Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EVJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgalds. 96% réttleysi á hálendinu Sveitarfélög, sem liggja að hálendinu, eiga ekki að framlengjast upp á miðja jökla, enda ná sveitarfélög við sjávarsíðuna ekki út að landhelgismörkum. Sveitarfélög ná heldur ekki langt niður í jörðina eða upp í loftið, því að fljótlega tekur við umsjónarsvæði ríkisins. Frumvarp félagsráðherra felur í sér fráhvarf frá áður gildandi reglu um, að ríkið sjái um lögsögu utan byggða, það er að segja út á haf, upp í loft og niður í jörð. Fyrir hefðarrofi þurfa að vera brýnar forsendur, en slíku er alls ekki til að dreifa í þessu tilviki. Þar á ofan veldur frumvarpið misrétti. Sveitarfélögum með samtals 4% af íbúafjölda landsins er falið að stýra 40% af flatarmáli landsins. Þéttbýlið við sjávarsíðuna umhverfis landið nýtur ekki sama réttar og fær engan sérrétt út á haf til að bæta sér upp mismununina. Raunar má segja, að frumvarpið sé óbeint framhald þeirrar stefnu að taka hluti úr almannaeigu og gefa þá litlum hópi. Þannig voru auðlindir sjávar gefnar útgerð- arfélögum og þannig á nú að gefa bændasamfélögum miðhálendið. Rányrkjugengin eru verðlaunuð. Engin sérstök ástæða er til að afhenda útgerðarmönn- um auðlindir hafsins frekar en einhverjum öðrum, til dæmis sjómönnum, fiskvinnslufólki, fiskvinnslustöðv- um, sveitarfélögum eða stjómmálaflokkum. Útvegsmenn eiga ekkert sérstakt tilkall umfram aðra. Rányrkjureynsla á síður en svo að veita rétt til stjórn- unar á rányrkju, hvorki úti á hafi né uppi á söndum. Þess vegna eiga hvorki útgerðarfyrirtæki, bændasamfé- lög né aðrir hagsmunahópar að stjóma þeim svæðum lögsögunnar, sem em langt utan byggðra bóla. Því miður hafa stjómarflokka-þingmenn sjávarsíð- unnar flestir hverjir ekki sýnt neinn áhuga á að koma í veg fyrir misréttið í frumvarpi bóndans frá rótum Auð- kúluheiðar. Þeir hafa ekki nennt að kynna sér efni þessa máls frekar en annarra flókinna þingmála. Þetta er angi af því, að stjórnarflokka-þingmenn utan Reykjavíkur og Reykjaness em í fullri vinnu við að gæta meintra sérhagsmuna í héraði, en þingmenn þessara tveggja kjördæma em í fullri vinnu við að hvíla sig eða að frílysta sig á fjölþjóðlegum nefndafundum. Það skiptir máli, hver stýrir miðhálendinu, því að sá aðili stýrir líka skipulagi þess. Hann getur til dæmis hagað skipulagi á þann veg, að tiltekið svæði skuli nýtast til beitar fremur en til orkuvera og orkuveitna eða til náttúruvemdar og náttúruskoðunar. Þannig munu ráða ferðinni skammtímahagsmunir þeirra 4% þjóðarinnar, sem búa í þeim sveitarfélögum sauðfjárræktar, er liggja að hálendinu. Gegn þessum þröngu hagsmunum munu almannahagsmunir mega sér tiltölulega lítils, ef frumvarpið nær fram að ganga. Fyrir utan yfirgang sérhagsmuna býður frumvarpið upp á, að mismunandi sjónarmið ráði ferðinni, þegar mörg sveitarfélög ráða litlum og samhliða landræmum inn á sanda og jökla. Það, sem eitt sveitarfélagið vill, getur stangast á við það, sem nágrannafélögin vilja. Þannig kunna allir að vilja byggja ferðamiðstöðvar á sinni ræmu, svo að úr verði kraðak stöðva á borð við þá, sem ætlunin er að reisa á Hveravöllum í skjóli stjóm- enda Auðkúluheiðar. Eða að allir nema einn vilji láta virkja eða þá að allir nema einn vilji láta friða. Bezt er, að um hagsmuni á miðhálendinu sé fjallað á einum stað. Þetta eru ótvíræðir almannahagsmunir og eiga því heima á vegum stjómsýslu af hálfu ríkisins. Jónas Kristjánsson .Verkfall þjónar engum tilgangi núna. Reynslan margsannar þaö. Kennarar á fundi í Karphúsinu, Berrassaðar sveitarstjórnir Þegar kom tO tals að sveitarfélög- in fremur en ríkið ábyrgðust rekstur grunnskólanna töluðu glaðbeittir sveitarstjómarfuiltrúar digurbarka- lega um kosti breytinganna. Sann- færingin var slík að ætla mátti að allsnægtir biðu kennara og vandi skólakerfisins hyrfi með því að færa ábyrgðina heim í hérað. Kjósandi sem var orðinn leiður á að kokgleypa reglubundinn kosningaáróður á flög- urra ára fresti fór að ímynda sér að þessir menn hefðu metnað til góðra verka fyrir samfélagið. Magna upp fordóma I uppnáminu sem varð fyrr á þessu ári vegna hörmulegra fregna af ástandi skólamála andmælti enginn þeirri skoðun að stórkostleg breyting til hins betra yrði að verða á kjörum og aðstöðu kennara. Við yrðum und- ir í samkeppni þjóðanna um lífsgæði ef við ekki lagfærðum þessa hluti. Sveitarstjómarmenn - kjömir full- trúar almennings - sem þá vora fyr- ir löngu búnir að frétta ailt um launakröfur kenn- ara, tóku hraustlega undir þann söng en gleymdu að rukka ríkið um rekstrarfé skólanna. Ríkið á hinn bóginn sér nú fram á hallalausan rekstur. Núna standa sveitarstjómir ber- strípaðar. Þær era komnar í nauðvöm og famar að magna upp fordóma gagnvart kennurum, ala á ótta um að þeir ætli að hafa beinharða peninga af almenningi, ef ekki með góðu þá með illu. Rétt eins og kennarar væra þjófar. Hinn svip- brigðafátæki formaður samninga- nefhdar sveitarfélaganna hóf ambrið og lék hlutverkið af stakri fag- mennsku. Enda virðist hann einstak- lega vel að sér í þeirri tillærðu, klók- indalegu fákunnáttu sem að jafnaði nærir fordóma. Viðbrögð Launa- málaráðs sveitarfélag- anna í liðinni viku, í formi fátæklegrar „vOjayflrlýsingar" um að bæta þyrfti kjör og aðstöðu kennara komu hins vegar of seint og eru OlskOjanleg, vegna þess að í nefhdu ráði sitja þeir sem eiga að ráða afstöðu samn- inganefhdarformanns- ins. Hvers vegna þenn- an tvískinnung? Hlutur Stöövar 2 Stöð 2 gleypti agnið á línunni sem samn- inganefndarformaður- inn kastaði og lét etja sér á foraðið. Krislján Már Unnars- son stóð þannig að einkar ógeðfeOdri, samfélagsflandsamlegri fréttaskýr- ingu 15. þ.m. og setti dæmið þannig upp að kröfumar væra stórkostleg ógnun við skattgreiðendur. Hverjir eru hinir skOvísu skattgreiðendur ef ekki kennarar? Ef menn þykjast hafa áhyggjur af „penhigum skattborgar- anna“ væri málflutningur þeirra trú- verðugri ef þeir stOltu skattsvikur- um upp sem háskalegasta andskota þessa samfélags og köOuðu þá ein- faldlega þjófa. Fólk sem vinnur heiðarlega vinnu á lúsarlaunum og borgar sannanlega skatt af herlegheitunum á það ekki skOið að vera brigslað um vafasaman ásetning. Kennarar era stór hópur á meðal þeirra fáu sem standa undir rekstrarkostnaði samfélagsins. Að ana út á götu, ota hljóðnema framan í grandalausa vegfarendur og krefja þá um svör við leiðandi spumingu er fyrirlitleg fréttamennska, en, því miður, hún er runnni rrndan riQum sveitar- stjómarmanna. Aðeins fjöldaupp- sagnir Andúðin á kennara- stéttinni sem nú er enn á ný verið að magna upp bendir tO að sveit- arstjómir og jafnvel aimenningur vOji engan ama af skólahaldi. Því segi ég við kennara: Aðeins íjölda- uppsagnir ykkar gætu ýtt við al- menningi og leitt tO lausnar. VerkfaO þjónar engum tOgangi núna. Reynsl- an hefur margsannað það. Standi það í mánuð nema launahækkanir ein- um mánaðarlaunum á ársgrundveOi. Þeim mun lengur sem það stendur þeim mun meira tapast. Eini varan- legi „árangurinn" af verkfalli kenn- ara væri frekari niðurlæging stéttar- innar, frekari áUtshnekkir, magn- aðri kergja í samfélaginu. Ef upp- sagnir ykkar gera sveitarstjómum ekki ljóst að nú er úr vöndu að ráða er ekki nema eitt fyrir kennara að gera. Fá sér aðra vinnu. Einhveijir gætu undirboðið fréttamenn Stöðvar 2 og fengið vinnuna þeirra. Slík hegð- im er hinu „frjálsa" markaðskerfi þóknanleg. Menntun? Jú jú, ein- hvem tíma fattar einhver að hún er ekki með öOu ónauðsynleg. Þá mun nægja að þeir efnameiri sendi sín af- sprengi tO náms í útlöndum. Þá stytt- ist í að við fáum hér aftur það sér- hagsmunasamfélag fyrri alda sem menn era sífeOt að lofsyngja. Ámi Ibsen „Ef uppsagnir ykkar gera sveit- arstjórnum ekki Ijóst að nú er úr vöndu að ráða er ekki nema eitt að gera. Fá sér aðra vinnu.u Kjallarinn Árni Ibsen rithöfundur Skoðanir annarra Skrílmenningin í Reykjavík „Fólk kann að leggja lif sitt I hættu með því að vera á ferli um og eftir að vínveitingastöðum er lok- að. Hættumar minna orðið á ástandið í ýmsum stór- borgum heims, ekki sízt hafnarborgum. Viðstöðu- lausar hávaðasamkomur í miðborginni em á góðum vegi með að breyta henni í slíkt umhverfi.... Ofbeld- ið virðist ekki eiga sér nein takmörk. Er ekki kom- ið meira en nóg af þessari skrílmenningu?“ Úr forystugrein Mbl. 24. sept. Skattkerfi í ógöngum „íslenska skattkerflð er í ógöngum, sem það kemst ekki út úr nema með róttækum uppskurði. Tekju- tenging bamabóta er byggð á meinlegri rökviOu og veldur ranglæti í skattkerfmu sem mælist i mörgum miOjörðum. í heOd eru barnabætur hér aOtof lágar og alþjóðlegur samanburður leiðir að auki skýrt í ljós að tOtölulega háar bamabætur tO efnaminnstu fjölskyldnanna eru í raun fjármagnaðar eingöngu með því að skerða réttmætar bætur annarra for- eldra. í þessu felst rökviOan, því auðvitað er foreldr- um með sæmOegar tekjur síst skyldara en vel stæðu bamlausu fólki að létta undir með efnaminni for- eldrum.“ Finnur Birgisson í Mbl. 24. sept. Þung byrði á nýjan fréttastjóra „Það er auðvitað afar óheppOegt fyrir Ríkisút- varpiö að yfirmannsstöður hjá þessum mikOvæga ríkisrekna fjölmiðli, sem á að njóta trausts allra landsmanna, skuli verða að pólitisku bitbeini með þeim hætti sem nú hefur gerst eina ferðina enn.... Það pólitíska gjömingaveður sem riðið hefur yfir Ríkisútvarpið að undanfómu leggur þunga byrði á herðar nýja fréttastjórans, hver sem hann verður.“ Elias Snæland Jónsson í Degi-Tímanum 24.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.