Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
11
Fréttir
Eyj afj ar ðar s væöiö:
Neytendasamtökin og
stéttarfélög semia
DV, Akureyri: j
„Það sem að mínu mati stendur
upp úr varðandi þetta samkomulag er
að stuðningur verkalýðsfélaganna við
Neytendasamtökin er hvergi meiri í
landinu en í Eyjafirði. Við munum
reyna að koma til móts við félögin
með því að bjóða upp á öflugri og
betri verðkannanir á því svæði en
annars staðar," segir Vilhjálmur Ingi
Árnason, formaður Neytendafélags
Eyjafjarðar og nágrennis.
í gær var undirritað samkomulag
milli Neytendasamtakanna annars
vegar og 6 verkaklýðsfélaga í Eyja-
firði og sjöunda verkalýðsfélagið
mun undirrita samninginn innan
tíðar. Verkalýðsfélögin sem hlut
eiga að máli eru Iðja, félag verk-
smiðjufólks á Akureyri og ná-
grenni, Verkalýðsfélagið Eining, Fé-
lag verslunar- og skrifstofufólks á
Akureyri og nágrenni, Starfs-
mannafélag Akureyrarbæjar, Félag
málmiðnaðarmanna á Akureyri og
Sjómannafélag Eyjafjarðar og Félag
byggingamanna í Eyjafirði mun
undirrita samninginn siðar.
Stéttarfélögin greiða ákveðna
upphæð til Neytendasamtakanna,
ýmist mánaðarlega eða eftir nánara
samkomulagi. Neytendasamtökin
munu halda uppi öflugu starfi og
gangast fyrir verðkönnunum til að
tryggja virka samkeppni og sem
lægst verð vöru og þjónustu á svæð-
inu. Einnig munu Neytendasamtök-
in tryggja að virkt eftirlit verði með
verðmerkingum. -gk
Það var mikiö fjör á kappreiöum Fáks í Víöidal á laugardaginn. Ekki var aðeins um spennandi keppni aö ræöa held-
ur var stofnaöur veöbanki og var mikiö fjör í veömálum. Meðal þeirra sem veöjuöu var Haraldur Haraldsson, betur
þekktur sem Haraldur í Andra. Hann er hér að lýsa fyrir félaga sínum ágæti þess skeiöhests sem hann haföi veöjað
á. Þess má geta aö hesturinn sem Haraldur veöjaöi á í þetta skiptið hljóp upp. DV-mynd: Guðlaugur Tryggvi.
Borgarbraut á Akureyri:
Grænt Ijós vantar
frá ráðuneytinu
DV, Akureyri:
„Við lögðum ofuráherslu á að
framkvæmdir við Borgarbrautina
hæfust í sumar, og frá okkar hendi
var allt tilbúið í júnímánuði, hönn-
un lá fyrir og verkið var tilbúið í út-
boð,“ segir Gísli Bragi Hjartarson,
formaður framkvæmdanefhdar Ak-
ureyrarbæjar, um það að fram-
kvæmdir hafa enn ekki hafist við
Borgarbraut á Akureyri, frá Hlíðar-
braut að Dalsbraut.
Borgarbraut er þjóðvegur í þétt-
býli og bæjaryfirvöld á Akureyri
áformuðu að ljúka hluta nýfram-
kvæmdanna fyrir haustið, þar með
talið að setja brú á Glerá og bæta
mjög umferðarleiðir að Háskóla Ak-
ureyrar sem er skammt frá ánni.
Engar framkvæmdir eru þó hafnar,
þrátt fyrir að bæjaryfirvöld á Akur-
eyri hafi boðist til að vinna verkið
fyrir eigin reikning og lána þannig
ríkinu peninga, en ríkið greiðir 85
til 90% af kostnaði við framkvæmd-
ina.
„Ég veit eiginlega ekki hver er
ástæða þess að við höfum ekki feng-
ið leyfi frá ráðuneytinu til að byrja
þessa vinnu. Þetta snýst ekki um
fjármögnun verksins vegna þess að
aldrei hefur staðið annað til en
Akureyrarbær fjármagnaði fram-
kvæmdina. Það er hins vegar rétt að
það hefúr ekki verið gengið frá
samningi um það hvenær ríkið
myndi endurgreiða Akureyrarbæ
sinn hluta framkvæmdarinnar.
Þessi framkvæmd er þó komin inn á
vegalög og sem slík hefur hún feng-
ið samþykki Alþingis," segir Gísli
Bragi.
-gk
Hólum í Hjaltadal:
Endurreist
úr trjáviði
frá Noregi
„Norðmenn sögðu okkur, þeg-
ar Smugudéilan stóð sem hæst,
að þeir myndu gefa allan trjávið
til að byggja Auðunarstofu, ann-
an en efni í veiðistengur,“ segir
sr. Hjálmar Jónsson alþingismað-
ur. Hjálmar á sæti í nefhd sem
m.a. vinnur að því að Auðunar-
stofa rísi á ný að Hólum í Hjalta-
dal fyrir kristnihátíð árið 2000.
Hin upphaflega Auðunarstofa
var reist árið 1301 og stóð enn
árið 1801 þegar hún var rifin.
Húsið var eins konar skrifstofu-
hús og bókasafn fyrir Hólabiskup
á sinum tíma og kennd við Auð-
un biskup rauða, norskan biskup
sem sat á Hólum. Hjálmar Jóns-
son segir aö ætlunin sé að reisa
hina nýju Auðunarstofu í sama
stO og þá gömlu og verður hún
líka bókastofa og embættishús
fyrir vigslubiskupsembættið og
Hóladómkirkju eins og hin gamla
var. Búið er að taka skóflustungu
að grunni hússins og hafa Norð-
menn gefiö allan viðinn í bygg-
inguna. í undirbúningsnefnd að
byggingu Auðunarstofu eru auk
Hjálmars, sr. Bolli Gústafsson,
vígslubiskup á Hólum og Hjalti
Zophaníasson, skrifstofustjóri í
kirkjumálaráðuneytinu. -SÁ
Sandgerðishöfn dýpkuð:
Búist við mikilli um-
ferð flutningaskipa
DV, Suðurnesjum:
Sandgerðingar bíða eftir svari
samgönguráðherra, Halldórs Blön-
dals, um leyfi til að hefja fram-
kvæmdir á dýpkun innan Sandgerð-
ishafnar og lengingu viðlegurýmis á
norðurgarði. Áætlaður kostnaður er
um 100 milljónir. Við dýpkunina
færist loðnulöndun frá suðurgarði
yflr í norðurgarð en þar hefur ekki
verið hægt að koma djúpristum bát-
um fyrir. Það er nánast alit sem
mælir með því að Sandgerðingar fái
leyfi samgönguráðherra. Éandana-
fjöldi er hæstur í Sandgerði, eða
7.620, en næsta höfn er með 5615, á
tímabilinu 1. sept. 1996 til 30. júlí.
1997. Þá er Sandgerðishöfn í öðru
sæti hvað varðar botnfisk á land
með 32.620 tonn.
Góð nýting löndunarrýmis
Nýting löndunarrýmis er mikil í
Sandgerði og er langt yfir 100%.
Lengd nýtanlegs löndunarrýmis fyr-
ir togara, loðnuskip og flutninga-
skip er nú 170 metrar en myndi fara
í 315 metra við dýpkun innan hafn-
ar. Sandgerðingar gera ráð fyrir
mikilli umferð flutningaskipa til
hafnarinnar. Fjöldinn er nú 15 á ári
en verður á næsta ári 50. Fram-
kvæmdir á hafnarsvæðinu i Sand-
gerði er lyginni likast. Verið er að
fjárfesta fyrir einn og hálfan millj-
arð. Þar má helst nefha nýtt hús
Fiskmarkaðar Suðumesja, nýja
verksmiðju sem keypt var frá Dan-
mörku, sem býr til loðdýrafóður til
útflutnings og áætlað magn er um
25.000 tonn á ársgrundvelli og nýtt
fiskvinnsluhús hefur risið á svæð-
DV, Suðurnesjum:
„Þeir íbúar sem ganga töluvert
um svæðið sjá refi víða. Þeir hafa
áhrif á allt fuglalíf og geta verið
skaðvaldur í umhverfinu. Ég
held að við séum eina sveitarfé-
lagið á Suðumesjum sem sinnum
þessum veiðum í einhverjum
mæli. Við hér í Grindavík eigum
marga menn sem em fæddir
veiðimenn," sagði Jón Gunnar
inu. Þá era framkvæmdir hafnar á
öðru fiskvinnsluhúsi, framkvæmdir
við loðnuverksmiðju stendur yfir en
þar er verið að auka afkastagetu
hennar um 600 tonn til viðbótar
þeirri sem er á staðnum en hún af-
kastar um 300 tonnum. Þá er ætlun-
in hjá Sandgerðisbæ að auglýsa eft-
ir aðilum sem vilja byggja 200-300
m2 einingahús til að vinna ferskan
fisk til útflutnings í flugi, svo eitt-
hvað sé nefnt. -ÆMK
Stefánsson, bæjarstjóri í Grinda-
vík.
Bæjarráð samþykkti á fundi
sínum að ráða tvo Grindvíkinga,
Hermann Ólafsson og Helga Gam-
alíelsson, til að annast refaveiðar
í sveitarfélaginu. Umræddir
menn era miklar skyttur og
mundu áreiðanlega sóma sér vel í
hvaða her sem er í heiminum.
Þeir hafa mikla reynslu í skotfimi
og refaveiðum. -ÆMK
Refaskyttur ráðnar
MVLLAN
HJALPAR
MEÐ
HVERJUM
BITA
Myllan leggur
kr. af nverju
Heimihsbrauði
til hjálparstarfs.
<UtT HJÁLPARSTOFNUN
\Qry KIRKJUNNAR
* Dufthylki
50% sparnaður
• Gleislaprentarar • Faxtæki o.fl.
• ISO-9002 gæði • Full ábyrgð
j. nsivniDssoN ehf.
Skipholti 33 105 Revhjavlk Slmi 533 3535