Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 Spurningin Hlakkar þú til að byrja í skólanum? p § ' I 1 \ ... i*. t A * - Jj JlJ Daníel Örn Jóhannesson, 13 ára: Já já, að hitta krakkana og svo er ekkert leiðinlegt að læra ef það er skemmtilegt fag. Jón Bjarki Magnússon, 13 ára: Já, að hitta krakkana en ekki til að læra. Eva Björk Bjömsdóttir, 18 ára: Já, að hitta vinina. Guðrún Erna Hafsteinsdóttir, 18 ára: Já, ég hlakka til að hitta vinina aftur. Lárus Lámsson, 19 ára ljóðskáld: Já, ég hlakka rosalega til að sjá alla kennarana aftur. Ottó Þórisson, 20 ára: Já, að hitta alla vinina aftur. Lesendur Óvinir dreifbýlis- ins að verki? Magnús Guðjónsson skrifar: Eitt stærsta mál landsbyggðar- innar undanfarin misseri hefur ver- ið vandamálið að halda fólki í hin- um dreifðu byggðum landsins. Fólksflótti hefur brostið á og straumurinn liggur suður að venju. Skortur á atvinnu er aðalorsökin. Einnig hafa t.d. náttúruhamfarir mikil áhrif og þar sem þær gerast verstar og taka mannslífin er eðli- legt að fólk hugsi sig tvisvar um hvort það sé framtíðarvon í að búa á staðnum, ala upp böm sem svo síðar leiti burt. Þetta hefúr því miður verið raun- in á Vestfjörðum og í mörgum dreifðum byggðum inn til landsins. Um þetta hafa eðlilega birst fréttir í öllum fjölmiðlum. Enginn hefur, svo ég muni, andmælt þessari stað- reynd. Mér barst nýlega í hendur blaðiö „Bæjarins besta“ sem gefið er út á ísafirði. Þetta er eitt af þeim lands- málablöðum sem ég sé og les nokk- uð reglulega. Þar gaf heldur betur á að lita í 33. tölublaði, frá 20. þ.m. Þar er því sem sé haldið blákalt fram að Dagblaðið Vísir sé (líklega til gamans!) að koma höggi á Vest- urbyggð, einkum Vestfjarðakjálk- ann og leggja í einelti með fréttum um fólksflótta. Vill blaðið meina að þessu sé jafnvel þveröfugt farið: fólk sé sífellt að streyma í byggðarlögin. - Nú sé skortur á íbúðum til leigu á Isafirði og á Suðureyri séu líka íbúðir í eigu ísafjarðarbæjar sem lengi hafi staðið auðar en séu nú all- ar í leigu. ! blaðinu Bæjarins besta er svo Gatnaframkvæmdir í l'safjarðarbæ. slegið úr og í. Ýmist sagt að frétta- flutningur um brottflutta frá Vest- fjöröum sé orðum aukinn eða þá viðurkennt að víst séu t.d. 60 manns að flytjast brott, t.d. frá Patreksfirði og 16 fjölskyldur frá ísafirði. Hvað sem þessum ádrepum í Bæj- arins besta líður um fréttir af brott- fluttum Vestfirðingum þá er það staðreynd sem er ljós öllum lands- mönnum að Vestfirðir eiga við mik- inn vanda að stríða hvað vinnuafl snertir og brottflutningur fólks það- an er í beinum tengslum við sjávar- útveginn sem ekki nándar nærri allir vilja lengur binda trúss við sem framtíðarstörf. Eflaust er erfitt fyrir útgerðarmenn vestra að kyngja því að þeir geti ekki lengur haft íbúana í vasanum, ef svo má segja. Það ástand ríkti víða um land. Sú tíð er liðin. Nú er fólk á far- aldsfæti eftir því hvar kaupin gerast best á eyrinni. Vestfirðir eins og aðrar afskekktar byggðir lúta þess- ari staðreynd. Akraborgin eöa Hvalfjarðargöngin Halldór Sigurðsson skrifar: Ég tek undir með þeim sem skrif- að hafa um að heppilegra og skemmtilegra hefði verið að fá brú yfir Hvalfjörðinn en undirgöngin. Mest verða viðbrigðin ef ferðir með Akraborginni leggjast af. Akraborg- in eða ferja milli Reykjavíkur og Akraness hefur nú verið í gangi svo áratugum skiptir. Það verður ekki auðvelt að eiga ekki kost á ferjusamgöngum milli þessara staða. Ég tel sjálfsagt að fólk eigi þess kost að velja milli ganganna undir Hvalfjörð og bíl- ferju frá Reykjavík til Akraness og annarra staða. En margir nota ferj- una sem fyrsta spölinn til Noröur- lands eða annarra staða frá Akra- nesi. Án hennar eru fólki settir afar- kostir í ferðum á þessari leið. Gullinbrú handa Ástu Ragnheiði? Sigurbjörn skrifar: Einn er sá þingmaður sem ekki opnar munninn án þess að vild- arvinir á fjölmiðlum tilkynni um það, helst fyrirfram. Þetta er Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Hún hefur haft sig mikið í frammi við aö bjóða ríkissjóði lánsfé úr borgar- sjóði til vegaframkvæmda við Gull- inbrú í Grafarvogi sem ríkið á að greiða. Hallarekstur borgarsjóðsins á þessu ári gefur nú síst tilefni til að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþm. - Tryggir hún sér gullinbrú á nýjum pólitískum vettvangi? lána peninga. Borgin stendur ör- ugglega í að slá lán til að ná end- um saman og er ekki aflögufær með neinar lánveitingar, ef marka má síðustu fréttir í blöðum. En hangir ekki eitthvað fleira á spýtunni? - Er ekki þessi þingmað- ur Þjóðvaka, sem ekkert fylgi hef- ur samkvæmt síðustu mælingum, aðallega að koma sjálfri sér á fram- færi fyrir átökin sem verða um uppstillingu á næsta R-lista í borg- arstjóm? Allt má sjálfsagt reyna. Meira að segja að bjóða ríkinu lán úr borgarsjóði, sem er rekinn með mörg hundruð milljóna króna tapi á ábyrgð R-listans. Þingmaðurinn Ásta Ragnheiður er víðforlust í pólitíska kvennalið- inu. Hún er búin að vera í Alþýðu- bandalaginu, Framsóknarflokkn- um og nú í Þjóðvaka. Þetta hljóta að vera mikil meðmæli þegar hún skellir sér í slaginn við stöllur sín- ar í borgarstjórn. - Er ekki þing- maðurinn vegalausi fyrst og fremst að tryggja sjálfri sér gullin- brú yfir á nýjan pólitískan vett- vang eftir að dánarvottorð Þjóð- vaka hefur verið gefið út? I>V Útisturtur í Laugar- dalslaug Sundlaugargestur skrifar: Þegar Smáþjóðaleikarnir voru haldnir hér þurfti að fjarlægja útisturtur í sundlaugunum í Laugardal. Þær vora sagðar fyr- ir. Eftir leikana var spurt hvort þær kæmu ekki aftur. Svarið var að engir peningar væru til. Nú er sagður um 4 mifij. króna hagnað- ur af leikunum þannig að maður hefði haldið að hægt væri að setja útisturturnar upp á ný. Hér er ekki um stórkostnað að ræða. En ekkert hefúr gerst. Fyrir stuttu var afhentur undirskrifta- listi þessu til styrktar en hann var látinn hverfa, hægt og hljótt. Megn óánægja er nú með fram- gang málsins en við vonumst eft- ir úrbótum sem allra fyrst. Forsetinn fer sínu fram Sæmundur Guðmundss. skrif- ar: Alltaf er hinn nýkjörni forseti okkar, Ólafúr Ragnar Grímsson, að koma okkur skemmtilega á óvart. Hann hafði sjálfstæða skoðun á slæmu vegakerfi vest- anlands. Fréttamenn ruku upp og töldu þá skoðun hans ekki vera sæmandi svo háu embætti. Fólkinu í landinu fannst annað. - í Bandarikjunum setti forsetinn fram sjálfstæða kenningu um landafúndina vestra og hátíða- höld vegna þeirra tímamóta, beint við forseta Bandaríkjanna. Það var ekki talið sæma hér heima. - Ólafur Ragnar hafði sína skoðun á Evrópumálunum. Utanríkisráðherra fyrtist við og boðaði afsíðisfund með forseta. Ekkert varð úr því. Nú lýsir for- setinn því yfir að það sé siðferði- leg skylda að fá Eystrasaltsríkin inn í NATO. Hvað segir utanrík- isráðherra nú? Auðvitað á forset- inn aö geta farið sínu fram í orð- ræðum vítt og breitt, hvar sem hann er staddur. Og hananú! Þá lækkar áfengisveröið Katrín hringdi: Umræðan um frelsi í sölumál- um áfengis fer fyrir brjóstið á sumum. Samanber lesendabréf í DV fostud. 8. ágúst sl. þar sem talað er um að frjálsræði í álagn- ingu á áfengi kuiini að leiða til verðhækkunar. - Ég segi hins vegar: Sé vínið sett i matvöru- verslanir kemst fyrst á æskileg sámkeppni og samfara henni verðlækkun eins og ávallt verður þar sem samkeppni er að ein- hverju marki. Baddnið héddna og ðaddna H.Þ.Þ. skrifar Þannig er ffamburður málsins okkar í æ ríkari mæli. Hann heyrist í vaxandi mæli. Ekki sist í útvarpi og sjónvarpi. Einnig í kirkjunum þar sem þ-ið virðist eiga erfitt uppdráttar. Prestar hafa gert sér grein fyrir þessu því málið var tekið fyrir á síð- ustu prestastefnu. - Tökum okk- ur nú á og spornum gegn þessari öfugþróun, Byrjum í kirkjunum og ljósvakamiðlunum. Horfin bifreið úr Skeifunni Jón J. Jóhannesson skrifar: Hér er um að ræða rauða Suzuki Swift GTI, Twin CAM (R- 73150), mjög vel útlítandi, nýmál- aöur, bronslitaður. Bíllinn hvarf frá Skeifunni 17 helgina 16.-17. ágúst. - Þeir sem upplýsingar gætu gefið eru vinsamlega beðn- ir um að hringja í síma 587 1850.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.