Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 13. ÁGÚST 1997
25
Myndasögur
£
cö
Eh
ÍH
£
2
x
£
>
ffi
w
03
Cð
!h
£
Ö)
}H
£
03
03
• pH
o
Ti
£
:0
03
,0
U
"Ö
£
•fl
^cö
Öi
O
cö
03
h£
•pH
Öl
Ö>
•i-i
co
HVAÐ ÆTLAR RUNA AE> Y þAp yLMAR E|NS 0G'
ELDA HANDA OKKUR I j UNGVERSK SVÍNARIF.
DAG?
KLIPFIMYNDIR ERU HREINT EKKI AUÐVELDAR i
VIÐFANGS. PAD GETURVERID MJÖG ERFITT
AD NÁ FYRIRMYNDINNI.
ER ÞAÐ HUGARBURDUR MINN,
^UGAUGA^EDA...
KOMA ÚTLÍNURNAR EKKl\
BETUR I UOS SVONA? ;
Veiðivon
Vatnsdalsá:
Yffir 30 punda
laxi sleppt
Erlendir veiðimenn, sem voru við
veiðar í Vatnsdalsá fyrir skömmu,
settu í rígvænan fisk. Það var sann-
kallaður stórflskur og stóð baráttan
yfir lengi, en fiskurinn veiddist í
Hundahyl. Náðist fiskurinn á land
að lokum og var mældur. Þessir er-
lendu veiðimenn voru ekki með
leiðsögumann með sér en mældu
fiskinn vísindalega sjálfir. Kom þá í
ljós að hann var 120 sentímetra
langur sem gæti þýtt að hann hefði
verið kringum 35 pund. Stærsti lax-
inn í sumar veiddist í Vatnsdalsá á
silungasvæðinu og var 24 pund. Fyr-
ir skömmu fór lax sem var 115 sentí-
metrar í gengnum teljarann í
Blöndu og var hann eitthvað yfir 30
pund. Þessum stórfiski var sleppt
aftur í Vatnsdalsá og sveimar hann
nú um hylji árinnar.
„Þetta er rétt að erlendur veiði-
maður setti í stórfisk fyrir fáum
dögum í Hundahyl. Þessi fiskur
komst ekki í háfmn,“ sagði Pétur
Pétursson, leigutaki Vatnsdalsár, í
Þeir fengu góöa veiði í Hólsánni þeir Sigurður Þóroddsson og Högni Sig-
urðsson. Sigurður veiddi 8 punda lax en Högni 9 punda sjóbirting.
DV-mynd FER
gærkvöldi er við bárum fréttina
undir hann.
„Veiðimennirnir sögðu að fiskur-
inn hefði mælst 120 sentímetar og
baráttan stóð yfir í klukkutíma.
Umsjón
Gunnar Bender
Fisknum var síðan sleppt í hylinn
aftur. Hann tók eins og hálfs tommu
túbu. Þetta hefur veriö fiskur vel
yfir 30 pundin," sagði Pétur enn
fremur.
Vatnsdalsáin hefur gefið 500 laxa
og er góðm- gangur í veiðinni þessa
dagana.
Núpá á Snæfellsnesi:
Laxinn að hellast inn
„Það eru skemmtilegir hlutir að
gerast hérna í Núpá þessa dagana.
En við erum að fá laxa úr 12 þúsund
seiða sleppingu sem við fram-
kvæmdum í fyrra og virðast þeir
vera að skila sér í ríkum mæli,“
sagði Svanur Guðmundsson er við
spurðum um Núpá á Snæfellsnesi í
gærkvöldi.
„Við áttum kannski ekki von á
neinu miklu í sumar, því það hafa
margir reynt að rækta ána upp með
misjöfnum árangri. En við byrjuö-
um meira að segja á því í vor að
sleppa löxum í ána og veiðiskapur-
inn gekk ágætlega. En svo var það
fyrir fáum dögum aö fara að veiðast
eins árs laxar úr þessari sleppingu.
Veiðimenn sem voru að hætta i gær-
dag veiddu sjö laxa og einn sjóbirt-
ing, þeir héldu reyndar að sjóbirt-
ingurinn væri lax. Þetta var 5 punda
fiskur. Fiskurinn strikar mikiö upp
á efri hluta árinnar og göngumar
virðast vera þó nokkrar. Stærsti lax-
inn í sumar er 19 pund og það er
fiskur sem við slepptum í ána. I gær
veiddist í Rafstöðvarhylnum 8
punda fiskur. Það er gott vatn og við
erum bjartsýn á að þessar göngur
haldi áfram, alla vega lofar þetta
góðu.“ sagði Svanur í lokin.
Laxaflugur st. og Frances
Frances túbur, þyngdar
Straumf., Nobbler og túbur
Silungaflugur
kr. 200
kr. 250
kr. 120/160
kr. 80/100
Ármót sf. Flókagata 62 - sími 552 5352