Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Síða 17
16
íþróttir
Knattspyrna:
Breytingar á
TOTO-keppninni?
Svo gæti farið að Getrauna-
keppni Evrópu (TOTO) taki
breytingum á næsta ári. Ákvörð-
un um það verður tekin á fundi
UEFA í desember.
Ef af breytingum verður, sem
flest bendir til, felast þær helst í
því að auka áhuga stærri lið-
anna á keppninni. Einnig er lagt
til að leggja niður riðlakeppnina
en taka upp í staðinn útsláttar-
keppni líkt og á öðrum Evrópu-
mótum. Stærri klúbbarnir
kæmu síðan inn í lokaumferðina
og myndu þá etja kappi við liðin
sem þangað væru komin og sig-
urvegaramir myndu tryggja sér
sæti í UEFA-keppninni.
Fram og Leiftur berjast um
sæti í TOTO-keppninni að ári en
það lið sem hafnar í þriðja sæti
á íslandsmótinu fer í umrædda
keppni. -JKS
B36 meistari
í Færeyjum
B36 frá Þórshöfn hefur tryggt
sér færeyska meistaratitilinn í
knattspyrnu þó þremur umferð-
um sé ólokið. B36, sem varð síð-
ast meistari fyrir 35 árum, er
með tíu stiga forystu á næsta lið,
HB. Þjálfari B36 og leikmaður er
Tomislav Sivic frá Júgóslavíu en
hann lék hér á landi með HK fyr-
ir tveimur ámm.
GÍ frá Götu, meistari síðustu
íjögurra ára, er í þriðja sæti en
eftir sem áður hefur félagið náð
frábærum árangri undir stjórn
Páls Guðlaugssonar yfirþjálfara
á þessu ári.
GÍ vann VB, 6-0, í úrslitaleik
bikarkeppninnar og yngri lið fé-
lagsins hafa tryggt sér meist-
aratitla i 3. og 4. deild. Gata, sem
er aðeins 900 manna bær, státar
því af því á næsta ári að eiga lið
i öllum fjórum deildum færeyska
meistaramótsins. -VS
Þórður áfram
í efsta sætinu
DV, Belgíu:
Fyrsta um-
ferðin í deildar-
bikarnum fór
fram í fyrrkvöld
og sigruðu Þórð-
ur Guðjónsson
og samherjar
hans í Genk lið Beveren, 5-1.
Þórður var ekki í byrjunarliðinu
en kom inn á í síðari hálfleik.
Þórður heldur áfram fyrsta
sætinu um titilinn besti leikmað-
ur Belgíu hjá stórblaðinu Het
Nieuwsblad. Hann er þar með 13
stig eftir sex leiki. -JKS/KB
Arnór í bann
DV, Svíþjóð:
Örebro og Helsingborg skildu
jöfn, 0-0, í sænsku úrvalsdeild-
inni i knattspymu í gærkvöld.
Sigurður Jónsson lék ekki með
Örebro þar sem hann tók út leik-
bann. Amór Guðjohnsen og
Hlynur Birgisson voru með en
Amór fékk gult spjald og verður
í banni í næsta leik.
Elfsborg, lið Kristjáns Jóns-
sonar, vann Eskilstuna, 0-2, i 3.
umferð bikarkeppninnar.
Guðmundur Ingi Magnússon,
fyrrum leikmaður Víkings, var
rétt búinn að skora hjá meistur-
um Gautaborgar. Lið hans,
Skövde AIK, tapaði, 0-3, fyrir
Gautaborg í bikamum. -EH
Tindastóll og KR
Tindastóll sigraði KR, 73-67, í
úrslitaleik Reykjavíkurmóts
karla í körfubolta i gærkvöld.
KR vann ÍS, 53-43, 1 úrslitaleik í
kvennaflokki.
+
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997 25
íþróttir
Guðmundur Benediktsson til Noregs á sunnudaginn:
Flótti frá KR-ingum í haust?
Guðmundur Benediktsson, knatt-
spymumaðurinn snjalli úr KR, fer á
sunnudaginn til Noregs en forráðamenn
norska úrvalsdeildarliðsins Bodö/Glimt
hafa boðið honum að koma út og líta á
aðstæður hjá félaginu.
„Ég verð sennilega í Noregi fram til
fóstudagsins 3. október. Ég fer fyrst til
Bodö en það er möguleiki að ég skoði
önnur mál í leiðinni en ég vil ekki gefa
það upp hvað það er á þessu stigi," sagði
Guðmundur við DV í gær.
Samningur Guðmundar við vestur-
bæjarliðiö rennur út 1. október og það
liggur beinast við aö spyrja hvort hann
ætli að breyta til:
„Ég veit það ekki en ég ætla alla vega
að skoða alla möguleika og það er ýmis-
legt í gangi. Ég mun hugsa málið mjög
vel,“ sagði Guðmundur.
Þó svo að reglan segi að ekki megi
ræða við leikmenn áður en keppnis-
tímabilið er búið hafa nokkur félög hér
innanlands sett sig í samband við Guð-
mund, þar á meðal Skagamenn sem
urðu undir í baráttunni við KR þegar
Guðmundur fór frá Þórsurum.
Eins og staðan er í dag lítur út fyrir
að KR-ingar verði að sjá á eftir mörgum
leikmönnum sínum eftir þetta keppnis-
tímabil.
Óskar Hrafn Þorvaldsson hefúr þegar
gengið frá samingum við norska úrvals-
deildarliðið Strömsgodset.
Brynjar Gunnarsson er á leið til IFK
Gautaborg.
Ríkharður Daðason er á fórum til
Noregs, eins og fram kemur annars
staðar á síðunni, til að skoða aðstæður
hjá norskum félögum og sömuleiðis
Guðmundur Benediktsson og mjög
ólíklegt má telja að þeir tveir geri nýjan
samning við KR.
Nokkur erlend félög, þar á meðal
gríska liðið OFI, hafa spurst fyrir um
Einar Þór Daníelsson og Ólafur H.
Kristjánsson er farinn til náms í Dan-
mörku þar sem hann hefur æft með
danska úrvalsdeildarliðinu AGF.
-GH
Guðmundur Bene-
diktsson fer til Bodö í
Noregi á sunnudag-
inn
Lúkas til Vals?
- Þorlákur ekki áfram með Hlíðarendaliðið
Nokkuð víst er að nýr þjálfari mun
stýra úrvalsdeildarliði Vals í knattspyrnu
á næstu leiktíð. Þorlákur Árnason, sem
tók við Valsliðinu eftir að Sigurði Grétars-
syni var vikið frá störfum, hefúr tilkynnt
leikmannahópnum að hann ætli ekki að
þjálfa meistaraflokkinn áfram heldur ein-
beita sér að 2. flokknum sem hann gerði
að íslands- og bikarmeisturum í sumar.
Forráðamenn Vals eru þegar farnir að
Lúkas Kostic.
leita eftirmanns Þorláks og hafa rætt við
Lúkas Kostic, fyrrum þjálfara KR.
Stjórnarmenn knattspyrnudeildar Vals
vildu ekki tjá sig um málið í gær við DV en
sögðu að línur myndu skýrast strax að
loknu íslandsmótinu.
DV hefur heimildir fyrir því að fleiri félög
hér innanlands vilji fá Lúkas Kostic sem
var eins og kunnugt er rekinn frá KR í upp-
hafi íslandsmótsins. -GH
v
Undankeppni Evrópumóts landsliöa í handknattleik:
- slagsmál í lokin þegar Island og Sviss gerðu iafntefli, 27-27
Þrátt fyrir afleitan leik lengst
af gegn Sviss í gærkvöld, náði
íslenska landsliðið i handknatt-
leik með mikilli heppni að ná
öðru stiginu af andstæðingum
sínum á síðustu sekúndunum
þegar Róbert Duranona tryggði
íslandi jafntefli, 27-27. íslenska
liðið átti í gífurlegu basli með
leik sinn á öllum sviðum. Lið
Sviss lék leiðinlegan handbolta
að venju. Með Marc Baumgart-
ner í fararbroddi héngu þeir á
knettinum langtímum saman án
þess að dómarar leiksins gerðu
við það athugasemd I eitt ein-
asta skipti.
Kom ekki til greina að
iáta hann skjóta
Það gekk mikið á í lokin og
þegar lokaflautið gall sauð upp
úr. Þeir Baumgartner og Júlíus
Jónasson flugust á og lá við
allsherjarslagsmálum inni á
vellinum. Júlíus sótti grimmt að
Baumgartner er hann reyndi að
tryggja Sviss sigurinn og varn-
aði honum skoti á skynsaman
hátt. „Það var ekki um annað að
ræða en stöðva manninn. Hann
sló mig fyrst en það getur vel
verið að ég hafi farið i andlitið á
honum. Það kom bara ekki til
greina að láta hann skjóta,"
sagði Júlíus eftir leikinn.
Ólíkt fyrri viöureignum
Þessi leikur var um margt
ólíkur mörgum ef ekki öllum
fyrri viðureignum þjóðanna.
Skoruð voru 54 mörk en oftast
hafa þessar þjóðir skorað innan
við 40 mörk. Leikurinn var hins
vegar jafn eins og venjulega og
óþarfa bjartsýni margra fyrir
leikinn átti ekki við rök að
styðjast. Á því leikur enginn
vafi að okkar lið er mun betra
en það svissneska en til þess að
úrslit leikja endurspegli þá stað-
reynd þarf íslenska liðið að
leika yfir meðallagi. Það gerði
það ekki í gærkvöld.
Varnarleikurinn var óvenju-
slakur, markvarslan einnig. Það
vantaði baráttuneista i leik liðs-
ins. Slæmt er þegar það gerist í
stórkeppni sem Evrópukeppni.
Róbert Duranona var einna
skástur í íslenska liðinu ásamt
Bjarka Sigurðssyni, aðrir léku
langt undir eðlilegri getu. Sviss-
lendingar gerðu ótrúleg mistök
undir lokin með unninn leik í
höndunum og heppnin ein réð
því að ísland náði öðru stiginu.
Fram undan er erfiður útileikur
gegn þessu svissneska liði á
sunnudaginn
Einn sá leiðinlegasti sem
hér hefur leikið
Marc Baumgartner var at-
kvæðamestur í liði Sviss ásamt
markverðinum Christian Meist-
erhans. Baumgartner er án vafa
einn leiðinlegasti handbolta-
maður sem hér hefur leikið,
klunnédegur og svifaseinn en
fjandanum drýgri sínu liði. Þá
er hann án afláts nöldrandi í
dómurum og andstæðingum og
vel skiljanlegt að stuðnings-
menn Lemgo, liðsins sem hann
leikur með í Þýskalandi, skuli
ekki þola hann.
Þá er aðeins eftir að geta ung-
verskra dómara sem vissu
hvorki í þennan heim né annan
allar 60 mínútur leiksins. Und-
arlegir dómar þeirra bitnuðu
jafnt á báðum liðum og þolin-
mæði leikmanna í þeirra garð
oft aðdáunarverð. Það er hins
vegar mikið áhyggjuefni að
dómarar í Evrópukeppni skuli
ekki vera betur með á nótunum
en þeir ungversku í gærkvöld.
-SK
Þorbjörn Jensson:
„Við leikum varla tvo
svona leiki í röð“
„Það segir sig alveg sjálft að ég var
ekki ánægður með leikinn því
að ég veit að liðið getur miklu
meira. Það sem öðru fremur
verður okkur að falli í leiknum
er slakur varnarleikur og
markvarslan var léleg. Að fá á
sig 27 mörk er alltof mikið því
venjulega erum við að fá á okk-
ur i kringum 20 mörk. Á heild-
ina litið verðum við bara að
teljast heppnir að fá annað stigið út úr
viðureigninni. Af úrslitum Júgóslava og
Litháa í Belgrad að dæma er ljóst að allt
getur gerst í riðlinum. Ég hef enga trú á
öðru en að þetta gangi betur í síðari
leiknum í Sviss á sunnudag. Vömin er
sterkasti hlekkur liðsins og í
kjölfarið kemur markvarslan og
ég hef trú á því að þessir þættir
smelli saman i Sviss. Við leik-
um varla svona tvo leiki í röð
og tíminn fram á sunnudag
verður nýttur vel. Ég kem til
með að gera allt sem í mínu
valdi stendur til að liðið mæti
sterkt til næsta leiks. Liðið þarf
víst alltaf að fara Krýsuvíkurleið og það
virðast ætla að verða örlögin einnig að
þessu sinni,“ sagði Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfari við DV eftir leikinn í
gærkvöldi. -JKS
Ríkharður til Noregs
- hafnaði tilboði frá Admira/Mödling
Rikharður Daðason, knattspymumaður úr KR, hafnaði í
gær tilboði frá austurríska félaginu Admira/Mödling og eins
og fleiri KR-ingar fer hann til Noregs í næstu viku þar sem
honum hefur verið boðið að kíkja á aðstæður hjá norskum fé-
lögum.
„Tilboðið var ekki eins merkilegt og ég átti von á og ég neit-
aði því. Ég fer til Noregs í næstu viku og reikna með að fara
á 2-3 staði. Ég mun byrja á því að fara til Moss og síðan til
Viking," sagði Ríkharður við DV í gær en samningur hans
við KR rennur út þann 1. októher. -GH
Ísland-Sviss
Marc Baumgartner mætti til leiks gegn íslandi
með góm í gininu aö hætti hnefaleikara. Kom hann ef
til vill aö góðum notum í slagsmálunum undir lokin.
Þorbjörn Jensson landsliösþjálfari gekk ekki
heill til skógar í gærkvöld. Hann var með tæplega 40
stiga hita og hefur oft haft sig meira í frammi.
Örvhenta stórskyttan Patrik Rohr lék nær ein-
göngu í vöminni hjá Svisslendingum. Hann er aö
jafna sig eftir meiðsli en skoraði þó 2 mörk er hann
brá sér í sóknina.
Patrik Rohr er eflaust mörgum kunnugur en
hann fór afar illa með okkar lið er ísland mætti Sviss
á HM1995 hér á landi og lagöi grunninn að sigri Sviss.
Sigrún Hjálmtýsdóttir átti ekki i vandræðum
með að syngja þjóðsöngva landanna fyrir leikinn. Sá
íslenski, sem er mjög erfiður, vafðist ekki fyrir söng-
konunni snjöilu.
Þrir leikmenn hvíldu í íslenska liðinu í gær-
kvöld. Jason Ólafsson, Daði Hafþórsson og markvörð-
urinn Reynir Þór Reynisson.
Islenska lidió saknaði Patreks Jóhannessonar í
leiknum i gærkvöld en hann er sem kunnugt er
meiddur.
Seinni leikur lióanna fer fram i svissneska bæn-
um Sursee á sunnudag. Hann verður erfiður en það er
þó uppörvandi að íslandi hefur jafhan gengið betur
með Svisslendinga á þeirra heimavelli en hér heima.
Júlíus Jónasson mætti þremur félögum sínum úr
St. Otmar i gærkvöld. Þeir eru Markus Keller, Beat
Rellstab og varamarkvörðurinn Simon Osterwalder.
Róbert Julian Duranona var öflugur gegn Svisslendingum í gærkvöldi og jafnaði metin á lokasekúndunum.
DV-mynd Brynjar Gauti
Reynsluleysið felldi okkur
- sagði Marc Baumgartner sem reiknar með hörkuleik í Sviss á sunnudag
„Úr því sem komið var eru
auðvitað vonbrigði að fara ekki
með sigur af hólmi í þessum
leik. Það sem verður okkur að
falli í leiknum er að viss tauga-
veiklun sprettur fram upp úr
miðjum síðari hálfleik. Þama
lék reynsluleysið stórt hlutverk
en innan um í liðinu era ungir
leikmenn með litla reynslu. Við
erum með tveggja marka for-
ystu undir lokin og að auki með
boltann. íslenska liðið gaf sig þó
ekki og náði fram öðra stiginu á
kostnað okkar,“ sagði stórskytt-
an Marc Baumgartner, sem af
mörgum er talinn einn besti
handboltamaður í heimi í dag,
við DV.
Þegar á öllu er á botninn
hvolft hefði verið sanngjamt að
við hefðum unnið leikinn. Á
sunnudaginn kemur höfum við
áhorfendur á okkar bandi en ég
á fastlega von á mjög erfiðum
leik. Min tilfinning var að ís-
lenska liðið væri ekki að leika
sinn besta leik og því verðum
við að vera á varðbergi gagn-
vart þeim á sunnudaginn. Það
er engin spuming að það verð-
ur hörkuleikur. Innst inni er ég
bjartsýnn eins og alltaf," sagði
Baumgartner.
Nú er bara aö safna liði
og sýna hvað viö getum
„Við ætluðum okkur sigur en
því miður þróaöist leikurinn
ekki með þeim hætti sem mað-
■ur hefði óskað sér. Ég reiknaði
alltaf með jöfnum leik og vissi
að Svisslendingar myndu hanga
á boltanum. Það kom mér á
óvart að þeir fengu aldrei
dæmda á sig leiktöf. Það er ekk-
ert við dómarana að sakast því
þetta var alfarið okkar eigin sök
hvemig fór. Úr því sem komið
var er kraftaverk að ná öðra
stiginu. Við getum varla verið
jafn lélegir á sunnudag eins og
við voram hér í kvöld. Nú er
bara að safna kröftum og sýna
hvað raunverulega býr í lið-
inu,“ sagði Júlíus Jónason sem
leikur með svissneska liðinu St.
Otmar.
Gat ekki verið verra
„Við lékum éinfaldlega illa og
létum andstæðinginn fara í
taugamar á okkur og lékum fyr-
ir vikið ekki af skynsemi. Þetta
gat ekki verið öllu verra og við
hljótum að sigra úti á sunnu-
dag,“ sagöi Bjarki Sigurðsson.
Guði sé lof að við náðum
jafntefli
„Viö voram heppnir að ná í
jafntefli. Það var vilji í liðinu að
geta betur en því miður tókst
það ekki. Það var ýmislegt að og
undir þeim kringumstæðum er
erfitt að vinna leik. Við eigum
eftir að leika betur en þetta á
sunnudaginn. Guði sé lof að við
náðum í jafnefli því það heldur
okkur áfram inni,“ sagði Geir
Sveinsson.
Meiri möguleikar heima
„Við lékum stórvel í fyrri
hálfleik en fóram á taugum
undir lokin og gerðum þá mörg
mistök. Ég var bjartsýnn fyrir
leikinn en ég þekki íslenska lið-
ið vel. Ég tel okkur eiga meiri
möguleika á heimavelli á
sunnudaginn. Áhorfendur
munu þá styðja vel við bakið á
okkur," sagði Peter Brupp-
acher, þjálfari Sviss, en hann er
nýtekinn við liðinu.
-JKS
Helgi skoraði
gegn Austria
Helgi Kol-
viðsson skor-
aði sitt fyrsta
inark í efstu
deildinni í
Austoríki í
gærkvöldi.
Lið hans,
Lustenau,
beið þá lægri
hlut fyrir
stórveldinu Austria Wien, 3-1, í
Vínarborg. Helgi jafnaði metin i
byijun síöari hálfleiks en
Austria skoraði tvivegis seint í
leiknum.
Lustenau er nú í áttunda sæti
eftir að hafa veriö í því þriðja á
tímabili. Sturm Graz er með 30
stig, GAK 25, Rapid Wien 21,
Austria Wien 21, LASK 18, Ried
16, Salzburg 15, Lustenau 14,
Tirol 14 og Admira/Mödling er
neðst með 7 stig.
-VS
Island (11) 27
Sviss (14) 27
1-0, 2-2, 4-7, 6-7, 8-10, 9-12, 10-13,
(11-14), 14-14, 15-15, 16-16, 17-17,
18-18, 19-19, 20-20, 21-21, 21-23, 22-24,
23-25, 24-25, 24-26, 25-26, 25-27, 26-27,
27-27.
Mörk íslands: Róbert Duranona 6,
Bjarki Sigurðsson 5, Ólafur Stefáns-
son 4, Dagur Sigurðsson 4, Júlíus Jón-
asson 3, Geir Sveinsson 2, Valdimar
Grímsson 2/2, Gústaf Bjamason 1.
Sóknarnýting: 27 mörk í 44 sókn-
um sem gerir 61,4%.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkels-
son 3, Bergsveinn Bergsveinsson 3.
Mörk Sviss: Marc Baumgartner
10/1, Robbie Kostadinovich 7, Urs
Scharer 3, Patrik Rohr 2, Beat Rell-
stab 2, Matthias Zunstein 2, Michael
Suter 1.
Varin skot: Christian Meister-
hans 16.
Sóknamýting: 27 mörk í 43 sókn-
um sem gerir 62,8%.
Brottvísanir: tsland 8 mínútur,
Sviss 8 mínútur.
Rautt spjald: Geir Sveinsson, 3x2
mínútur.
Dómarar: Ladiszlai og Tavarnay
frá Ungverjalandi. Þeir koma
vonandi ekki aftur til landsins sem
dómarar.
Áhorfendur: Hálf Höllin.
Maður leiksins: Róbert Dura-
nona, íslandi. Hélt Islenska liðinu
á floti 1 fyrri hálfleik og tryggði
stigið i lokin.
Jafntefli í
Júgóslavíu
Þau óvæntu úrslit urðu í riðli
íslands í Evrópukeppninni í
handknattleik í gær að Júgóslav-
ía og Litháen gerðu jafntefli,
25-25, í Belgrad. Flestir töldu
Júgóslavíu með langsigurstrang-
legasta liðið í riðlinum og að það
ætti tvo sigra vísa gegn Litháen.
Nú er ljóst að riðillinn verður
hörkuspennandi og engin úrslit
vís fyrir fram.
Svíar unnu Dani, 28-21, í
Malmö og í sama riðli unnu Ung-
verjar sigur á Pólverjum, 30-23.
Þá unnu Norðmenn öruggan sig-
ur á Slóvökum, 31-24, en hin tvö
liðin í þeim riðli, Spánn og
Þýskaland, mætast í kvöld.
-VS
^Í UHDANKEPPNI HM
2. riöill:
Moldavía-Georgia ......O-l
Ketsbaia (9.)
England 7 6 0 1 15-2 18
Ítalía 7 5 2 0 11-1 17
Pólland 6 2 1 3 7-9 7
Georgía 7 2 1 4 4-9 7
Moldavia 7 0 0 7 2-18 0
6. riöill:
Malta-Tékkland...............0-1
Bejbl (32.)
Slóvakla-Spánn...............1-2
Majoros (75.) - Kiko (47.), Amor (76.)
Spánn 972
Júgóslavía 9 6 2
Slóvakia 9 5 1
Tékkland 9 4 1
Færeyjar 9 2 0
Malta 9 0 0
0 23-5 23
1 24-7 20
3 18-11 16
4 13-6 13
7 9-28 6
9 2-32 0