Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
Fréttir
Póstur og sími undirbýr rannsókn:
Hundruð klón-
aðra GSM-síma
„Þetta er ekki eins og hlutimir
eiga að vera. í hverjum síma á að
vera eitt númer, en það er það ekki
í þessum símum. Það eru því mið-
ur margir símar á sama fram-
leiðslunúmeri í notkun. Þetta er
ekki í samræmi við það sem til er
ætlast í GSM-kerfinu,“ sagði Ólafur
Indriðason hjá Pósti og síma vegna
rannsóknar sem er að hefjast vegna
innflutnings á GSM-símum, en
sterkur grunur er um að hundruð
- segir Gunnar Þórðarson hjá Hátækni
slíkra sima séu í notkun hér á
landi.
„Þetta er þekkt víða um lönd. Það
eru dæmi þess að símum sé stolið
frá framleiðendum og þeim breytt,
en ekki er vitað hvort þessir símar
eru fengnir með þeim hætti," sagði
Ólafur Indriðason.
„Movistar, sem er spánkst síma-
fyrirtæki, lætur framleiða símana
með lás, þannig að ekki er hægt að
nota símakort frá öðrum fyrirtækj-
um. Einhverjir óprúttnir aðilar hafa
keypt þessa síma á Spáni, þá í tals-
verðu magni þar sem þeir eru mjög
ódýrir, og tekið einn síma sem er
ekki frá þeim og „klónað" Movistar-
símana. Þá verða allir símcunir sem
þannig er farið með með sama raö-
númerið. Þetta þýðir aö framleið-
endurnir, sem eru Nokia, Ericsson
og fleiri og fleiri, taka ekki ábyrgð á
þessum símum. Á íslandi fæst ekki
gert við þessa síma, við genun ekki
við þá. Ef komið er með svona síma
hingað þá vísum við viðkomandi
frá. Það eru dæmi annars staðar um
allt að 200 síma á sama raðnúmeri,"
sagði Gunnar Þórðarson hjá Há-
tækni, en til hans hefur verið kom-
ið með nokkra „klónaða" síma.
„Ég hef grun rnn að þessir símar
skipti hundruðum hér á landi.
„Klónuðu" símarnir eru held ég all-
ir sérmerktir Movistar," sagði
Gunnar Þórðarson. -sme
Kennarar eru mættir til starfa í skólunum. Þaö voru veisluföng í Vogaskóla
þegar undirbúningur ab vetrarstarfi hófst.
Samninganefndarmenn sveitarfélaganna eru svartsýnir:
Kennarar vilja 60%
- án þess aö nokkuð annaö breytist
„Það er ekki gott útlit þegar talað
er í austur og vestur," sagði Sigm--
jón Pétursson, samninganefndar-
maður sveitarfélaga, um hvort bilið
væri að breikka milli deiluaðila í
kennaradeilunni. „Ég held að deilan
sé komin á sama stig og hún var á í
vor þegar bráðabirgðasamningur-
inn var gerður," sagði Jón G. Krist-
jánsson, formaður samninganefnd-
arinnar.
„Þeir hafna allri umræöu um
breytingar á vinnutímanum. í vor
gerðum við bráðabirgðasamning
þar sem samþykkt var að vinna að
útfærslu á vinnutímabreytingu.
Þetta tilboð kennara er því mikil
vonbrigði. Það átti að leita leiða
með þetta markmið að leiðarljósi.
Okkur þykir ákaflega lítið gert af
þeirra hálfu til að ná því, þeir hafa
ekki komið með tillögur, heldur að-
eins hafnað tillögum," sagði Jón. G.
Kristjánsson.
Stjóm samninganefndar sveitar-
félaga kemur saman í dag og eftir
þann fund hittast deiluaðilar hjá
ríkissáttasemjara. Hvorki Jón G.
Kristjánsson né Sigurjón Péturs-
son vildu segja að tilboði kennara
yrði hafnað, en þeir vora afar
svartsýnir á að það greiddi fyrir
samningum.
„Tilboðið þeirra þýðir 60 pró-
senta launahækkun, án þess að
nokkuð annað breytist. Það er fátt
sem bendir til að þessu tilboði
kennara verði tekið og við mælum
sennilega ekki með að gengið verði
til samninga á þessum grundvelli.
Við höfum samning, við kennara-
félögin, um að taka upp breyttan
vinnutima og aukna ábyrgð skóla-
stjóra. Það er ekki annað að sjá en
þeir séu að hlaupa frá þessum
samningi, sem er ekki nema nokk-
urra mánaða gamall. Við viljum
halda þeim að honum,“ sagði Sig-
urjón Pétursson, samninganefhd-
armaður sveitarfélaga, um tilboð
kennara. -sme
Skólinn hefst:
önnin í menntaskóla
Áfangi Bókakostnaður BÓk _ Kjarnagreinar 1. árs nema í menntaskóla - Verð ný Verð notuð
1 ÍSL 103 Falsarinn 944 ekki til 1
1 ENS103 New Rrst Certificate Masterclass 1.828 994 1
1 Twentieth Centurv English Short stories 1.250 730 1
! DAN 102 Danmarks MOSAIK 1 lesbók 1.995 1.197 1
1 Danmarks MOSAIK 1.190 655 1
1 Kiörbækur.meðalverö x2 800 450 1
1 ÞÝS 103 Themen neu 1 lesbók 1.195 835 1
tz Themen neu vinnubók 1.012 ekki til I
1 Glósur 530 ekki til 1
1 STÆ103 Stæröfræöi 1 SA kennslubók og æfingasafn 5.499 3.300 1
1 . Dæmasafn í algebru. fiölrit 460 ekki til 1
[Z Gröf. verkefnahefti 490 ekki til 1
1 SAG103 UoDruni nútímans ca 4.500 2.760 I
Samtals kr. 22.493 kr. 14.857
Rúmlega 3500 nemendur eru nýnemar í framhaldsskólum landsins á þessu hausti en alls veröa á bilinu 16 tih 7.000
nemendur í framhaldsskóla í vetur.
Fyrsta
Nú eru á milli 16 og 17 þúsund
ungmenni að búa sig undir nám í
framhaldsskólum landsins. Rúm-
lega 3500 af þeim eru að stíga sín
fyrstu skref inn í framhaldsskólana
eftir 10 ára undirbúningsnám í
grunnskólum landsins. Eftirvænt-
ingin er mikil, nýr skóli, öflugt
félagslíf og eigin skólabækur.
Það verður ekki lengur skólans
að útvega nemendum námsbækurn-
ar sem greinunum fylgja heldur er
það orðið nemendanna að eignast
þær á eigin vegum. Útgjöld vegna
náms aukast verulega frá fyrra ári.
Auk bókanna eru einnig innheimt
innritunargjöld og nemendafélags-
gjöld fyrir þá sem vilja njóta félags-
lífsins í skólunum.
Neytendasíðan tók saman kostnað-
inn fyrir þann sem er að hefja nám í
menntaskóla í Reykjavík. Viðmiðið er
bókalisti Menntaskólans við Hamra-
hlíð. Verðið var kannað í nokkrum
verslunum og síðan reiknað meðal-
talsútsöluverð og miðað við það, hvort
heldur sem um var að ræða nýjar
bækur eða notaðar. Skólamir gefa
flestir út eitthvert sértækt ljósritað
námsefni sem getur verið breytilegt á
milli stofnana en væntanlega er
kostnaðurinn fyrir nemendur svipað-
ur hvað sem skólinn heitir.
Námsgreinamar sem miðaö er
viö eru allt kjamagreinar en eins og
gengur er kjarninn breytilegur og
sumir læra frönsku, rússnesku eða
spænsku í stað þýsku. Þá em aðrir
sem læra norsku eða sænsku í stað
dönsku. Hvað sem því líður nær
kostnaðurinn fyrir flesta 1. árs nem-
endur auðveldlega hátt í 30.000 kr„
skólabækur og innritunargjöld.
Sparaö á skiptimörkuöunum
Það munar talsverðu á bókaverði
hvort keyptar eru nýjar eða notaðar
bækur. Skiptibókamarkaðimir kaupa
yfirleitt bækurnar inn á 45% af út-
söluverði og selja þær síðan út á
55-65% af útsöluverðinu. Eðli málsins
samkvæmt er sjaldnast hægt að
kaupa æfingabækur notaðar. En mið-
að við að kaupa allar námsbækumar
í kjarnagreinunum sem hægt er not-
aðar og bæta siðan afganginum við í
nýjum bókum hljóðar reikningurinn
upp á 14.857 kr. miðað við tvær kjör-
bækur í dönsku. Full innritunargjöld
og nemendafélagsgjöld ofan á þetta
eru 7.500 kr. Samtals gerir þetta
22.357 kr. Ef hins vegar allar bækur
eru keyptar nýjar hleypur kostnaður-
inn í 29.993 kr. miðað við sömu for-
sendur. Hins vegar er það frjálst val
nemenda að vera með í nemendafé-
laginu, 3.000 kr„ og í skólasjóönum,
500 kr. Fast innritunargjald er um
6.000 kr. (2x3.000) fyrir veturinn og
síðan kemur til efnisgjald skólanna
sem getur verið eitthvað mismun-
andi. -ST
Stuttar fréttir
Sjö sóttu
Sjö sóttu um fréttastjórastöðu
Sjónvarps. Fimm þeirra era starf-
andi fréttamenn á fréttastofu
Sjónvarps. Auk þeirra sóttu Elín
Hirst, fyrrv. fréttastjóri Stöðvar
2, og Ólafúr E. Jóhannsson, fyrrv.
fréttamaður á Stöö 2.
Meint innherjaviðskipti
Bankaeftirlitið hefúr óskað eftir
lögreglurannsókn á meintum inn-
herjaviðskiptum með hlutabréf.
Allmörg slík mál eru til athugunar
hjá Verðbréfaþingi íslands og
Bankaeftirlitinu, segir RÚV.
Betra seint en aldrei
Ríkissaksóknari íhugar að gefa
út ákæra í níu ára gömlu fikni-
efnamáli, svonefndu Furagrund-
armáli. í því kom Franklín Stein-
er við sögu og viðurkenndi að
eiga talsvert magn fikniefiia sem
þá fundust.
Helga Kress í mál
Helga Kress prófessor hótar
málaferlum við háskólarektor
vegna deilu við Háskólaútgáfuna.
Lögmaður Helgu sakar útgáfuna
um fjármálaóreiðu og hugsanlega
fjárdrátt, að sögn Stöðvar 2.
Útboð í Leifsstöð
Yfir 30 hafa sótt um að fá að
reka langtímabílastæðið viö
Leifsstöð. Fimm buðu í leigu á að-
stöðu til veitingarekstrar og 20
buðu í 12 verslunarrými í flug-
stöðinni. -SÁ