Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997 Afmæli Unnur Níelsína Jóhannsdóttir Unnur Níelsína Jóhannsdóttir, Þiljuvöllum 35, Neskaupstað, er sjö- tug I dag. Starfsferill Unnur fæddist á Búðareyri við Fáskrúðsfjörð en flutti vikugömul með móður sinni að Gulsteinseyri á Seyðisfirði. Ársgömul fór hún að Brekku í Mjóafirði. Síðan stofnuðu Sveinbjörg móðir hennar og Gísli Vilhjálmsson frá Brekku nýbýli að Brún í Brekkulandi. Þar ólst Unnur upp og gekk í bamaskóla hjá Vil- hjálmi Hjálmarssyni í Mjóafirði. Hún stundaði nám við Gagnfræða- skóla Neskaupsstaðar 1941-44 og var í Húsmæðraskólanum á Hall- ormsstað 1946-48. Fjölskylda Unnur giftist 13.8. 1948 Einari G. Guðmundssyni, f. 22.11. 1919, skip- stjóra í Neskaupstað. Hann var son- ur Guðmundar Grímssonar, bónda frá Ásatúni í Biskupstungum og k.h., Sesselju Sveinsdóttur, frá Barðsnesi, Norðfirði. Böm Unnar og Einars em: Sveinbjörg, f. 15.10. 1949, hjúkmnarfræðingur í Kópavogi en hennar maður er Hilmar Guð- bjömsson framkvæmda- stjóri og eiga þau þrjár dætur, Unni, en sonur hennar er Hilmar Jökull, Sigrúnu Heiðu, en sam- býlismaður hennar er Stefán Felixson vélstjóri og eiga þau soninn Heiðar Þór, og Elínu, en sambýl- ismaður hennar er Rúnar Felixson, bakari; Sveinn Guðmund- ur, f. 11.1.1952, verktaki á Neskaup- stað en kona hans er Stefanía Stein- dórsdóttir forstjóri og eiga þau tvö böm: Guðrúnu Jónínu, sem á son- inn Svein Má og Einar Svein, vöm- bílstjóra; Sólveig Sesselja, 11.1.1952, bókhaldari á Neskaupstaö en henn- ar maður er Atli Dennis Wilson út- gerðarmaður og eiga þau fjögur böm: Guðrúnu Lindu, en sambýlis- maður hennar er Sverrir Guðmundsson og þau eiga tvær dætur, Emblu Dís og Sólveigu, Unni Ásu, en sambýlismaður hennar er Pétur Jóhann- esson, Ómar Dennis og Guðmund Karl.: Gísli Svan, f. 19.5. 1955, útgerð- arstjóri, Sauðárkróki. Kona hans er Bryndís Þráinsdóttir kennari og eiga þau Einar Svan, Þrá- in Svan, Áslaugu Sóllilju og Bryndísi Lilju: Vil- berg, f. 11.3. 1957, bóndi við Neskaupstað en sambýliskona hans er Arndís Sigurðardóttir sem á Hafþór og Heldu Rós, en Vilberg á eina dóttur, Liiju Dögg, með Eygló Antonsdóttur, þau skildu, en sam- býlismaður Lilju er Rúnar Erlings- son, auk þess sem Vilberg á þijár dætur með Þórhildi Freysdóttur, Svanbjörgu, Margréti Ósk og Kötlu Hólm, þau skildu; Níels, 27.2. 1962, mannfræðingur á Akureyri en kona hans er Oddný Snorradóttir raf- magnsverkfræðingur og eiga þau þrjú börn, Egil Þór, Snorra Pétur og Hrefhu Rut. Bróðir Unnar frá móður em Vil- hjálmur H. Gíslason en kona hans er Nanna Gunnarsdóttir og eru böm þeirra Gísli, tannlæknir, Gunnar Ás, augnlæknir og Nanna Dögg, háskólanemi. Systir Unnar frá móður er Svan- björg P. Gísladóttir. Hún á tvö böm: Kristínu, dóttir hennar er Svanhild- ur og Gísla Pál stýrimann. Einnig á Unnur þrjár systur frá foður: Emu, Helgu og Auðbjörgu. /Alsystkini Unnar voru Níels og Unnur. Þau dóu bæði ung. Foreldrar Unnar vom Jóhann Benedikt Jónsson, skipstjóri, Fá- skrúðsfirði og Sveinbjörg Jónina Guðmundsdóttir, Seyöisflrði. Þau skildu þegar Unnur var nýfædd og þær mæðgur fluttu til Seyðisfjarðar. Unnur verður að heiman. Unnur Níelsína Jóhannsdóttir. Hákonía Jónína Pálsdóttir Hákonía Jóhanna Pálsdóttir húsmóðir, Stóra-Laugardal, Tálknafirði varð niræð þann 4.8. sl. í grein sem birtist um hana þann 1.8. sl. brengluðust starfsheiti á bömum og tengdabömum auk þess sem ekki var farið rétt með Qölda bamabama. Greinin er þvi birt hér leiðrétt og viðkom- andi beðnir velvirðingar á mistökunum Starfsferill Hákonia fæddist á Hamri á Baröaströnd og ólst þar upp til tíu ára aldurs en flutti þá með Jó- hönnu, systur sinni, og manni hennar, Kristjáni Kristóferssyni, að Höfðadal í Tálknafirði. Ári seinna fluttu þau aö Litla-Laugardal í sömu sveit þar sem hún ólst sið- an upp við almenn sveita- störf. Um tvítugt var hún í vist hjá Ólafi Jóhann- essyni og k.h., Áróru á Patreksfirði. Fjölskylda Hákonía giftist 1929 Guð- laugi Guðmundi Guð- mundssyni, f. 29.1. 1900, d. 28.2.1988, bónda að Stóra- Laugardal. Foreldrar hans voru Guðmundur Guð- mundsson, bóndi í Stóra- Laugardal, og k.h., Ambjargar Jón- atansdóttur húsfreyju. Hákonía og Guðlaugur hófu bú- skap að Stóra-Laugardal þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Þau hættu búskap upp úr 1985 en dvöldu á sumrin í Stóra-Laugardal en á vet- uma fyrst í Þórshamri og síðan að Móbergi. Eftir lát Guðlaugs fluttist Hákonía til Margrétar dóttur sinnar og hefur verið þar síðan. Hákoníu og Guðlaugi varð átta bama auðið og em sjö þeirra á lífi. Afkomendur þeirra era nú orðnir hundrað og fjórtán talsins. Börn Hákoníu og Guðlaugs era Arnbjörg, f. 17.6. 1930, veitingamað- ur á Patreksffrði, maki Haraldur Aðalsteinsson, f. 14.4. 1927, d. 27.10. 1992, þau eignuðust tólf böm; Guð- mundur, f. 3.8. 1931, verkstjóri í Reykjavík, maki Jóhanna Pálsdótt- ir, f. 24.10. 1932, þau eignuðust fjög- ur böm; Þórður, f. 10.6. 1933, vél- stjóri i Reykjavík, maki Ólöf Þ. Haf- liðadóttir, f. 16.4. 1932, þau eignuð- ust fjögur böm; Páll, f. 6.11. 1935, vélgæslumaður á Tálknafirði, maki Ásta Torfadóttir, f. 23.9. 1932, þau eignuðust fimm böm; Jóna, f. 6.8. 1937, verslunarmaður í Reykjavik, maki Árni Björn Þorvaldsson, f. 8.2. 1937, d. 16.1. 1986, þau eignuðust fjögur böm en núverandi sambýlis- maður Jónu er Gunnar Sigurðsson, f. 10.2. 1946; Helga, f. 25.8. 1940, d. 29.4. 1941; Sigrún Helga, f. 7.8. 1942, skrifstofúmaður á Tálknafirði, maki Bjami Andrésson, f. 24.6. 1938, þau eignuðust fimm böm; Margrét, f. 9.4. 1950, húsmóðir á Tálknafirði, maki Öm Snævar Sveinsson, f. 6.5. 1948 og eiga þau fjögur böm. Systkini Hákoníu era Guðrún; Kristin; Jóhanna; Jón; Guðmund- ur; Páll; Þórarinn; Bjami; Ólöf; Sig- ríður, og stúlka sem dó nýfædd. Há- konía er tíunda í röðinni. Systkini hennar era öll látin nema Sigríður sem býr i Reykjavík. Foreldrar Hákoníu vora Páll Guð- mundsson, f. 24.8.1861, d. 14.11.1936, bóndi á Hamri á Barðaströnd, og k.h., Jóna Guðmundsdóttir, f. 20.9. 1870, d. 12.1. 1959, húsfreyja. Hákonía Jónfna Pálsdóttir. Guðbjartur Bjarnason Guðbjartur Bjarnason vélstjóri, Reykjavíkurvegi 27, Hafnarfirði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Guöbjartur fæddist í Reykjavík. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagn- fræðaskóla verknáms í Brautarholti 1964, stundaði nám í rennismíði í Vélsmiðjunni Héðni, lauk prófum frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófi í rennismíði 1968 og 2. stigs-prófi frá Vélskóla íslands 1971. Guðbjartur flutti til Bolungarvík- ur 1972 og var þar yfirvélstjóri á mb. Guðmundi Péturs frá Bolungar- vík til 1977 og síðan á Heiðrúnu ÍS- 4 til 1989. Þá flutti Guðbjartur til Hafnarfjarðar og hefur búið þar síð- an. Guðbjartur rak sitt eigið véla- verkstæði í Hafnarfirði, ásamt Kristjáni Steingrímssyni til 1993. Þá gerðist hann yffrvélstjóri hjá Út- gerðarfélaginu Leiti, á Jöfra ÍS-172 en er nú vélstjóri á Eyborgu EA-59 frá Hrísey. Fjölskylda Guöbjartur kvæntist 1.11. 1980 Jónínu Maggy Snorradóttur, f. 4.6. 1949. Hún er dóttir Hilmars Snorra Jónssonar, sjómanns í Bolungarvík, og Þorbjargar Jónínu Magnúsdóttur sem bæði era látin. Böm Guðbjarts og Jónínu eru Bjami Hálfdán, f. 19.12. 1974, Margeir, f. 23.9. 1987; Friðgeir, f. 23.9. 1987. Fósturdóttir Guð- bjarts er Þórhildur Ás- geirsdóttir, f. 7.3. 1969. Systkini Guðbjarts era Reynir Bjamason, f. 24.1. 1945, verkstjóri hjá Flugfélagi íslands; Sig- urbjörg Erla Bjama- dóttir,. f. 23.3. 1942, starfsstúlka hjá Reikni- stofu bankanna. Foreldrar Guðbjarts: Bjami Bjamason, f. í Litlabæ í Bessastaöahreppi, 21.1. 1913, d. 21.2. 1980, verkstjóri í Ljóma, og Þorbjörg Margrét Guð- bjartsdóttir, f. 30.6. 1912, saumakona. Ætt Bjarni var sonur Bjarna Jónsspnar sjómanns, og Gróu Helgadóttur húsmóð- ur. Þorbjörg Margrét var dótt- ir Guöbjarts Þorgrímsson- ar, b. á Látrum, og Guð- mundínu Ólafsdóttur. Guðbjartur er að heiman á afmælisdaginn. Brúðkaup Þann 17. maí voru gefin saman f Mos- fellskirkju, af sr. Siguröi Arnarssyni, Steinunn Sveinsdóttir og Kári Ragnars- son. Þau eru til helmilis aö Ánalandi 6, Reykjavfk. Meö þeim á myndinni eru brúöarmeyjan Birta Karen Káradóttir og brúöarsveinninn Sveinn Lárus Hjartar- son. Þann 3. maf voru gefin saman f hjóna- band f Landakirkju f Vestmannaeyjum af sr. Bjarna Karlssyni, Dóra Hanna Sig- marsdóttir og Sighvatur Jónsson. Þau eru til heimilis aö Lækjarsmára 70, Kópa- vogi. LJósm. Ljósmyndastúdfo Halla Einars- dóttir. Þann 17. júnf voru gefin saman f hjóna- band í Bessastaöakirkju af sr. Valgeiri Ástráössyni, Kristfn Harpa Bjarnadóttir og Hrafn Áki Hrafnsson. Þau eru til heim- ilis aö Hvassaleiti 62, Reykjavfk. Ljósm. Nína Ijósmyndari. Þann 14. júnf voru gefin saman f hjóna- band f Neskirkju af sr. Halldóri Reynis- syn,i Koibrún Jónsdóttir og Haraldur Gunnarsson. Þau eru til heimilis aö Reka- granda 2, Reykjavfk. Ljósm. Gunnar Sverrisson. Tll hamingju með afmælið 13. ágúst 85 ára Lína Amgrímsdóttir, Vesturbergi 48, Reykjavík. Ragnheiður Pétursdóttir, Freyjugötu 35, Reykjavík. 80 ára Þorbjörg Jónsdóttir, Skúlagötu 11, Borgarnesi. Elín Þórðardóttir, Kópavogsbraut 12 A, Kópavogi. Guðfreður Guðjónsson, Langholtsvegi 146, Reykjavík. 75 ára Ingibjörg Bjömsdóttir, Hólmgarði,4, Reykjavik. Svava Einarsdóttir, Hólalandi 4, Stöðvarfirði. Ingiríður Daníelsdóttir, Sjónarhóli, Bæjarhreppi. Gerða Hermannsdóttir, Miðfelli III, Hrunamannahreppi. 70 ára Sigurjón Jónson, Árkvöm 2, Reykjavik. Halldór Hinriksson, Strandgötu 2, Neskaupstað. Kristín Sigurjónsdóttir, Hjaltabakka 28, Reykjavík. 60 ára Ása Jörgensdóttir, Langagerði 29, Reykjavík. Sigurvin Jónsson, Vesturbergi 78, Reykjavík. Gylfi Hallvarðsson, Hamrabergi 34, Reykjavík. Jarmila Hermannsdóttir, Hraunteigi 13, Reykjavík. Haojin Hu, Ljósheimum 20, Reykjavik. Þórunn Guðmundsdóttir, Selvogsgrunni 3, Reykjavík. Jóhanna S. Sigurðardóttir, Látraströnd 15, Seltjamarnesi. 50 ára Magnús S. Jónsson skipstjóri, Túngötu 10, Suðureyri. Eiginkona hans er Ágústa Gísladóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum á heimili sínu, laugard. 16.8. milli kl. 20 og 23. Baldvin Jónsson, Stekkjarflöt 18, Garðabæ, varð fimmtugur í gær. Hann tekur á móti gestum á Hótel Borg, fóstudaginn 15.8 kl. 20.30. Snjólaug Sveinsdóttir, Heiðarhvammi 8 F, Keflavík. Ragnheiður Jónsdóttir, Dílahæð 1, Borgamesi. Gimndís Gunnarsdóttir, Fagrabæ 10, Reykjavík. Auður Daníelsdóttir, Baldursgötu 18, Reykjavík. 40 ára Kjartan R. Guðmundsson, Hraunbæ 72, Reykjavik. Einar Daniel Bragason, Vatnsstíg 10, Reykjavík. Selma Dröfn Guðjónsdóttir, Vallanesi, Seyluhreppi. Elísabet Magnúsdóttir, Laufrima 24, Reykjavík. Elísabet Anna Pétursdóttir, Sæbóli II, Flateyri. Sigrún Gxmnarsdóttir, Hólmgarði 50, Reykjavík. Jón Sigursteinn Gunnarsson, Aðaltjöm 11, Selfossi. Kristján Lilliendahl, Ljósalandi 10, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.