Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 15 Skólastarf og kýrhausar Margt er skrýtið í kýrhausnum! Mér datt þessi títtnefndi kýr- haus í hug þegar ég las í Dagblaðinu grein um skólamál eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, for- mann Sambands sveit- arfélaga. Vilhjálmur frétti að kennarar vildu nálgast samninga með öðrum hætti en þegar þeir sömdu við ríkið og datt þá ekkert annað í hug en að þeir væru hættir að tala um laun og vildu bara tala um vinnutíma. Annar álika vitring- ur, Þórarinn V. Þórar- insson, svaraði spurn- —— ingum um kennara- menntun í Dagblaðinu og vill láta mennta fleiri kennara til þess að fleiri geti hætt við að nýta mennt- un sína vegna þess að launakjör í kennslu standast ekki samkeppni á atvinnumarkaði. Kjallarinn Kristján Jóhann Jónsson rithöfundur Höfuðpaurinn, Jón G. Kristjánsson, for- maður samninga- nefndar sveitarfé- laga, sagði í Degi- Tímanum að sveit- arfélögin vildu fá alla vinnu kennara inn í skólann til þess að geta sam- ræmt hana og stýrt henni til þess að vinnan verði sýni- leg! Sýnileg hverj- um? Nemendur og foreldrar, viðskipta- vinir kennara, sjá vinnu þeirra vel. „Skólastjórar og kennarar eru langhæfastir til þess að byggja upp gott skólakerfi og þaö er átakanlegt aö fylgjast meö þeirri metnaöarlausu nesjamennsku sem einkennir málflutning sveit- arstjórnarmanna..." Sá þriðji, Unnur Halldórsdóttir, frá samtökum um heimili og skóla, vill betri skóla ókeypis. Hún vill ekki lýsa yflr stuðningi við kröfur kennara og gera þá kröfu að kennarastarfið standist sam- keppni. „Við erum skattgreiðend- ur og getum ekki hugsað þannig," segir Unnur. Eg gæti vel hugsað mér... Þetta er einungis brot af allri þeirri „speki“ sem rignir yfir okkur foreldra þessa dagana, meðan sveitastjórnar- menn eru að uppgötva að allir verða að borga fyrir það sem þeir kaupa. í hverra umboði talar þetta ------------1 fólk? Hvaða skattgreiðendur eiga ekki börn og barnabörn og vilja ekki nota fjármuni samfé- lagsins í þágu barna? Mörg okkar sem eigum hörn í skólunum gæt- um vel hugsað okkur að fá eitt- hvað sem máli skiptir fyrir þá skatta sem við greiðum og það fé sem notað er í skólakerfið skilar sér inn á fleiri heimili og betur en flest annað. Skólakerfið er nefni- lega til þess ætlað að mennta börn- in og byggja upp framtíðina en ekki til þess að geðjast einhverjum sveitarstjórnardurgum sem voru „Skólakerfið er nefnilega ætlað til þess að mennta börnin og byggja upp framtíðina kosnir til þess að sjá um skolpræsi og gatnagerð. Ég gæti vel hugsað mér að kenn- arar hefðu það há laun að menn þyrftu að bítast svolítið um kenn- arastöður og að hæfni og menntun réðu úrslitum um hver sinnti þeim störfum. Ég gæti vel hugsað mér að bekkir í skóla sonar míns væru ekki ljölmennari en svo að hann fengi meira en eina og hálfa mínútu af tíma kennarans í hverri kennslustund. Ég hefði ekkert á móti því að tækjakostur í skólum væri nægilega góður til þess að þeir gætu tengt sig við atvinnulíf og tækniþróun með þokkalega skilvirkum hætti. Kýrhausaeftirlit Ég hef hins vegar engan áhuga á því að hrokafullir sveitarstjórn- armenn ráðist gegn sjálfstæði í skólastarfi og stefni að einhvers konar kýrhausaeftirliti. Skóla- stjórar og kennarar eru langhæf- astir til að byggja upp gott skóla- kerfi og það er átakanlegt að fylgj- ast með þeirri metnaðarlausu nesjamennsku sem einkennir mál- flutning sveitarstjómarmanna í fyrstu kjarasamningum þeirra við kennara. Og hvernig stendur á því allir þessir miklu íhaldsmenn og mark- aðsvinir skilja ekki þá einfoldu staðreynd sem Jónas Kristjánsson benti á í leiðara í DV fyrir skömmu að íslenskir skólar fást ekki mannaðir af því að þeir eru ekki samkeppnishæfir í kjörum? Kristján Jóhann Jónsson Af sem áður var, Vestfirðingar Vestfirðingar vom þeir sem stóðu saman. Ef eitthvað bjátaði á, stór mál komu upp í þjóðfélaginu eða einhver á Vestfjarðakjálkan- um stóð upp og mótmælti ein- hverju ranglætinu, var víst að Vestfirðingar þjöppuðu sér saman og mótmæltu sem einn maður. Þannig var ímynd Vestfirðinga ekki fyrir svo mörgum árum. Fyr- ir þeim var borin virðing og á þá var hlustað. Allt gleymt og grafið? 16. janúar 1995 féll snjóflóð á þorpið Súðavík. Fjórtán Vestfirð- ingar létu lífið. Nánustu ættingjar þeirra er létust, voru og jafnvel Þau hafa reynt að vekja athygli á mörgum staðreyndum varðandi aðdraganda snjóflóðsins i Súðavík, mistökum sem áttu sér stað varð- andi björgunaraðgerðir, svo- kölluðu hreinsunarstarfi og fjár- veitingum úr sjóðnum Samhugur í verki.Ríkissaksóknari neitaði op- inberri rannsókn. Ekkert heyrðist í ráðamönnum þjóðarinnar, ekk- ert heyrist í þjóðinni og það sem verst er, ekkert heyrist í Vestfirð- ingum, með þeirri undantekningu þó að Súðvíkingar hafa látið í sér heyra varðandi peningaþörf vegna flutnings þorpsins á hættulausan stað og núna vegna fyrirhugaðs minningarreits í gömlu Súðavík. ______________ Þeir vilja sættir, máli sýni sóma sinn í að byrja á byrjuninni og íhuga aftur sitt fyrsta skref til sátta. Kjallarinn „Hvernig væri aö Vestfiröingar sýndu þá samstöðu sem þeir eitt sinn voru þekktir fyrir og kreföust þess aö sú opinbera rannsókn sem fariö hefur veriö fram á veröi framkvæmd?u eru nágrannar ykkar, vinir og ætt- ingjar. Þeir hafa barist í rúm tvö ár fyrir „réttlæti-sanngirni-hrein- skilni" þó ekki væri nema að þeim væri sýnd almenn kurteisi og sam- úð af yfirvöldum. Barist fyrir því að þeim sem létust í snjóflóðinu og nánustu aðstandendum þeirra sé sýnd sú virðing að mistökin verði viðurkennd opinberlega og beðist verði fyrirgefningar af sannfær- ingu og trúverðugleika. segja þeir, en nefna þó ekki hvert fyrsta skref þeirra sjálfra verður í þeim efnum. Kannski afsök- unarbeiðni opin- berlega vegna þeirra grimmd- arverka sem framin voru í nafni hreinsunar, aðeins örfáum dögum eftir snjóflóðið 1995? Fyrir hverja á þessi minningarreitur að vera? Þá sem syrgja og sakna? Verða þeir hafði með í ráðum hér eftir? Á reiturinn kannski að vera til sýningar ferðamönnum? Á nú allt að vera gleymt og grafið, í orðsins fyllstu merkingu? Nei, ó nei, í upphafi skyldi endinn skoða og tími til kominn að þeir sem bera ábyrgð og skyldur í þessu Linda Óskarsdóttir bankastarfsmaöur Hvar er þín fornaldar- frægö...? Hvað finnst ykkur nágrannar, vinir, Vestfirðing- ar? Fannst ykkur rétt að örfáum dög- um eftir flóðið, var stórvirkum vélum hleypt inn á flóða- svæðið og þær látnar ryðja svo óhemju dýrmæt- um minningaperl- um í sjóinn? Myndum af bömun- um sem dóu. Myndum sem þessi sömu böm höfðu teiknað og málað og prýddu heimili þeirra, rétt eins og hjá þér og mér. Smáhlutir í eigu fólksins, myndaalbúm, fjöl- skyldumyndbönd, ljóð, handa- vinna og svo mætti lengi telja. Hvað finnst ykkur um: -að ríkissaksóknari hafnaði opinberri rannsókn? -hreinsunarstarfið í gömlu Súðavík dagana eftir flóðið? -úthlutun úr söfnunarsjóðnum Samhugur í verki? -þá ákvörðun að byggja nýja Súðavík? -þá ákvörðun Súðavíkuryfir- valda að gera minningarreit um þá látnu, án nokkurs samráðs við aðstandendur? -að ekkert heyrist í þing- mönnum Vestfirðinga vegna þessara mála? Nú er lag Hvemig væri að Vest- firðingar sýndu þá sam- stöðu sem þeir eitt sinn voru þekktir fyrir og krefðust þess að sú opin- bera rannsókn sem farið hefur verið fram á verði framkvæmd? Krefðust opinberrar afsökunar- beiðni frá þeim sem heimiluðu eyðileggingu á persónulegum munum þeirra er lentu í flóðinu? Krefðust þess að úthlut- un úr Samhugarsjóðn- ........ um verði opinber svo sjá megi að þeir sem fengu úthlutað séu þeir sem safn- að var fyrir? Síðast en ekki síst, krefðust þess að nánustu aðstand- endur þeirra er létust í flóðinu, verði hafðir með í ráðum hvort og hvemig verði staðið að gerð minn- ingarreits í gömlu Súðavík? Um- boðsmaður Alþingis hefur nú lagt til við ríkissaksóknara að hann end- urskoði fyrri ákvörðun sína vegna opinberrar rannsóknar á aðdrag- anda og viöbúnaði vegna snjóflóðs- ins í Súðavík 16. janúar 1995. Nú er lag, Vestfirðingar og landsmenn all- ir. Fjölmörgum spumingum er ósvarað. Leggið þeim lið sem svo lengi hafa barist fyrir því að rann- sakað verði hvað fór úrskeiðis þessa nótt. Látið heyra frá ykkur. Hvað finnst ykkur? Linda Óskarsdóttir Er kvótaverð of hátt? Logl Þormóösson framkvæmdastjóri. Allt of hátt „Kvótaverðið er orðið of hátt vegna þess að það er ekki lengur hægt að gera út með því að kaupa kvóta. Kvótaverðið er vinnsluvirði en ekki útgerðar- virði. Vegna þess að aflur fiskur er ekki markaðssettur geta menn ver- ið að möndla með það að greiða sjó- mönnum fast verð, kaupa síðan kvóta og bæta honum við kvótann á skipinu og þannig gert skipið út á raunverulega lægra fiskverði heldur en kvótinn segir til um. Með þessu fria útgerðar- menn sig frá þvi að láta sjómenn taka þátt í sjálfum kvótakaupun- um. Hins vegar taka þeb þátt í þeim með því að sætta sig við lægra fiskverð til þess að geta haft atvinnu. Vegna þessa er ekki hægt að gera út á kvóta- verðið eins og það er. Nú eru menn að greiða um og yfir 90 krónur fyrir kilóið af leigukvóta og fá kannski 80 krónur fyrir kílóið af þorski. Ef menn selja þorsk, sem er rúm 2 kíló, fæst ekki meira en 80 krónur fyrir kílóið. í raun mætti kvótaleigu- verðið ekki vera hærra en um 10 krónur fyrir kílóið. Ástæðan fyr- ir því að menn kaupa enn kvóta er sú að þeir þynna þetta út með því að blanda saman eigin kvóta og leigðum kvóta og fá svo milli 50 og 60 krónur fyrir fiskinn að meðaltali upp úr bát. Þannig get- ur það ekki gengið til lengdar." Framboð og eftirspurn ræður „Ef menn eru að leigja sér kvóta hlýtur einhver forsenda að vera fyrir leigunni. Leigi menn sér kvóta fyrir verð sem þeir telja of hátt tapa þeir á við- skiptunum og eru ekki snjall- ir viðskipta- menn. Þeir sem ná sér 1 kvóta fyrir lágt verð hljóta að græða. Sá sem leigir frá sér kvóta á þvi verði hlýtur að sjá sér hag í því að gera það vegna þess að hann nær ekki sama árangri með hann og sá sem tekur hann á leigu. Það má líka spyrja þann sem segir aö leiguverðið sé of hátt: Hvers vegna ertu þá að leigja kvóta á þessu verði? Hér er bara um að ræða ákveðinn markað sem lýt- ur lögmáli framboðs og eftir- spumar. Það gefur augaleið að ef menn telja verðið of hátt og hafna því að taka kvóta á leigu myndi verðið samstundis lækka. Leigi menn sér kvóta út frá ein- hverjum öðrum sjónarmiðum en viðskiptasjónarmiði og á of háu verði hljóta þeir að vera tilbúnir að taka á sig þann fómarkostn- að. Síðan má ekki gleyma því að þó einn tapi á kvóta á háu verði getur annar hagnast á því. Það fer allt eftir því í hvaða rekstri menn eru. Einn gerir út frysti- togara, annar ísfisktogara, þriðji er í saltfiski og sá íjórði rekur frystihús. Aðstæður er svo mis- jafnar að eitt verð á kvóta segir ekki neitt. Þeir sem eru í við- skiptum hljóta að vera í þeim til að hafa út úr því peninga. Leigi menn sér kvóta og tapa á því ættu þeir að gera eitthvað ann- að.“ -S.dór Róbert Guðfinns- son framkvæntda- sfjóri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.