiga
ókunnugir erfitt með að kynnast en
það var eins og þeir hefðu þekkst
frá barnæsku. Ahugamálin sameig-
inleg auk þess sem Hörður á son í
Bandaríkjunum og ég er búsett hér
á íslandi. Augu þeirra og gleraugu
DV-mynd S
era eins, handahreyfmgar og ég veit
ekki hvað,“ sagði Priscilla.
Dóttir Harðar, Anna, hafði svip-
aöa sögu að segja en hún hitti for-
eldra Priscillu í vikunni. Þeir væru
ótrúlega líkir.
„Þegar ég horfði í augun á Gor-
don fannst mér þetta vera pabbi.
Sama upplifunin var að tala við
hann,“ sagði Anna.
Þetta era ekki einu tilviljanimar
því daginn sem þau hittust sá Pris-
cilla imga dóttur Önnu sem sama
dag byrjaði hjá henni á enskunám-
skeiði. Leiðir fjölskyldnanna liggja
því víða saman.
Konurnar ringlaöar
Hörður sagði við DV að það hefði
verið sérlega ánægjulegt að hitta
Gordon. Konurnar þeirra hefðu
einnig orðið eilitið ringlaðar!
„Kona Gordons sagði reyndar að
ég væri ekki aðeins líkur honum
heldur nákvæmlega eins og einn
frændi hans. Þetta er ekkert annað
en hrein tilviljun því ég get fullyrt
að foreldrar okkar hefðu aldrei get-
að ruglað saman reytum. Mínir for-
eldrar fóru aldrei til útlanda nema í
smáheimsókn til min þegar ég bjó í
Óðinsvéum í Danmörku," sagði
Hörður.
Gordon hefur boðið Herði og eig-
inkonu hans, Inger Pedersen Þor-
móðsson, í heimsókn til Englands
og sagði Hörður aldrei að vita nema
að þau tækju boðinu. Þau væru
mikið farin að ferðast á efri árum.
-bjb
Hvar fékkstu þessa skyrtu?
Sturlungaöldin í V-Landeyjum:
Sit ekki undir þessu lengur
- segir Hjörtur Hjartarson, hreppsnefndarmaður í V-Landeyjum
„Það eru takmörk fyrir því hvað
hægt er að þola af tilefnislausum
dylgjum og óhróðri fyrir þaö eitt að
fylgja sannfæringu sinni, sannfær-
ingu sem hafnar ofríki, árásum og
dylgjum á einstaklinga," segir
Hjörtur Hjartarson um samskipti
sín við Eggert Haukdal, oddvita V-
Landeyja, og um starfshætti hins
fyrmefnda í bréfi því sem hann rit-
aði sveitungum sínum fyrr í sumar
og sagt er frá á baksíðu DV I dag.
Bréfmu fylgja nokkur skjöl, svo
sem afrit af bréfum til og frá félags-
málaráöuneytinu til hreppsnefndar-
innar, einstakra sveitarstjórnar-
manna og oddvita, kaflar úr fundar-
gerðum hreppsnefndarinnar og bók-
anir einstakra sveitarstjórnar-
manna, einkum þó oddvitans, Egg-
erts Haukdals.
Hjörtur segir að eftir að hann
tók sæti í hreppsnefndinni haustið
1995 hafi hann fljótt komist að því
að Eggert Haukdal hafl þar farið
sínu fram og til að halda friðinn
hafi allir nefndarmenn og sveit-
ungar orðið að hafa sömu skoðun
og oddvitinn, Eggert, eða í það
minnsta að hafa hljótt um hana
væri hún önnur, annars hafi menn
haft verra af.
Hann segir að öllum tillögum sem
Eggert séu ekki þóknanlegar hafi
hann svarað með löngum bókunum
í fundargerðum hreppsnefndarinn-
ar. Bókanir þessar séu aðallega
útúrsnúningar og jafnvel persónu-
legar svívirðingar. Þá fari hann
nánast sínu fram þvert ofan í sam-
þykktir hreppsnefndarinnar og færi
bókhald sveitarsjóðs að geöþótta. í
það vanti því veigamikla þætti,
bæði stór lán og ábyrgðir.
Eggert Haukdal segir að í stórum
dráttum eigi ásakanir sem koma
fram í bréfi Hjartar ekki við rök að
styðjast en endurskoðaðir reikning-
ar hreppsins liggi fyrir frá sér í 27.
sinn án athugasemda. Engu að síð-
ur sé búið í bráðum 20 ár að kæra
sig árlega fyrir ranga reikninga.
Hann sé því rólegur yfir þessu sem
fyrr þótt einhverjir kærusjúkir
menn finni sér eitthvað til dundurs.
Eggert segir aö sjálfur sé Hjörtur
í hreppsnefnd og hafi því getað gert
sínar athugasemdir þegar reikning-
ar hreppsins voru afgreiddir. „Hann
var að vísu eitthvað að mjálma en
skrifaði upp á reikningana sem
færðir eru samkvæmt formi Hag-
stofunnar. í þessu formi eru línur
fyrir einstaka hreppsnefndarmenn
V-Landeyjadeilur 1997
9. janúar 1997: Haraldur JOIfusson hreppstjóri kærir Eggert
Haukdal oddvita til félagsmálaráöuneytisins fyrir ólýöræöisleg
vinnubrögö.
24. febrúar 1997: Eggert Haukdal oddviti svarar ráöuneytinu.
Segir sveitina sitja uppi meö „kærendur* sem aörar sveitir hafi ekki.
V-Landeyjar veröi einar aö hafa sinn djöful aö draga. .
14. mars 1997: Ráöuneytiö óskar
upplýsinga frá Hirti Hjartarsyni hrepps-
nefndarmanni um boöun hreppsnefndar-
funda.
4. Júní 1997: Eggert Haukdal oddviti
leggur fram bókun á hreppsnefndar-
fundi og gagnrýnir gagnrýnendur sína
harölega.
8. júní 1997: Hjörtur Hjartarson
leggur spurningallsta fyrir Eggert. Skrifar
sveitungum bréf í framhaldinu og lýsir
samskiptum viö oddvitann.
ef þeir vilja koma fram athugasemd- asta orð umfram nafnið sitt,“ segir
um. Hann skrifaði þar ekki eitt ein- Eggert Haukdal. -SÁ
Fangi skar sjálfan sig
- skýringar óljósar, segir fangelsisstjóri
Fangi á Litla-Hrauni skaðaði
sjálfan sig nýlega með því að skera
sig á handlegg. Samkvæmt upplýs-
ingum DV hefur sami fangi gert
slíkt hið sama áður. Viðeigandi
læknisráðstafanir voru gerðar en
fanginn var ekki talinn í lífshættu.
Kristján Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Litla-Hrauns, sagði
í samtali við DV að erfitt væri að
segja til um ástæðu þess að maður-
inn skaðaði sjálfan sig. Hann
kvaðst aðspuröur ekki getað svar-
að því hvort viökomandi fangi
hefði verið að mótmæla agaviður-
lögum í síðara skiptið - í fyrra
skiptið hefði hins vegar ekki verið
um slíkt að ræða.
Hvað varðaði sjálfsvíg sagði
Kristján að slíkt hefði ekki gerst í
fangelsinu um margra ára skeið -
sennilega væru um tveir áratugir
síðan. Ástandiö í fangelsinu hefði
reyndar verið með betra móti síð-
ustu misserin. Kristján sagði hins
vegar að fangar hefðu einstöku
sinnum skaðað sjálfa sig. Þeir
hefðu þá ekki verið hætt komnir
eða ósjálfbjarga.
„Þeir hafa þá venjulega sjálfir
látið vita," sagði Kristján.
-Ótt
Stuttar fréttir
Hálfur kerskáli
Hálfur nýi kerskálinn við ál-
verið í Straumsvík er kominn í
notkun. Búið er að gangsetja 80
af þeim 160 kerum sem þar eru.
Viðskiptablaðið segir frá.
Aðalverktakar
íslenskir aðalverktakar stefiia
á almennan hlutabréfamarkað í
haust, að sögn Jóns Sveinssonar
stjórnarformanns í Viðskipta-
blaðinu.
Fjórföld gjaldtaka
Líklegt þykir að gjaldtaka af
nemendum Háskóla íslands fjór-
faldist á næstunni og að
kennslugjöld yerði innheimt fyr-
ir aldamót. RÚV sagði frá.
Ólæröir kennarar
Dæmi eru um að fólk með
grunnskólapróf hafi verið ráðið
til kennslu í grunnskólum næsta
vetur. Mikill hörgull er á mennt-
uðum kennurmn til starfa. RÚV
sagði frá.
Verri afkoma
Hálfsársuppgjör Flugleiða
sýnir um 170 milljónum króna
verri afkomu en á sama tíma í
fyrra. Þó hefur farþegum félags-
ins fjölgað um 21% milli ára.
Stöð 2 sagöi frá.
Heitasti dagurinn
Dagurinn í gær var heitasti
dagur sumarsins og sunnan-
lands var víða 25 stiga hiti. Loft-
hiti í Reykjavík fór í 18 stig. Út-
lit er fyrir svipað veður í dag.
Prestur í Grafarvogi
Anna Sigríður Páldsóttir var
kjörin aðstoðarprestur í Grafar-
vogi í gærkvöldi með 15 atkvæð-
um.
Þota í fraktflug
íslandsflug tekur Boeing 727-
200 þotu í notkun á vöruflutn-
ingaleið félagsins milli Keflavík-
ur- Brussel og Keflavíkur þann
1. október. Flogið verður á þess-
ari leið fimm sinnum í viku.
Morgunblaðið segir frá. -SÁ