Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.1997, Blaðsíða 32
•*V
%
*
P
V
H
ml
■ kapsMK
IVa|
M^B&a uinrfoi
[ Ö í iiil!j
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 13. AGUST 1997
Millifærslumálið:
Ekkjunni
dæmdur fjár-
haldsmaður
Héraðsdómur fól í gær Helga V.
Jónssyni, lögmanni og endurskoð-
anda, með dómi að gerast fjár-
haldsmaður Ásrúnar Einarsdótt-
ur, ekkju Arons Guðbrandssonar.
Ásrún hafði sjálf óskað eftir því að
fjárræði hennar yrði falið lög-
manninum.
Ásrún tók þá ákvörðun að fela
lögmanni sínum allt sitt ijárræði
og féllst héraðsdómur á það og
felldi dóm sinn i samræmi við
vilja hennar. Rannsókn milli-
færslumálsins er í fullum gangi og
af hálfu ríkislögreglunnar eru eng-
ar upplýsingar gefnar um gang
hennar. Samkvæmt heimildum
DV í morgun er meðal annars ver-
ið að athuga hvort fleiri en Sigurð-
ur Kárason, eigandi reikninganna
sem fært var inn á af reikningum
Ásrúnar, tengist málinu.
-SÁ
Haldið
sofandi
í öndunarvél
Okumaður bils slasaðist alvar-
lega eftir árekstur við hross á
Laugarvatnsvegi milli bæjanna
Neðra-Apavatns og Þórustaða um
klukkan hálfeitt í nótt. Fimm
menn voru á ferð með 36 hross í
myrkri þegar eitt hrossið stökk út
úr hópnum og upp á veginn. Það
drapst við áreksturinn og bíllinn
skemmdist mikið. Ökumaðurinn
var fluttur umsvifalaust með
sjúkrabíl á Sjúkrahús Reykjavík-
ur. Þar fengust þær upplýsingar í
morgun að hann hefði komið inn
með alvarlega höfuðáverka og að
honum væri haldið sofandi í önd-
unarvél á gjörgæsludeild.
-sv
A135Í
göngunum
Lögreglan á Isafirði hirti skír-
teinið af ökumanni sem ók 75 km
yfir leyfilegum hámarkshraða í
Vestfjarðagöngum í gær. Maður-
inn mældist á 135 km hraða en að
hámarki má aka á 60 km hraða í
göngunum. Mikið er um
hraðakstur í göngunum, að sögn
lögreglu vestra, en þó ekki eins og
þetta.
-sv
NAMMI
NAMM!
V-Landeyj ahreppur:
Sturlungaold i
Landeyjum
„Ég á nú ekkert von á því að
menn fari að sækja að mér
með eldi og vopnurn," sagði
Eggert Haukdal, oddviti V-
Landeyjahrepps og bóndi á
Bergþórshvoli, bænum þar
sem Njáll bóndi, Bergþóra
kona hans og synir þeirra
voru brennd inni forðum. Egg-
ert var spurður um hinar lang-
vinnu deilur um stjórn sveitar-
félagsins sem staðið hafa um
tæpa tvo áratugi og sett sterkt
mark á daglegt líf hreppsbúa.
Deilurnar kristallast einkum
í oddvita sveitarinnar, Eggerti
Haukdal á Bergþórshvoli,
hreppstjóranum, Haraldi Júlí-
ussyni í Akurey, og nú síðast
Hirti Hjartarsyni, hrepps-
nefndarmanni í Stíflu. Deil-
urnar eru upphaflega flokka-
drættir milli sjálfstæðismanna
og framsóknarmanna og hafa á
stundum tekið á sig nokkuð
broslega mynd. Þannig hafa
fjöldamörg kærumál gengið á
víxl, m.a. vegna kjörklefa sem
hreppstjórinn hafði sett upp í
félagsheimilinu Njálsbúð en
oddviti flutti í geymsluher-
bergi inn af eldhúsi félags-
heimilisins. í því deilumáli
þurfti sýslumaður að úr-
skurða.
Fyrr í sumar sendi Hjörtur
Hjartarson, hreppsnefndar-
maður í V-Landeyjum, frá sér
langt bréf inn á hvert heimili í
hreppnum. í því lýsir hann
viðskiptum sinum við Eggert
Haukdal oddvita. Hjörtur seg-
ist í samtali við DV vera að-
fluttur og ekki fæddur inn í
þessa áralöngu flokkadrætti.
Sitt markmið sé einungis það
að í sveitarstjórnarstarfinu sé
farið að lögum og reglum og að
lýðræðislegur samstarfsandi
sé hafður í fyrirrúmi.
-SÁ
Nánar er fjallað um þetta á bls. 2
Utvarps-
kona
í æðiskasti
Þau létu fara vel um sig í hitanum á Austurvelli í gær. Það er ekki amalegt að fá mjólkina sína í blíðviðri sem þessu.
Heitasti dagur ársins var í höfuðborginni en þá náði hitinn 18,3 gráðum. Borgarbúar nýttu tækifærið vel og spókuðu
sig i sólskininu. Hitabylgjan gekk yfir landið og náði hitinn 25 stigum á nokkrum stöðum.
DV-mynd JAK
Þegar austurrísk farþegaþota
var á leið frá Vínarborg til Miami
á Flórída í gær rann slíkt
æðiskast á franska konu að flug-
stjórinn ákvað að lenda sérstak-
lega með hana á Keflavíkurflug-
velli. Konan var vistuð hjá lög-
reglu í nótt en flugvélin hélt sína
leið.
Þegar konan vaknaði í morgun
kom í ljós að hún er frönsk út-
varpskona um þrítugt. Hún hafði
talsvert af lyfjum meðferðis og
hafði drukkið áfengi ofan í allt
saman í flugvélinni í gær.
Konan varð fijáls ferða sinna á
níunda tímanum í morgun. Henni
var þá sagt að hún yrði á eigin
vegum. Konan kvaðst ætla að
halda áætlun sinni og vildi frekar
halda för sinni áfram til Banda-
rikjanna í stað þess að fara heim.
Þegar DV fór í prentun var verið
að reyna að fá far fyrir hana með
Flugleiðavél vestur um haf. Kon-
an ber allan kostnað af þeirri
röskun sem varð á hinni sögulegu
ferð hennar. -Ótt
Veðrið á morgun:
Hlýjast
norðaust-
an til
Á morgun verður suðaustan-
gola og smáskúrir sunnan og
vestan til en léttskýjað á Norður-
landi og hiti 12 til 20 stig, hlýjast
norðaustan til.
Veörið í dag er á bls. 29
á Á lí r' Ijr I
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
i