Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Side 2
2
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997
fréttir
Forstjóri Se og Hor í Noregi:
,,Við erum kurteisir"
- en látum ekki stela frá okkur
„Þú ert væntanlega búinn að fá
staðfestingu lögfræðings okkar á ís-
landi á þvi að við erum alvarlega að
skoða þetta mál,“ sagði Knut Haa-
vik, forstjóri norska Se og Hor, í
samtali við blaðamann DV í gær
þegar borin voru undir hann þau
viðbrögð sem orðið hafa hér á landi
út af þeirri frétt DV að hans fyrir-
tæki hyggist krefjast útgáfubanns á
hið íslenska Séð og heyrt vegna ský-
lausra brota á höfúndarrétti hvað
varðar útlit og uppsetningu blaðs-
ins.
„í fyrsta lagi komu þessir útgef-
endur til okkar í Noregi og spurðu
hvemig við færum að því að byggja
upp slíka velgengni og Se og Hor
hefur hlotið hér i Noregi. Eins og
alltaf, þar sem við erum kurteist
fólk og ávallt tilbúnir til aö aðstoða
starfsfélaga okkar, veittum við þeim
mikið af upplýsingum um hvemig
við stöndum að blaðinu og ýmislegt
er varðar starfsfólk. Með þær upp-
lýsingar í farteskinu fóm þeir frá
Noregi og við heyrðum ekkert frek-
ar í þeim. Það var síðan fyrir tilvilj-
un að okkur barst í hendur eitt ein-
tak af Se og Hor á íslandi og sáum
þá að þeir höfðu stolið öllu frá okk-
ur hvað viðkemur uppsetningu og
litanotkun í hlaðinu svo um ná-
kvæma eftirlíkingu er að ræða,“
sagði Haavik.
„Ekki góð hegðun"
„Þetta hleypti illu blóði í okkur
enda finnst okkur þetta ekki góð
hegðun hjá aðila sem fengið hefur
hjá okkur upplýsingar sem starfsfé-
lagi. Ef þeir vilja gefa út blað eins
og Se og Hor á íslandi ættu þeir
fyrst að verða sér úti um tilskilin
leyfi tyrir því. En í stað þess stela
þeir bara öllum hugmyndunum. í
framhaldi af þessu höfðum við sam-
band við lögfræðinga okkar hér í
Noregi og báðum þá um að athuga
lagalegan rétt okkar á íslandi. Þeir
hafa síöan samband við íslensku lög-
mannsstofuna fyrir mánuðum þar
sem við þekkjum ekki íslensk lög og
reglur svo vel. Hér í Noregi höfum
við nokkuð sem kallast höfundarrétt-
ur og gerum ráð fyrir að það sé líka
til á íslandi. Hvað varðar ferð þeirra
með okkar mönnum á íslandi í sum-
ar með þekktum norskum íþrótta-
görpum þá var aðeins um að ræða
venjulega samvinnu og aðstoð blaða-
manna og ljósmyndara hver við ann-
an. Þetta mál er á allt öðru tilveru-
stigi en slík aðstoð og samvinna og
það er ástæðan fyrir því að Trund
Stensaasen, aðstoðarritstjóri okkar,
er ekkert inni í þessari lögsókn enda
hetúr hann ekkert með hana að gera.
Se og Hor er stærsta tímaritið í
Skandinaviu og við höfum álíka
timarit i Danmörku, Svíþjóð og Finn-
landi. Því getum við ekki látið annan
útgefanda stela hugmyndum okkar.
Þeir geta haft slúður, sjónvarpsdag-
skrána eða hvaðeina annað í sínu
blaði en þeim leyfist ekki að taka
uppsetningu okkar án leyfis."
„Algjör þvættingur"
„Það er algjör þvættingur ef þeir
halda að útlitið á blaði þeirra hafi
ekki átt að koma okkur á óvart.
Halda þeir virkilega eftir eins höfð-
inglegar móttökur og þeir fengu hér
í Noregi i heimsókn sinni að þeir
geti bara gefið út blað eins og Se og
Hor án þess að fá til þess nokkurt
leyfi? Mér er bara spum. Ég hefði
skilið þetta ef við hefðum tekið illa
á móti þeim,“ sagði Knut Haavik
ákveðinn í máli. -ÖB
Samvinna Fangelsismálastofnunar og Verndar í Reykjavík:
I vinnunni á daginn
en fangelsi á nóttunni
- vinsæll kostur hjá föngum
Allt frá árinu 1995 hefur refsi-
föngum, sem ekki eru taldir
hættulegir umhverfi sínu í hinu
daglega lífi, staðið til boða að fá
að ljúka síðustu þremur mánuð-
um refsingar sinnar þannig aö
þeir geti fengið að fara út á
vinnumarkaðinn aftur en þurfa
að dvelja næturlangt á áfanga-
heimili félagasamtakanna
Vemdar í Reykjavík. Fyrir með-
ferð fanga sem þessari er heim-
ild í lögum nr. 48 frá 1988, um
fangelsi og fangavist, og sam-
komulags á milli Fangelsismála-
stofnunar og Vemdar, dags. 6. des-
ember 1994.
„Hefur gengið vel“
Erlendur S. Baldursson, deildar-
stjóri hjá Fangelsismálastofnun,
segir þetta fyrirkomulag vera nokk-
uð algengt. Menn geti með þessu
móti frekar reynt að sjá fyrir sér og
sinum um leið og þeir em enn að af-
plána refsingu og séu fjarri því
orðnir frjálsir menn.
„Það er gerður samningur við
hvem og einn dómþola sem fer
þangað til afþlánunar og aðalreglan
er auðvitað sú að menn séu ekki
dæmdir fyrir nein mjög alvarleg
brot, eins og til dæmis kynferðis-
eða fíkniefnabrot, og þetta sé ein-
ungis í lok refsitímans þannig að
allir sem þcmgað fara era að koma
úr fangelsi. Viðkomandi verður að
vera meö vinnu sem er skriflega
staðfest frá atvinnurekanda og
vinnuveitandi veit af því að starfs-
maðurinn er að afþlána refsidóm og
vinnan verður að vera samþykkt af
okkur.
Reglumar í þessu ferli era mjög
skýrar og ófrávíkjanlegar í sam-
bandi við hvenær mönnum ber að
vera þama á heimilinu. Síðan era
eftirlitsaðilar sem fara með vissu
millibili á vinnustaðina og athuga
hvort ekki sé allt með felldu. Fang-
amir borga þama sömu leigu og
aðrir íbúar áfangaheimilisins, 31
þús. á mánuði fyrir fæði og gist-
ingu, enda þótti annað ekki eðlilegt.
Það er mjög vinsælt hjá þeim
fongum sem eiga þennan kost að
sækja um þessa meðferð sinna
mála. Það verður hins vegar
alltaf að synja ansi stórum hópi
en við eram ekki í neinu mann-
greinaráliti hvað þær umsóknir
varðar. Að meðaltali hafa verið
þama á bilinu 7-10 manns
hveiju sinni, bæði karlar og kon-
ur. Þama þurfa allir að gangast
undir þvagprufur og gefa öndun-
arsýni vegna vimuefnaeftirlits
með reglulegu millibili og ganga
í gegnum ákveðið prógram með
öðrum íbúum. Af þeim um 120
fongum sem þama hafa dvalist frá
því 1995 hefur aðeins þurft að senda
7-8 aðila til baka í hefðbundið fang-
elsi vegna einhverra agahrota en
enginn hefur framið refsiverðan
verknað svo vitað sé meðan á dvöl-
inni stendur. Þetta fyrirkomulag
hefúr því gengið mjög vel fyrir utan
það að vera mun ódýrara fyrir rik-
ið. í stað þess að ríkið sé að borga
um 250 þús. krónur á mánuði undir
hvem fanga i fangelsi era fangamir
sjálfír að greiða mánaðarlega
leigu,“ sagði Erlendur. -ÖB
Björk keppir
við Madonnu
- hefur verið tilnefnd til MTV-verðlauna
DV, Akranesi:
Björk Guðmundsdóttir gerir það
gott í heimi tónlistarinnar og nú
hefur enn ein fjöðrin bæst við í
frægð hennar. Hún hefúr verið til-
nefnd til MTV-verðlauna.
Björk er ein 5 kvenna sem til-
nefndar era sem besta söngkonan
hjá tónlistarstöðinni MTV Europe.
Auk Bjarkar era tilnefiidar Sheryl
Crow, Toni Braxton, Janet Jackson
og Madonna. Afhending verðlaun-
anna fer fram 6. nóvember í Ahoy í
Rotterdam i Hollandi og er þegar
uppselt á athöfnina. -DVÓ
Björk Guömundsdóttir.
Eiríkur Jonsson er í samninga-
viöræðum.
Eiríkur á
Aðalstöð-
ina?
„Það era ýmsar hræringar
og þreifingar í gangi en málið
skýrist ekki fyrr en eftir
helgi,“ sagði útvarpsmaðurinn
vinsæli, Eiríkur Jónsson, í
samtali við DV í gær.
Hann hefur, sem kunnugt er,
verið með þætti á Bylgjunni
ásamt Sigurði Hall matreiðslu-
meistara. Samkvæmt heimild-
um DV er nú farið að styttast í
veranni hjá Eiríki hjá Bylgj-
unni. Hann hefur átt í viðræð-
um við Aðalstöðina og einnig
Jón Axel Ólafsson sem er að
fara af stað með nýja útvarps-
stöð. Eiríkur kvaðst ekki vilja
tjá sig frekar um málið.
-JSS
stuttar fréttir
Bjjarni ráðinn
Björn Bjarnason, menntamála-
ráðherra, skipaði í gær Bjama
Guðmundsson verkfræðing í
stöðu framkvæmdastjóra Rikis-
sjónvarpsins. Bjami hlaut þrjú
atkvæði í útvarpsráði en Ásdís
Olsen fjögur. Ingólfúr Hannesson
dró hins vegar umsókn sína til
baka þar sem honum fannst
vinnubrögð útvarpsráðs markast
af ógeðfelldum pólitískum
hrossakaupum.
Afkoman versnað
Þjóðhagsstofnun hefur lokið upp-
gjöri á rekstri helstu greina sjáv-
arútvegsins fyrir árið 1996.
Tvennt setur einkum svip sinn á
afkomuþróun í sjávarútvegi að
undanfómu. Annars vegar hefúr
afkoma versnað nokkuð þegar á
heildina er litið en hins vegar er
hún mjög mismunandi eftir
greinum.
Enginn vafi á réttmæti
Á stjómarfúndi Lesmáls ehf. í
fyrradag var samþykkt með fjór-
um atkvæðum gegn einu aö vísa
á bug athugasemdum Jóns Magn-
ússonar, lögfræðings, vegna sölu
á rekstri Lesmáls ehf. til Perluút-
gáfunnar ehf. Stjóm Lesmáls lít-
ur svo á að enginn vafi leiki á um
réttmæti sölunnar til Perluútgáf-
unnar.
Fá leyfi
Á fundi Útvarpsréttamefndar 18.
september sl. var fjallað um um-
sóknir íslenska sjónvarpsfélags-
ins um útvarpsleyfi til dreifingar
sjónvarps um breiðbandskerfi
Pósts og síma hf. og féllst neftidin
á umsóknina og veitti leyfið til
eins árs.
Dagsbrún mótmælir
Stjóm Verkamannafélagsins Dags-
brúnar vill mótmæla harðlega f
ákvörðun Atvinnuleysistrygginga-
sjóðs um nýja skipan úthlutun-
amefnda atvinnuleysisbóta þar
sem hún vill meina að verkalýðs-
hreyfingin sé sniögengin. ÖB