Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Page 28
36
FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1997
>
f
>
nn
Hvorki fræg-
ur né ríkur
„Ég er hvorki frægur né ríkur
og það eru ekkert óskaplega marg-
ir sem hafa lesið ljóð mín, en ég
hef hitt fólk sem hefur haft ánægju
af þeim. Og þótt þeir væru einung-
is tveir eða þrír, þá nægði það
mér.“
Geirlaugur Magnússon skáld, í
Degi-Tímanum.
Á aö stela
háiendinu líka?
„Það er búið að stela fiskimið-
unum og nú ætla þeir að stela há-
lendinu af okkur lika.“
Össur Skarphéðinsson alþingis-
maður, um að sveitarfélög hafi
stjórnsýslu yfir hálendinu, í Degi-
Tímanum.
Ummæli
Óvitlaus í fjölmiðlum
„Núna er best að vera óvitlaus
því óvitlaust vit hæfir fjölmiðlum.
í þeim má enginn vera hvorki vit-
ur né heimskur. Allir verða að
vera óvitlausir á skjánum. Konur
eru því þar að ná yfirhöndinni, og
allt leikur í höndunum á þeim
eins og áður við rokkinn."
Guðbergur Bergsson rithöfundur, í
DV.
Vatnsfötufiskerí
„Ég hef stundað þessar veiðar i
Smugunni undanfarin átta ár en
ég haf aldrei séð þetta svona dap-
urt. Þetta hefur veriö algjört
vatnsfötufiskerí."
Þorvaldur Svavarsson skipstjóri, i
Degi-Tímanum.
Hljómsveitin Greip leikur á Hooch-
kvöldi.
Greip á Café Amsterdam
í kvöld verður haldið svokallað
Hooch-kvöld á Café Amsterdam.
Um kl. 23 mun hljómsveitin Greip
stíga á svið og skemmta. í hljóm-
sveitinni eru Gugga, söngur, Einar,
gítar, Baldur, hljómborð og Þórður,
trommur.
Land og synir á Astro
í kvöld mun hljómsveitin Land
og synir leika á Astro. Munu þeir
meðal annars taka hið vinsæla lag
Vöðvastæltur.
í hvítum sokkum á
Kringlukránni
í aðalsal Kringlukrárinnar mun
í kvöld hljómsveitin í hvítum sokk-
um skemmta. Flutt verður tónlist
af öllu tagi en þó helst í anda síð-
asta áratugar.
Skemmtanir
Kuran Swing á Kaffi
Puccini
Djasskvöld verður á Kaffi
Puccini í kvöld. Mæta til leiks hin-
ir fjölhæfu fjórmenningar sem
skipa Kuran Swing og leika frá
21.30-23.30.
Halli Melló á Kaffi
Akureyri
Halli Melló leggur land undir fót
og skemmtir á Norðurlandi um
helgina. í kvöld verður hann á
Kafii Akureyri.
Bubbi á Hvoli
Bubbi Morthens ferðast um Suð-
urlandið þessa dagana. I dag verð-
ur hann á Hvolsvelli og skemmtir á
Hvoli í kvöld kl. 21.
Gengið á Akrafjall
Þetta mikla fjall sem ræður norð-
vrnsýn vestan Esju frá höfuðborg-
inni séð hlýtur að vekja áhuga
fjallafólks. Til þess að gera Akra-
Qalli einhver skil verður helst aö
hringganga fjallið og fara með brún-
um að sunnan og norðan.
Uppgangan getur hafist við
mynni Berjadals og er best aö fylgja
hryggnum við Háahnúk. Þar er suð-
urbrúnin hæst og er útsýni þaðan
frábært á björtum degi. Þar austan
við verður fjallið breiðara en best er
að fylgja brúninni að mestu leyti
allt austur að Kúludal en þar er
sveigt til norðurs og hæðinni haldið
Umhverfi
að mestu allt norður á brúnimar
við Kjalardal, skál sem gengur inn i
ofanvert fjallið að norðan. Þaðan er
svo haldið vestur eftur hábrúnun-
um með viðkomu á Geirmundart-
indi, 643 m og að hæsta punkti
Akrafjalls.
Meðan gengið er er hægt að rifja
upp söguna af Arnesi útileguþjófi,
sem sumarið 1756 lagðist út í Akra-
fjall og herjaði á eignir bænda.
Ákveðin var leit að honum þannig
að árangursrík yrði. Arnes sá við
þeim og slóst í för með leitarmönn-
um og leitaði að sjálfum sér allan
daginn.
Ganga um Akrafjall með framan-
greindu sniði er um 13 km löng og
veitir ekki af heilum degi til farar-
innar.
Skipaskagi
Þægileg og létt haustganga, en
um leið áhugaverð, er að ganga í
umhverfi Akraness og þá einkum
um þau svæði sem vestast liggja og
næst úthafinu. Þar er oft mikið
brimrót og skvettur á skerjum. Út-
hafsöldurnar við Akranes eru oft
stórfenglegar og ógnvekjandi og
ættu menn að fara á stjá þegar nátt-
úruöflin sýna almætti sitt í stað
þess að byrgja sig inni og horfa á
sjónvarp.
Heimild: Gönguleiðir á íslandi eftir
Einar Þ. Guðjohnsen.
Þröstur Ingimarsson, íslandsmeistari í bridge:
Bridge og pílukast
í síðustu viku fór fram íslands-
meistaramótið í bridge þar sem
flestir okkar sterkustu
bridgemanna voru meðal þátttak-
enda. Eftir spennandi keppni stóð
Þröstur Ingimarsson uppi sem sig-
urvegari o- íslandsmeistari og er
þetta i annað sinn sem hann vinnur
þennan titil.
í stuttu spjalli sagði Þröstur að
mótið hefði verið spennandi og
skemmtilegt: „Ég bjóst nú ekkert
endilega við að verða íslandsmeist-
ari en hafði gert mér vonir um að
vera innan við tíu efstu á mótinu.
Þetta var spennandi allan tímann,
við vorum þrír sem byrjuðum mjög
vel og hélst barátta okkar út allt
mótið, þar á meðal var Erlendur
Jónsson, sem yfirleitt er makker
minn í mótum. í lokin var þetta bar-
átta á milli okkar."
Þresti hefur oft gengið vel í ís-
landsmótinu í einmenningi: „Ég er
yfirleitt ofarlega, vann árið 1994 og
var í öðru sæti 1993.“
Þröstur er enginn nýliði í bridge-
inu, er búinn að keppa í bridge í
funmtán ár: „Það þarf að æfa vel til
að halda sér í æfingu og yfirleitt
spila ég mikið, en get þó ekki gert
mikið af því
þessa dagana þar
sem ég vinn mik-
ið á kvöldin um
þessar mundir,
spila þess meira
um helgar."
Þröstur segir
mikinn mun á að
spila í einmenn-
ingskeppni en
sveita- og para-
keppni: „Sveita-
og parakeppni
byggir mun
meira á þvi að
makkerar ræði
saman um stöður
sem gætu komið
upp og æfa sam-
an. í einmenn-
ingskeppni ert
það þú sjálfur
sem ert allt i öllu
og er þá við eng-
an annan að
sakast ef illa
gengur."
Fram undan hjá Þresti er sterkt
mót á Homafirði um helgina:
„Þetta er tvímenningur og þótt við
Erlendur förum
saman i bíl aust-
ur þá ætlum við
ekki að spila
saman í þetta
skiptið heldur er
makker minn
Þórður Björns-
son.“
Þröstur er kerfls-
fræðingur og
kennir á tölvur í
Raflðnaðarskól-
anum. Það er
ekki bara bridge
sem á hug hans
heldur er Þröst-
ur einnig vel lið-
tækur i pílu-
kasti: „Ég hef
stundað pílukast-
ið í tvö ár og
keppi i því. það
hefur gengið
ágætlega að und-
anförnu. Fyrsta
mótið af sex í
landsliðsmóta-
röð var fyrir hálfum mánuði og þar
lenti ég í öðru sæti.“ Þröstur er frá-
skilinn og á eina dóttur. -HK
Þröstur Ingimarsson.
Maður dagsins
Myndgátan
Kastar á torfu. Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn.
Fjórir leikir í
1. deild kvenna
Eftir viðburðarríkan landsleik
í gærkvöldi þá fá handbolta-
mennirnir okkar smáhvíld en
handboltakonurnar halda áfram
sínu striki og eru á dagskrá fjór-
ir leikir í 1. deild kvenna í kvöld.
Stórleikur kvöldsins verður sjálf-
sagt í Víkinni þar sem Víkingar
Iþróttir
taka á móti hinu sterka liði
Hauka. Á Seltjarnamesi tekur
hið sameinaða lið Grótta KR á
móti Stjörnunni, í Valsheimilinu
leika Valur og FH og í Vest-
mannaeyjum leika ÍBV og Fram.
Allir leikirnir hefjast kl. 20.
Trama fyrir
saxófón og
hljómsveit
Einir af aðaltónleikunum á
Ung nordisk musik-hátiðinni
sem nú stendur yfir eru í Lang-
holtskirkju í kvöld. Þar leikur
SinfóníuhJjómsveit íslands verk
eftir ung norræn tónskáld. Aðal-
verkið er þó Trama fyrir saxófón
og hljómsveit eftir ítalska tón-
skáldið Luca Francesconi, sem
er sérstakur gestur á hátíðinni,
einleikari er Amo Bomekamp.
Önnur verk á tónleikunum em
Earth Symphony eftir Úlfar Har-
aldsson, In a network of lines,
Tónlist
eftir Eivind Buene, Till-flykt eft-
ir Per Mártensson og Seven Min-
utes eftir Tommi Karkainen.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.
Þess má geta að Luca
Francesconi mun halda fyrirlest-
ur í Tónlistarskóla Reykjavíkur í
dag kl. 14.
Bridge
Þessi miklu skiptingarspil komu
fyrir á íslandsmótinu í einmenningi
um helgina. Nýkrýndur íslands-
meistari, Þröstur Ingimarsson, sat í
sæti vesturs með 9 spil í laufi. Hann
heyrði félaga sinn í austur opna á
einum tígli og hafði eðlilega fyrst og
fremst áhuga á því að fá að spila 5
lauf. Þröstur sá að hættan í sögnum
var fyrst og fremst fólgin í því að
austur gæti illmögulega sætt sig við
aö spila laufsamning. Hann fór því
rólega í sakirnar í byrjun. Við borð-
ið sátu spilarar sem allir enduðu í
efstu sætunum í lokin. í sæti norð-
urs var Skúli Skúlason sem endaði í
5. sæti, Þórður Sigfússon í austur
(6.-7. sæti), Þröstur í vestur og Ás-
mundur Pálsson í suður, sem end-
aði í 3. sæti. Sagnir gengu þannig í
spilinu, austur gjafari og allir á
hættu:
4 K8
* ÁDG9872
•f 76
* KG
* G32
«* 6
♦ -
* ÁD10965432
* 9764
K543
* KG83
* 7
Austur Suður
Þórður Ásm.
1 ♦ pass
3 ♦ 3 *
Vestur Norður
Þröstur Skúli
2 * 2 «*
5 * p/h
Þröstur leyfði Þóröi að blása út í
sínum lit og stökk síðan í 5 lauf.
Með þeirri aðferö sýndi Þröstur til-
tölulega veik spil (fyrir geimkröf-
unni í upphafi) og engan áhuga á
tígli austurs. Þar meö lauk sögnum
og 5 lauf voru auðunnin. íslands-
mótið í einmenningi var spilað í
riðlum með forgefnum spilum og
þessar sagnir komu fyrir í A-riðli.
Þröstur og Þórður voru eina parið í
þeim riðli sem fékk að spila fimm
lauf og fékkst fyrir það hreinn topp-
ur. ísak Örn Sigurðsson