Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.1997, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 28. ÁGÚST 1997
(ífimönn
Mælanlegur
árangur
„Hvernig vitum við að þeir
eru hæfari kennarar en aðrir, þó
svo þeir hafi leitað í betur laun-
uð störf? Hvað þarf að hækka
laun kennara mikið til að laða þá
hæfustu að?“
Stefán Jón Hafstein í Degi-Tím-
anum.
Vanþekking
og hroki
„Þeir sem gagnrýna spíritisma
og segja hann ekki í samræmi
við kristna trú eru að verja sig
og sina vanþekkingu með hrok-
anum.“
Sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son í Degi-Tímanum.
Ummæli
Mesta
mismunun
„Það er sannfæring mín að
aldrei frá því að ísland byggðist
hefur nokkur stjómvaldsaðgerð
mismunað þegnum þessa lands
jafn gríðarlega og samþykkt nú-
verandi fiskveiðistjórnunarkerf-
is.“
Þorsteinn Jóhannesson i Mbl.
Brattasti
kletta-
veggur
Norðvesturveggur Half Dome í
Yosemite í Kalifomíu er 975 m
breiður og 670 m á hæð en víkur
hvergi meira en 7° frá lóðréttri
stefnu.
Axlar-Björn
limamarinn
Á Laugabrekkuþingi árið 1596
var Bjöm Pétursson, bóndi á Öxl
á Snæfellsnesi, dæmdur til
dauða. Axlar-Bjöm, eins og hann
var kallaður, „meökenndi" að
hafa myrt 18 manns. Fyrir liflát-
ið vom bein Bjöms brotin á öll-
um útlimum.
Blessuð veröldin
Og, að, á, í
Orðin og, að, á og í em algeng-
ustu orð í íslensku. Áætlað hefur
verið að tíu algengustu orð í mál-
inu séu um fjórðungur þeirra
orða sem notaður er í rituðu
máli og mæltu.
Iþróttasvæði
Iþróttasvæði
Æfinga-
svæði
Ibúðahver'
Kirkjugarðar
Ibúðahverfi
Útivistarsvæði
ð Korpúlfsstaði
Malarstígar
Göngu-og hjólreiðasfa'gar
Veiðistaðir
Frá dýpstu sorg
til stærstu gleði
„Ég hef verið við prestsþjónustu í
norsku kirkjunni í eitt og hálft ár, í
tíu þúsund manna söfnuði í Osló.
Annars hef ég verið í Noregi í tvö ár
og er búin að taka þar sálgæslunám
sem er krafa sjúkrahúsanna að
prestar taki til þess að geta þjónað
sem sjúkrahússprestar," segir séra
Sigrún Óskarsdóttir. Á fundi stjórn-
ar íslenska safnaðarins í Noregi í
fyrrakvöld var einróma samþykkt
að skora á biskup að skipa hana í
embætti sóknarprests íslendinga í
Noregi.
Sigrún er ættuð úr Mýrdalnum í
báðar ættir. Hún er gift Einari Má
Magnússyni byggingatæknifræð-
ingi. Börn þeirra eru Hafsteinn
Birgir, 8 ára og Margrét Þóra, 5 ára.
Sigrún tók guðfræðipróf frá Há-
skóla íslands árið 1991. Eftir það
þjónaði hún í tvö ár sem aðstoðar-
prestur í Laugameskirkju. Síðan
var hún í eitt ár i hlutastarfi og af-
leysingum sem sjúkrahúsprestur á
Landspítalanum. Þá var hún fram-
kvæmdastjóri Æskulýðssambands
kirkjunnar i Reykjavík í eitt ár og
hefur síðan verið í Noregi.
„Allan tímann sem ég var í guð-
fræðideildinni var ég með bama- og
æskulýðsstarf í Lágafellskirkju í
Mosfellssveit. Ég lærði mjög mikið
af séra Birgi Ásgeirssyni sem var
sóknarprestur
þar. Hann er al-
veg frábær mað-
ur og það var
mjög lærdóms-
ríkt að vinna
með honum."
Sigrún er fædd
og uppalin á
Laugarvatni og
tók stúdentspróf
þaðan. Síðan lá
leiðin til Reykja-
víkur. „Ég hef
alltaf verið trúuð.
Ég er alin upp á
mjög hefðbundnu
heimili. Mamma
fór alltaf með
kvöldbænirnar
með okkur. Ég tel
mig hafa verið
mjög heppna með
að fyrstu þrjú
árin i barnaskóla
var prestsfrúin
kennari minn.
Hún hafði mikil
áhrif á mig og
mína trú. Hver
skóladagur byrj-
aði á bænastund."
Eftir menntaskóla var Sigrún
mjög óákveðin en ákvað að fara í
guðfræðideild-
ina. „Þar fann ég
mig fljótt og leið
mjög vel. Mér
fannst þetta gott
nám auk þess
sem mér fannst
það spennandi,
flölbreytt og
skemmtilegt. Það
var þó ekki fyrr
en á síðasta ár-
inu sem ég ákvað
endanlega að
taka vígslu og
verða prestur. Ég
fann að það var
það sem mig
langaði mest.
Prestsstarfið er
bæði erfitt og
skemmtilegt.
Maður kemur ná-
lægt fólki í öllum
aðstæðum, frá
dýpstu sorg til
stærstu gleði, og
verður ekki
ósnortinn af því.
Það er mjög dýr-
mætt og gefandi
að fá að vera með fólki á stóru
stundunum í lífi þess,“ segir Sigrún.
-VÁ
Sigrún Óskarsdóttir.
Maður dagsins
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1891:
Gróðurreitir
1. deild
karla
í dag fara fram tveir leikir í
fyrstu deild karla í knattspymu.
Viðureign Þórs á Akureyri og
KA fer fram á Akureyrarvelli
klukkan 18.30. Á sama tíma
keppa Fylkir og Víkingur úr
Reykjavík á Fylkisvelli í Reykja-
vík.
íþróttir
2. deild
karla
í annarri deild karla í knatt-
spyrnu fer einn leikur fram í
dag. Fjölnir og Selfoss eigast við
á Fjölnisvelli klukkan 18.30.
Bridge
Sagnhafi í suður taldi sig hafa
spilað eins vel og hann gat til þess
að standa 4 spaða í þessu spili, en
samt sem áður hefði hann getað hitt
á vinningsleiðina. Vörnin hefði hins
vegar getað staðið sig betur, til að
tryggja að samningurinn færi nið-
ur. Sagnir gengu þannig, suður gjaf-
ari og ns á hættu:
* KG652
•* 54
* D75
* ÁD3
—N— 4 D104
V A V 08
v a ♦ G832
S * K964
4 Á987
4* ÁK6
* K94
* G107
Suður Vestur Norður Austur
1 grand pass 2 •* pass
2 4 pass 4 4 p/h
Vestur hóf vömina á þvi að spila
út hjartagosanum og sagnhafi drap
þann slag heima á ás. Hann sá að ef
laufkóngurinn lá fyrir svíningu,
væri hægt að öryggisspila spaðann,
upp á í mesta lagi einn tapslag (lít-
ill spaði að heiman á kónginn). Þess
vegna tók hann laufsvíninguna
strax í öðrum slag. Austur drap á
kónginn og spilaði hjartadrottning-
unni. Sagnhafi drap heima á kóng,
tók ÁK í trompi og fékk slæmu frétt-
irnar um leguna þar. Sagnhafi vissi
alveg hvað gera þurfti, en það var
að fá andstæðingana til að hreyfa
tígullitinn. Hann trompaði því
hjarta og spilaði laufum i botn, áður
en hann spilaði sig út á spaða. Aust-
ur lenti inni á drottningunni og
þóttist klókur þegar hann spilaði
tígulgosanum. Sagnhafi las ekki
stöðuna rétt og hleypti yfir á drottn-
inguna. Hann gaf síðan á ÁIO í tígli
og fór einn niður. Austur var mont-
inn með spilamennskuna og sagði
„Ef ég hefði spilað lágum tígfi hefði
sagnhafi ekki getað farið niður á
spifinu." Vestur var fljótur að setja
ofan í við féfaga sinn. „Það er rétt
hjá þér, en ef þú hefðir spilað
tíguláttunni, hefði sagnhafi aldrei
átt mögufeika."
ísak Öm Sigurðsson
4 3
44 G109732
4 Á106
* 852