Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Blaðsíða 43

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1997, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 1997 51 ________________________________________________________ bridge •k ir i Islandsmótið í einmenningi 1997: l l t l l i Þröstur Ingimarsson vann öðru Þröstur Ingimarsson sigraði öðru sinni á íslandsmeistaramóti i ein- menningskeppni sem haldið var um sl. helgi í Bridgehöllinni við Þöngla- bakka. Þröstur háði harða keppni við felaga sinn, Erlend Jónsson, um titilinn en svo einkennilega vildi til að þeir voru makkerar í síðustu þremur spilunum en þá skildi að- eins eitt stig á milli þeirra. Salurinn átti þá eftir að bera saman nokkur spil og svo fór að lokum að Þröstur vár þremur stigum hærri. Annars hafði Eggert Bergsson unnið fyrstu tvær lotumar af þrem- ur nokkuð örugglega og hafði nokk- urt forskot þegar síðasta lotan hófst. Stríðsgæfan var honum óhagstæð í síðustu lotmrni og hann endaði í fiórða sæti. Röð og stig hæstu manna var annars þessi: Þröstiu- Ingimarsson 1959 Erlendur Jónsson 1956 • skák Ásmundur Pálsson 1903 Eggert Bergsson 1897 Skúli Skúlason 1878 Þröstur er með eindæmum prúð- ur og hógvær maður og því vinsæll meðal annarra bridgespilara. Þegar ég bað hann um spil í þáttinn, eins og síðast þegar hann vann, þá taldi hann makkera sína og andstæðinga bestu liðsmennina og lítið að frétta af sínum afrekum. Ég gróf samt upp eftirfarandi spil úr siðustu lotu. V/A-V ♦ KG6 » D875 ♦ D106 4 643 4 95432 »643 4 ÁKG5 4 7 4 ÁD107 »Á102 ♦ 7 4 KD852 í n-s sátu Skúli Skúlason og Þröst- ur en a-v voru Magnús E. Magnús- son og Eggert Bergsson. í svona keppni fara menn ekki alltaf troðn- ar slóðir í sögnunum: Vestur Norður Austur Suður pass pass 14 1G 2 4 dobl pass pass pass Magnús velur að opna frekar á einu laufi en tígli í þriðju hendi til þess að benda á útspil og Þröstur segir ótrauður eitt grand þótt eitt- hvað vanti upp á tígulfyrirstöðuna. Eggert berst hetjulega í tvo spaða sem Skúli úttektardoblar. Þröstur breytir því í sekt og bíð- ur vongóður eftir útspilinu. Skúli er hins vegar ekki á skots- kónum þegar hann velur tígulsex- una. Þrátt fyrir gott útspil er Eggert ekki alltof ánægður með blindan. Hann drepur heima á gosann og ræðst á trompið. Skúli gætir ekki að Þröstur Ingimarsson. sinni sér, lætur lítiö og Þröstur lendir inni á tíuna. Nú er fátt um fina drætti en Þröstur bjargar sér í horn með því að spila hjarta- tvisti, lítið, drottning og kóngur. Eggert spilar tígli, Þröstur gefur, kóngur og Umsjón Stefán Guðjohnsen tían. Enn kemur tromp, gosinn, lauf og sjöiö. Skúli spilar hjarta og Þröstur fær tvo slagi þar. Tveir í viðbót á tromp gera einn niður. Og hinn banvæni 200-kall er Þrastar. Enn einn toppur í safnið og tit- illinn nálgast. Skákþing Islands á Akureyri: Islandsmeistari í fimmta sinn Kapphlaup stórmeistaranna Jó- hanns Hjartarsonar og Hannesar Hlífars Stefánssonar á Skákþingi ís- lands lyktaði með sigri Jóhanns eft- ir óvænt tap Hannesar fyrir Jóni Viktori Gunnarssyni undir lok mótsins. Jóhann varð þar með skák- meistari íslands i fimmta sinn. Sig- ur hans var verðskuldaður en alls ekki áreynslulaus. í nokkrum ská- kanna var Jóhann hætt kominn en i styrkurinn og keppnisreynslan kom * þá að góðum notum. Jóhann hlaut 9,5 vinninga úr 11 skákum. Hann . vann átta skákir og gerði þtjú jafn- tefli - við Hannes Hlífar, Þorstein Þorsteinsson og Braga Þorfinnsson. i Hannes hlaut hálfum vinningi f minna - vann átta skákir eins og Jó- hann, en tapaði fyrir Jóni Viktori. Lokastaðan varð þessi: 1. Jóhann Hjartarson 9,5 v. 2. Hannes Hlífar Stefánsson 9 v. 3. ^1. Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson 7,5 v. 5. Jón Garðar Viöarsson 7 v. 6. Sævar Bjarnason 5,5 v. 7. Þorsteinn Þorsteinsson 5 v. (8.-9. Arnar Þorsteinsson og Bragi Þorfinnsson 4,5 v. 10. Rúnar Sigurpálsson 3 v. 11.-12. Áskell Örn Kárason og Gylfi Þórhallsson 1,5 v. Stystu skák mótsins tefldu Jónarnir tveir, sem slíðruðu sverð- in eftir aðeins fimm leiki. Þetta dugði þeim báðum til þess aö hreppa áfanga að titli alþjóðlegs meistara. Jón Garðar náði 2. áfanga af þremur en Jón Viktor, sem er að- eins 17 ára gamall, krækti í fyrsta áfanga sinn. Þess verður áreiðan- lega ekki langt að biða að þeir skarti nafnbót alþjóðlegs meistara. Taflmennska Jón Viktors vakti sér- staka athygli en auk þess að leggja Hannes að velli átti hann lengi góða stöðu gegn Jóhanni þótt hann hefði tapað taflinu um síðir. Jón Viktor tapaði aðeins einni annarri skák, fyrir Þresti Þórhallssyni. Jón Garð- ar tapaði fyrir stórmeisturunum þremur og leyfði tvö jafntefli að auki. Sævar hlaut 50% vinningshlutfall en vinningar hans skiptust einkenn- ilega: Hann tapaði fyrir fimm efstu mönnum mótsins, gerði jafnt við Þorstein, en vann fimm neðstu! Þor- steinn er nýverið aftur kominn á ís- lenska skáksviðið eftir sænskar langdvalir og stóð fyrir sínu. Bragi er ungur að árum og hefur eflaust öðlast dýrmæta reynslu. Um aðra keppendur verður ekki fjölyrt nema hvað Áskell Örn, sem verið hefur í stöðugri framfór síðustu ár, tefldi nú langt undir getu. Mótið þótti fara mjög vel fram að öllu leyti. Skákstjóri var Þráinn Guðmundsson. Skoðum tvær skákir úr næstsíð- ustu umferð. Fyrst mikilvæga skák Jóhanns við Jón Garðar. Með vinn- W Skúli Helgason útvarpsmaður: Spilar gömul lög með Björk - sem hafa aldrei áður heyrst í útvarpi „Þessi fornleifagröftur byrjar næstkomandi sunnudag (á morgun). i Það hafa verið að fmnast upptökur með Björk sem hafa aldrei heyrst í útvarpi. Þetta eru upptökur frá 1979 I og 1980, áður en hún söng með Tappa tíkarrass. Ég hef fengið leyfi til að nota þær í þessum þætti,“ seg- ir Skúli Helgason útvarpsmaður. ' Skúli ætlar að spila merkileg lög með Björk í þætti sínum á morgun og næstu fimm sunnudaga. „Þessar upptökur voru geymdar og menn hrósa happi yfir því núna. Það er ætlunin að spila þessi lög hennar og vera með ýmsa þema- punkta út frá þeim, m.a. fjalla sér- staklega um textagerðina og áhrifa- valda á tónlist hennar. í þessum fyrsta þætti verður fjallað um æsku- ár hennar og alls konar skemmtileg- ar sögur af því sem hún var að bralla sem krakki," segir Skúli. -RR ingi nánast tryggði Jóhann sér ís- landsmeistaratitilinn en hann þurfti að beita hárflnum „Ulf And- ersson" aðferðum. Á taflinu sannast enn hið fornkveðna að einfaldar stöður eru sjaldan eins einfaldar og þær líta út fyrir að vera. í sömu umferð gerði Akureyring- urinn Rúnar Sigurpálsson mikla lukku meðal áhorfenda með því að leggja stórmeistara að velli með til- þrifum. Hvítt: Jóhann Hjartarson Svart: Jón G. Viðarsson Drottningarindversk vöm. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3 Bb7 5. Bg2 Bb4+ 6. Bd2 Bxd2+ 7. Dxd2 0-0 8. Rc3 Re4 9. Rxe4 Bxe4 10. 0-0 d5 11. Df4 Dd6 12. Hacl Ra6 13. cxd5 Dxf4 14. gxf4 Bxd5 15. Re5 Bxg2 16. Kxg2 c5 17. dxc5 Rxc5 18. b4 Ra6 19. Rc6 f6 20. a3 Hf7 21. Hc4 Hd7 22. Hfcl He8 23. c3 Hc7 24. Kf3 h6 25. h4 Kh7 26. Rd4 Hec8 27. Hxc7 Hxc7 28. Hc6 e5 29. fxe5 fxe5 30. Hxc7 Rxc7 31. Rc6 Kg6 32. Rxa7 Kf5 33. e4+ Kf6 34. a4 Ra6 35. a5 bxa5 36. bxa5 g6 37. Rb5 Ke6 38. Kg4 Rc5 39. f3 Kf6 40. Rc7 h5 41. Kg3 og svartur gafst upp. Hvítt: Rúnar Sigurpálsson Svart: Þröstur Þórhallsson Drottningarpeðsbyrjun. 1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. e3 e6 4. Bd3 b6 5. 0-0 Bb7 6. c3 Rc6 7. Hel Dc7 8. Rbd2 d5 9. h3 Be7 10. Da4 0-0 11. dxc5 bxc5 12. e4 Had8 13. exd5 exd5 14. Rfl d4 15. Bb5 dxc3 16. bxc3 Rd5 17. Bd2 Bf6 18. Hacl Re5 19. Rxe5 Bxe5 20. Dh4 a6 21. Ba4 Bf4 22. Bc2 g6 23. Bxf4 Rxf4 24. Re3 h5 25. Hbl Ba8 26. Df6 Hfe8 27. Bb3 Be4 28. Hbdl Rd3? 29. Rd5! Bxd5 30. Hxe8+ Hxe8 31. Bxd5 Rf4 32. Bc4 a5 33. g3! Re6 34. Bxe6 fxe6 35. Dxg6+ KfB Skúll Helgason ætlar að spila göm- ul lög meö Björk sem hafa aldrei heyrst f út- varpi. 36. Dxh5 Dg7 37. Dxc5+ Kg8 38. Hd4 - Og Þröstur gafst upp. Haustmót TR Skráningu í árlegt haustmót Tafl- félags Reykjavíkur lýkur í kvöld kl. 20. Mótið hefst á morgun, sunnudag, kl. 14. Teflt verður í flokkum eftir Elo-stigum og er teflt á sunnudögum og miðviku- og fostudagskvöldum. Ellefu umferðir verða tefldar í öll- um flokkum. Umhugsunartími er 90 mínútur á 30 leiki og síðan 45 mín- Umsjón Jón LÁrnason útur til þess að ljúka skákinni. Síð- asta umferð verður tefld sunnudag- inn 19. október. Fyrstu verðlaun í A-flokki eru 65 þúsund, 2. verðlaun 35 þúsund og 3. verðlaun 20 þúsund. Teflt er í Faxa- feni 12.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.