Dagblaðið Vísir - DV - 25.09.1997, Page 32
ölur miðvikudaginn 24. 09.’97
7 11 12 29 35
Sw'-'--
Vinning&upphœð
306,975
Heildarvlnning&upphœð
38,762,700
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Franski ferðamaðurinn:
Hjálparsveit-
ir leita
' * Enn hefur ekkert spurst til
franska ferðamannsins Michaels
Leduc sem lögreglan hefur lýst eft-
ir að undanfomu. Siðast er vitað
um ferðir hans er hann fór með
áætlunarbíl til Hvolsvallar. Síðdeg-
is í gær og í gær-
kvöld leituðu
hjálparsveitir í
óbyggðum fyrir
austan. Leitar-
flokkarnir fóru
m.a. inn í Þórs-
mörk og í sælu-
hús á þessum
slóðum, en urðu einskis varir.
„Ég kem til með að skoða stöð-
una betur þegar á daginn líður,“
sagði Jónas Hallsson aðstoðaryflr-
lögregluþjónn við DV í morgun.
„Það hafa borist fjölmargar vís-
bendingar, eftir að við auglýstum,
alls staðar að af landinu, og við
verðum að kanna alla hluti sem
berast til okkar.“
Leduc er 19 ára, með dökkt stutt
hár, 1,82 cm á hæð og grannvax-
inn. Hann gæti verið í rauðri úlpu
og á brúnum gönguskóm. Hann er
með grágrænan bakpoka og dökk-
grænt tjald. -JSS
•»* Skutull ÍS:
Fullfermi í
fyrsta túr
„Já, þetta gekk bara nokkuð vel.
Við vorum á rækju og komum með
um 160 tonn að landi eftir um
þriggja vikna úthald. Þetta er mjög
gott í fyrsta túr með skipið en
rækjan hefði kannski mátt vera
betri en það er erfitt að flnna
hana,“ sagði Tryggvi Eiríksson,
skipstjóri á Skutli ÍS 180, við DV
eftir jómfrúrferð sína
„Við vorum bara héma norður í
Kanti í tvær og hálfa viku og end-
* uðum síðan í Langaneskantinum
þar sem gekk mjög vel. En það er
búið að vera mjög lítil rækjuveiði
hér norður af undanfarið sem sést
best á löndunartölum. Svo er verð-
ið líka frekar lágt þessa dagana á
rækjunni og þessi túr hjá okkur
gerir til dæmis ekki nema um 19
milljónir. Þessi túr er því ekkert
merkilegur því skipið tekur bara
ekki meira í lestina. Það em marg-
ir að koma með miklu meira að
landi en þetta,“ sagði hinn feng-
sæli skipstjóri sem er aðeins 25 ára
gamall en hefur verið stýrimaður á
Skutli frá því árið 1993.
Skutull ÍS 180 er rétt um 1000
brúttótonna frystitogari og gerður
_,út af Básafelli á ísafirði.
-ÖB
Ákvörðun dómsmálaráðherra um drenginn í Texas:
Reynt að fá
drenginn heim
eftir eitt ár
„Það lá fyrir tillaga um það frá
starfshópi sem var að vinna í þessu
máli að við myndum leita eftir því
að drengurinn kæmi hingað eftir
eitt ár, þegar í Ijós hefur komið
hvernig þessi byijunarmeðferð hef-
ur gengið. Ég féllst á þá tillögu."
Þetta sagði Þorsteinn Pálsson
dómsmálaráðherra um Aron
Ágústsson, 14 ára íslenskan dreng,
sem dæmdur hefur verið í 10 ára
fangelsi í Texas fyrir að hafa haft í
frammi kynferðislega tilburði
gagnvart stúlku og dreng.
í fyrradag funduðu fulltrúar fé
lagsmála-, dómsmála- og utanríkis
ráðuneytis um málefni Arons
Einnig var á fundinum Bragi Guð
brandsson, forstjóri Barnavemdar
stofu. Bragi sagði að fjallað hefði
verið um mál drengsins á grund-
velli alþjóðasamnings Evrópuráðs-
ins um fluming sakamanna sem ís-
land og Bandaríkin væru aðilar að.
Dómsmálaráðuneytið færi með for-
sjá málsins.
. Bragi hafði áður verið úti í
Texas þar sem hann kynnti sér mál
Arons rækilega. „Ég fór í gegnum
rannsókn málsins eins og hún var
gerð af lögreglu og bamavemdaryf-
irvöldum. Ég fór í gegnum dóms-
meðferðina og fylgdist m.a. með
réttarhaldi í sams konar máli. Ég
heimsótti þá stofnun sem drengur-
inn dvelur nú á sem er greiningar-
stöð. Loks skoðaði ég þá stofnun
sem hann kemur til með að fara á
að greiningu lokinni. Ég ræddi við
lögmenn og ýmsa aðra sem höfðu
með þetta mál að gera svo og
drenginn og foreldra hans. Ég
reyndi síðan að leggja heildarmat á
málið, sem kom fram í mjög ítar-
legri skýrslu, sem starfshópurinn
úr ráðuneytunum hefur verið að
vinna úr. Það er m.a. á grunni
þessarar skýrslu sem hópurinn
mælti með tiltekinni málsferð hvaö
drenginn varðar."
Dómsmálaráðherra sagði við DV
í gær að fljótlega yrði farið að
vinna að því að fá drenginn heim.
Yrði bandarískum stjómvöldum
gerð grein fyrir afstöðu íslenskra
stjómvalda til málefna hans.
-JSS
íslenska landsliöið í handknattleik var heppiö að ná jafntefli gegn Sviss í Evrópuleik í Laugardalshöllinni í gærkvöld.
Tvö mörk á lokamínútunni færðu íslandi dýrmætt stig. Geir Sveinsson, sem hér skorar annað tveggja marka sinna,
fékk rauða spjaldið á viðburðaríkum lokamínútum. Sjá bls. 16 og 25. DV-mynd BG
CHALIM ALÍ
PRÓFKJÖR!
Veðrið á morgun:
Hlýjast NA-
lands
Á morgun verður allhvöss
sunnanátt og víða rigning fram
eftm degi. Síðdegis snýst vindur í
suðvestlæga átt með skúrum
sunnan- og vestanlands en styttir
upp norðan-og austanlands. Hiti
7-13 stig, hlýjast NA- lands.
Veðrið í dag er á bls. 37
Lést eftir
árekstur
Bandarísk kona lést eftir harðan
árekstur tveggja bíla á Hringbraut í
Reykjavík á sjötta tímanum í gær.
Bil sem ekið var austur Hringbraut
var ekið í veg fyrir annan sem ók í
vestur. Sá fyrrnefndi ætlaði að
beygja inn á Laufásveg. Fjórir voru
fluttir á slysadeild og var banda-
ríska konan úrskurðuð látin þegar
þangað kom. Hún var hér á ferða-
lagi. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu vom hinir þrír ekki taldir
alvarlega slasaðir. -sv
Umgengnisréttur Sophiu:
Halim Al
sýknaður
Halim A1 hefur verið sýknaður, í
undirrétti í Tyrklandi, vegna
meintra umgengnisbrota á Sophiu
Hansen. Áður hefur Halim verið
dæmdur fyrir svipuð mál og fleiri
ámóta bíða dómsmeðferðar. -sme
Vegagerðin varð að grípa til þess
ráðs að rjúfa veg við Freysnes í
Öræfasveit í gær. Mikið hefur rignt
á svæðinu og var vatn við það að
flæða yfír veginn. Fjölga þurfti
ræsum til þess að veita vatninu
burt. -sv
Noregur:
Björk fær
glimrandi
dóma
DV, Ósló:
Öll stærstu dagblöð Noregs hafa
birt dóma um nýjasta geisladisk
Bjarkar. Þar kveður alls staðar við
sama tón og Norðmenn eru stór-
hrifnir. Það er mat flestra gagnrýn-
enda að þama sé á ferð það besta
sem komið hefur frá söngkonunni
hingað til.
-rt
Enn skelfur
fyrir norðan
Enn mælast jarðskjálftahrinur á
Norðurlandi. Að sögn Kristjáns
Ágústssonar á Veðurstofunni mæld-
ust tíu skjálftar á bilinu 1-2 á Richt-
er frá miðnætti í nótt og þar til um
áttaleytið í morgun. Þeir eiga upp-
tök sin á sama stað og áður, norð-
vestur af Gjögri.
-JSS
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4