Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjómarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Byggilegustu svæða leitað Höfuðborgarsvæðið sogar til sín fólk af landsbyggð- inni. Samkvæmt tölum frá Hagstofu íslands um fólks- flutninga frá janúar til júlí á þessu ári flytjast fleiri til höfuðborgarsvæðisins en frá því á meðan hið öndverða á við í öllum öðrum landshlutum. Þetta eru sláandi töl- ur og sýna þróun sem fátt virðist geta stöðvað. Á þessu tímabili fLytja flestir frá Suðurlandi, Norður- landi vestra og Vestfjörðum. Fleiri flytjast einnig frá Suðumesjum, Vesturlandi, Norðurlandi eystra og Aust- Qörðum en til þeirra landshluta. Margt ræður flutningi fólks milli landshluta en í stór- um dráttum má gera ráð fyrir að þar ráði helst atvinnu- mál fólks og sú þjónusta sem er í boði. Meiri fjölbreytni í atvinnulífi á höfuðborgarsvæðinu og meiri þjónusta virðist hafa þau áhrif að fólk sækir þangað. Atvinna víða um land er mikil og atvinnuleysi jafnvel minna en á höfuðborgarsvæðinu en vinnan er einhæfari, tengd sjávarútvegi, veiðum og vinnslu og skyldri þjónustu. Fjölskyldur meta þá þjónustu sem í boði er á hverjum stað miðað við aðstæður og þarfir. Það er staðreynd að opinber þjónusta, ráðuneyti og stofhanir eru á höfuð- borgarsvæðinu. Stærstu sjúkrahúsin sömuleiðis sem og mest sérfræðiþjónusta lækna. Fjölbreyttara framboð er á námi á öllum skólastigum en annars staðar. Menningar- viðburðir eru fleiri sem og afþreying ýmiss konar. Tölur Hagstofunnar sýna að fólk hefur vegið og metið kosti og galla þess að flytjast frá landsbyggð til höfuð- borgarsvæðisins og fleiri telja kostina hafa vinninginn. í stórum dráttum hefur þetta verið svo í ár og áratugi. Fjölgunin er mest á höfuðborgarsvæðinu, meiri en nem- ur fæddum umfram látna. Fleiri flytjast til svæðisins en flytja brott. Það sem er óvenjulegt við tölur Hagstofunn- ar nú er að brottfluttir eru fleiri en aðfluttir alls staðar annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu. Það gerist á Suðurnesjum sem þó er byggð í námunda við höfuðborg- arsvæðið og það gerist einnig á Norðurlandi eystra. Raunar má sjá sömu strauma fólks innan kjördæmis- marka Norðurlands eystra og á landinu. Fyrir utan þá sem flytjast á brott af svæðinu flyst fólk úr dreifbýlinu til þjónustu og fjölbreyttara atvinnulífs á Akureyri. Fleiri flytjast til Akureyrar en frá, öfugt við það sem er í dreifðari byggðum og smærri þéttbýlisstöðum kjör- dæmisins. Athyglisvert er að skoða stöðu einstakra kaupstaða. Brottfluttir umfram aðflutta í Vestmannaeyjum eru 109 á þessu stutta tímabili. Ástandið er ekki jafn alvarlegt annars staðar en skiptir þó tugum manna í Reykjanes- bæ, Stykkishólmi, Vesturbyggð, ísafjarðarbæ, Siglufirði, Sauðárkróki, Ólafsfirði, Dalvík, Húsavík og Eskifirði. Þótt straumur fólks sé frá landsbyggð til höfuðborgar- svæðis eru að sjálfsögðu miklir flutningar frá höfuðborg- arsvæðinu og ekki síst innan þess. Þannig eru aðfluttir umfram brottflutta langflestir í Kópavogi eða nær 500 manns. í Reykjavík voru þeir 155. Fleiri flytjast hins veg- ar frá Seltjarnamesi og Garðabæ en til þeirra kaupstaða. Mestu ræður eflaust að undanfarið hefur Kópavogur boðið mjög eftirsótt byggingarland á miðju höfuðborgar- svæðinu, byggingarland sem önnur sveitarfélög hafa tæpast keppt við. Um það má deila hvort æskilegt sé að landsmenn þjappi sér að mestu á einn stað. Það er hins vegar val fólksins miðað við það samfélag sem það býr í. Fólkið leitar á byggilegustu svæðin. Þeirri þróun verður tæpast snúið við enda vafasamt að það sé gerlegt. Jónas Haraldsson Einhvern tíma lýsti ég því yfir í vinkvennahópi að sjúkdómar og peningar væru tvö leiðinlegustu umræðuefni sem ég gæti hugsað mér. „Það er ekki von þú nennir því, þú hefur hvorugt, gall strax við hjá einni. Sú staða hefur að vísu ekki breyst æði mikið. Ekki hef ég enn fengið arð af fiskikvótanum sem ég veit ég á en lifi í voninni. Ég leyfí mér líka að syndga upp á náðina og trassa bæði maraþon- hlaup og fitusprengingarkúrsa. Ég treysti á að Guð leyfi mér að verða bráðkvödd í rúminu mínu. En varðandi umtalsefnin hef ég skipt um skoðun. Sífellt berast fregnir um atgervisflótta af sjúkrahúsunum. Sjúkdómar og peningar Fréttir af þróun mála í heilbrigðisgeiranum flnnst mér núorðið einkar áhugaverðar og þó ekki síður öll þau hundruð milljóna sem annað fólk er ýmist að vinna eða tapa. Mér verður æ ljós- ara að lífið er alls ekki prenthæft, eða ætti ég að segja sýningarhæft. Þar eru flétturnar óvæntari en í nokkurri bíómynd. Skynsamar lausnir? Eftir að hafa alið aldur minn erlendis í meira en áratug þykir mér afskap- lega vænt um þjóðina mína. Venjulegur íslend- ingur er bjartsýnn, hjarta- góður og við það að verða heimsfrægur. Hefur að minnsta kosti hitt einhvern heimsfrægan, eins og Hall- grímur Helgason hefur sýnt fram á. Það vantar aðeins eitt, og það er svo sem nógu slæmt, við getum alls ekki komið okkur saman um skynsamlegar lausnir á neinu máli. Heilbrigðiskerflð er ekki undan- tekning. Úr sameiginlegum sjóð- um landsmanna renna þangað milljarðar en samt vantar mikið á að þjónusta sé sæmandi. Tökum bömin. Litlu fé er varið til for- varna í tannlækningum þrátt fyrir þrýsting frá tannlæknum sem mér fmnst göfugt því þar með svipta þeir sjálfa sig viðskiptum í fram- tíðinni. Annað er ófremdarástand- ið í málum bama með geðrænar truflanir. Það era líka forvamir, unnar af mjög góðu fólki, en biðraðir óralangar. Auðvitað er reynt að spara. Þar virðist þó ekki takast betur til en svo að fregnir berast um atgervis- flótta af sjúkrahúsunum. Ungur sérfræðingur flúði land nýlega. Hann var fús að sætta sig við lágt kaup en fannst vinnuumhverfið, skortur á tækjum og skilningi óþolandi. Aðrir flýja unnvörpum á Kjallarinn Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðingur einkastofur úti í bæ. Eða fá styrki frá útlöndum til dýrmætra rann- sókna sem gott mun af leiða, eins og Helgi Valdimarsson, sem annars hafði ætlað sér að fara að slá og hirða túnið á Bessa- stöðum. Flókið kerfi Vonandi verða ýmsar góðar í hugmyndir í til- lögum um samnýtingu sjúkrahúsa í „Það vantar aðeins eitt og það er svo sem nógu slæmt, við get- um ekki komið okkur saman um skynsamlegar lausnir á neinu máli.“ Reykjavík sem nú er verið að leggja fram. Annars er heilbrigðis- og tryggingakerfið svo flókið að ít- arleg rannsókn á því mundi nýtast sem efni í nokkrar doktorsritgerð- ir, og væri þarft að unnar yrðu. Leikmaður sér bara toppinn á ís- jakanum. Heyrir að vélakostur sjúkrahúsanna sé vannýttur, um sumarlokanir sem litlu skila í pen- ingum en miklu í mannlegum þjáningum, eins og seinast kom fram í góðum útvarpsþætti Berg- ljótar Baldursdóttur. Og svo er það uppáhaldssagan mín: Á einni sjúkradeildinni var aldurhnigin kaffikona í hálfs dags vinnu. Hún hlúði að starfsfólkinu svo það fékk meiri orku til að hlúa að sjúklingunum. Henni var sagt upp og hefur vísast farið á at- vinnuleysisbætur, ef hún hefur þá ekki þurft hjálp frá Félagsmála- stofnun vegna andlegra erfiðleika yfir að geta ekki unnið fyrir sér. Sparnaður af opinberu fé ná- kvæmlega enginn. Mikið tjón í keðjuverkandi aðhlynningu. Margir hafa skrifað góðar grein- ar um þessi mál. Enginn þó betur en Magdalena Schram í DV vorið 1993 og átti þá fáar vikur ólffaðar. Hún lá sárþjáð á Landakotsspitala og sá með eigin augum hvemig verið var að fækka skúringakon- um en stækka skrffstofur stjórn- enda. Mig langar að biðja DV að endurprenta þessa grein á næst- unni. í fyrsta lagi til að hampa snjallri blaðamennsku sem þama spratt af hjartablóði. í öðru lagi til að metnaðarfullir stjórnendur gætu haft ljósrit af henni á veggn- um sínum. Ein afsökun Við höfum að vísu eina af- sökun. Sjúkrahús voru nánast óþekkt hér á landi fram undir síðustu alda- mót, að útlendingar og konur, nema hvort tveggja væri, hófust handa um að reisa þau. Fjáröflunarleið- ir fengju sennilega lága einkunn hjá markaðsfræð- ingum vorra daga. Kaffisölur og tombólur voru fastur liður og svo allt niður í heimaskreytta eld- spýtustokka og öskupoka. En þannig risu Hvítabandið, Landa- kotsspítali, Landspítalinn, sjúkra- hús á Akureyri og víðar. Ég þekki ekki sögu sjúkrahúss- ins í Stykkishólmi, hef bara heyrt að þar náist mjög góður árangur í lækningum á ýmsum sviðum. Það- an barst skondnasta frétt sumars- ins um sparnað og best að enda þennan kjallara um seðla og sjúk- dóma með henni. Sjúkrahús þetta er kennt við reglu heilags Frans sem býður ævilanga fátækt, að dæmi Krists. í fréttum kom fram að reynt var að ná niður kostnaði með því að greiða nunnunum ekki kaup en sérstaklega tekið fram að þeim væri gefið að borða í mötu- neyti sjúkrahússins. Inga Huld Hákonardóttir Skoðanir annarra Auðlindin þekking „Það er ekki nóg að tala um að þekkingin sé orð- in mikilvægasta auðlindin. Fyrirtæki þurfa nú að leiða hugann meira að þeim verðmætum sem felast í þekkingunni og hvað þurfí að gera til að nýta hana og þróa til aukinnar verðmætasköpunar. Það er oft og tíðum mun erflðara viðfangsefni en að stjórna öðrum efnislegum eignum. Það þarf að hafa stjóm á þessum þætti eins og öðrum rekstrarþáttum. fslensk fyrirtæki geta gert mun betur á þeim vettvangi og aukið framleiðni og arðsemi í atvinnulifinu." Þorkell Sigurlaugsson í Viðskiptabl. 27. ágúst. Vinnuletjandi skattkerfi „Rikisstjómin gaf fyrirheit snemma á þessu ári um að svokallaðir jaðarskattar yrðu lækkað- ir...Tekjutengingarákvæði skatta, bóta og almanna- trygginga valda því, að jaðarskattar eru í mörgum tilfellum svo háir að fólk getur hækkað ráðstöfunar- tekjur sínar með því að lækka launatekjur. Skatt- kerfið, vegna tekjutengingarinnar, er sem sé vinnu- letjandi fyrir fólk. Þetta era þeir annmarkar, sem sníða verður af skattkerfinu og það sem ríkisstjórn- in hefur lofað að gera...Og enn er beðið. Nú er áliðið árs 1997. Hve lengi á að bíða enn?“ Úr forystugrein Mbl. 27. ágúst. Blásið á bölsýnina „Vinnuveitendur hafa nú tryggt sér kjarasamn- inga tff tveggja tU þriggja ára og það hlýtur að verða hægt að gera þá kröfu til þeirra að þeir lagfæri sinn rekstur. En þegar vel árar gerist hið sama hjá fyrir- tækjum og hinu opinbera, það verður erfiðara að halda kostnaði niðri og menn leyfa sér meira...Síðan hefur launafólk verið að sækja í þessum kjarasamn- ingum hluta af ávinningnum og það er ekki óeðlUegt að fyrst á eftir komi minni hagnaður í hlut fyrir- tækjanna." Davíð Oddsson í Degi- Tímanun 27. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.